Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.1944, Blaðsíða 10

Frjáls verslun - 01.05.1944, Blaðsíða 10
Árni Jónsson frá Múía: LUIS ZÖLLNER n í r æ ð u r F ramhald Um þessar mundir eru liðin rétt sextíu ár frá því „Islandssaga" Louis Zöllner hófst. Það var kvöld eitt, haustið 1884, að Zöllner sat í húsakynnum taflfélags Norðymbralands i Newcastle og tefldi skák. Hann var þá þegar orðinn kunnur af taflmennsku sinni og horfðu því jafnan margir á, er hann tefldi. Að þessu sinni þreytti hann íþrótt sína við svo slyngan andstæðing, að ekki þótti með öllu sýnt, hversu leikar færu. Eftir því sem nær dró úrslitum bættist stöðugt í hóp áhorfenda. Meðal annars var þar kominn ungur maður ókunnur, hár vexti og fríður sýnum, vel búinn og fyrirmann- legur. Þegar taflinu var lokið víkur þessi mað- ur sér að Zöllner, heilsar honum hæversklega, nefnir nafn sitt og kveðst eiga við hann erindi. Zöllner tók komumanni hið bezta og ræddust þeir við um stund, en ákváðu að lokum að hitt- ast morguninn eftir á skrifstofu þeirra bræðra, Andreas og Louis Zöllner. Þetta var Jón Vída- lín, síðar félagi Zöllners og ræðismaður Breta á íslandi. Jón Vídalín var þá tuttugu og sjö ára að aldri. Hann var fæddur 6. september 1857, sonur hjón- anna Páls bónda og alþingismanns Vídalín og Elínborgar Friðriksdóttur Eggerz, prests í Ak- ureyjum. Ólst hann upp á ættaróðali Vídalín- anna, Víðidalstungu. Sextán ára gamall missti hann föður sinn og réðst þá starfsmaður til Borðeyrarverzlunar. Tveim árum síðar fór hann utan og gekk á verzlunarskóla í Kaupmanna- höfn. Að námi loknu réðst hann bókhaldari til Gránufélagsverzlunar á Raufarhöfn, en hafði þar ekki langa dvöl. Rúmlega tvitugur tekur hann að reka verzlun í Reykjavík í félagi við frænda sinn, Pál Eggerz. Verzlun sú varð ekki langlíf, og urðu þeir frændur gjaldþrota. Jón Vídalín. Skömmu síðar gerði Vídalín ferð sína norður í Þingeyjarsýslu að heimsækja móður sína, sem nú var gift séra Benedikt Kristjánssyni í Múla. Þetta var sumarið 1883. Varð það úr að Jón var um kyrrt hjá móður sinni og stjúpa næsta miss- erið. 10 FRJÁLS VERZLUN

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.