Morgunblaðið - 20.09.1997, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 20.09.1997, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Dómur í máli sakborninga í Vegas-máli Annar dæmdur í fangelsi í 2 ár, hinn sýknaður Morgunblaðið/Kristinn INGIMAR Kjartansson vann við að leggja síðustu hönd á vatnslögn í skiðaskálana í Bláfjöllum. Nýkjörinn formaður Skólastjórafélags ísiands Uppsagnir standa ef ekki nást veru- legar kjarabætur HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi í gær 35 ára mann, Sverri Þór Einarsson, í tveggja ára fang- elsi fyrir líkamsárás á veitingastaðn- um Vegas við Frakkastíg. Árásin leiddi tii dauða 26 ára gamals manns, Sigurðar Sigurmundssonar. Annar maður, sem ákærður var í málinu, var sýknaður. Slagsmál brutust út á veitinga- staðnum aðfaranótt 13. maí sl. Þeg- ar lögreglan kom á vettvang lá Sig- urður heitinn meðvitundarlaus á sófa. Hann var fluttur á sjúkrahús, þar sem þegar var gerð heilaaðgerð á honum, en ekki tókst að bjarga lífi hans og lést hann sólarhring eft- ir atburðinn. Banamein hans var blæðing undir mjúku heilahimnuna og ályktaði prófessor í réttarlæknis- fræði að mar á hársverði og blóð- gúll undir höfuðleðri gæti hafa staf- að af sparki, höggi eða falli. Fjöldi vitna bar um átökin sem urðu á veitingastaðnum og margir tóku þátt í. I niðurstöðum héraðs- dóms, sem skipaður var dómurunum Pétri Guðgeirssyni, Arngrími ísberg og Sigríði Ólafsdóttur, er bent á að áverki á höfði Sigurðar heitins hafi getað hlotist af tiltölulega vægu höggi. Sverrir Þór hélt því fram að 26 ára félagi hans hefði sparkað í Sig- urð þegar hann var að reyna að rísa á fætur, en því neitaði félaginn stað- fastlega. Héraðsdómur segir að frá- sögn Sverris Þórs um þetta atriði sé ekki í samræmi við neitt annað í málinu. Þá er vísað til vitnisburðar BLAÐAUKINN Tölvur og tækni fylgir Morgunblaðinu um helgina. Blaðaukinn er 32 síður og borinn út með blaðinu í dag, laugardag. Meðal efnis eru kynningar á íslenskum hugbúnaðarfyrir- tækjum, sagt frá hlutbundnum venslagrunnum, starfi Náms- gagnastofnunar að íslenskri margmiðlun, samskiptum við hugbúnaðarþjófa, svæðisnet- fangaraunum, nýjungum í leikjaheiminum og upplýsinga- kerfínu Hafdísi. Einnig er fjall- að um hugsanleg vandamál vegna lokaárs aldarinnar, sagt frá þýska hugbúnaðarrisanum SAP, ókeypis stýrikerfínu Lin- ux, sem er að leggja undir sig heiminn og nettölvunni. Blaðaukinn um tölvur og tækni verður einnig gefínn út á Netinu á slóðinni http:// www.mbl.is/tolvublad/. Þar verður að fínna ofangreint efni, sumt í töluvert lengri gerð, en einnig verður fjallað um nýj- ungar í framköllun, bresti í samkomulagi um DVD-staðla og stafræna myndvinnslu. manns um að 26 ára maðurinn hafi sparkað með tánni aftan í höfuð Sigurðar þar sem hann lá á hiið- inni, en héraðsdómur bendir á að aðrir hafí ekki borið þetta á manninn og við rannsókn á skóm hans hafi ekkert fundist sem styðji þessa frá- sögn. Að þessu athuguðu og gegn staðfastri neitun mannsins verði að telja ósannað að hann hafi sparkað í höfuð Sigurðar heitins. Meiri afleiðingar en búastmátti við Héraðsdómur segir að Sverrir Þór hafi einnig staðfastlega neitað þvi að hafa slegið Sigurð heitinn, en vísar til framburðar fjögurra vitna. Þótt skýrslur vitnanna séu ekki sam- hljóða í öllum atriðum beri þeim saman um að sá sem sleginn var hafi ekki staðið upp aftur. „Telur dómurinn sannað að þessir ijórir menn séu að bera um sama atvikið og að ákærði Sverrir Þór hafi slegið Sigurð heitinn eitt högg í höfuðið í þessum átökum svo hann skall í gólfið og lá eftir meðvitundar- laus. Engu er hægt að slá föstu um það hvort heilablæðingin hlaust af hnefahögginu eða skellinum eða þá hvoru tveggja, en þessar hörmulegu afleiðingar verður þó að telja ákærða til sakar,“ segir dómurinn. Niðurstaðan, með hliðsjón af því að afleiðingar árásarinnar urðu aðr- ar og meiri en búast mátti við, er sú að Sverrir Þór var dæmdur í 2 ára fangelsi. Frá refsingunni dregst 123 daga gæsluvarðhald. Fyrsta síldin til Hafnar Höfn. Morgunblaðið. FYRSTU síldinni á vertíðinni var Iandað á Höfn á Hornafirði í gær þegar Jóna Eðvalds SF 20 kom til hafnar með um 170 tonn. Síldin fékkst á Breiðdalsgrunni og sagði Ingólfur Ásgrímsson að hún væri falleg og ekkert smátt í aflanum. Aflinn fékkst í þremur köstum og þegar búið var að ná einu kastinu var næsta torfa komin undir. Síldin fór til frystingar hjá Borgey. HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur neit- aði í gær að fallast á að Sveinn Andri Sveinsson héraðsdómslög- maður fengi að segja af sér sem veijandi í máli og að skjólstæðingur hans, sem er sakborningur í Hollend- ingsmálinu svokallaða, stóru fíkni- efnamáli, fengi að veija sig sjálfur. Sveinn Andri og skjólstæðingur hans, kærðu synjun dómarans til Hæstaréttar. Hæstiréttur hefur tvívegis neitað að fallast á úrskurði Héraðsdóms um að sakborningar í málinu fái að kynna sér gögn málsins fyrr en eft- ir að þeir hafa gefið skýrslu fyrir dómi. Umbjóðandi Sveins Andra, er hollenskur karlmaður og ákærður fyrir þyngri sakir en áður hafa verið bornar á mann í fíkniefnamáli hér á landi. Mannréttindi fara ekki í manngreinarálit í greinargerð sem Sveinn Andri Sveinsson lagði fyrir héraðsdóm í gær með afsögn sinni sagði hann að það sé fortakslaus krafa Hollend- ingsins að fá að kynna sér öll fram- lögð skjöl í málinu áður en hann gefi skýrslu fyrir dómara. „Vera má að skjólstæðingur minn hafí gerst sekur um glæp sem þung refs- Unnið fyrir 15 milljónir í Bláfjöllum VERIÐ er að Ijúka lagningu vatnsleiðslu í skíðaskálana í Blá- fjöllum en til þessa hefur þurft að aka vatni í geyma skálanna. Þá er nýlokið lagningu bundins slitlags á 5 km kafla og eru þá einungis 2,5 km eftir af 12 km löngum veginum frá þjóðvegi að skíðasvæðinu. Þorsteinn Hjaltason, sem hefur umsjón með starfseminni á Biá- fjallasvæðinu, sagði mikia bót að þessum malbikaða vegi og vatns- lögninni í alla skálana. Næsta vetur yrði hreinsun vegarins auð- veldari og allar samgöngur í skál- ana greiðari. Kalt vatn er sótt i 250 m djúpa holu um 2 km frá skálunum og er nú langt komið að leggja allar leiðslur í skálana. „Þetta er veru- legur áfangi í bættri aðstöðu hér og það er ekki síst þægilegt að losna við að sækja vatn og aka því í alia skálana," sagði Þor- steinn. Unnið verður í ár fyrir um 15 milljónir króna en fyrir það fjár- magn er vatnsleiðsian kostuð að miklu leyti og bygging nýrrar tækjageymslu. Þá hefur í sumar verið unnið nokkuð við lagfæring- ar í skíðabrekkunum. ing liggur við og fordæmdur er af samfélaginu. Það réttlætir hins veg- ar ekki að hann sé sviptur grundvall- armannréttindum. Mannréttindum er ekki unnt að víkja til hliðar fyrir hagsmunum ákæruvalds eða rann- sóknarhagsmunum og mannréttindi fara ekki í manngreinarálit.“ Þá segir lögmaðurinn að sam- kvæmt ákvæði Mannréttindasátt- mála Evrópu eigi maður rétt á að fá án tafar á máli sem hann skilji vitneskju í smáatriðum um eðli og orsök þeirrar ákæru sem hann sæti og í gögnum máls komi fram í smá- atriðum upplýsingar um eðli og or- sök ákæru. Sveinn Andri rekur síðan af- „ÞAÐ er verulega þungt í mönnum vegna stöðunnar sem komin er upp í kjaramálum. Það eru engar við- ræður í gangi og yfir okkur vofír verkfall," segir Þorsteinn Sæberg, sem kjörinn var formaður Skóla- stjórafélags íslands, á aðalfundi fé- lagsins í gær. Hann bendir einnig á að fjöldi kennara hafi sagt upp störfum á undanförnum dögum og fjölrnargir séu að íhuga uppsagnir. Á aðalfundinum í gær var staðan í kjaramálum skólastjóra og kenn- arastéttarinnar meginumræðuefnið og samþykkt var ályktun þar sem fullri ábyrgð er Iýst á hendur sveit- arstjórna vegna þess óvissuástands sem sé að skapast í skólum lands- ins. Þorsteinn segir að kennarar séu mjög víða að hugsa sér til hreyfings þessa dagana og blikur á lofti í flest- um landshlutum. „Staðan er slík að nái menn ekki fram verulegum kjarabótum er alveg ljóst að þær greiðslu_ Hæstaréttar á málinu og segir: „Ég hef [... ] þeim skyldum að gegna sem verjandi að vinna sem best að hagsmunum skjólstæðings míns. Mín sannfæring er hins vegar sú að með málsmeðferð þessari sé ekki hafður í heiðri réttur skjólstæð- ings míns til réttlátrar málsmeðferð- ar. Við slíkar kringumstæður treysti ég mér ekki til að vinna mín störf. Ljóst virðist einnig af dómum Hæstaréttar að hagsmunum skjól- stæðings míns væri betur borgið með því að hann fái að veija sig sjálfur. Hlýtur hann sem sinn veij- andi að eiga sama aðgang að skjöl- um og aðrir veijendur, ekki bara svo hann geti flutt vörn sína heldur einn- uppsagnir sem fyrir liggja eru komnar til að vera,“ segir Þorsteinn. Aldrei verið samið um breytt störf skólastjóra Skólastjórar grunnskólanna e_ru félagsmenn í Kennarasambandi Is- lands en eru með sérstaka viðræðu- nefnd sem annast kjaraviðræðurnar við launanefnd sveitarfélaga. „Menn eru uggandi í kjaraviðræðum kenn- arastéttarinnar almennt en við erum um leið að tala um okkar eigin stöðu í kjaramálunum. Þær lagabreyting- ar sem gerðar hafa verið á undan- gengnum árum hafa lagt æ meiri kröfur á skólastjóra en um það hef- ur aldrei verið samið. Það hefur aldr- ei verið samið um breytt starf skóla- stjóra," segir Þorsteinn. Á fundi skólastjóra í gær var samþykkt ályktun þar sem lýst var ábyrgð á hendur sveitarstjórnum á því óvissuástandi sem skapast hefði í skólum landsins. ig til þess að hann geti beint spurn- ingum að öðrum vitnum og ákærðum en samkvæmt mannréttindasátt- mála eiga sakborningar rétt á að halda uppi vörnum sjálfir og ljóst er að veijendur eiga ávallt rétt á að kynna sér gögn málsins." Verjendur ekki leystir frá nema fyrir vanrækslu Hollendingurinn var samþykkur afsögn lögmannsins og tjáði sig um hana í réttinum í gær. Ákæruvaldið mótmælti því að orðið yrði við ósk Sveins Andra um að víkja og þá afstöðu tók einnig Guðjón St. Mar- teinsson héraðsdómari. Í rökstuðningi fyrir ákvörðun sinni vísaði dómarinn m.a. til þess að lög geri ekki ráð fyrir því að veijandi sem tekið hefur að sér mál manns verði leystur frá störfum nema hann vanræki starfsskyldur sínar og að hagsmunum Hollend- ingsins sé betur borgið með því að veijandinn starfí áfram að málinu. Þá sé það að hann skilji ekki málið sem réttarhaldið fer fram á ann- marki sem torveldi skynjun hans á því sem fram fer og breyti þar engu að það sem fram fer í réttarsalnum er túlkað jafnóðum á hollensku fynr manninn. Sakborningur í Hollendingsmálinu vildi verja sig sjálfur til að fá gögn málsins afhent Verjandi fékk ekkiað segja af sér , I I i - I í I I I ! f í I I f u
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.