Morgunblaðið - 20.01.1988, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 1988
23
Guido Ajmone-Marsan stjómandi.
Sinfóníuhljómsveit íslands:
Síðustu áskriftartón-
A
Dagvistarheimilið Kópasteinn
Fóstrur - starfsfólk
Fóstra eða starfsmaður óskast til uppeldisstarfa að dagvistarheimilinu Kópa-
steini v/Hábraut. Til greina kemur hlutastarf.
Upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 41565. Umsóknum skal skilað á þar
til gerðum eyðublöðum, sem liggja frammi á Félagsmálastofnun Kópavogs,
Digranesvegi 12, og einnig veitir dagvistarfulltrúi nánari upplýsingar um starfið
í síma 45700.
Félagsmálastofnun Kópavogs
leíkar á fyrra misseri
SÍÐUSTU tónleikar Sinfóníu-
hljómsveitar íslands á fyrra
misseri verða í Háskólabíói
fimmtudaginn 21. janúar nk.
Stjórnandi verður bandaríkja-
maðurinn Guido Ajmone-Marsan
og einleikari sellóleikarinn
Ralph Kirshbaum.
A efnisskránni verða verk eftir
þijá höfunda: Tvö verk fyrir litla
hljómsveit eftir Frederick Delius,
Sellókonsert eftir Edward Elgar og
að lokum Sinfónía nr. 41 (Júpíter)
eftir Mozart.
Stjómandinn Guido Ajmone-
Marsan stjómaði Sinfóníuhljóm-
sveit Islands fyrir nokkum árum
við góðan orðstír. Hann fæddist í
Torino á Ítalíu 1947, en er í dag
bandarískur ríkisborgari. Hann
lærði hljómsveitarstjóm í Rochesst-
er í Bandaríkjunum og í Róm á
Ítalíu. Hann hlaut viðurkenningar
fyrir góðan námsárangur í hljóm-
sveitarstjóm og klarínettleik og
síðar hlaut hann mörg verðlaun og
viðurkenningar í margvíslegum
tónlistarkeppnum. Hann hefur
stjómað mörgum þekktum sin-
fóníuhljómsveitum í Evrópu og
Bandaríkjunum. Hann hefur stjóm-
að hljómsveitum við óperuflutning
í Evrópu og Bandaríkjunum og um
tíma var hann einnig aðalstjómandi
sinfóníuhljómsveitar í Hollandi og
síðar tónlistarráðgjafi og aðal-
stjómandi IUinois hljómsveitarinnar
í Chicago. Hann er nú tónlistar-
stjóri ópemnnar í Essen í Þýska-
landi.
Einleikarinn á tónleikunum er
breski sellóleikarinn Ralph Kirsh-
baum. Hann er einn þeirra hljóð-
færaleikara sem sló í gegn í upphafi
ferils síns og síðan hefur hann gert
garðinn frægan í Evrópu og Banda-
ríkjunum með reglulegu tónleika-
haldi. í fyrra fór hann í tónleikaför
til Ástralíu og Nýja Sjálands. Hann
hefur eins og stjómandinn starfað
með mörgum þekktustu hljómsveit-
um heims.
Sellókonsertinn eftir Edward
Elgar heyrist ekki oft, en það er í
minnum haft, er Kirshbaum flutti
hann í breska sjónvarpinu fyrir
nokkrum árum. Hann hefur einnig
leikið ^jölmörg sellóverk á hljóm-
plötur. Sellóið, sem Kirshbaum
leikur á tilheyrði eitt sinn 19. aldar
sellósnillingnum Piatti.
Edward Elgar var Breti, fæddur
Ralph Kirshbaum sellóleikari.
um miðja 19. öld og Íést 1934, 76
ára að aldri. Eftir hann liggja tvær
sinfóníur og drög að þeirri þriðju,
fiðlukonsert og sellókonsert auk
nokkurra smærri verka.
Auk sellókonsertsins verða flutt
tvö lítil hljómsveitarverk eftir Fred-
erick Delius, sem fæddist eftir miðja
19. öld. Hann tók sér ýmislegt fyr-
ir hendur um dagana, ræktaði m.a.
appelsínur í Florida og þar hóf hann
aivarlega tónlistariðkun. Vegna af-
skipta Edwards Grieg, fékk Delius
leyfi foreldra sinna til að nema tón-
list í Leipzig og þar var fyrsta verk
hans, Florida, frumflutt. Hann
samdi fjölda tónverka, aðailega eft-
ir að hann settist að í Frakklandi
skömmu fyrir aldamót, þar sem
hann bjó tií dauðadags 1934. Hann
var talinn hafa mjög persónulegan
stíl, sem tók Evrópubúa nokkum
tíma að læra að meta.
Að lokum verður flutt Sinfónía
nr. 41, Júpíter, eftir Mozart, sem
óþarfi er að kynna fyrir tónlistar-
unnendum. Hún er talin ein þriðja
besta sinfónía hans. Hann skrifaði
hana á þremur mánuðum 1788. Á
þeim tíma var hann undir miklum
áhrifum frá Haydn og gætir þeirra
víða í Júpíter. Uppnefnið Júpíter
kom fyrst fram í Bretlandi og talið
er að það hafi fyrst birst í tónleika-
skrá á Edinborgarhátíðinni í
október 1819.
(Fréttatilkynning)
75 milljónir til fram-
kvæmda í Viðey
í fjárhagsáætlun Reykjavíkur- því yfir að lokið yrði við fram-
borgar fyrir árið 1988 er gert kvæmdir í Viðey fyrir 18. ágúst í
ráð fyrir 75 milljónum króna til sumar. Framkvæmdum hefur mið-
framkvæmda við Viðeyjarstofu að vel frá þ.ví borgin fékk eignina
og Viðeyjarkirkju. Á siðasta ári að gjöf á 200 ára afmæii sínu árið
var 41 milljón veitt til verksins 1986 en þær hafa jafnframt reynst
en upphafleg áætlun gerði ráð dýrari en upphaflega var gert ráð
fyrir 20 milljónum. fyrir, að söpi borgarstjóra. Því er
í ræðuDaviðsOddssonarborgar- hafður fyrirvari um framlag til
stjóra, við fyrstu umræðu um framkvæmda í Viðey á þessu ári
fjárhagsáætlun borgarinnar, kom fari svo að kostnaður kunni að reyn-
fram að Reykjavíkurborg hefði lýst ast meiri.
/’TIGCk
meiriháttar
tryllitæki!
Sænskur hágæðasleði með fjaðrandi stýris-
skíði og öryggisbremsum. Þú getur sveigt, beygt og
bremsað að vild. Stigasleðinn er níðsterkur og getur
því líka borið bæði pabba og mömmu!
Stýrisskiðið er með fjöðrum og sjálfupprúll-
andi dragsnúru á sumum gerðum. Skíðin
eru breið og stöðug og renna einstaklega
vel. Öryggisgrindin er úr sænsku gæðastáli.
Þrælöruggar hand og fót-
bremsur. Varnargrind fyrir
framan fætur úr sænsku
stáli.
Mér sérhönnuðum útbúnaði sveigir
sleðinn og stöðvast strax ef þú
missir hann. Allur sleðinn er hann-
aður með öryggið í fyrirrúmi í sam-
vinnu við fjölmarga barnasérfræði-
nga.
ÖRNINN
Spítalastíg 8 vió Óóinstorg símar: 14661,26888
\W'
Totlalækkun i
verðlækkun