Morgunblaðið - 30.05.1979, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 30.05.1979, Blaðsíða 31
 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 1979 31 w, Víkingur krækti í sín fyrstu stig Gunnar örn Kristjánsson (nr. 8) skorar annað mark sitt í leiknum í gærkvöldi. Þetta reyndist sigurmark Víkings. Ljósm. Emiiía. VÍKINGUR fékk sín fyrstu stig í 1. deildinni þegar félagið sigraði Þrótt á Laugardalsvellinum f gærkvöldi 2:1, eftir að staðan hafði verið 0:0 í hálfleik. Leikur- inn var allsæmilegur og sigur Vfkings sanngjarn. Lfklega verða Vfkingarnir um miðja deildina eins og undanfarin ár en eins og útlitið er benda lfkurnar til þess að Þróttarar verði að berjast á neðri helmingi deildar- innar þó að auðvitað sefof snemmt að slá nokkru föstu f þeim efnum. Þróttararnir hafa sýnt það að þeir geta leikið góða knattspyrnu þótt byrjun þeirra í mótinu lofi ekki góðu. Þróttararnir voru betri til að byrja með í gærkvöldi þótt ekki tækist þeim að skapa sér afger- andi tækifæri. En Víkingarnir fóru smátt og smátt að ná tökum á leiknum og voru rriun betri lengst af í fyrri hálfleiknum. Þeir fengu þrjú góð tækifæri til þess að skora og einu sinni munaði aðeins hárs- breidd að boltinn hafnaði í mark- inu. Það var á 30. mínútu að góð sóknarlota Víkings endaði með því að Óskar Tómasson sendi góða sendingu fyrir markið þar sem Hinrik Þórhallsson kom á fullri ferð og skallaði glæsilega að markinu. Boltinn small í þver- slánni og fór út á völlinn aftur þar sem Óskar Tómasson náði boltan- um en honum var brugðið innan teigs að því er manni sýndist helst en ekkert dæmt. Þróttararnir voru sprækari í byrjun seinni hálfleiks og munaði þá litlu að Halldóri Arasyni tæk- ist að skora með skalla en Sigur- jón víkingsmarkvörður varði vel. Á 8. mínútu seinni hálfleiks átti Sigurlás Þorleifsson gott skot að marki Þróttar en rétt framhjá. Mínútu síðar barst knötturinn fram völlinn til Óskars Tómasson- ar, sem skallaði laglega inn í eyðu til Sigurlásar. Hann ætlaði að leika inn að markinu en var felldur gróflega af Sverri Einars- syni og vítaspyrna réttilega dæmd og úr henni skoraði Gunnar Örn Kristjarisson af öryggi. Víkingarnir bættu svo við öðru marki á 21. mínútu s.h. Aftur var Óskar á ferðinni með góðan skalla bolta fyrir fætur Sigurlásar. Hann Víkingur- o,i Þróttur I brunaði upp að endamörkum vinstra megin og gaf fyrir markið og virtist engin hætta á ferðum en öllum að óvörum misstu varnarm- enn Þróttar af boltanum og Gunn- ar Örn kom á fullri ferð og tókst VESTMANNAEYINGAR vígðu í gærkvöldi nýjan grassvöll með leik við Keflvíkinga í 1. deildinni. Ekki gaf sá leikur mörk. Liðin skildu jöfn 0—0. Vestmanna- eyingar hafa því halað inn 3 stig í fyrstu tveimur leikjunum, og ekki fengið á sig mark. Keflvík- ingar hafa ekki heldur fengið á sig mark f deildinni, en þeir hafa heldur ekki skorað sjálfir. En tvisvar sinnum núll núll hafa gefið tvö stig. Þetta var leikur fárra tækifæra, en úti á breiðum vellinum gerðu bæði liðin heiðarlegar tilraunir til þess að leika knattspyrnu og tókst vel upp á köflum. Báðum aðilum var á hinn bóginn fyrirmunað að koma knettinum löglega í netið hjá andstæðingum enda þar til varnar snjallir markverðir, Þor- steinn Ólafsson hjá ÍBK sem mikil að pota boltanum í netið í erfiðri aðstöðu. Eftir markið sóttu Þróttararnir mun meira. Sóttu þeir allt hvað af tók en tókst aðeins að skora einu sinni. Það var á 81. mínútu að Páll Ólafsson fékk boltann inn í vita- teig vinstra megin frá Ágústi Haukssyni. Páll var í þröngri aðstöðu og bjóst Sigurjón mark- vörður við þrumuskoti en svo fór ekki, skot Páls var laflaust og sigldi neðst í hornið nær og kom Sigurjón engum vörnum við. Leikurinn var sem fyrr segir allsæmilegur, bæði liðin tóku spretti en slökuðu á þess á milli. Var mikill munur að sjá liðin leika á grasinu. Beztu menn Víkings í þessum leik voru Heimir Karlss- on, Óskar Tómasson og Sigurlás ánægja er að sjá hér aftur heima og Ársæll Sveinsson hjá ÍBV, sem leikur betur en hann hefur áður gert. Leikurinn var mjög jafn og úrslitin því harla sanngjörn. Öllu meiri broddur var þó í sókn Eyjamanna, þó að það dygði ekki til þess að snúa leiknum þeim í vil. Satt að segja voru tækifæri lið- anna svo fá að maður tók varla minnisbókina úr vasanum allan leikinn út í gegn. Fyrst brá maður bók og penna á loft þegar Ómar Jóhannsson „skoraði" en dómar- Þorleifsson, þótt hann gengi ekki heill til skógar, en hjá Þrótti voru þeir einna beztir Jóhann Hreið- arsson og Ársæll Kjartansson. Guðmundur Haraldsson dæmdi leikinn vel. — SS í STUTTU MÁLI: inn dæmdi markið ógilt vegna rangstöðu. Skömmu síðar átti Órn Óskarsson þrumugott langskot af um 40 metra færi sem Þorsteinn varði uppi í bláhorninu. í síðari hálfleik átti Ragnar Margeirsson gott skot á mark ÍBV en boltinn fór í stöngina utan- verða. Þá er ekki meira að finna i minnisbókinni, þetta var þannig leikur. Ágætir sprettir úti á vell- inum en tregt og dauflegt við mörkin. Lið Eyjamanna hefur komið nokkuð vel frá fyrstu leikjum sínum í deildinni þrátt fyrir mikl- ar hrakspár. Greinilegt er að leikmenn eru í góðri þjálfun og allt eins víst að þeir eigi eftir að bíta alvarlega frá sér í sumar og safna góðum siatta af stigum. Þeim hentar vel að vera vanmetn- ir. Tómas Pálsson er mjög frískur íslandsmótið 1. deild, Víkingur — Þróttur 2:1 (0:0). Mörk Víkings: Gunnar Örn Kristjarisson á 54. og 66. mínútu. Mark Þróttar: Páll Ólafsson á 81. mínútu. Gul spjöld: Heimir Karlsson Víkingi. Áhorfendur: 380. og snöggur og hefur glöggt auga fyrir leiknum. Þá átti Sveinn Sveinsson mjög góðan leik, þar fer leikmaður, sem lítið ber á en vinnur þeim mun betur. Keflvíkingar hljóta að hafa talsverðar áhyggjur af framlínu sinni, enda hefur hún ekki gert neinar rósir í vor. Annars er lið þeirra Suðurnesjamanna mjög jafnt og vinnur mjög vel. Ekki er ég í vafa um að þeir eiga eftir að ná sér á strik í deildinni í sumar. Bezti maður ÍBK í leiknum var Óskar Færseth, geysisnöggur og fljótur bakvörður, harður í vörn og mikill liðsauki í sókninni. Þá var Þorsteinn ólafsson öryggið sjálft í markinu. Flautuglaður dómari var Þor- varður Björnsson. — hkj. í STUTTU MÁLI: íslandsmótið 1. deild, Helgaf- ellsvöllur 29. maí, ÍBV — ÍBK 0:0 Gul spjöld: Gústaf Baldvinsson ÍBV. Áhorfendur: 789. Laugardalsvöllur 29. maí, Jafntefli í Eyjum i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.