Morgunblaðið - 23.03.1999, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 23.03.1999, Blaðsíða 4
4 B ÞRIÐJUDAGUR 23. MARZ1999 MORGUNBLAÐIÐ KÖRFUKNATTLEIKUR KFÍ endur- tók leikinn VEL studdir af nokkrum tugum áhorfenda sem fylgdu liðinu að heiman endurtóku ísfirðingar leikinn frá því á föstudagskvöld- ið og lögðu Tindastólsmenn 70:67 í öðrum leik liðanna í 8-liða úrslitum úrvalsdeildar karla. Þar með hatda ísfirðingar áfram keppni en Sauðkrækingar eru úr leik. KFÍ mætir Njarðvík í undanúrslitum, Keflavík leikur við Grindavík. j Bjöm } Björnsson i skrífar Það var fyrst og fremst að þakka baráttu og þrautseigju leikmanna KFI á lokasprettinum að þeim tókst að nýta sér lokasekúndurnar og innbyrða sigurinn og ná langþráðu tak- marki. Leikurinn var mjög hraður strax í byrjun og bar- átta var í báðum liðum enda tals- vert í húfl. Fyrstu fjórar mínút- urnar var baráttan í algleymi og engar körfur voru gerðar. Það var ekki fyrr en bæði lið höfðu sóað -fímrn upphlaupum að heimamenn j náðu að gera fyrstu stigin. Var þar 1 á ferðinni Arnar Kárason eftir - laglegt gegnumbrot. Valur Ingi- tnundarson bætti síðan um betur Ffyrir heimamenn í næstu sókn með þriggja stiga körfu áður en > gestirnir komust á blað. Heimamenn voru löngum með jfrumkvæðið en Isfírðingar voru aldrei langt undan. I hálfleik var forysta Tindastóls fjögur stig, 35:31. . I síðari hálfleik var sama upp á iteningum, heimamenn höfðu Jfrumkvæðið en gestirnir voru ; aldrei langt á eftir, munurinn var |tvö til fjögur stig allt þar til fjórar | mínútur voru eftir. Þá var dæmd- ;ur i-uðningur á John Woods, leik- mann Tindastóls. Var það mjög strangur dómur en hann þýddi jafnfram að Woods hlaut sína fimmtu villu og lék ekki með á lokakaflanum. Þetta nýttu leik- menn KFI sér mjög vel, jöfnuðu og komust síðan fjórum sitgum yf- ir, 68:64. Valur minnkaði muninn í . 68:67. Þá unnu heimamenn bolt- ann og Omar Sigmarsson braust í gegnum vörn KFI þegar 27 sek- úndur voru eftir, en skot hans vildi á einhvern ótrúlegan hátt ekki falla ofan í hringinn og gest- irnir náðu frákastinu. Ray Carter innsiglaði sigur KFI með tveimur vítaskotum rétt áður en flautað var til leiksloka. Var fögnuður ís- firðinga mikill og flykktust stuðn- ingsmenn þeirra inn á völlinn í leikslok til þess að hylla hetjur sínar. I liði Tindastóls voru Woods og Valur bestir, en einnig léku Cecare Piccini, Sverrir Sverris- son, Svavar Birgisson og Arnar Kárason allvel. James Cason var atkvæðamestur leikmanna KFI. Þá lék Ray Carter einnig skínandi vel. Mark Quashie, Ólafur Oi-ms- son og Pétur Sigurðsson börðust einnig vel. Stigamet hjá Keflavík KEFLVÍKINGAR settu stigamet er þeir gerðu 132 stig gegn Haukum í síðari leik liðanna í 8-Iiða úrslitum úrvals- deildarinnar á sunnudag, en lokatölur voru 132:77. Fyrra stigamet áttu Kefl- víkingar sjálfir. Það var 123 stig og það met settu þeir í fyrri leik liðanna í Keflavík á fimmtudagskvöldið. Það var því skammt stórra högga á milli hjá þeim Suðurnesjamönnum. Samtals lögðu þeir Hauka að velli með 255 stig- um gegn 158. Voru yfirburður Keflvík- inga algjörir í báðum leikjunum og allir leikmenn á Ieikskýrslu fengu að spreyta sig. Það sem meira er, þeir skoruðu all- ir stig í báðum leikjunum. Teitur fór |f # M ■ Morgunblaðið/Kristinn FALUR Harðarson og samherjar hans hjá Keflavík áttu ekki í vandræðum með Hauka, eins og sést best á þessari mynd er Falur stekkur að körfu Hauka, að mótspyrnan er ekki mikil. á kostum Mikil spenna í Hagaskóla Njarðvík vann góðan sigur á Snæfelli í Stykkishólmi 67:100, lið Njarðvíkur vann báða leikina ■■■■■■ við Snæfell og er þar Rlkharður með komið í undanúr- Hrafnkelsson sjjt úl’valsdeildarinn- ar. Leikurinn ein- kenndist í byrjun af góðum varnarleik beggja liða. Njarðvík náði strax forystunni og hélt henni allt til loka. Það sem Njarðvík hefur fram yfír Snæfell er fjölmennari leikmannahópur og mun betri sóknarleikur. Leikmenn Snæfells voru með of marga tapaða bolta, miklu fleiri en UMFN og vítanýting þeirra var innan við 30%, sem telst afar slakt. Lið Njarðvíkur er greinilega í mjög góðri æfíngu og eru leikmenn liðsins mjög líklegir til að fara langt í úrslitakeppninni. Liðið lék á tíðum afar skemmtilegan körfuknattleik, „stal“ mörgum boltum, keyrði hraðaupphlaupin og skoraði fallegar körfur. í hálfleik hafði Njarðvík náð 15 stiga forskoti, 36:21, og var þá ljóst hvert stefndi í leiknum. Strax í upphafi síðari hálfleiks keyrðu Njarðvíkingar upp hraðann og juku forskotið upp í 27 stig. Eftir það var komin ákveðin uppgjöf í lið Snæfells. í liði Snæfells lék Rob Wilson best að vanda, tók 16 fráköst og stjórnaði sínum mönnum af festu. Bárður Eyþórsson átti góða kafla. Mark Ramos var þokkalegur. Baldur Þorleifsson og Ólafur Guð- mundsson stóðu fyrir sínu í vörn- inni. Grikkinn Athanasías Spyropoulos hefur oftast leikið bet- ur en í þessum leik, fann ekki fjöl- ina sína. Jón Þór Eyþórsson Iék sinn lakasta leik í vetur. Hjá Njarðvíkingum fór Teitur Örlygsson hreinlega á kostum og var í miklum ham, virtist geta skorað þegar hann vildi og var t.a.m. með 9 þriggja stiga körfur. Brenton Birmingham skilað sínum leik mjög vel, bæði í sókn og vörn, er traustur leikmaður. Páll Krist- insson átti fínan leik í síðari hálf- leik. Friðrik Ragnarsson var frek- ar daufur í fyrri hálfleik en tók sig verulega á í þeim síðari. Mikil taugaspenna var það sem einkenndi leik KR og Grinda- víkur á sunnudag þegar Grindvíking- ■■■■■■ ar sigruðu annan leik- Halldór inn í viðureigninni og Bachmann komust áfram, lokatöl- skrífar 70:67 „Það fór betur en á horfðist þegar Peebles lenti í bílslysi á Reykjanesbrautinni á laugardaginn en hann, eins og aðrir leikmenn og áhorfendur sýndu hér hvað Grinda- víkurhjartað er stórt,“ sagði Einar Einarson, þjálfari Grindvíkinga, í leikslok. Leikurinn var ansi kaflaskiptur, sitt á hvað gekk öðru liðinu vel með- an hitt var í lægð. Þannig byrjuðu Grindvíkingar betur meðan KR-ing- ar tóku sér tíma í að vakna en tóku þá fjörkipp og komust fyrst yfir um miðjan fyrri hálfleík, 26:25. Fram að hálfleik var leikurinn í járnum en Grindvíkingar höfðu þó öllu meira frumkvæði og voru yfir í leikhléi, 38:42. I upphafi síðari hálfleiks var það KR-inga að taka fjörkipp og það svo um munaði. Þeir gerðu 12 stig gegn 1 Grindvíkinga á fyrstu fimm mínútum síðari hálfleiks og náðu skömmu síðar mest 12 stiga forystu 60:48. Þá skyndilega gekk hvorki né rak hjá KR og Grindvíkingar gengu á lagið og náðu að jafna þegar fjórar mínútur lifðu af leiknum. Eftir það var hitinn við suðumai'k í íþróttahúsi Hagaskóla og svo fór að uppúr sauð að lokum. I lok leiksins réð mjög umdeild dómgæsla úrslitum. Þegar u.þ.b. 15 sekúndur voru til leiksloka voru Gr- indvíkingar fjórum stigum yfir, 63:67, er brotið var á Jesper Winter Sörensen í þriggja stiga skoti. Hann fékk þrjú vítaskot og hittir úr tveim- ur fyrstu þeirra en brenndi af því þriðja, augljóslega vísvitandi. Keith Vassel náði frákastinu og tókst að skora þrátt fyrir að brotið væri á honum. Dómari leiksins, Jón Bender, dæmir körfuna af. Ekki á þeim for- sendum að Sörensen haf! brennt vís- vitandi af og því beri Grindvíkingum að fá boltann. Ekki heldur á þeim forsendum að brotið hafi verið á Keith Vassel fyrir skot heldur vegna þess að Keith Vassel hafi tekið of mörg skref áður en hann skaut að körfu Grindvíkinga. KR-ingar voru vægast sagt mjög ósáttir við þennan dóm en hann stóð og vonir KR um frekari þátttöku í úrslitakeppninni voru að engu orðnar. Sigur Grindvik- inga var staðreynd, 67:70. I liði KR voru Keith Vassel og Eg- gert Garðarsson atkvæðamestir en í liði Grindavíkur voru Warren Peebles, Herbert Arnarson og Pétur Guðmundsson bestir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.