Morgunblaðið - 27.07.1983, Blaðsíða 1
44 SÍÐUR
168. tbl. 70. árg.
MIÐVIKUDAGUR 27. JÚLÍ 1983
Prentsmidja Morgunblaðsins
Næðingur leikur um
ríkisstjórn Begins
Jerúsalem. Washington og Beirút, 26. júlí. AP.
RÍKISSTJÓRN Menachem Begins
stórt í dag frammi fyrir hótunum úr
ýmsum áttum á þinginu. Þrátt fyrir
að kaldir vindar blésu um sæti
forsætisráðherrans bendir allt til
þess að samsteypustjórn hans tak-
ist að komast yfir erfiðleikana sem
að henni steðja. Mikill atgangur var
í þinginu í dag, þar sem reynt var
að Ijúka fjölda mála áður en
tveggja mánaða sumarleyfí hefjast.
Stjórn Begins hefur stuðning
64 þingmanna, en alls eiga 120
sæti á þinginu. Stuðningur við
stjórnina hefur farið minnkandi
á meðal almennings að undan-
förnu.
Grímuklæddir menn hófu í
morgun fyrirvaralausa skothríð í
háskóla araba í borginni Hebron
Hóta að loka
siglingaleiðum
Nikósíu, 26. júlf. AP.
HERSKIP fraka grönduðu í nótt
tveimur írönskum skipum á norðvest-
urhluta Persaflóa, að því er skýrt var
frá í fréttum írösku fréttastofunnar
INA.
Sagði að skipin tvö hefðu verið
hluti af lest flutningaskipa á flóan-
um á leið til hafnarinnar í Bandar
Khomeini er herskip íraka gerðu
árás á þau. Var tveimur skipanna
grandað, en hinum tókst að komast
undan.
Þá lýstu franir því yfir í dag, að
þeir hygðust loka Persaflóa fyrir
allri skipaumferð og taka fyrir allan
flutning olíu frá svæðinu haldi írak-
ar fast við þá ákvörðun sína að
hindra olíuflutninga írana.
Sagði Rafsanjani, talsmaður ír-
anska þingsins, í dag, að ef Frakkar
og aðrar þjóðir létu írökum vopn í té
myndu íranir ekki hika við að binda
enda á siglingaöryggi í Persaflóa.
„Slíkt er okkur mjög auðvelt,"
sagði Rafsanjani.
Talsmaður bandariska utanríkis-
ráðuneytisins sagði í dag, að Banda-
ríkjamenn væru staðráðnir í að
beita sér fyrir því að halda siglinga-
leiðum um Persaflóa opnum þrátt
fyrir hótanir frana. Hins vegar var
ekki frá því skýrt til hvaða ráða yrði
gripið til þess að framfylgja fyrir-
ætlununum.
á vesturbakka Jórdanár. Létu
þrír lífið í skothríðinni og 33
særðust. Þá var arabísk kona
drepin og önnur særðist í and-
ísraelskum mótmælum síðar í
dag í borginni Nablus. Féll hún
fyrir skoti ísraelsks hermanns.
Tveir ráðherrar ísraelsku
stjórnarinnar, þeir Yitzhak
Shamir utanríkisráðherra og
Moshe Arens varnarmálaráð-
herra komu í dag til Washington
til viðræðna við bandaríska ráða-
menn. Shamir sagði við komuna,
að ísraelar hefðu fullan hug á að
framfylgja samkomulaginu, sem
gert var við Líbani þann 17. maí
sl. og miðar að fullum yfirráðum
Líbana yfir eigin landi á ný. Til
harðra bardaga kom enn á ný í
austurhluta Líbanon í dag. Upp-
reisnarmenn innan PLO gerðu þá
enn eina tilraun til að umkringja
andstæöinga sína innan samtak-
anna með hjálp sýrlenskra her-
manna. Tilraunin mistókst, en
bardagar við bæinn Jdeita voru
mjög harðir. Bærinn er síðasta
vígi stuðningsmanna Arafats.
Járnbrautarslys
(Símamynd AP)
Mynd þessi er frá járnbrautarslysi, sem varö í borginni Avignon í
Frakklandi í gær. Einn lestarvagn fór út af sporinu með þeim afleiðing-
um að fjórir farþegar — allt Kanadamenn — létu lífíð og 23 slösuðust.
Reagan fjölgar her-
skipum við Nicaragua
Bað um hæli
í Danmörku
Neks«, Bomindarhólmi, 26. júlí. AP.
SKIPSTJORI 30 tonna pólsks
fískiskips bað í dag um pólitískt
hæli í Danmörku eftir að hafa
læst alla skipshöfn sína inni
undir þiljum og siglt einsamall
til Borgundarhólms, rúmlega
sólarhrings siglingu.
Við yfirheyrslu skipverj-
anna þriggja kom í ljós, að
þeir höfðu engan áhuga á að
fylgja fordæmi skipstjórans.
Þeir héldu því heimleiðis í dag
án hans.
Washington, Managua og Tctfucigalpa, 26. júlí. AP.
Á SAMA tíma og bandarísk herskip komu sér fyrir undan ströndunum
beggja vegna Mið-Ameríku var tilkynnt í Washington, aö umfang heræfínga
Bandaríkjamanna í Hondúras yrði aukið og þangað sendir alít að 4.000
hermenn síðar á árinu.
Enn einu herskipi Bandaríkja-
stjórnar, New Jersey, var í dag
beint til móts við stækkandi flota
hersins undan vesturströnd Nicar-
agua. Átta bandarísk herskip eru
þegar á þessum slóðum. Þá er
flugmóðurskipið Coral Sea reiðu-
búið að láta úr höfn í Napólí á
Ítalíu og halda til karabíska hafs-
ins, austan við Nicaragua.
Reagan Bandaríkjaforseti hélt á
miðnætti fund með blaðamönnum.
Að sögn almannatengslafuiltrúa
forsetans var litið á fundinn sem
kærkomið tækifæri forsetans til
að koma málum sínum á framfæri
í réttu samhengi. Fregnir af fundi
forsetans höfðu ekki borist er Mbl.
fór í prentun.
Málgagn stjórnar sandinista í
Nicaragua, Barricada, sagði Reag-
an Bandaríkjaforseta í dag vera
„hermangara". Vitnaði blaðið í
ummæli innanríkisráðherra
landsins, Thomas Borge, sem
sagði Bandaríkjamenn „ekki að-
eins ógna friði í Nicaragua, heldur
í Mið-Ameríku og öllum heimin-
um,“ með því að stefna herskipum
sínum að strönd landsins. Voru
þetta fyrstu opinberu viðbrögð
Nicaraguastjórnar við þeirri
ákvörðun Bandaríkjastjórnar, að
efna til heræfinga flotans undan
strönd landsins.
Richard Stone, sérlegur sendi-
fulltrúi Bandaríkjastjórnar í
Mið-Ameríku, hitti Ricardo de la
Espriella, forseta Panama, að
máli um helgina og ræddi við
hann um ástandið í Mið-Ameríku.
Neitaði hann að láta nokkuð uppi
um hvað þeim fór á milli. Stone
hóf ferð sína í Mexíkó, en hélt síð-
degis í gær áleiðis til Venezúela.
• •
Oldungadeild
samþykkir MX
Washin^ton, 26. júlí. AP.
Öldungadeild Bandaríkjaþings
gaf soint í kvöld grænt Ijós á fram-
leiðslu MX-fíauganna umdeildu þeg-
ar málið kom til atkvæðagreiðslu.
Reyndust 58 þingmenn samþykkir,
en 41 andvígur.
Sjá nánar á erlendri fréttasíðu á
bls. 20.
Frá fundi Reagans, Bush varaforseta og Kissingers um málefni Mið-
Ameríku í Hvíta húsinu á mánudag. (S(m«mynd ap>
Sovétmenn beita nýjum
vopnum í Afganistan
Nýju I)ehlí, 26. júlí. AP.
FREGNIR hafa borist af harðn-
andi bardögum á milli stjórnar-
hcrsins í Afganistan og frelsis-
sveitanna í síðustu viku. Voru
helstu átakasvæðin í Paghman og
Shomali héruðunum. Þá varð
sprengja, sem komið var fyrir af
frelsissveitunum, fímm manns að
bana í höfuðborginni Kabúl, að því
er haft var eftir vestrænum dipló-
mötum.
Harðastir urðu bardagarnir
19. og 20. júlí. Fóru stjórnar-
hermenn þá nánast eins og
stormsveipur um Shomali-
svæðið og kom víða til snarpra
átaka. Fylgdi flugherinn hernum
eftir í aðgerðum sínum. í þeirri
orrahríð skutu frelsissveitirnar
niður eina orrustuþotu stjórn-
arhersins, svo og þyrlu.
Þá bárust fregnir af hörðustu
átökum þessa árs í bænum
Ghazni, skammt suður af Kabúl.
Meira en 60 meðlimir frelsis-
sveitanna létu lífið þar þann 14.
júlí í stórárás hersins. Var þar
beitt áður óþekktri tegund
sprengjuhylkja, sem brenna allt
innan 15 metra fjarlægðar, þar
sem þau koma niður.
Þá sendi stjórnarherinn í síð-
ustu viku hóp fallhlífarher-
manna niður í Istaelf-héraðið til
þess að reyna að loka hóp frelsis-
sveitamanna inni. Sú tilraun
rann út í sandinn, þar sem boð
höfðu borist um aðgerðir hers-