Frjáls verslun - 01.02.1995, Blaðsíða 33
þrátt fyrir að hafa verið frábær
skemmtun í alla staði. Ástæðan, jú
þeim mistókst að selja vöruna. Því er
svo bætt við að það sé kaldhæðnis-
legt að margar af þeim auglýsingum,
sem þóttu hvað leiðinlegastar, hafi
reynst árangursríkastar, hafi staðið
að baki best seldu vörumerkjunum.
Áréttað er að eklvert samband þurfi
að vera á milli skemmtunar og sölu.
Jafnframt er minnt á þá hættu að sleg-
ið geti fljótt í brandara í auglýsingum
og þess vegna þurfi að gera fleiri aug-
lýsingar en ella í fyndnum herferðum.
EINFALT RÁD TIL AÐ SJÁ HVORT
FYNDNIN SKYGGIÁ SKILABOÐIN
Hægt er að nota einfalt ráð til að
átta sig á hvort skemmtun skyggi á
söluskilaboð í sjón-
varpsauglýsingu.
Það er einfaldlega
að klippa skilaboðin í
burtu. Beri auglýs-
ingin það eru hlut-
irnir í lagi, fyndnin
styrkir þá auglýs-
inguna, gerir hana
enn betri og eykur
söluna — sem er að-
alatriðið.
í bókinni er rakið
dæmi um erlenda
auglýsingu þar sem
fyndni og húmor
styrkti auglýsinguna
— jók söluna. Aug-
lýsingin var um
svitalyktareyði.
Vandamálið var
svitalyktin og lausn-
in var að sjálfsögðu
ákveðinn svitalyktareyðir. í sjón-
varpsauglýsingunni spurði maður
lækninn sinn hvort svitalyktareyðir-
inn leysti öll hans vandamál. Læknir-
inn svaraði að bragði: „Nei, aðeins
eitt þeirra.“
SPILAÐINN Á KYNHVÖTINA
Einnig er rætt um það hvemig spil-
að sé inn á kynhvötina í auglýsingum.
Sagt er að lífið snúist ef til viU um
kynlíf en það selji ekki margar vörur.
(Sex may make the world go round,
but it doesn’t sell many products.)
Bent er á að kynhvöt selji þegar verið
sé að selja kynæsandi vörur eins og
ilmvötn og snyrtivörur.
Jafnframt er bent á að megrun og
heilsurækt séu dæmigerð svið þar
sem vel gangi að spila inn á kynhvöt-
ina. Gosframleiðandi seldi sykur-
skertan drykk og stflaði söluna fyrst
og fremst inn á karlmenn í heilsu-
rækt. Salan rauk hins vegar upp
þegar auglýst var beint með orðunum
að drykkurinn hjálpaði konum að
halda sér grönnum og kynæsandi.
TÓNLIST í AUGLÝSINGUM
Tónlist er í flestum auglýsingum og
flokkast undir skemmtun. Söngur og
tónlist í bakgrunni er afar einföld leið
til að ná upp stemmningu í sjónvarps-
auglýsingum. Hins vegar er mönnum
ráðlagt að nota tónlist af varfæmi þar
sem möguleiki sé á
að yfirgnæfandi tón-
list dragi athyglina
frá sjálfum skilaboð-
unum, að þau fari
fyrir bí.
Sé tónlist hins
vegar notuð rétt
getur hún magnað
upp skilaboðin og
greypt auglýsinguna
í minni fólks þannig
að nóg sé hreinlega
að koma með fyrsta
tóninn og þá viti fólk
hvað sé verið að
auglýsa. Bjöll-
uhljómur þykir afar
sterkur í þessu sam-
bandi og er talinn
hamra nafn vöru og
skilaboð hvað best
inn í hugi fólks. Sér-
staklega þykir bjölluhljómurinn vera
áhrifaríkur og duga vel til að selja
bamavörur.
VANDIÐ VALIÐ Á LEIKURUM
— TIL AÐ STANDA UPP ÚR
Vart er hægt að hugsa sér fyndni
eða skemmtun í sjónvarpsauglýsing-
um án þess að huga að því fólki sem á
að leika í auglýsingunum. Það að fara
óvenjulegar leiðir í vali á fólki hjálpar
auglýsingunni að standa upp úr og
verða minnisstæð. Best er að fá leik-
ara með óvenjulega hæfileika, hæfi-
leika sem vekja athygli og gera aug-
lýsinguna minnisstæða. Þegar ráðinn
TLBOÐ TIL
ÁSKRIFENDA
FRJÁLSRAR VERSLUNAR
10%
út 0Pr"
Fjárhagsbókhald
Viáskiptamanna-
bókhald
Lagerbókhald
Sölukerfi
Launakerfi
Windows tollkerfi
Hótel kerfi
Einnig:
Smáráö ,
lítiö viöskipta-
lager- og
sölukerfi
meö
fjárhags-
bókhaldi
\r RÁÐHUGBÚNAÐUR HF.
Bæjarhrauni 20 - 220 HafnarfjörSur
Sími. 565 4870 - Fax. 565 4872
Oft er sú leið farin að
velja miðlungsþekkta
leikara í
sjón varpsauglýsingar.
Þeir hafa hæfileika og
ferst verkið oft
ágætlega úr hendi.
Jafnvel þótt neytendur
og áhorfendur þekki
ekki nafn leikarans
kann andlit hans engu
að síður að vera
kunnuglegt. Það eitt
hjálpar til að ná fram
þessu óvenjulega og
þar með athygli
áhorfenda.
33