Frjáls verslun - 01.02.1995, Blaðsíða 8
FRETTIR
STÓRBÆTT AFKOMA FYRIRTÆKJA
BLASIR VIÐ í FYRSTU TÖLUM
Afkoma fyrirtækja
virðist hafa stórbatnað á
árinu 1994 miðað við árið
1993. Frjáls verslun birt-
ir hér afkomu eftir skatta
hjá 14 fyrirtækjum sem
hafa birt reikninga sína
fyrir síðasta ár.
Viðsnúningur þessara
fyrirtækja er um 2,2
milljarðar króna á milli
ára. Þau töpuðu samtals
um 250 milljónum á ár-
inu 1993 en högnuðust
eftir skatta um 1.952
milljónir á síðasta ári
Tveir bankar eru á
þessu yfirliti, íslands-
banki og Landsbanki.
Ástæðan fyrir bættri af-
komu íslandsbanka er
864 milljóna króna lægra
framlag á afskriftarreikn-
ing útlána en árið 1993. I
raun versnaði afkoma
bankans lítilllega fyrir
þessagjaldfærslu. Lands-
bankinn lagði um 2,1
milljarð króna inn á af-
skriftarreikning útlána
Afkoma fyrírtækja 1994
eftir skatta
1993 1994
Flugleiðir -188 624 H
Eimskip 368 557 ■■
íslandsbanki -655 185 m
Skeljungur 96 125 ■■
Haraldur Böðv. -44 103 ■■
Hampiðjan 42 90 ■
Vísa ísland 57 78 ■
Landsbréf 25 47 1
Glitnir -19 46 |
Lýsing 20 33 |
Kaupþing 24 26 |
Landsbankinn 43 22 |
Sæplast 12 10 [
Tangi, Vopnaf. -31 6|
■250 1.952
Afkoma fjórtán fyrirtækja sem birt hafa reikninga sína fyrir
síðasta ár sýnir viðsnúning í rekstri þeirra upp á rúma 2,2
milljarða króna.
Breskt tryggingafélag:
ÚTIBÚ Á ÍSLANDI
N.H.K. International
Ltd., sem er bresk
Lloyd’s vátryggingamiðl-
un, hefur fengið starfs-
leyfi til að stunda vá-
tryggingamiðlun á Is-
landi og hefur félagið
opnað útibú að Suður-
landsbraut 46.
Félagið er fyrsta er-
lenda tryggingafélagið,
sem stofnar útibú á ís-
landi, sem rekja má beint
til aðildar íslands að
Alfred C. Kingsnorth, stjórn-
arformaður N.H.K. Interna-
tional Ltd sem er bresk
Lloyd’s vátryggingamiðlun.
EES, Evrópska efnahags-
svæðinu. En þess má geta
að fyrir nokkrum árum
kom sænski tryggingaris-
inn Scandia inn á íslensk-
an tryggingamarkað.
Stjórnarformaður fé-
lagsins, Alfred C. Kings-
north, kom gagngert
hingað til lands í tilefni
opnunar útibúsins.
Starfsmenn útibúsins eru
þeir Halldór Sigurðsson
og Gísli Maack.
Paul R. Timm: „Einn vansæll
viðskiptavinur getur orðið til
þess að 55 manns hætta að
versla við þig.“
Einn óánægður og
55 MANNS
HÆTTAAÐ
VERSLA VIÐ ÞIG
Dr. Paul R. Timm, sem
hefur samið sautján bæk-
ur og fjölda greina um
þjónustu við viðskipta-
vini, mannleg samskipti
og fleira, flutti erindi á
tveimur námsstefnum
Stjórnunarfélagsins. Sú
fyrri var á Hótel Kea á Ak-
ureyri en sú seinni á Hót-
el Sögu.
Margt afar athyglisvert
kom fram í erindum hans.
Sérstaka athygli vöktu
orð hans um það hvað
óánægður viðskiptavinur
er dýrkeyptur. Rann-
sóknir vestanhafs sýna
sá einn óánægður við-
skiptavinur breiðir fljótt
út neikvæðar sögur og
getur orðið til þess að 55
hætti að skipta við fyrir-
tækið. Þetta er miklu
meira en menn hafa al-
mennt gert sér grein fyrir
og sýnir hvað góð þjón-
usta og ánægðir við-
skiptavinir eru mikilvæg.
Þá kom ennfremur
fram hjá Paul R. Trimm
að meðalfyrirtæki tapar
um 30% viðskiptavina
sinna á ári vegna þess að
gæði þjónustunnar er
ekki sem skyldi.
8