Morgunblaðið - 10.02.1983, Blaðsíða 31
sitja, þær eru ekki teknar með inn
í dæmið, sem sagt reiknaðar á 0.
Þriðja dæmið, sem mér finnst
þó almesta hneykslið, það fjallar
um fæðingarorlof. Því er þannig
varið, að ef ég el barn í þennan
heim, kona sem er húsmóðir og
hefur ekki of mikið af peningum,
(en enginn gæti sagt með sanni, að
ég inni aðeins fáar stundir á ári,
þeir sem stjórna þessu, vita hvað
ég meina,) þá væri ég metin þurfa
3.300,00 kr. á mán. í 3 mán. frá
Tryggingastofnuninni.
Nú, vinkona mín, sem ynni úti
hálfan daginn, til að drepa tím-
ann, og hefði þar með fengið út-
hlutað svolitlum láglaunabótum,
hún ætti því pínulítið meira af
peningum en ég, hún væri metin
þurfandi fyrir 6.600,00 kr. á mán. í
3 mán. frá tryggingunum.
Önnur vinkona mín, sem ynni
úti allan daginn fyrir góðum tekj-
um og væri þess auk gift hálauna-
manni og hefði þess vegna nægt fé
milli handa, hún er dæmd þurf-
andi fyrir 9.900,00 kr. á mán. í 3
mán. frá Tryggingastofnun ríkis-
ins. Þetta var ákveðið í söium Al-
þingis íslendinga.
Kæru lesendur, hver þessara 3
kvenna, sem allar væru að vinna
sama verk fyrir þjóðarbúið, sem
sagt að geta af sér nýjan þjóðfé-
lagsþegn, munduð þið álíta að
þyrfti hæstu greiðsluna, sú sem
engin laun hefur eða hálauna-
manneskjan?
Það er nefnilega ekki öll vitleys-
an eins, hún byrjar með ýmsu
móti, strax við fæðingu. Ég get
ekki skilið hvers vegna konur,
hvar í stétt sem þær eru, fá ekki
allar sömu upphæð frá Trygg-
ingastofnun ríkisins (stofnun, sem
velti 3—5 milijörðum íslenskra
króna síðastliðið ár, eftir upplýs-
ingum forstjóra hennar nýverið í
útvarpinu) í fæðingarstyrk. Nóg
heyrir maður nú um fóstureyð-
ingar, sem er mikill skaði, að mínu
viti, svo fámennu þjóðfélagi, sem
við búum í.
Lifið í Guðsfriði.
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1983
spurt og svarad
Lesendaþjonusta MORGUNBLAÐSINS
Um áfengismál og önnur vímuefni
Eins og skýrt var frá í Morgunblaðinu, mun blaðið á næstunni birta spurningar og svör um
áfengisvaldamálið og önnur vímuefni. Lesendum Morgunblaðsins er gefinn kostur á því að hringja
inn spurningar um hvað eina, sem snertir þessi málefni og mun SAA hafa milligöngu um að afla
svara sérfróðra aðila til þessum spurningum. Þeir, sem hafa áhuga, eru beðnir að hringja í síma
10100 frá kl. 10—11 frá mánudegi til föstudags og verða þá spurningar teknar niður. Spurningar og
svör birtast síöan í Morgunblaðinu nokkrum dögum síðar. Hér fara á eftir spurningar og svör:
Hringiö f síma 10100 frá mánudegi til fóstudags
Getur afskiptasemi
haft neikvæð áhrif
á áfengisneyslu?
Er hugsanlegt að mikil af-
skiptasemi t.d. maka eða fjöl-
skyldu geti haft neikvæð áhrif á
áfengisneyslu og jafnvel leitt til
alkóhólisma?
Ingibjörg Kjörnsdóttir deildar-
stjóri í áfengisvarnardeild á HR
svarar:
Spurninguna skil ég á þann
veg, að spurt sé um það hvort
nöldur eða afskiptasemi með
líku lagi leiði til eða valdi alkó-
hólisma.
Svarið við því er einfaldlega
nei.
Ef drykkja einhvers er farin
að raska ró maka eða fjölskyldu
hans/hennar þá hefur reynslan
sýnt að nöldur leysir ekki það
mál. Það má reyndar bæta því
hér við, að mér vitanlega hefur
nöldur ekki leyst nokkurt mál.
Afskipti maka eða fjölskyldu af
óhófsdrykkju er vandaverk, sem
verður að taka á af staðfestu,
þekkingu og næmri tilfinningu
fyrir eðli málsins. Ef aðförin að
drykkjunni hefur ekki þessi ein-
kenni, heldur drykkjan einfald-
lega áfram áð þróast eftir sinni
vissu braut ef alkóhólismi er á
ferðinni. Nöldrið orsakar ekki
sjúkdóminn, en það læknar hann
heldur ekki. Nöldrið skapar
reyndar ákjósanleg skilyrði fyrir
þróun sjúkdómsins, því það gef-
ur þeim sem drekkur einhverja
þá handhægustu réttlætingu
sem um getur til að halda
drykkjunni áfram.
Berum sjálf ábyrgd
á því ef við
erum eyðilögð
Kona spyr:
Af hvaða áráttu er það sprott-
ið að alkóhólistar vilja eyði-
leggja ættingja sína?
Ingibjörg Björnsdóttir deildar-
stjóri áfengisvarnadeildar á HR
svarar.
Það er svo að heyra á spyrj-
anda, að hann gangi út frá því
sem gefnu að alkóhólistar hafi
þá sérstæðu áráttu að vilja eyði-
leggja ættingja sína, og hann
biður um skýringu á þessu.
Ég get því miður ekki tekið
undir það að allir alkóhólistar
séu með þessum einkennum. Það
kann þó að vera að alkóhólistinn,
sem spyrjandi er með í huga sé
með þessu sniði. Hvað skýring-
una áhrærir, þá þurfa að vera
borðliggjandi frekari upplýs-
ingar en koma hér fram, til að
hægt sé að fjalla um það tiltekna
mál.
Það sem mér finnst kjarni
málsins er það að spurningin
gefur til kynna að á ferðinni sé
ættingi sem telur lífi sínu og
heilsu ógnað af drykkjusjúkum
einstaklingi. Spyrjandanum vil
ég benda á að það eru til ráð til
að forða því, og fyrsta skrefið er
að leita sér fræðslu og leiðbein-
inga. Það gæti svo farið að skýr-
ingin umbeðna kæmi í leitirnar
um leið og þetta mál er kannað á
skipulegan hátt. Ég vil að lokum
bæta því hér við, að það er mín
lífsskoðun, að við hvert og eitt
31
berum sjálf ábyrgð á því ef við
erum eyðilögð, og ef það gerist,
þá höfum við vitandi vits eða
ekki gefið okkur á vald eyðilegg-
ingarinnar.
Alkóhólismi
á íslandi?
Forvitinn spyr:
Er alkóhólismi meiri á fslandi
en í öðrum vestrænum löndum?
Sigurður Gunnsteinsson dag-
skrárstjóri á Sogni svarar:
Nei. Engin ástæða er að ætla
að svo sé. Oftast heyrst gengið
út frá þeirri tölu að af hverj-
um 100 nýjum áfengisneytend-
um fái 10—12 alkóhólismus.
Slæmt er til þess að hugsa
að af hverjum 1000 fermingar-
börnum komandi vors, sem
byrja að neyta áfengis verði
u.þ.b. 120 alkóhólistar.
Boðskapur AA-
hreyfingarinnar
AA-félagi sendi okkur vísur,
sem hann kvað í samræmi við
boðskap AA-hreyfingarinnar.
Ilann gat ekki látið nafns síns get-
ið, vegna þeirrar reglu sem höfð er
um hönd í hreyfingunni, að gæta
nafnleyndar.
Góði guð ég þakka þér
að þú vakir yfir mér,
gæt þú mín og geym í dag
svo mér gangi allt í hag.
Gef að aldrei gleymist mér
að ganga svo að líki þér,
freistingarnar, fals og tál
forðist ég af lífi og sál.
Síðan aldrei geng ég einn,
enginn minni á götu steinn,
fram á veginn horfi hátt,
við hverja sál ég er í sátt.
GÓ.
Geriö
svo vel
að líta inn.
Utsölu-
markaður
i Kjörgaröi (kjallara)
í kjallara Kjörgarös.
Útsölumarkaðurinn
Góðar vörur á lágu verði
Sendum í póstkröfu
m 28640
Fatnaður fyrir alla fjölskylduna
Barnaúlpur verö frá kr. 390.
Dömuúlpur verö frá kr. 490.
Herraúlpur verö frá kr. 490.
Flauelsbuxur, stæöir 2—12, verö frá kr. 195.
Flauelsbuxur, stæröir 26—40, kr. 295.
Barnapeysur frá kr. 90.
Fulloröinspeysur frá kr. 150.
Vynilstígvél verö frá kr. 295.
Sokkar, vettlingar, húfur og margt, margt fleira. \
Skór á alla fjölskylduna — Mjög gott úrval.
Skartgripir í miklu úrvali