Morgunblaðið - 20.01.1988, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B
15. tbl. 76. árg.
MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 1988
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Fundur fulltrúa Sovétríkjanna og Israels:
Ræða heimsókn
ísraelskrar sendi-
nefndar til Moskvu
Moskvu, Reuter.
SOVÉSK stjómvöld upplýstu í
gœr að fram fæm viðræður við
Israela um heimsókn ísraelskra
embættismanna til Sovétríkjanna,
hinnar fyrstu i tvo áratup.
Gennadíj Gerasímov, talsmaður
sovéska utanríkisráðuneytisins,
sagði að á dagskrá fundar fulltrúa
ríkjanna, sem fram fór í Helsinki í
gær, hefði verið tímasetning heim-
Morðið á Palme;
Maðurmn sem
grunur féll
á látinn
laus eftir
yfirheyrslu
Stokkhólmi, Reuter.
SÆNSKA lögreglan yfirheyrði í
gær mann, sem áður hafði verið
í haldi vegna morðsins á Olof
Palme, og sleppti honum að því
loknu. Lögfræðingur mannsins,
sagði í sjónvarpsviðtali að spura-
ingar lögreglunnar hefðu verið
i „viðaukaskyni“ og að hann
gæti ekki skýrt frá efni þeirra
að skipan saksóknara.
Svíinn var handtekinn tveimur
vikum eftir að forsætisráðherrann
sænski var veginn þar sem hann
gekk heim á leið eftir kvikmyndsýn-
ingu ásamt konu sinni Lisbet, hinn
28. febrúar 1986.
Þegar maðurinn var handtekinn
lýsti lögreglan honum sem áköfum
hægrisinna, sem hefði verið haldinn
óbeit í garð Palme. Sagt var að
vitni hefðu séð hann í grennd við
morðstaðinn.
Manninum var haldið í átta daga,
en að því loknu hélt saksóknarinn
í málinu blaðamannafund, þar sem
hann hreinsaði manninn af öllum
áburði.
sóknar embættismanna ísraelska
utanríkisráðuneytisins til Moskvu.
Tilgangur heimsóknarinnar verður
að sögn Gerasímovs að „kynnast
störfum ísraels-deildar hollenska
sendiráðsins í Moskvu" — en hlut-
verk hennar er að gæta ísraelskra
hagsmuna í Sovétríkjunum og hefur
svo verið undanfarið 21 ár. Árið
1967 slitu Sovétríkin stjómmála-
sambandi við ísrael til þess að sýna
samstöðu með arabaríkjunum í stríði
þeirra gegn ísrael.
Gerasímov gaf þó í skyn að heim-
sókn þessi væri ekki forleikurinn að
upptöku stjómmálasambands
ríkjanna. Sagði hann það hafa verið
ítrekað í Helsinki að slíkt væri háð
því skilyrði að lausn yrði fundin á
vanda Miðausturlanda.
Sovétríkin og ísrael áttu síðast
fund í Helsinki í ágúst á síðasta
ári, en honum var slitið eftir einn
og hálfan tíma. Sovétmenn segja
ástæðuna vera þá að fulltrúar ísra-
ela hafí krafíst þess að ræða mál
þeirra gyðinga í Sovétríkjunum, sem
flytjast vilja á brott.
A síðasta ári vom nokkrar vanga-
veltur um hvort Sovétmenn hygðust
taka upp stjómmálasamband við
ísrael að nýju, en eftir fundinn í
Helsinki vom þau mál öll mjög í
lausu lofti.
Nicaragua:
Reuter
Bannað að senda hjálpargögn
til Palestínumanna
Yitzhak Rabin, vamarmálaráðherra ísraels,
bannaði í gær flutninga á matvælum til Pal-
estinumanna á hernumdu svæðunum. ísraelskir
hermenn snem tii baka lest flutningabíla á
Gaza-svæðinu, en starfsmenn Sameinuðu þjóð-
anna fengu að flytja hjálpargögn til um 200.000
Palestínumanna sem hafast þar við í flótta-
mannabúðum. Víða vom róstur á vesturbakkan-
um og sýnir myndin hvar ungur Palestínumaður
er borinn meðvitundarlaus á brott eftir að hafa
verið sleginn i rot af israelskum hermönnum í
Amari-flóttamannabúðunum eftir að hann kast-
aði eldsprengju að þeim.
Kontrar fallast á beinar fríð
arviðræður við sandínista
Miami, Reuter.
LEIÐTOGAR Kontra-skæmliða
féllust í gær á að hafa beinar
friðarviðræður við sandinista-
stjórnina í Managua og einn
háttsettur kontra-skæmliði sagði
að viðræður um hvernig stöðva
mætti hina sex ára löngu borg-
arastyijöld í landinu myndu
hefjast i næstu viku í Costa Rica.
Leiðtogar kontranna sögðust þó
setja það skilyrði fyrir viðræðun-
um að sandinistastjórnin sleppti
úr haldi fimm stjórnarandstöðu-
leiðtogum, sem hnepptir vom í
varðhald í gær.
í yfírlýsingu, sem gefín var út í
Miami í gær, sögðust kontrarnir
fallast á boð Daniels Ortegas, for-
seta sandínistastjómarinnar, um
beinar viðræður og sögðust myndu
halda einkafund með kardínálanum
Norðmenn óttast aukna spennu á Norðurhöfum:
Ný kafbátalægí á Kóla-skaga
Ósló, Reuter.
Norðmenn segja að ný kafbátalægi Rauða flotans fyrir risakaf-
báta af gerðinni Typhoon, rétt handaii landamæranna við Sovétrikin,
geri Sovétmönnum hægara að hæfa skotmörk í Norður-Ameriku
með langdrægum kjarnorkuflaugum sínum. Kafbátalægið, sem
sprengt er inn i bjarg, er i um 50 km fjarlægð frá landamæmnum
og komast sex Typhoon-kafbátar þar fyrir í einu. Þeir em stærstu
kafbátar í heimi — rétt tæpir tveir knattspyrnuvellir á lengd.
„Fullkomnari langdrægar kjam-
orkuflaugar og stærri kafbátar hafa
gert Sovétmönnum kleift að at-
hafna sig mun meira í hafínu við
heimahafnir sínar,“ sagði Eigil Eik-
anger, aðmíráll og yfírmaður
leyniþjónustu norska hersins, í sam-
tali við Reuters.
„Með meiri langdrægni flaug-
anna geta þeir nú hæft skotmörk
í Norður-Ameríku liggjandi við
hafnarbakkann. Þetta hefur aukið
hemaðarmikilvægi Ishafsins, Nor-
egshafs og annara Norðurhafa,“
sagði Eikanger.
Norðmenn, sem eru aðildarþjóð
Atlantshafsbandalagsins, fylgjast
grannt með kafbátaumferð Sovét-
manna út af ströndum Noregs sem
og öðrum hemaðarumsvifum Sovét-
manna á þessum slóðum. Kafbáta-
lægið umrædda er um miðja vegu
milli landamæra ríkjanna og Múr-
mansk, en á Kóla-skaga er ógrynni
flotastöðva, smárra og stórra, enda
hvergi í heiminum jafnmikill flota-
styrkur samankominn á einn stað.
Hinn 170 m langi Typhoon-
kafbátur hefur 20 kjarnorkuflaugar
af gerðinni SS-N-20 innanborðs, en
hver þeirra ber sex til níu kjama-
odda og dregur 8.300 km af mikilli
markvísi. Eikanger sagði að auk
þess væri einn kostur Typhoon-
kafbátanna sá að úr þeim væri
hægt að skjóta kjamorkuflaugum
í gegnum íshelluna á norðurskaut-
inu.
Eikanger taldi að í framtíðinni
myndu bandarískir árásarkafbátar
DOD
Typhoon er um 170 m á lengd,
25 m á breidd og ber 20 lang-
drægar kjarnorkuflaugar.
sigla í auknum mæli um Noregshaf
til þess að geta lagt til atlögu gegn
eldflaugakafbátum Sovétmanna ef
til stríðs kæmi.
Abando y Bravo á fimmtudag í San
Jose, höfuðborg Costa Rica til und-
irbúnings viðræðunum.
Þessi yfírlýsing kontra-skæruliða
siglir í kjölfar hins óvænta tilboðs
Ortegas á laugardag um að hann
væri tilbúinn til beinna friðarvið-
ræðna, til þess að aflétta sex ára
löngu neyðarástandi og að veita
mörg þúsund pólitískum föngum
sakaruppgjöf.
Leiðtogar kontranna sögðu að
handtaka stjómmálamannanna
fímm væri skýrt dæmi um eðli
sandínistastjómarinnar. Þeir sögð-
ust þó vonast til þess að mönnunum
yrði sleppt að loknum yfirheyrslum
um meint samsæri þeirra gegn
stjóminni.
í yfirlýsingu kontra-skæmliða
gerðu þeir tillögu um tvíþættar við-
ræður í Costa Rica. Annars vegar
leggja þeir til að embættismenn
sandínista og kontra semji um
vopnahlé. Hins vegar fari fram að-
skilin umræða sandínista, kontra
og stjórnarandstöðunnar í Nic-
aragua um lýðræðisumbætur í
landinu. Samþykki Ortega ekki
seinni þátt tillögunnar sögðust
kontrar eigi að síður tilbúnir til við-
ræðna um vopnahlé.