Morgunblaðið - 08.08.1987, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 08.08.1987, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. ÁGÚST 1987 Myllubakkaskóli í Keflavík stækkaður og lagfærður Keflavík. FRAMKVÆMDIR standa nú yfir við að stœkka Myllubakkaskóla sem er barnaskólinn í Keflavík. Nýja viðbyggingin verður með 8 kennslustofum og sagði Vilhjálm- ur Ketilsson bæjarstjóri að stefnt Póstur og sími: Nýja gjald- skráin í gildi alls staðar í næstu viku væri að því að taka nýju viðbygg- inguna i gagnið næsta haust. Húsnæðisskortur skólans á und- anfomum árum hefur verið leystur með svokölluðum lausum kennslu- stofum sem eru þrír „kálfar" á skólalóðinni. Þetta verður því vænt- anlega síðasti veturinn sem þær eru notaðar. Guðmundur Sigurbergsson verk- taki átti lægst boð í gröft, fyllingu og girðingu í kringum grunninn, 1.413.490 kr. Alls bárust 4 tilboð í þennan þátt og voru þau öll Ktillega hærri en kostnaðaráætlunin sem var 1.358.165 kr. Á næstu dögum verður svo boðið út að steypa upp sökkul og í septem- ber verður svo sjálf byggingin boðin út. Gamia skólahúsið sem átti 35 ára vígsluafmæli á þessu ári er víða farið að láta á sjá og á það sérstaklega við um pússninguna á húsinu sem er farin að flagna af. Hefur af þessu stafað nokkur slysahætta þvi dæmi er um að 2 til 3 fermetrar hafi flagn- að af í einu. í sumar verður helmingur hússins lagfærður og á næsta ári á að ljúka viðgerð. _ gg Þetta verður síðasti veturinn sem lausu kennslustofurnar verða notaðar, en „kálfarnir" hafa leyst húsnæðisvandann að hluta til. Morgunblaðið/Bjöm Blöndal Framkvæmdir eru nú hafnar við að stækka Myllubakkaskóla og þessa dagana er verið að grafa grunninn að nýju viðbyggingunni. Pússningin utan á gamla skólahúsinu er víða illa farin og stór slysa- hætta af. Nú verður hún tekin af helming skólans og ný sett í staðin. MORGUNBLAÐINU hefur borist svohljóðandi athugasemd frá Póst- og símamálastofnuninni: „Vegna skrífa Helgarpóstsins 6. ágúst sl. um 25% leyniafslátt Póst- og símamálastofnunarinnar til íbúa dreifbýlisins er við hæfí að eftirfar- andi komi fram: Þegar gerðar eru eins miklar breytingar á gjaldskrá og urðu 1. júlí sl. tekur það talsverðan tíma að framkvæma allar þær breytingar sem gera þarf á símstöðvum um land allt. Til þess að notendur væru ekki látnir greiða of hátt gjald ákveðinn tíma var tekin ákvörðun um að gera strax allar aðrar breytingar en þær að taka upp þrískiptan taxta, þ.e. dagtaxta, kvöldtaxta og næturtaxta, en til þess þurfti búnað sem ekki var til nema fýrir stærstu símstöðvar í upphafi. Nú eru þessar breytingar langt komnar og er búist við að fram- kvæmdum við þær ljúki á öllu landinu í næstu viku. Þá verður alls staðar farið eftir gildandi gjaldskrá." Veröldin ’87: Drauma- íbúð Hófíar HÓLMFRÍÐUR Karlsdóttir mun á sýningunni Veröldin '87 í Laugardalshöll sýna íbúð, sem hún hefur innréttað og skreytt alveg að eigin smekk og vali. Á sýningunni, sem stendur frá 27. ágúst til 6. september 1987, mun fólk geta barið augum allt það sem við kemur heimilinu, þar sem aðaláhersla verður lögð á eldhús og bað. Undirbúningur sýningarinnar er á lokastigi og munu þar um 100 aðilar sýna vöru sína. Nær allt sýningarsvæðið er þegar selt og eru mörg fyrirtækjannna að kynna sínar vörur í fyrsta sinni. Eitt af aðalatriðum sýningar- innar er svokölluð „Draumaíbúð Hófíar". Hönnuð hefur verið rúm- lega 200 fermetra íbúð á tveimur pöllum með bflskýli, inni í aðalinn- ganginum og tók Hólmfríður að sér að velja inn í hana innrétting- ar og húsbúnað. Aðspurð sagðist Hófí vera búin að velja innrétting- ar og stærstu muni í húsið. Enn ætti hún eftir að útbúa bamaher- bergið og velja bflinn í bflskúrinn. Kvað hún það vera verulega erfítt að velja, það sem sér þætti falleg- ast. Hófí verður síðan í íbúðinni á ákveðnum tímum, meðan á sýn- ingunni stendur. Mun hún þar Jón Baldvin Hannibalsson fjármálaráðherra: Söluskattsundanþágnm verði fækkað enn frekar ÞAÐ er óhjákvæmilegt í okkar söluskattskerfi, þar sem eru margar undanþágur frá skatt- inum að upp komi erfið markatil- felli og verður ekkert við því gert nema undanþágur verði afnumd- ar með öllu,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson, fjármálaráðherra, á blaðamannafundi þegar hann var spurður álits á gagnrýni iðn- rekenda um að undanþágur frá söluskatti á matvæli mismunuðu fyrirtækjum i samkynja fram- leiðslu. Jón Baldvin sagði það vera stefnu ríkisstjómarinnar að fækka undan- þágum enn frekar en nú hefði verið gert og leggja söluskatt á öll mat- væli. Skattprósentan yrði þá samtímis lækkuð. „Menn geta ekki sagt í öðru orðinu að við búum við skattakerfí sem er óframkvæman- legt og býður upp á mjög viðamikil vanskil á álögðum söluskatti og hins- vegar að við gerum kröfu til þess að hafa mjög viðamikið undanþágu- Morgunblaðið/KGA Hólmfríður Karlsdóttir og Guðmundur Jónsson framkvæmdastjóri sýningarinnar Veröldin ’87. upplýsa um það hvar viðkomandi vörur fást og hvert verð þeirra er. Meðal annarra nýjunga á sýn- ingunni má nefna sérstaka leiser- sýningu, sem breskt sérhæft fyrirtæki mun standa fyrir. Kaupstefnan hf. stendur fyrir sýningunni Veröldin ’87. kerfí. Þetta tvennt fer ekki saman. Tekjujöfnunaráhrif skattakerfísins eiga miklu fremur að koma á út- gjaldahlið með beinum greiðslum til þeirra hópa sem þarfnast aðstoðar, t.d. bammörgum fjölskyldum og tekjulægstu hópa. Varðandi þá gagnrýni að þessar undanþágur núna feli í sér mismun- un milli atvinnugreina er það að segja að það er eðli allra undan- þága. Ef menn vilja hafa hlutlaust skattakerfí ber það að vera undan- þágulaust.“ Flateyj arkirkja: 60 ára vígslu- afmælis niiimst Stykkishólmi. HÁTÍÐARMESSA var haldin I Flateyjarkirkju á Breiðafirði sunnudag- inn 26. júlí sl. Veður var hið ákjósanlegasta, sól og andvari og umhverfið tjaldaði sínu fegursta. Þar voru mættir prestarnir séra Gísli H. Kolbeins, sóknarprestur í Stykkishólmi, Bragi Benediktsson, sóknarprestur á Reykhólum, og Sigurður Kr. Sigurðsson, guðfræði- nemi, sem í sumar starfar með prestum Mýra-, Borgarfjarðar-, Dala- og Snæfellsnessóknum. Tilefni þessarar hátíðarguðsþjón- ustu var að minnast þess að 60 ár eru liðin síðan Flateyjarkirkja var byggð og vígð en það var 26. desem- ber 1926 og einnig hins að 65 ár eru síðan Kirkjan í Flatey hvarf úr bændaeign sem hún hafði verið um aldir og söfnuðurinn tók formlega við henni. Um þær mundir var sókn- arprestur í Flatey séra Halldór Kolbeins sem þjónaði Flateyjarsókn til ársins 1926, var búið að vinna að því máli um skeið en séra Hall- dór beitti sér fyrir framkvæmd málsins og fékk á safnaðarfundi á Bijánslæk árið 1921 samþykki fyrir þessari breytingu. Með því að sóknin var orðinn formlegur aðili kirkjunnar og kirkjan var orðin það hrörleg að hún þjónaði ekki sínum tilgangi, bæði hvað stærð og rými tilheyrði, var þegar farið að huga að smíði nýrrar kirkju og eins að velja henni stað annarstaðar, eða þar sem hún stendur nú og er mikil prýði eyjar- innar. Reikningshald kirkjunnar hefst svo árið 1922. Á þessum árum var fíölmennt á þeirra tíma mæli- kvarða í Flatey, verslanir 4 eða 5 og póstur sér á bát og síminn eins, en hann byggðist á talstöðvarþjón- ustu milli Flateyjar og Stykkishólms, en verslun og atvinna var góð og má einnig geta þess að athafnamað- urinn Guðmundur Bergsteinsson stóð þá bæði í miklum framkvæmd- um og var sjálfskipaður foringi eyjamanna og mun hans starfsævi lengi minnst af þeim sem til þekktu og nutu. Verulegur skriður kemst svo á byggingu kirkjunnar um 1925. Þá var Sigvaldi Kaldalóns skipaður héraðslæknir í Flatey snemma árs 1926 og um það leyti kom séra Sig- urður Einarsson þangað sem prest- ur. Mæddi mjög á þeim félögum, en Sigvaldi var organisti í kirkjunni, að koma þessu kirkjubyggingarmáli í höfti. Þeir héldu meðal annars skemmtanir með söng og öðru góði ívafí til öflunar fíár og kunnugir menn hafa sagt fréttaritara Morgun- blaðsins að nettótekjur af tveim þannig fíáröflunum hafi verið tals- vert á þriðja hundrað krónur og jafnvel meira en öll sóknargjöld þessa árs og því miklir fjármunir sem skiluðu byggingunni langt. Og því var hægt að vígja kirkjuna á þeim tíma sem fyrr segir. Það mun vera staðreynd að við kirkjuvígsluna hafí Sigvaldi leikið í fyrsta sinn opinberlega eitt af sínum snilldarlögum: Kirkjan ómar öll, við ljóð Stefáns frá Hvítadal. Og um það leyti samdi hann lagið ísland ögrum skorið og eru menn ekki sammála um hvort hann hafi einnig leikið það þá, eða um áramótin. Hitt er vitað að ekki var Sigvaldi lengi búinn að vera í Flatey þegar honum var hugs- að til Eggerts Ölafssonar og örlaga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.