Morgunblaðið - 27.04.1988, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 27.04.1988, Blaðsíða 1
56 SIÐUR B 94. tbl. 76. árg. MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 1988 Prentsmiðja Morgunblaðsins Pólland: Ný verkfalls- alda í upp- siglingu? Varsjá, Reuter. UM ÞAÐ bil 4.000 pólskir verka- menn í Lenín-stálsmiðjunni f Nowa Huta í Suður-Póllandi fóru f verkfall f gær, en það siglir f kjölfar yerkafalls opinbers verka- lýðsfélags f borginni Bydgozscz í fyrradag, en því lauk með þvf að yfirvöld féllust á 60% kauphækk- un. Það var fyrsta meiriháttar verkfall í Póllandi frá árinu 1981 og hafa embættismenn kommún- istaflokksins af þvf áhyggjur að f kjölfar þessarar undanlátssemi kunni að sigla ný verkfallsalda. Verkfallsmenn krefjast hærra kaups og vilja að fulltrúar Samstöðu, sem reknir voru eftir setningu her- laga í desembermánuði árið 1981, verði endurráðnir. Jerzy Urban, tals- maður stjómarinnar í Varsjá, stað- festi að verkfall væri í Lenín-stál- smiðjunni en sagði að aðeins 900 verkamenn ættu hlut að máli. Að sögn Samstöðu, hinna ólöglegu verkalýðssamtaka, var verkfallsund- irbúningur hafinn í Huta Stalowa Wola, þar sem 18.000 manns eru í vinnu, en tilefnið er brottrekstur tveggja Samstöðumanna, en þeir voru reknir fyrir að skipuleggja 5.000 manna mótmælafund. Sjá ennfremur frétt á síðu 23. Keuter Þór með klakagrímu Likneskl þetta af Ása-Þór er á Maríutorginu í Stokkhólmi, en eftir óvænt kuldakast i fyrrinótt bar þrumuguðinn þessa sérkenni- legu klakagrímu. Saudar ijúfa stjóm- málatenfifsl við Irani Ryadh, Reuter. Ryadh, __ STJÓRN Saudi Arabiu sleit í gær stjórnmálasambandi við íran og skipaði stjómarerindrekum þeirra að hafa sig á brott innan viku. „Saudí Arabia hefur ákveðið að slíta stjórnmálasambandi við íslamska lýðveldið Iran ... vegna óvinveittrar afstöðu þess gagnvart Konung- dæmi Saudi Arabiu og vísvitandi misgjörða, sem beint er gegn gmnd- vallarhagsmunum þess,“ sagði meðal annars í tilkynningu Saudí Arabiu. Samband Saudi Arabiu og írans hefur verið með stirðasta móti að undanförnu, en Saudar og bandamenn þeirra við Persaflóa hafa stutt yfirleitt íraka i hinni átta ára löngu styrjöld þeirra við írani. upp að nýju skömmu síðar sem ekk- ert sé.“ Samskipti ríkjanna versnuðu þó fyrst til muna í fyrra þegar til fjöldaóeirða kom í Mekku, helgasta vé múslima. Þá féllu 402 pílagrím- ar, að mestu leyti íranir. Saudar sökuðu írani um að hafa smyglað sprengiefni inn í landið þegar á árlegri pílagrímsheimsókn þeirra til Mekku stóð og sögðu þá hafa komið í því skyni að útbreiða trúarkenningar sínar og fremja hermdarverk. íranir vísuðu þessum ásökunum á bug. Síðastliðinn sunnudag réðust sex varðbátar írana á olíuskip á Persa- flóa, en það var í eigu Saudí Arabíu. í Lundúnum sagði Mahdi Varzi, sem er fyrrverandi stjómarerindreki írans, að Saudar hefðu vafalaust gripið til þessa ráðs til þess að koma í veg fyrir að atburðimir í Mekku endurtaki sig. Pílagrímsheimsóknir heflast í júlí. „Ég held að þetta sé mjög heppi- leg leið til_ þess að komast hjá því að veita Irönum vegabréfsáritanir og sneiða þannig hjá nýju blóðbaði," sagði Varzi. Hann sagði að ekki væri ólíklegt að stjómmálasamband yrði tekið upp stuttu eftir pílagríms- förina. „í Miðausturlöndum slíta ríki stjómmálasambandi og taka þau Varzi, sem er sérfræðingur í mál- efnum svæðisins og flytur einatt fyrirlestra um þau, taldi ólíklegt að atburður þessi hefði nokkur áhrif á fund OPEC-ríkja og olíuútflutnings- ríkja utan samtakanna, sem nú fer fram í Vín, en þar reyna ríkin að koma sér saman um framleiðslu- kvóta á olíu og leiðir til þess að halda olíuverði stöðugu, reynist ekki unnt að hækka það. Benti Varzi á að eftir óeirðimar í Mekku í fyrra hefðu ríkin haldið samráði sínu innan OPEC áfram, enda þótt heiftarlegar orðsendingar gengju á milli höfuð- borganna. Þingkosningar í Suður-Kóreu: Roh Tae Woo tap- ar þingmeirihluta Seoul, Reuter. SÍGA virtist ætla á ógæfuhliðina fyrir stjómarflokkinn í Suður-Kóreu þegar búið var að telja 80% atkvæða f þingkosningum þar eystra, sem fram fóru í gær. Miðað við þær tölur má ætla að alls beri hinn Lýðræð- islegi réttlætisflokkur Roh Tae Woo forseta aðeins sigur úr býtum í 85 kjördæmum af 224. Talið var að stjómarandstöðuflokkamir tveir og óháðir frambjóðendur myndu sigra í 136 þeirra, en engu var spáð um þau þrjú kjördæmi, sem þá em ótalin. Samkvæmt ríkissjónvarpsstöð Suður-Kóreu fær Lýðræðislegi rétt- lætisflokkurinn 38 uppbótarþingsæti að auki, en það nægir honum eigi að síður ekki til þess að ná þeim 150 sæta meirihluta sem þarf í þinginu, enda er 36 uppbótarsætum öðrum úthlutað til hinna flokkanna. Á þingi eru 299 þingmenn. Stjómarandstöðuflokkur Kim Dae Jung, Flokkur friðar og frelsis, vann mest á í kosningunum og kom sigur hans talsvert á óvart. Bendir allt til þess að hann verði stærsti stjómar- andstöðuflokkurinn, en til þessa hef- ur Sameingarflokkur Kim Young Sam verið þeirra stærstur. Stjómmálaskýrendur segja næsta víst að pólitísk ringulreið verði í Suður-Kóreu eftir kosningamar, þar sem stjómin muni sig hvergi geta hrært. 10 ára byltingarafmæli í Afganistan: Afganir hyggjast beijast til þrautar Kabúl, Reuter. HALDIÐ var upp á tíu ára af- mæli kommúnistabyltingarinnar í Afganistan í gær og hétu bæði skæruliðar og leppstjórn Sovét- manna þvi, að halda baráttunni áfram eftir brottför innrásar- hers Sovétríkjanna. Varnarmála- ráðherra landsins, Mohammed Rafi, sagði þjóðina vera lang- þreytta á stríðinu og friðarþurfi, en bætti við: „Her okkar er reiðu- búinn til þess að beijast fyrir friði og landi — við munum aldr- ei leyfa stjórnarandstöðunni að koma óþverraáætlunum sinum í framkvæmd." Harðorðar yfirlýs- ingar beggja aðila þykja litt til þess fallnar að auka friðarhorfur í landinu, en stríðið er talið hafa kostað tæpa eina og hálfa milljón Afgana lífið. I Kabúl var haldin mikil hersýn- ing og í heiðurstúkunni við hlið Najibullah forseta sat Vladímír Orlov, fyrsti aðstoðarforseti Rúss- neska ríkjasambandsins. Vakti það athygli vestrænna stjómarerind- reka að Sovétmenn skyldu ekki senda háttsettari fulltrúa til hátíða- haldanna. Fyrir einum og hálfum mánuði var skipaður nýr sendiherra Sovétríkjanna í landinu og var þá mál manna að hann væri einnig tiltölulega lágtsettur embættismað- ur. Velta vestrænir stjómmálaský- rendur í Moskvu nú vöngum yfir því hvort Sovétmenn hyggist draga úr samskiptum sínum við Afganist- an og hafa þau á svipuðu stigi og við önnur ríki þriðja heimsins. Á blaðamannafundi, sem skæm- liðaforinginn Gulbuddin Hekmatyar hélt í Peshawar í Pakistan, hét hann því að frelsisbaráttan myndi halda áfram og fordæmdi það sem hann kallaði „tortímingaráratug- inn“. Sagði hann að 1,3 milljónir Afgana hefðu fallið í stríðinu, 1,5 milljónir hefðu verið Hmlestar, 5 milljónir hefðu flúið land og 70% þess litla lands, sem hægt væri að yrkja, hefði verið lagt í eyði. Sjá ennfremur frétt á síðu 21. Kúrdar í Moskvu mót- rr mæla efnahemaði Iraka Moskvu, Reuter. KÚRDÍSKIR stúdentar í Moskvu fóru í kJukkustundarlanga mótmælagöngu um mið- borg Moskvu í gær. Hrópuðu þeir vígorð gegn Saddam Hussein íraksforseta og héldu á lofti myndum af brenndum og afskræmdum börnum, sem þeir segja vera fórnarlömb efnahernaðar fraka. Lögreglan leyfði stúdentunum að ganga frá Rauða torginu og frámhjá stjómarbyggingum á Moskvubökkum áður en þeir voru stöðvaðir. írak og Sovétríkin hafa með sér vináttusamning og Sovétmenn hafa selt írökum vopn í miklum mæli. í gær staðfestu embættismenn á vegum Sameinuðu þjóðanna að þeir hefðu rannsakað fólk í íran og frak, sem orðið hefði fyrir barðinu á efnavopnum. Að sögn stúdentanna voru þeir að minnast sorgardags, en í gær voru 40 dagar liðnir frá meintri efnavopnaárás íraka á Kúrdaþorpið Halabaja, sem er í austurhluta íraks og íranir hertóku í miðjum marsmánuði. Rannsóknarnefnd SÞ skýrði frá því í gær að fólk, sem þeir hefðu rannsakað í íran og írak, hefði greinilega verið fómarlömb efnavopna, aðallega sinnepsgass, en einnig hefðu nokkrir orðið fyrir taugagasi. Fjölmargir írananna vom óbreyttir borgarar, en allir frakanna vom her- menn. Notkun efnavopna er bönnuð samkvæmt Genfarsáttmálanum frá 1925. Niðurstaða nefnd- arinnar hefur verið afhent Öryggisráði SÞ til umfjöllunar. Reuter Nokkrir Kúrdanna á Rauða torginu, en í baksýn má sjá glitta í hluta kirkju heilags Basils.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.