Morgunblaðið - 25.06.1992, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 25.06.1992, Blaðsíða 1
56 SIÐUR B 141. tbl. 80. árg. FIMMTUDAGUR 25. JÚNÍ 1992 Prentsmiðja Morgunblaðsins Tóbaksfyrirtæki; Bótaábyrgð þrátt fyrir viðvaranir Washington. Reuter. Tóbaksfyrirtæki í Bandaríkj- unum urðu fyrir miklu áfalli í gær er hæstiréttur Bandaríkj- anna dæmdi með sjö atkvæðum gegn tveimur að reykingamenn gætu átt rétt á bótum fyrir heilsutjón af völdum reykinga þrátt fyrir viðvaranir á vind- lingapökkum. Hæstirétturinn hafnaði þeim röksemdum tóbaksfyrirtækja að lög frá 1965 og 1969 varðandi við- varanir á vindlingapökkum og í auglýsingum um að reykingar geti verið skaðlegar heilsu manna firrtu þá ábyrgð á heilsutjóni reykinga- fólks. Dómurinn getur haft afdrifarík- ar afleiðingar fyrir tóbaksfyrirtæk- in, sem eiga þegar yfir höfði sér 50 réttarhöld víðs vegar um Banda- ríkin og skaðabótakröfurnar nema milljónum dala. Menn, sem hafa barist gegn reykingum, hafa sagt að tóbaksfyrirtækin kunni að þurfa að greiða svo miklar skaðabætur að nokkur þeirra verði gjaldþrota. Bandarísk heilbrigðisyfírvöld áætla að árlega deyi um 400.000 manns í Bandaríkjunum af völdum reyk- inga. Hæstiréttur tók málið upp vegna dómsuppkvaðningar í New Jersey frá árinu 1988, þar sem tóbaksfyr- irtækinu Ligget Group Inc. var gert að greiða ættingjum konu, sem lést af völdum lungnakrabba 58 ára að aldri árið 1984, 400.000 dali í skaðabætur. Hún hafði reykt mikið í 40 ár. Skaðabæturnar voru ekki hærri þar sem dómstóllinn dæmdi að konan hefði sjálf borið 80% ábyrgðarinnar á sjúkdómnum vegna þess að hún hefði vitað um hættuna af reykingum. Dómstóll- inn tók hins vegar tillit til þess að tóbaksfyrirtækið auglýsti á sjötta áratugnum vindlinga sína sem „einmitt það sem læknirinn mælti með“. Reuter ísraeli opnar kampavínsflösku yfir dansandi fólki í veislu stuðningsmanna Verkamannaflokksins eftir að ljóst var að hann hafði borið sigurorð af Likud-flokknum í þingkosningunum á þriðjudag. EB: Samkomu- lag næst um vinnuvikuna Lúxemborg. Reuter. VINNU- og félagsmálaráð- herrar Evrópubandalagsins náðu samkomulagi um að takmarka vinnuvikuna við 48 stundir að meðaltali, á fundi sínum í Lúxemborg i gær. Stjórnarerindrekar sögðu að samkomulag hefði náðst um þetta í grundvallaratriðum en sérfræðingar þyrftu að leysa nokkur „tæknileg vandamál". Bretar höfðu haft fyrirvara um launþega, sem vildu auka- vinnu, og stjórnarerindrekarnir sögðu að tekið hefði verið tillit til sjónarmiða þeirra. Portúgal- ir, sem eru í forsæti í ráðherra- ráði Evrópubandalagsins, lögðu fram málamiðlunartil- lögu sem kom í veg fyrir álvar- legan ágreining milli aðildar- ríkjanna fyrir leiðtogafund bandalagsins í Lissabon síðar í mánuðinum. Yitzhak Rabin iofar að biása nýju iífi í friðarviðræður ísraela og araba: Yill veita Palestínumönnum sjálfstiórn innan níu mánaða Jerúsalem, Kaíró, Lundúnum. Reuter, The Daily Telegraph. Verkamannaflokkurinn I ísrael vann óvæntan sigur í þingkosning- unum á þriðjudag og leiðtogi hans, Yitzhak Rabin, lofaði í gær að blása nýju lífi í viðræðurnar um frið í Miðausturlöndum og bæta samskipti ísraela við Bandaríkjastjórn. „Forgangsverkefnið er að veita Palestínumönnum á [hernumdu] svæðunum sjálfstjórn," sagði Rabin. Viðbrögð arabaleiðtoga voru blendin, nokkrir þeirra létu í [jós þá von að sigur Verkamannaflokksins yrði friðarumleitunum til framdráttar en aðrir sögðu það litlu breyta þótt Verkamannaflokkur- inn myndaði nýja stjórn í stað Likud-flokksins. Sigur Verkamannaflokksins er mikið áfall fyrir Yitzhak Shamir, forsætisráðherra og leiðtoga Likud- flokksins, sem gaf til kynna þegar úrslitin lágu fyrir að hann myndi setjast í helgan stein bráðlega. Þegar öll atkvæði höfðu verið talin í gær - nema atkvæði her- manna sem ekki eru talin breyta úrslitunum - voru Verkamanna- flokkurinn, aðrir vinstriflokkar og flokkar araba með alls 62 þingsæti af 120 á ísraelska þinginu. Likud- flokkurinn og bandamenn hans til hægri fengu 58 þingsæti. Þar af fékk Likud aðeins 32 sæti, sem er mesta kosningaafhroð flokksins frá 1969. Verkamannaflokkurinn fékk Mestu skógareld- ar í sögu Noregs Ósló. Frá Jan Gunnar Furuly, fréttaritara Morgunblaðsins. MIKLIR hitar og metþurrkar í suðurhluta Noregs hafa leitt til mestu skógarelda í sögu landsins. Samkvæmt könnun norska dagblaðsins Aftenposten hafa 14 ferkílómetrar af skóglendi orð- ið eldunum að bráð og sérfræðingar óttast að talan eigi eftir að hækka i 30 ferkilómetra. Eldarnir munu ekki hafa valdið manntjóni en timburvöruverk- smiðja og fjöldi íbúðar- og sumar- húsa hafa eyðilagst. Veðurfræðingar segja að hit- arnir og þurrkarnir undanfarna tvo mánuði séu þeir mestu í Nor- egi frá árinu 1947. Methiti var í maí og í suðausturhluta landsins hefur verið lítil sem engin úrkoma í allt sumar, þannig að skógarnir eru skrælþurrir og eldhættan mik- il. Slökkviliðsmenn hafa átt í bar- áttu við elda á stóru svæði í suður- hlutanum frá því í lok maí og hafa þyrlur óspart verið notaðar við slökkvistarfið. Fimm þyrlum var til að mynda beitt til að slökkva einn skógareldanna. Hver þyria getur dælt allt að 70 tonnum af vatni á skógana á klukkustund. „Þyrlurnar hafa gefist frábær- lega. Án þeirra hefðum við verið því sem næst hjálparlausir," sagði Káre Walin, varaslökkviliðsstjóri í bænum Notodden. Slökkvistarfið er dýrt og mikill fjárhagslegur baggi á litlum sveitarfélögum. Reynt að slökkva skógareld skammt frá bænum Notodden í suður- hluta Noregs. Miklir skógareldar hafa geisað í Noregi undanfarn- ar vikur vegna methita og þurrka. Slökkviliðsmennirnir þurfa oft að toga slöngurnar mörg hundruð metra að eldunum. hins vegar 45 sæti, var með 38 eins og Likud. Lokið verður við að telja atkvæði hermanna á morgun, föstu- dag, og úrslitin líklega tilkynnt í næstu viku. Forsíðufyrirsagnir ísraelskra dagblaða lýsa vel viðbrögðunum í ísrael. „Landskjálfti" var fyrirsögn- in í dagblaðinu Hadashot og „bylt- ing“ í Yedioth, útbreiddasta dag- blaðinu. Rabin spáði því að sér tækist að mynda samsteypustjórn á þremur til fimm vikum, hugsanlega með einhveijum af flokkum heittrúaðra gyðinga. Hann kvaðst vilja semja um sjálfstjórn Palestínumanna á hernumdu svæðunum innan níu mánaða og lofaði að blása nýju lífí í friðarviðræðurnar við araba. Jam- es Baker, utanríkisráðherra Banda- ríkjanna, kvaðst vilja að viðræðurn- ar hæfust fyrir lok júlí. Palestínumenn á hernumdu svæðunum fögnuðu almennt sigri vinstriflokkanna. Yasser Arafat, leiðtogi Frelsissamtaka Palestínu- manna, sagði að ísraelar hefðu „greitt atkvæði gegn stríði og hryðjuverkum“ svo stjórn Verka- mannaflokksins gæti „unnið í þágu friðarins". Samningamenn Egypta, Líbana og Palestínumanna sögðu að úrslitin lofuðu góðu fyrir friðar- umleitanirnar en Sýrlendingar, embættismenn Arababandalagsins og leiðtogar róttækra Palestínu- manna og múslimahreyfinga sögðu það litlu breyta þótt Rabin tæki við af Shamir. Sjá umfjöllun um kosningarn- ar á bls. 20.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.