Morgunblaðið - 23.03.1999, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 23.03.1999, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ HANDKNATTLEIKUR ÞRIÐJUDAGUR 23. MARZ1999 B 3 Eyja- stúlkur rúlluðu yfir Fram í Eyjum LIÐ ÍBV sýndi allar sínar bestu hliðar þegar þær sigr- uðu Fram í Eyjum í gærkvöldi í öðrum leik liðanna í úrslita- keppninni, 32:22. Eftir að hafa steinlegið í fyrsta leikn- um, 30:23 - á heimavelli Fram á laugardaginn, sýndu Eyja- stúlkur hvað í þeim býr og yf- irspiluðu Framliðið í fyrri hálf- leiknum þannig að úrslit voru nánast ráðin í leikhléi enda staðan orðin 20:11. Við skiptum um vöm frá fyrri leiknum, tókum tvær út og það var allt annar andi í liðinu í þessum ^^■■■^ leik, við ákváðum að Sigfús G. vinna þetta saman og Guðmundsson þá hefst þetta,“ sagði sknfar Ingibjörg Jónsdóttir, fyrirliði IBV, sem átti mjög góðan leik. „Ef við spilum svona í oddaleiknum, af hörku og festu, þá eigum við að geta unnið þær,“ bætti Ingibjörg við. Það var allt galopið í upphafí leiks og nánast skorað úr hverri sókn fyrstu mínúturnar en í stöð- unni 6:6 vom Eyjastúlkur búnar að slípa vömina hjá sér. Þær klipptu Guðríði Guðjónsdóttur og Marinu Zovevu úr sókn Fram frá upphafi og þegar það fór að virka ásamt frábæram sóknarleik ruku þær frammúr og þegar blásið var til leikhlés var staðan orðin 20-11. Urslit vora nánast ráðin, enda fór svo að þær héldu vel í horfinu í síðari hálfleiknum og bættu reyndar við og stóðu uppi sem ör- uggir sigurvegarar í þessum leik, 32:22, og tryggðu sér þar með oddaleik á heimavelli Fram annað kvöld. Lið ÍBV lék mjög vel í þessum leik og hefur verið mikill stígandi í hðinu undanfarið eftir frekar erfið- an vetur. Lukrecija Bokan í mark- inu átti stórleik varði 23 skot þar af 3 víti og liðið með fyrirliðann Ingi- björgu Jónsdóttur og Amelu Hegic í broddi fylkingar lék mjög vel og sýndi vel hvað í því býr. Hjá Fram var fátt um fína drætti og ljóst að þær verða að taka sig saman í and- íitinu ætli þær sér lengra í þessu móti. Morgunblaðið/Þorkell HILDUR Erlingsdóttir fór fyrir liði sínu í Kaplakrika í gærkvöldi þegar það vann Víking í síðari leik liðanna í 8-liða úrslitum. Hér svífur hún inn af línunni með Önnu Kristínu Ámadóttur á hælunum en Eva Halldórsdóttir bíður átekta. Víkingar úr leik FYRSTU tuttugu mínúturnar í Kaplakrika í gærkvöldi, þegar fram fór annar leikur FH og Víkings í 8-liða úrslitum íslandsmóts kvenna, brostu Víkingar á áhorfendapöllunum í kampinn - stað- an 10:4 Víkingum í vil og það leit ekki út fyrir að FH-stúlkur hefðu neitt um úrslitin að segja. Víkingar hugðu því gott til glóð- arinnar þegar til þriðja leiks kæmi í Víkinni. En brosið fraus því leikur Víkinga hrundi, Hafnfirðingar skoruðu fimmtán mörk á móti fjórum Víkinga, sem voru alveg heillum horfnir og lokastað- an, 20:16, sendi Víkingsstúlkur í sumarfrí. FH hafði einnig betur í Víkinni á laugardaginn, 20:18. Stefán Stefánsson skrífar Gestirnir léku á als oddi fyrstu mínútumar og skoruðu úr sex af fyrstu átta sóknum sínum, enda liðu 18 mínútur áður en Jolanta Slapikiene í marki FH varði sitt fyrsta skot. Dæmigert fyrir þessar mínútur var þegar Víkingurinn Eva Hall- dórsdóttir kastaði sér á eftir boltan- um og náði honum inni í hópi FH- stúlkna, sem voru ekki á verði. En eftir tuttugu mínútur var eins og Víkingum þætti nóg komið, heldur dofnaði yfir baráttunni og síðustu átta sóknir þeirra fóru í súginn á meðan heimasætumar sóttu í sig veðrið. Miklu munaði að Jolanta fann fjölina sína og varði meðal annars vítaskot. Framhald varð á eftir hlé, FH- stúlkur stórbættu vamarleikinn, sem sló Víkinga út af laginu, þeir fóru illa að ráði sínu í sókninni og ekki bætti úr skák þegar Jolanta í marki FH varði tvö vítaskot. Um miðjan síðari hálfleik jöfnuðu FH- stúlkur í 13:13 en slógu hvergi af, skoraðu næstu sex mörk leiksins gegn lánlausum gestum sínum og úr- slit voru ráðin. „Þetta var mjög erfiður leikur en sigurinn því sætari, enda mikið í húfi,“ sagði Þórdís Biynjólfsdóttir, sem tók vel við sér eftir slaka byrj- un. „Eg veit ekki hvað var í gangi fyrstu tuttugu mínútumar, jafnvel einhver hræðsla og það vantaði alla frekju og ákveðni, en þegar vömin small saman fylgdi allt hitt á eftir. Það var minni pressa á okkur eftir sigur í fyrri leiknum og við höfum verið þekktar fyrir að fara erfiðu leiðina en það verður ekki svo í þetta skiptið,“ bætti Þórdís við en hún, Hildur Erlingsdóttir og Drífa Skúla- dóttir áttu góðan leik auk þess sem Jolanta kom til er leið á leikinn. Stuðningsfólk Víkinga sat eins og leikmenn eftir leikinn og reyndi að átta sig á því hvað hafði átt sér stað. Eflaust verður hægt að finna út hvað sendi liðið í sumarfrí svo snemma en það verður erfiðara að finna út hvemig hægt er að missa leik svo gjörsamlega út úr höndun- um. „Um leið og þær hrukku í gír fór okkar vél að hiksta, við nýttum ekki færin og hættum að keyra á þær,“ sagði Svava Sigurðardóttir, sem var best Víkinga, en Kristín María Guðjónsdóttir markvörður var einnig góð. Eva, Inga Lára Þór- isdóttir og Kristín Guðmundsdóttir byrjuðu vel. „Ég er lurkum lamin“ Eg er öll lurkum lamin því það var mikil harka og ekkert gefið eftir á báða bóga,“ sagði Gerður ■§■■■■ Beta Jóhannsdóttir, Stefán fyrirliði Vals, eftir Stefánsson 19:16 sigur á Haukum skrífar J sfðari leik liðanna í 8-liða úrslitum í Hafn- arfirði á sunnudaginn. Haukastúlk- umar era því úr leik en gáfust þó ekki upp baráttulaust. „Haukastelp- urnar komu auðvitað ákveðnar inn í þennan leik en sigurinn var því sæt- ari fyrir vikið. Við vorum ákveðnar í að spila fasta vöm því við ætluðum að hafa þetta af í tveimur leikjum og ekki taka áhættuna á þriðja leik. Við náðum að hefna fyrir að Haukar slógu okkur út í 8-liða úrslitum fyrir tveimur árum og nú getum við hefnt fyrir að Stjarnan sló okkur út í fjög- urra liða úrslitum í fyrra,“ bætti Gerður við en Valur fær Stjömuna í næsta leik. Barist var með kjafti og klóm frá fyrstu mínútu svo að það var eins og um bikarúrslitaleik væri að ræða. Vöm Hafnfirðinga var grimm og sóknarleikurinn til að byrja með áræðinn en heldur dofnaði yfir hon- um þegar gestimir tóku að leika sinn varnarleik utar á vellinum. Eft- ir að Haukastúlkum tókst ekki að skora mark í átta mínútur á meðan Valur skoraði fjögur, varð hlutskipti Hafnfirðinga að elta og það er erfitt. Eftir hlé kom annar kafli Hauka með mörgum mistökum, sem Vals- stúlkur refsuðu fyrir um leið og juku forskotið en þegar Larissa Zouber í marki Vals varði vítakast varð róðurinn Haukum enn þyngri. Valsstúlkur hófu að lengja sóknir sínar til að teygja lopann svo að pressan var öll á heimasætunum en þegar Larissa varði aftur víti og Valur skoraði hinumegin, sem skil- aði þeim í fjögurra marka forskot og þrjár mínútur til leiksloka, var björninn unninn. „Við gerðum okkar besta svo það var sárt að tapa en við getum borið höfuðið hátt eftir þau áföll, sem á okkur hafa dunið varðandi meiðsli leikmanna," sagði Harpa Melsteð, fyrirliði Hauka, eftir leik- inn og reyndi að venjast því að fara í frí eftir að hafa leikið til úr- slita undanfarin þrjú ár. Óhætt er taka undir þau orð, Haukastúlkur lögðu sig allar fram inni á vellinum þótt sumar ættu við meiðsli að stríða og á bekknum sátu nokkrir lykileikmenn, sem vora úr leik - en að því er ekki spurt. Vömin var góð þrátt fyrir nokkur slæm mis- tök en talsvert vantaði upp á sókn- arleikinn. Harpa átti góðan leik en Hanna G. Stefánsdóttir, Sandra Anulyte og Thelma Bj. Árnadóttir voru ágætar. Hjá Val fór Gerður á kostum og lagði grunninn að sigri Vals ásamt Larissu markverði. Varnarleikurinn var mjög öflugur, leikmenn hentu sér á hvern bolta og oft á þann, sem var með boltann - gengu eins langt og dómarar leyfðu. Eins og við var að búast gekk sóknarleikurinn ekki eins vel en leikmenn nýttu sér þó flestöll mistökin í Haukavöminni. Þóra B. Helgadóttir átti einnig ágætan leik Bergsveinn er ekki brotinn BERGSVEINN Bergsveins- son, markvörður deildar- og bikarmeistara Aftureldingar í handknattleik, er ekki handarbrotinn eins og talið hafði verið. Hann meiddist. á æfingu með liði sínu fyrir helgi og hefur ekki náð að æfa síðan. Að sögn Skúla Gunnsteinssonar, þjálfara Aftureldingar, er ekki Ijóst hvers eðlis meiðslin eru, en líklegt er að Bergsveinn verði í liðinu á fimmtudags- kvöld er Afturelding tekur á móti HK í fyrstu umferð úr- slitakeppninnar. Bjarki Sigurðsson gat ekki heldur verið á æfingu með Aftureldingu í gærkvöldi, en hann meiddist. h'tillega í landsleik íslendinga og Eg- ypta í Svíþjóð sl. föstudag. Skúli segist þó halda að Bjarki muni mæta frískur í leikinn gegn HK og hann geri ráð fyrir að geta teflt, fram sínu sterkasta liði. ■ VÍTAKÖST Hauka í síðari leiknum við Val í 8-liða úrslitum í Hafnarfirði á sunnudaginn fóra mörg forgörðum. Af sjö vítum röt- uðu þrjú í markið en eitt fór í slá og yfir. ■ LARISSA Zouber, markvörður Vals, gerði sér lítið fyrir og varði þrjú vítaskot í leiknum við Hauka. ■ GUDNY AGLA Jónsdóttir fékk að spreyta sig í marki Hauka á sunnudaginn og Vaiva Drilingaite fékk að hvfla sig. Guðný Agla stóð sig ágætlega, varði oft vel en fékk h'tið við ráðið í þau skipti þegar Valsstúlkur sluppu óhindraðar í gegn. ■ AUÐUR Hermannsdóttir, sem hefur verið meidd í öxl, lék fyrstu mínúturnar með Haukum í fyrri leiknum gegn Val en varð að fara fljótlega út af því hún hafði ekki jafnað sig af meiðslunum. Hún lék ekki í síðari leik liðanna. ■ RÖGNVALD Erlingsson, hinn geðþekki og vinsæli handknatt- leiksdómari hefur að mestu lagt flautuna á hilluna en var eftirlits- dómari á leik Hauka og Vals á sunnudaginn. Eftir að flautað var til loka fyrri hálfleiks áttu Vals- stúlkur aðeins eftir að taka aukakast og hófst rekistefna um hvar á vellinum það ætti að fara fram. Ekki var að sökum að spyrja, röggsamur Rögnvald benti ná- kvæmlega á hvar aukakastið skyldi tekið og allir hlýddu þeim dómi. ■ THELMA BJÖRK Árnadóttir í Haukum hefur ekkert getað æft undanfarna tíu daga vegna meiðsla í baki og þegar hún féll við í leikn- um við Val á sunnudaginn fór um stuðningsfólk Hauka: var enn einn leikmaður á leið á sjúkralistann? Betur fór þó en á horfðist - Thelma hélt áfram í sókninni eftir stundar- fjórðungs hlé. ■ HÁVAÐINN í trambuslöguram Hauka var mikill á sunnudaginn og vart saklausum áhorfendum bjóð- andi. Ljóst er þó að réttur trumbu- sláttur getur haft áhrif á leikmenn en óneitanleg væri skemmtilegra ef fleiri áhorfendur legðu meira af mörkum - ekki tveir trommarar. ■ MARIE Therese Axelsson, þjálf- ari 1. deildarliðs kvenna í hand- knattleik þjá ÍBV, átti aftnæli í gær, varð 33 ára, og fékk blómvönd frá Uðinu fyrir leikinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.