Morgunblaðið - 23.03.1999, Blaðsíða 1
CtlGAJHWUOHOM
GGÖÍ SHAM .82 HIJOACIULCtlH't
B L A Ð A L L R A LANDSMANNA
■ 1
1999
3ito0iuiUUbik
■ ÞRIÐJUDACUR 23. MARZ
BLAÐ
Jón Kristjáns-
son í viðræð-
um við Fram
FRAMARAR hafa átt í viðræðum við Jón Krist-
jánsson, leikmann og þjálfara Vals í handknatt-
leik, um að hann taki við 1. deildar liði félagsins
fyrir næstu leiktíð. Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins er búist við því að skrifað verði undir
samning í vikunni og að Jón muni einnig leika
með Frömurum.
Guðmundur Guðmundsson, sem þjálfað hefur
Framara síðustu tvö ár, tekur við þýska liðinu
Bayer Dormagen nú í sumar og Jón hefur til-
kynnt Valsmönnum að hann sé hættur þjálfun fé-
lagsins og hyggist ekki leika með því á næsta
tímabili, en Jón hefur verið leikmaður og þjálfari
Vals í fjögur ár og gerði liðið m.a. að Islands- og
bikarmeisturum á síðustu leiktíð. Ekki gekk jafn
vel í ár og Valsmenn tryggðu sér ekki sæti í úr-
slitakeppninni.
Jón staðfesti í gærkvöldi að Framarar hefðu
haft samband við sig. „Þessi mál eru öll í skoðun
og ég á von á því að taka ákvörðun mjög fljót-
lega,“ sagði hann. Fleiri lið hafa haft samband að
sögn Jóns, en ekki kemur til greina að flytja úr
Reykjavík.
Fastlega er búist við að Geir Sveinsson, leik-
maður Wuppertal í Þýskalandi, flytji heim í vor
og taki við liði Vals. Geir hefur staðfest við Morg-
unblaðið að hann hafí átt í viðræðum við Val, en
tekur þó fram að ekkert sé öruggt og komið í höfn
í þeim efnum.
Júlíus Jónasson, leikmaður St. Otmar í Sviss,
hefur einnig verið orðaður við Valsmenn. Hann
sagði við Morgunblaðið í gærkvöldi að ekkert
væri frágengið í sínum málum, hvorki varðandi
Val né önnur lið. Hann sagðist þó búast við því að
málin skýrðust á allra næstu dögum.
Þau unnu bestu afrekin
ÖRN Arnarson, SH, og Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir, ÍA,
unnu bestu afrek Innanhússmeistaramótsins í sundi
samkvæmt alþjóðlegum stigaiista en mótið fór fram í
Vestmannaeyjum um helgina. Voru þau verðlaunuð með
farmiðum frá Flugleiðum í mótslok og var ekki annað
að sjá en þau væru sæl með árangur helgarinnar.
Morgunblaðið/Sigfús Gunnar Guðmundsson
Sverrir til Aftureldingar
SAMKVÆMT heimildum eru yfir-
gnæfandi líkur á því að handknatt-
leiksmaðurinn Sverrir Björnsson,
leikmaður KA, gangi til liðs við
bikar- og deildarmeistara Aftur-
eldingu fyrir næstu leiktíð. Sverrir
mun hafa tekið þá ákvörðun að
flytjast til Reykjavíkur í sumar og
hefja nám í viðskiptafræði við Há-
skóla Islands og hætta um leið að
leika með KA. Samkvæmt heimild-
um hafa fon-áðamenn Afturelding-
ar verið í sambandi við Sverri síð-
ustu daga og drög að samningi
liggja fyrir. Sama var reyndar uppi
á teningum í fyrrasumar. Þá hugð-
ist Sverrir flytja suður yfir heiðar
og samningur hans og Mosfellinga
lá tilbúinn til undirskriftar er
Sverrir ákvað að vera eitt keppnis-
tímabil til viðbótar hjá KA og
fresta námi. Þá mun hafa verið
fastmæluin bundið milli Sven-is og
Aftureldingarmanna að hann
ræddi við þá áður en hann ræddi
við önnur félög. Nú mun Sverrir
vera staðráðinn í að hleypa heim-
draganum og taka upp þráðinn hjá
Aftureldingu og eitthvað stórvægi-
legt þui’fí að koma upp til þess að
Sverrir leiki ekki með Aftureld-
ingu frá og með næsta hausti.
BORÐTENNIS: GULLUPPSKERA HJÁ VÍKINGUM / B6
VINNINGSTÖLUR
LAUGARDAGINN
Alltaf á
laugardögum
Jókertölur vikutuiar
6 8 4 8 9
Vinningar Fjöldi vinninga Upphæð á mann
5 tölur 1 1.000.000
4 síðustu 1 100.000
3 síðustu 15 10.000
2 síðustu 233 1.000
VINNINGSTÖLUR
MIDVIKUDAGINN
17.03.1999
AÐALTÖLUR
( 1 (12 ( 28
(30 (40 (44
BÓNUSTÖLUR
(Z6 (41
■V. v..
Vinningar
1.6 af 6
2. 5 af 6+aóNus
3. 5 af 6
4. 4 af 6
3. 3 af 6+ böhus
Fjöldi
vinninga
384
1.061
Vinnings-
upphæö
35.180.923
1.777.970
65.650
2.440
370
Alltaf á
míðvikudögui
Upplýsingar:
Síðastliöinn miðvikudag fengu reykvísk
hjón með 2 börn rúmlega 35 m.kr. fyrsta
vínning í Víkingalottói. Þau keyptu miða
sinn í Söluturninum Glæsibæ í Reykja-
vík. Tölur í aukaútdrætti voru 7-9-11
- 23 - 34 og 40. í Lottói 5/38 fengu 2
fyrsta vinning og keyptu þeir miða sína
hjá Oiís á Akranesi og Oiís í Mosfells-
bæ. Lottðmiðarnir með bónusvinningun-
um voru keyptir hjá Ný.-ung við Hafnar-
götu í Kefiavík, en þar lenti iíka 2. vinn-
ingur í Jóker, Gerplu við Sólvallagötu,
Kúlunni við Réttarholtsveg í Reykjavik,
KEA Sunnuhlíð og Nætursölunni á Akur-
eyri. Miði sem gaf 1.000.000 í Jóker var
keyptur á Hlíðarenda á Hvolsvelli.
Upplýsingar í síma:
568-1511
Textavarp:
281, 283 og 284
íþígu öryrkja, ungmenna og íþrótta