Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1999, Blaðsíða 40
fv í K I N G A
s* ð innna
(31^ , *§***£
yrir klukkan 16. á miövikudag
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í slma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notað T DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ
ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ1999
VSÍ og VMS:
Starfslok
framkvæmda-
stjóranna
Þeir Þórarinn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri Vinnuveitendasam-
bands íslands, og Jón Sigurðsson,
framkvæmdastjóri Vinnumálasam-
bandsins, horfa mót óvissri framtíð
um þessar mundfr. Gengið hefur verið
frá starfslokum
við þá fram-
kvæmdastjórana
hvom hjá sínu
sambandi. Ástæð-
an er sú að verið
er að sameina VSÍ
og VMS. Nýtt óg
stærra vinnuveit-
endasamband
verður formlega
sto&að 15. septem-
ber í haust og er
gert ráð fyrir þvi
að það yfirtaki að
fuliu starfsemi
gömlu samband-
anna þann 1. októ-
ber.
Þetta kom fram
í samtali DV við
Þórarin V. Þórar-
insson í gærkvöld
og við Jón Sigurðs-
son í morgun. Jón sagði að þeir Þórar-
inn hefðu lýst því yflr í upphafi sam-
einingarferlisins að það væri brýnt að
ný og fersk yflrstjórn kæmi að hinum
nýju samtökum frá upphafi. DV-yfir-
heyrsla yfir Þórami V. Þórarinssyni
um Landssimann og úrskurð Sam-
keppnisstofnunar á blaðsíðu 18. -SÁ
Togarinn Barði NK:
Fékk mannabein
Frystitogarinn Barði NK, sem
gerður er út frá Neskaupstað, fékk
mannabein i trollið þegar hann var
á veiðum á „Sneiöinni" svokölluðu,
um 12 sjómílur frá Vestmannaeyj-
um. Að sögn Theódórs Haraldsson-
ar, stýrimanns á Barða, komu bein-
in upp ásamt ævafornu stígvéli og
plönkum sem hann gaf sér að væru
úr trébát. Stígvélin voru úr leðri og
sólinn negldur með koparnöglum
við efri liluta stígvélsins. -EIS
Móðir og börn
á batavegi
Fólksbíll og jeppi lentu í hörðum
árekstri um þrjúleytið í gær. Móðir
með tólf ára son ásamt tveimur smá-
bömum slösuðust við áreksturinn og
vora flutt með þyrlu á Sjúkrahús
Reykjavíkur. Móðirin og annað af
yngri hörnunum gengust undir aðgerð
í gær en fjölskyldan var ekki í lífs-
hættu. Samkvæmt upplýsingum blaðs-
ins í morgun era þau farin af gjörgæslu
og fór því betur en á horfðist. -EIS
Þessir vígreifu dönsku víkingar komu til landsins i gærkvöld, tilbúnir að taka þátt í sólstöðuhátíð sem hefst í Hafnarfirði 17. júní og stendur í fjóra daga. Þar munu um
50 vikingar frá ýmsum löndum auk 50 innlendra vikinga skipa sér í bardagasveitir, sýna handverk og leiðbeina áhugasömum börnum um víkingalíf. DV-mynd Teitur
Samræmdu prófin á Patreksfirði:
Allir féllu nema einn
- fóru í útskriftarferð til Kaupmannahafnar
„Grunnskólamir hér á Vestfjörð-
um hafa verið aftarlega á merinni í
samanburði við aðra en þetta er botn-
inn,“ sagði Haukur Már Sigurðarson,
formaður bæjar-
ráðs á Patreks-
firði, en 22 af 23
nemendum i 10.
bekk í grunnskól-
anum á staðnum
féllu á samræmdu
prófunum í vor.
Þrátt fyrir það fór
allur hópurinn í
útskriftaiferð til
Kaupmannahafn-
ar með skólastjór-
ann í fararbroddi.
„Það er ljóst að
við verðum að
taka til í innra starfi skólans og sem
stendur er Kennaraháskólinn að gera
úttekt á því að okkar beiðni,“ sagði
formaður bæjarráðs.
Guðbrandur Stígur Ágústsson,
skólastjóri á Patreksfirði, segir niður-
stöðuna óásættanlega og kennir um
háu hlutfalli leiðbeinenda við skól-
ann: „Hér vora 60 prósent kennarliðs-
Guðbrandur
Stígur Ágústs-
son skólastjóri:
- Hlutfall leið-
beinenda ailt of
hátt.
ins leiðbeinendur og það var sláandi
munur á einkunnum í þeim fogum
sem réttindakennari kenndi eða þá
leiðbeinendur. Við vonumst til að
Patreksfjörður. Nær því 100 prósent fall.
heima en féll samt í öllum samræmdu
greinunum. Við sitjum uppi með tán-
inga sem hvergi komast í skóla og
margir hverjir neita alfarið að halda
skólanámi
áfram.“
Að sögn
Hauks Más
Sigurðarson-
ar, formanns
bæjarráðs,
hafa 16 af
nemendunum
22, sem féllu,
sótt um í svo-
kallaðri 0-
deild sem er
undirbún-
ingsdeild fyr-
ir framhalds-
skólana.
Óvíst er með
koma hlutfalli réttindakennara upp í
80 prósent á næsta ári, hvort sem það
tekst eða ekki,“ sagði skólastjórinn.
Foreldrar nemendanna á Patreks-
firði eru miður sín yfir þessum slaka
árangri. Faðir eins nemandans orðaði
það svona: „Bamið mitt lærði alltaf
þá 6 sem eftir era.
Sveitarstjórnin í Vesturbyggð ráð-
gerir að sameina alla skóla í byggðar-
laginu undir einum hatti og ráða einn
skólastjóra yfir þá alla. Eru það skól-
arnir á Patreksfirði, Bíldudal, Birki-
mel á Barðaströnd og í Örlygshöfn.
„Jú, það hafa nokkrir sýnt skóla-
sijórastöðunni áhuga,“ sagði formað-
ur bæjarráðs á Patreksfirði. -EIR
Sú eina
sem náði
Bergdís Þrastardóttir var eini
nemandinn í grunnskólanum á Pat-
reksfirði sem náði samræmdu próf-
unum í vor. Hún er
dóttir Þrastar Reyn-
issonar sjómanns og
Amheiðar Jónsdótt-
ur þroskaþjálfa.
„Hún féldí nú ekki
neinar rosaeinkunn-
ir, þetta frá 7,5 og upp í 8,“ sagði
Þröstur faðir Bergdísar um árangur
dóttur sinnar. „En hún er vinnu-
þjarkur og vann alltaf með náminu.
Núna starfar hún á Essostöðinni hér
á Patreksfirði og er staðráðin í að
fara á landbúnaðarháskólann á Ási í
Noregi og verða landslagsarkitekt,"
sagði Þröstur Reynisson og var að
vonum stoltur af dóttur sinni. -EIR
Veðrið á morgun:
Rigning fyrir
norðan
Á morgun verður norðvestan
8-13 m/s, en hægari vestlæg átt
fram eftir degi austanlands. Rign-
ing verður norðan- og norðaustan-
lands, skúrir vestan til en að
mestu þurrt suðaustanlands. Hiti
verður á bilinu 2 til 12 stig, mild-
ast suðaustan til.
Veðrið í dag er á bls. 45.
Tölur við vindfjaðrir sýna metra á sekúndu
Krikket
Símar 567 4151 &. 567 4280
, Heildverslun með leikfong ogýafavörur