Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1999, Blaðsíða 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 15. JUNI 1999
Útlönd
Serbneskir hermenn á hraðferö burt úr Kosovo:
Brottflutningurinn er
enn samkvæmt áætlun
SOKN NATO INN I KOSOVO
Hersveitir NATO reyndu að styrkja yfirráö sín í Kosovo, á þriðja degi
friöargæslustarfanna, til að tryggja örugga heimkomu hundruð
þúsunda albanskra flóttamanna
HERSVEITIR A FERÐ OG FLUGII KOSOVO
I Breskar hersveitir settu upp bækistöðvar suður af Pristina
I Bandarískar sveitir leystu breskar af á veginum til Skopje
I Franskar, ítalskar og þýskar hersveitir sendar inn í Kosovo -
um 14.000 starfsmenn KFOR* eru nú í héraðinu
I Þýskir hermenn skutu til bana Serba sem hóf skothrið við
varðstöð. Breskir hermenn skutu einnig Serba til bana í
Pristina. Tveir þýskir blaðamenn hafa verið
drepnir
I Um 200 rússneskir fallhlífarhermenn
komu inn til Pristina frá Serbíu og
tóku flugvöllinn, NATO að óvöru
I Serbneskir hermenn voru á hraðferð út
úr svæði 1 í Kosovo
SERBÍA
SVART-
FJALLALANb
AÆTLUN UM BROTTFOR
Serbneskir hermenn og lögregla verða að
fara á brott innan ákveðins tíma
Svæði 115. júní (6. dagur)
I ~) Svæði 218. júní (9. dagur)
□ Svæði 3 20. júní (11. dagur)
'Friöargæslusveitirnar i Kosovo
MARKALINUR UNDANHALDS
Serbneskir hermenn verða að fara
ákveðna vegalengd frá Kosovo
—' Her og lögregla - 5 km
--- Loftvarnakerfi - 25 km
S Útgönguleiðir
Serbneskar hersveitir eru á mikilli
hraðferð út úr Kosovo og bendir allt
til að þær verði farnar á brott úr
stórum hluta héraðsins, þar á meðal
úr héraðshöfuðborginni Pristina, fyr-
ir miðnætti, eins og kveður á í skil-
málum Atlantshafsbandalagsins
(NATO).
Þúsundir serbneskra hermanna og
lögreglu yfirgáfu Kosovo í nótt,
stundum undir glósum Albana sem
máttu þola mikið harðræði og kyn-
þáttahreinsanir af þeirra hálfu.
„Við höfum séð gífurlega liðsflutn-
inga,“ sagði Robin Clifford, talsmað-
ur NATO. „Það kunna alltaf að koma
upp ófyrirsjáanlegar tafir en við höf-
um enga ástæðu til að ætla annað en
að þeir nái að hafa sig á brott í tíma.“
Hann sagði að hersveitir NATO
fylgdust með brottflutningunum og
þær væru reiðubúnar að taka við
stjórn hernaðarlega mikilvægra
staða um leið og Serbar yfirgæfu þá.
Þúsundir friðargæsluliða NATO
hafa komið inn í Kosovo frá því á
laugardag.
Brottflutningur serbnesku her-
sveitanna er í samræmi við sam-
komulag sem hershöfðingjar NATO
og Júgóslavíu gerðu með sér fyrir
helgi, eftir ellefu vikna loftárásir
bandalagsins á Júgóslavíu.
Serbnesku hermennimir kveiktu
víða í íbúðarhúsum Albana á leið
sinni út úr Kosovo.
Hermenn NATO hafa fundið vís-
bendingar um tjöldagrafir þar sem
talið er að Serbar hafi urðað lík
fómarlamba sinna.
Rauði krossinn segir að á tólfta
þúsund Serba hafi yfirgefið Kosovo
síðan friðarsamningurinn var und-
irritaður í síðustu viku. Háttsettir
serbneskir stjómmálamenn hafa
heimsótt héraðið og hvatt Serhana
til að fara hvergi.
Þá hafa hermenn NATO verið
hvattir til að veita óbreyttum
serbneskum borgurum í Kosovo
vernd sína.
„Það verður ekkert Kosovo ef
engir eru þar Serbarnir," sagði Vuk
Draskovic, leiðtogi flokks hófsamra
Serba og fyrrum aðstoðarforsætis-
ráðherra Júgóslavíu.
Allt kapp er nú lagt á að ná sam-
komulagi um hlutverk rússneskra
hermanna við friðargæsluna. Yfir-
taka þeirra á flugvellinum í Pristina
kom í veg fyrir að NATO gæti sett
þar upp aðalstöðvar sínar og kann
að hafa tafið friðargæslustörfin.
Æðstu leiðtogar Rússlands, þar á
meðal Jeltsín forseti, munu reyna
að leysa ágreininginn í dag.
Morðið á Anne Orderud:
Bróðir og mág-
kona handtekin
Bróðir og mágkona Anne
Orderud Paust, fyrrverandi ritara
norska varnarmálaráðherrans,
voru á sunnudaginn handtekin
vegna morðsins á Anne og foreldr-
um hennar í maí síðastliðnum.
Bróðir Anne, Per Kristian Orderud,
og eiginkona hans, Veronica, vísa
öllum ásökunum á bug.
Fjórir aðilar hafa nú verið gripn-
ir vegna morðanna. í síðustu viku
voru hálfsystir Veronicu og sambýl-
ismaður hennar handtekin vegna
brota á lögum um meðferð vopna.
Bæði hafa þau verið í löngum yfir-
heyrslum um síðastliðna helgi. Þau
hafa nú verið sökuð um morð að yf-
irlögðu ráði. Lögreglan hefur krafist
fjögurra vikna gæsluvarðhalds yfir
þeim. Sambýlisfólið viðurkennir
brot á vopnalögum en harðneitar að
hafa framið morð.
Málið þykir nú æ meir líkjast fjöl-
skylduharmleik. Per Kristian og
faðir hans töluðust varla við vegna
deilna um hver ætti að erfa fjöl-
skyldubúgarðinn. Per Kristian, sem
er lögfræðimenntaður, hafði unnið
á býlinu í yfir 20 ár. Hann hafði
fórnað frama í lögmannastéttinni til
þess að geta tekið við fjölskylduóð-
alinu. Faðirinn vildi hins vegar að
dóttirin, Anne, fengi sinn hluta býl-
isins.
Samkvæmt upplýsingum norska
blaðsins Aftenposten var það vitnis-
burður hálfsystur Veronicu og sam-
býlismanns hennar sem varð til
þess að lögreglan vildi ræða nánar
við Veronicu og Per Kristian.
Demókratar eru
áhyggjufullir
George W. Bush, rikisstjóri í
Texas og væntanlegur forseta-
frambjóðandi repúblikana, gerði
lítið úr árásum demókrata á sig
og sagði að þeir hlytu bara að
vera áhyggjufullir.
„Ég er ánægður með að
demókratar skuli veita mér at-
hygli,“ sagði Bush á fyrsta kosn-
ingarferðalaginu sínu til New
Hampshire í gær. „Mér finnst
gaman að tala um sjálfan mig og
ég er kátur með að aðrir skuli
vera að tala um mig.“
Samkvæmt skoðanakönnunum
nýtur Bush mun meira fylgis en
helsti keppinautur hans meðal
demókrata, A1 Gore varaforseti.
Nýtt frímerki
Sérstakt frímerki til minningar
um brúðkaup þeirra Játvarðs
prins og Sophie Rhys-Jones kem-
ur á markað í Bretlandi í dag.
Gjafapakki með tveimur frímerkj-
um og mynd mun kosta aðdáend-
ur um 140 krónur.
Evrópuþingskosningarnar:
Hague hrósar sigri
Tony Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, viðurkenndi í gær að Verka-
mannaflokkurinn í Bretlandi hefði
vanrækt baráttuna fyrir Evrópu-
þingskosningarnar sem fram fóru
um síðastliðna helgi. Sjálfur kvaðst
hann hafa haft hugann við Kosovo-
deiluna.
Flokkur Blairs beið ósigur í kosn-
ingunum eins og flokkar jafnaðar-
manna og vinstri manna víða ann-
ars staðar. íhaldsflokkurinn hlaut
36 prósent atkvæðanna en Verka-
mannaflokkurinn aðeins 28 prósent.
Þriðji stóri flokkurinn, Frjálslyndir
demókratar, hlaut 13 prósent.
William Hague, leiðtogi íhalds-
flokksins, var sigri hrósandi yfir úr-
slitunum sem þykja styrkja stöðu
hans í flokknum um sinn að
minnsta kosti.
Hann túlkaði niðurstöðuna öðru-
vísi en Blair. „Við töluðum fyrir þá
Breta sem vilja vera í Evrópu án
Tony Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, kvaðst hafa verið upptekinn
af Kosovodeilunni.
þess að láta stjórnast af Evrópu,"
sagði hann.
Hague fullyrti að úrslitin í Evr-
ópuþingskosningunum boðuðu vel-
gengni íhaldsmanna í næstu þing-
kosningunum í Bretlandi. Blair
lagði hins vegar áherslu á að flokk-
ur Hagues hefði sýnt að hann væri
þröngsýnn og hefði aðeins eitt efni á
dagskrá.
„Afturhvarf til útjaðars Evrópu
hefði alvarlegar afleiðingar fyrir
Bretland," sagði Blair. Hann heldur
fast við áætlun sína um að taka upp
evruna í stað pundsins. Vill hann að
haldin verði þjóðaratkvæðagreiðsla
um málið eftir næstu þingkosningar.
Afar lítil þátttaka var i kosningun-
um til Evrópuþingsins. íflestum
Evrópusambandslöndunum sat yfir
helmingur kjósenda heima. Ger-
hard Schröder, kanslari Þýska-
lands, kenndi lítilli þátttöku um
ósigur þýskra jafnaðarmanna.
Stuttar fréttir dv
Átök á hafinu gula
Fallbyssubátar kóresku ríkjanna
tveggja skiptust á skotum í Gula-
hafi í morgun og urðu skemmdir á
fleyum hvorrar þjóðar fyrir sig.
Páfi kominn með hita
Jóhannes Páll páfi fékk vægan
hita í gærkvöld og fyrirskipuðu
læknar honum
að hvfla sig. Páfi
er í heimsókn í
Póllandi þar sem
hann fordæmdi
meðal annars
fóstureyðingar í
gær og hvatti
samlanda sína
Pólverja tU að standa vörð um
mannréttindi frammi fyrir ógninni
sem að þeim steðjaði.
Óveður í aðsigi
Stjórnvöld á Bermúda hafa varað
íbúa eyjanna við því að von sé á
hitabeltislægðinni Arlene upp að
ströndum landsins á næstu tveim-
ur dögum.
Enn talið í Jakarta
Fulltrúar kjörstjórnar í
Indónesíu eru bjartsýnir á að þeim
takist að ljúka talningu atkvæða úr
kosningunum í síðustu viku áður
en frestur tU þess rennur út 21.
júní. Talning hefur gengið afar
hægt og víða hefur þurft að telja
upp á nýtt.
Hert eftirlit með fóðri
Landbúnaðarráðherrar Evrópu-
sambandsríkjanna lýstu í gær yfir
stuðningi sínum við hert eftirlit
með því hvað notað er við fram-
leiðslu dýrafóðurs.
Krókódílar til ama
KrókódUar verða sífellt til meiri
ama á golfvöUum og almennings-
görðum í sunnanverðu Flórida og
þykir það til marks um að stofninn
sé að rétta úr kútnum.
Fús til viðræðna
Vajpayee, forsætisráðherra Ind-
lands, kveðst fús til frekari við-
ræðna við Pakistana hætti þeir
ferð sinni um yfirráðasvæði Ind-
verja í Kasmír.
Fleiri njósnarar
Sendinefnd írans hjá Sameinuðu
þjóðunum gaf í skyn í gær að fleiri
hefðu verið handteknir fyrir njósn-
ir en þeir 13 sem sakaðir eru um
njósnir fyrir ísrael.
Hungurverkfall á Kúbu
Sex stjórnarandstæðingar á
Kúbu hafa nú verið á aðra viku í
hunguverkfalli til þess að leggja
áherslu á kröfur um mannréttindi.
Svaf með hníf í kviðnum
Spánverji, sem lent hafði í rifr-
ildi við kærustuna sína að kvöld-
lagi, sofnaði með hníf í maganum.
Hann lét fjarlægja hnífinn á sjúkra-
húsi morgunin eftir.
Afsagnarbeiöni
Albert Belgiukonungur sam-
þykkti í gær afsagnarbeiðni Jean-
Lucs Dehaenes
forsætisráðherra
eftir ósigur sam-
steypustjórnar
hans í þingkosn-
ingunum um síð-
astliðna helgi.
Kosningabarátt-
an var háð í
skugga hneykslis vegna díoxíns í
matvælum. Belgar hófu í gær á ný
útflutning á svína-, nauta- og fugla-
kjöti. En mörg Evrópusambands-
lönd, þar á meðal Frakkland, neita
að hleypa vöruflutningabifreiðum
með belgísk matvæli inn í lönd sín.
Stefnan vekur óróa
Palestínumenn eru meðal þeirra
sem farnir eru að hafa áhyggjur af
stefnu Ehuds Baraks, nýkjörins for-
sætisráðherra ísraels. Allir sem
hann hefur útnefnt í forystu fyrir
friðarumræðum eru fyrrverandi
hermenn. Palestínumenn hafa sér-
stakar áhyggjur af því að enginn
þeirra sem tóku þátt í umræðunum
er leiddu til Óslóarsamkomulagsins
gegnir nú mikilvægu hlutverki.