Morgunblaðið - 09.03.1993, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 09.03.1993, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. MARZ 1993 Forseti Litháens í heimsókn til íslands Verður fyrsta erlenda heimsókn forsetans FORSETI Litháens, Algirdas M. Brazauskas, kemur í vinnuheim- sókn til íslands daganna 17.-19. mars n.k. Hér mun hann hitta Fékk vist- un á Sogni ÓSAKHÆFI afbrotamaðurinn sem í síðustu viku var vistaður í fangageymslum Iðgreglunnar hef- ur nú verið vistaður á réttargeð- deildinni á Sogni í Ölfusi. Eins og skýrt var frá í Morgun- blaðinu var maðurinn vistaður í fangageymslum, þar sem geðdeild Landspítalans neitaði að taka við honum og ekki var pláss fyrir hann á réttargeðdeildinni á Sogni. Til stóð að vista hann á geðdeild Fjórðungs- sjúkrahússins á Akureyri nú eftir helgina, en áður en til þess kom leyst- ist málið og á laugardag komst hann að á Sogni. ýmsa ráðherra og aðra ráðmenn að máli en unnið er að skipulagn- ingu heimsóknarinnar í forsætis- ráðuneytinu. Að sögn Ólafs Dav- íðssonar ráðuneytisstjóra forsæt- isráðuneytinsins er þetta fyrsta erlenda heimsókn forsetans og mikill heiður fyrir íslendinga að landið skuli hafa orðið fyrir val- inu. Það er Guðmundur Benediktsson fyrrverandi ráðuneytisstjóri sem vinnur að skipulagningu heimsókn- ar Brazauskas. Guðmundur segir að dagskráin liggi ekki alveg fyrir en forsetinn hefur lagt fram óskir um þá menn sem hann vill hitta að máli og verið sé að vinna að málinu. „Brazauskas mun eiga við- ræður við íslenska stjómmálamenn meðan á heimsókn hans stendur," segir Guðmundur. „Hinsvegar er ekki alveg búið að ganga frá dag- skránni því sambandið við Litháen er slæmt sem stendur og samskipt- in verða því að fara í gegnum sendi- ráð okkar í Kaupmannahöfn." Morgunblaðið/Ámi Sæberg Kraftapar UNNUR Sigurðardóttir, ný- krýnd sterkasta kona íslands, heldur hér á Magnúsi Ver Magn- ússyni, sem hlaut titilinn Steina- kóngur íslands. VEÐURHORFUR I DAG, 9. MARS YFIRLIT: Norður af Jan Mayen er 980 mb lægð sem hreyfist austnorð- austur. A Grænlandshafi er 989 mb smálægð sem grynnist. Austur af Nýfundnalandi er heldur vaxandi 978 mb lægð sem hreyfist norðaustur. SPA: Hæg breytileg átt og léttskýjað um mest allt land í fyrramálið og talsvert frost í innsveitum, einkum noröanlands og austan en fer síðan hlýnandi með hægt vaxandi suðaustanátt. Suðaustan kaidi eða stinnings- kaldi og dálítil rigning eða súld suðvestan- og vestanlands siðdegis á morgun en áfram bjartviðri á Norður- og Austurlandi. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: Suðaustlæg átt, yfirleitt kaldi eða stinningskaldi sunnan- og vestan- lands, en hægari norðaustan til. Sunnanlands og vestan verður súld eða rigning með köflum, en léttskýjað víðast norðanlands. Hiti verður á bilinu 3-8 stig. Nýir veðurfregnatímar: 1.30. 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30, 22.30. Svarsími Veðurstofu (slands - Veðurfregnir: 990600. o <3k m Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaðrimar vindstyrk, Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað heil fjöður er 2 vindstig.. r r r * r * * * * • X * 10° Hitastig r r r r r * r r * / * * * * * V v V v Súld J Rigning Slydda Snjókoma Skúrir Slydduél El = Þoka ' FÆRÐÁ VEGUM: (Kl. 17.30 ígær) Vegir í nágrenni Reyjavíkur eru vel færir en talsvert hálir. Fært er um Hellisheiði og Þrengsli og með suðurströndinni austur á Austurland og eru vegir vel færir á Austfjörðum og Héraði. Fært er fyrir Hvalfjörð í Borgarnes en vegir í uppsveitum Borgarfjarðar eru víða þungfærir. Fært er um Snæfellsnes og um Heydal f Dali og þaðan til Reykhóla. Brattabrekka er ófær. Fært er frá Brjánslæk til Patreksfjarðar og þaðan til Bíldudals. Breiðadalsheiði er fær en Botnsheiði ófær. Skafrenningur er á Holtavöröuheiði sem er vel fær og fært er til Hólmavíkur. Steingríms- fjarðarheiði er ófær. Vegir á Norðurlandi eru víðast færir en skafrenning- ur er í Vatnsskarði og á Öxnadalsheiði. Góð færð er á Noröausturlandi og fært er með ströndinni til Vopnafjaröar. Elnnig er fært um Mývatns- og Möðrudalsöræfi. Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og á grænni línu 99-6315. Vegagerðin. VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma Akureyri Reykjavik hiti +2 veður úrkoma snjóél Bergen 4 súld Helsinkl +2 þokumóða Kaupmannahöfn 2 alskýjað Narssarssuaq +12 skýjað Nuuk +16 skýjað Ósló 4 skýjað Stokkhólmur 2 skýjað Þórshöfn 5 skúrir Algarve 16 léttskýjað Amsterdam 8 skýjað Barcelona 16 mistur Berlfn 2 skýjað Chicago 2 slydda Feneyjar 7 heiðskírt Frankfurt 5 léttskýjað Glasgow 10 mistur Hamborg 6 léttskýjað London 10 léttskýjað Los Angeles 13 þoka Lúxemborg 5 léttskýjað Madríd 15 mistur Malaga 20 léttskýjað Mallorca 17 léttskýjað Montreal +3 mistur NewYork 5 skýjað Orlando 10 þokumóða París 9 heiðski’rt Madelra 18 háifskýjað Róm 10 léttskýjað Vín 1 skýjað Washington 3 hélfskýjað Winnipeg +4 alskýjað íslendingur á flugvél sem skráð var hér Nauðlent vegna piparmyntufnyks Flórída, frá Atla Steinarssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. DOUGLAS DC-8 flutningaflugvél Emery-flugfélagsins var látin nauð- lenda á flugveliinum í Fort Lauderdale í Flórida síðastliðinn laugardag vegna piparmyntufnyks sem gaus upp frá farmi hennar. Flugvél þessi var eitt sinn skráð hér á Iandi og var í þjónustu Loftleiða og Flugleiða og þegar hún nauðlenti nú var íslenski flugmaðurinn Unnar Þorbjörns- son í áhöfn hennar. Flugvélin sem var að koma hlaðin vamingi frá Dayton í Ohio og með fjóra menn um borð var að hefja aðflug að flugvellinum í Fort Laud- erdale þegar piparmyntufnykurinn gaus skyndilega upp. Var þegar í stað gripið til súrefnisgrímanna og flugtuminn látinn vita. Var lýst yfir hættuástandi á flugvellinum. Unnar Þorbjömsson, 2. flugmað- ur, sagði í samtali við fréttaritara að áhöfnin hefði yfirgefið vélina um leið og hún stöðvaðist og skilið allt sitt dót eftir. Sveit slökkviliðsins, sem sérhæfð er í meðferð alls kyns efna, hóf affermingu vélarinnar og var með súrefnisgrímur. Kom í ljós að þessi megni fnykur kom frá 200 lítra stáltunnu með óblönduðu fljót- andi og grænleitu bragðefni sem notað er í tyggígúmmí og tannkrem. Var tunnan óþétt og byrjaði að leka þegar vélin hóf aðflug til lendingar. Blaðið Sun Sentinel í Miami hafði það eftir yfirmanni efnadeildar slökkviliðsins að bragðefnið væri svo sterkt, að það gæti valdið truflunum í öndunarfærum og jafnvel skaðað slímhúð. í þjónustu Loftleiða Unnar Þorbjömsson sagðist hafa farið að rýna í plögg vélarinnar og séð þá að hún hafi fyrir nokkrum ámm verið skráð á íslandi og borið einkennisstafína TF-FLC. Er þetta væntanlega flugvél sem Loftleiðir og síðar Flugieiðir voru með í þjón- ustu sinni af og til á árunum 1970- 1980. Hún var skráð hér á landi 1979 en var mest í leiguverkefnum erlendis eftir það og var síðan seld 1987. Unnar hefur verið flugmaður hjá Emery-flugfélaginu í tvö ár. Áður starfaði hann hjá Air Lift í Miami og þar áður hjá Flugleiðum. ------»- ♦ ♦----- Ógnaði konu og nágrönn- um með byssu MAÐUR ógnaði eiginkonu sinni og nágrönntun með haglabyssu um helgina, eftir að hann hafði drukkið sig ofurölvi á skemmti- stað. Þegar lögreglan kom á vett- vang var maðurinn sofnaður ölv- unarsvefni. Hann var fluttur í fangageymslur, þar sem hann svaf úr sér vimuna. Samkvæmt upplýsingum lögreglu hafði maðurinn verið á skemmtistað fyrr um kvöldið, ásamt eiginkonu sinni. Honum sinnaðist við kunningja sinn og var enn mjög æstur í skapi þegar hann kom heim. Hann ógnaði konu sinni með haglabyssunni og elti hana fram á gang, þegar hún leitaði aðstoðar nágranna. Eftir að hafa ógnað nágrönnunum tók hann á sig náðir. Lögreglan flutti manninn í fanga- geymslurj þar sem hann svaf úr sér vímuna. Á heimili hans var lagt hald á tvær haglabyssur og skotfæri. Tryggvi Emilsson ríthöfundur látinn Tryggvi Emilsson rithöfundur lést laugardaginn 6. mars síðast- liðinn á Landspítalanum í Reykjavík á 91. aldursári. Tryggvi fæddist 20. október 1902 í Hamrakoti á Akureyri, og voru foreldrar hans Emil Petersen búfræðingur, bóndi og síðar verka- maður á Akureyri, og kona hans Þuríður Gísladóttir. Tryggvi missti móður sína þegar hann var sex ára gamall, og ólst hann síðan upp í Reykjavik og á ýmsum stöðum norðanlands. Skólamenntun hans var sex vikna undirbúningsnám fyr- ir fermingu veturinn 1916. Hann var vinnumaður í Ámesi í Tungu- sveit í fímm ár, bóndi í Bakkaseli og Fagranesi í Oxnadal, verkamað- ur á Akureyri 1925-1947, og inn- heimtumaður hjá Rafveitu Akur- eyrar 1935-1947, en hann studdist við búskap öll árin. Árið 1947 flutt- is't hann með fjölskyldu sinni til Reykjavíkur og var verkamaður þar, lengst af hjá Hitaveitu Reykja- víkur og eftirlitsmaður við hita- veituframkvæmdir í Reykjavík 1962-1968. Tryggvi var formaður Verkamannafélags Akureyrar- kaupstaðar í tvö ár, í stjóm Verka- mannafélagsins Dagsbrúnar í Reykjavík í tvo áratugi, þar af vara- formaður í sjö ár og lengi ritari. Hann var félagi í Kommúnistaflokki íslands frá stofnun hans og í Sósíal- istaflokknum frá stofnun, en hann sat í miðstjórn hans og gegndi þar ýmsum trúnaðarstörfum. Tryggvi var sæmdur heiðurs- merki Dagsbrúnar fyrir störf í þágu verkalýðshreyfingarinnar og þáði hann heiðurslaun Dagsbrúnar fyrir bókina Fátækt fólk. Eftir hann komu út tvær ljóðabækur 1967 og 1971, en eftir að hann lét af störf- Tryggvi Emilsson um hjá Hitaveitu Reykjavíkur gerð- ist hann afkastamikill rithöfundur. Æviminningar hans komu út í þrem bindum, Fátækt fólk árið 1976, Baráttan um brauðið 1977 og Fyrir sunnan 1979. Fátækt fólk og Bar- áttan um brauðið voru báðar til- nefndar af íslands hálfu til bók- menntaverðlauna Norðurlandaráðs. Auk þess komu út eftir Tryggva skáldsögur, ættfræðirit og bama- bók, auk þess sem hann skrifaði ^jölda greina í blöð og tímarit um ýmis málefni. Eiginkona Tryggva var Steinunn Guðrún Jónsdóttir sem lést árið 1977. Dætur þeirra em Fanney Tryggvadóttir deildarstjóri og Elsa Jóna Tryggvadóttir skrifstofumað- ur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.