Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1995, Blaðsíða 43

Frjáls verslun - 01.02.1995, Blaðsíða 43
Jerry I. Reitman, höfundur bókarinnar, heldur fyrir- lestur hér á landi um beina markaðssetningu þann 4. apríl næstkomandi. BEIN MARKAÐSSETNING 1. Bein markaðssetning byggist á upplýsingatækni og gagnagrunn- um. 2. I beinni markaðssetningu er algengt að keyra saman ólíka gagna- grunna til að velja markhópa nákvæmar en áður. Þetta hefur í för með sér markvissari skotmörk fyrir fyrirtækin — og þau selja meira. 3. Bein markaðssetning er sjaldnast notuð eingöngu heldur er aug- lýsingaherferðum, kynningum og almannatengslum beitt sam- hliða. 4. Bein markaðssetning er mikið notuð á meðal fyrirtækja í fjármála- heiminum, eins og banka og tryggingafélaga, sem hafa greinargóð- ar upplýsingar um viðskiptavini sína. 5. Friðhelgi einkalífsins, og þær hættur sem bein markaðssetning getur steðjað að fríðhelginni, er ævinlega í brennidepli þegar fjall- að er um beina markaðssetningu. Svo er einnig í þessari bók. 6. Bein markaðssetning er ekki ný af nálinni. Á 4. tug aldarinnar notuðu bílaframleiðendur í Bandaríkjimum markpóst til að minna bíleigendur á að koma með bíla í skoðun. 60 árum síðar eru sömu aðferðir enn notaðar — en nú til að selja bíla. Fyrri kaflinn fjallar um fjármála- heiminn. Þar er að finna helstu for- sendur fyrir bestu markaðssetningu sem völ er á. í fyrsta lagi er banka- þjónusta víðtæk og notuð af öllum. í öðru lagi eru samskiptin mikil milli notenda og þeirra sem veita hana. í þriðja lagi byggist notkun hennar á öllum möguleikum samskipta- og upplýsingatækninnar. Síðast en ekki síst liggja möguleikar bankanna í öfl- ugum gagnagrunni. Allar þær upplýs- ingar, sem banki þarf að hafa til að geta nýtt sér beina markaðssókn, er að finna í reiknistofum þeirra. Þannig geta bankar komið fram með nýja þjónustu fyrir ólíka hópa þar sem að þeir vita nákvæmlega hvernig og meira segja í hvað einstaklingamir í hópunum eyða peningunum sínum. Fjármál geta verið ansi flókin og því þýðir aðeins að bjóða viðskiptavinin- um nýja þjónustu að hún feli í sér lausn á einhverjum vanda hans. Til þess að geta gert þetta þarf miklar upplýsingar um hegðun hans og þarfir (án þess að þurfa að spyija hann sjálf- an) en það er allt að finna í gagna- grunnum banka. Seinni kaflinn fjallar um hina hliðina á ofangreindu máli, nefnilega friðhelgi einkalífsins hjá neytendum og hætt- urnar sem eru því fylgjandi að vita svona mikið um viðskiptavininn og t.d. bankaramir gera. í Bandaríkjun- um má til sanns vegar færa að neyt- andinn hafi lítið um það að segja hvemig upplýsingum um hegðan hans og viðskipti em notaðar. Þó er alltaf verið að setja lög og reglur um þetta efni í hinum ýmsu fylkjum landsins. Það er þó engin algild regla í þessum efnum og matsatriði hvar draga eigi mörkin. Mesta hættan er sú að fyrirtæki selji upplýsingar úr gagnagrunnum sínum en noti þær ekki eingöngu í eigin þágu. Einnig verður æ auðveld- ara, með allri þeirri tölvutækni sem til er, að komast yfir upplýsingar frá öðrum. Af þessum ástæðum eru há- værar raddir um að settar verði strangar reglur um notkun persónu- legra upplýsinga. Þetta hefur verið gert t.d. í Evrópulöndum þar sem mun minna er um beina markaðssókn en í Bandaríkjunum. Það er því mikil- vægt að enginn fara offari í þessum efnum því annars gæti bein markaðs- sókn heyrt sögunni til í stað þess að verða öflugt tæki í viðskiptum fram- tíðarinnar. UMFJÖLLUN Hér er um mjög fjölbreytta og yfir- gripsmikla bók að ræða um verðugt viðfangsefni og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi sem áhuga hafa á markaðsmálum. En þar sem að höfundar eru margir verður ekki komist hjá því að rekast á endur- tekningar á grundvallaratriðum þar sem margir þeirra kalla til sögunnar sömu forsendur fyrir greinarskrifum sínum. Það er sérstaklega athyglisvert hve ólík efnistök og áherslur höfundar hafa, eftir því hvort um er að ræða ráðgjafa markaðs- eða auglýsingafyr- irtækis eða hvort höfundamir em há- skólakennarar í faginu. Einn höfunda, Carol Nelson, telur að of mikið sé fjallað um markaðsmál af þeim síðar- töldu. Hún segir að í eðli sínu séu þeir kenningasmiðir og boðendur kenn- inga í vemduðu umhverfi. Þeir stundi ekki þessar kenningar og þurfi ekki að sýna sjálfir fram á hvemig þeim eigi að beita í hinum raunverulega og harða heimi viðskiptanna. Það kemur verulega á óvart að greinarhöfundar, sérstaklega há- skólakennamir, láta engra heimilda getið í lok greina sinna. Útgefandinn reynir að bæta úr þessu með bóka- lista í lok bókar, sem er lesendum mjög gagnlegur, en hann er takmark- aður við bækur frá þessum eina út- gefanda. 43
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.