Tíminn - 01.04.1973, Blaðsíða 30

Tíminn - 01.04.1973, Blaðsíða 30
30 TÍMINN Sunnudagur 1. aprll. 1973 * Péturslögmálið, sem stjórnar því, að flestir lenda í starfi, sem þeir geta ekki gegnt ALLIR þekkja Parkinsons-lög- máliö, sem veldur sifelldri þenslu i öilum stofnunum, svo aö þar eru fyrr en varir komnir tveir menn fyrir hvern cinn og þannig koll af kolli, unz afgreiösla mála situr föst, af þvi aö hvert atriöi þarf aö ganga í gegn um hendur æ fieiri manna og hljóta blessun æ fleiri embætta. En þaö er lika til annað þjóð- félagsfyrirbæri, sem kallað hefur verið Péturslögmálið. A sama hátt og Parkinsonslögmálið veld- ur sjálfkrafa endalausri fjölgun starfsmanna i embættiskerfinu, leiðir Péturslögmálið það af sér alveg sjálfkrafa, að menn hafna yfirleitt i þeim störfum, sem þeir eru sizt færir um að gegna. Þetta lögmál á sér jafnaugljós rök og Parkinsonslögmáliö, ef allt er til mergjar brotið. Skýringin á þvi, að þjóðfélags- kerfið festir menn i þvi starfi, sem hann hefur ekki getu til þess að leysa af höndum, er afarein- föld. Þetta gildir þó aðeins um þaö, sem kalla má stigskipt félagsveldi af einhverju tagi. En þar kemur þá aftur á móti, að samfélög okkar eru einmitt keöja slikra fyrirbæra. Þess eðlis eru allar félagsstofnanir, embætti og fyrirtæki, sem ekki eru rekin af einum manni eða einni fjölskyldu. Af þessu leiðir, að við erum svo til öll innlimuð i eitthvað, sem i rauninni er slikt félagsveldi, þar sem fólk greinist i yfirmenn og undirgefna. Þetta á við um fræðslukerfið, viðskiptafyrirtæk- in, embættiskerfið, verkalýðs- félögin og svo til hvaðeina. Og eins og i pottinn er búið er engin undankomuleið. 1 kjörfar sam- keppninnar siglir Péturslögmálið meö sinum óhugnanlegu af- leiðingum. Hvort sem i hlut á bæjarstjórnarskrifstofan i Báru- firði eða Hinar sameinuðu súpu- teningaverksmiðjur h.f., rikir Péturslögmálið þar innan dyra, með miskunnarlausum og grá- broslegum afleiðingum sinum og kyrrsetur hvern mann i þvi sæti, þar sem hann á sizt heima. Hugsum okkur nú að það eigi að ráða skrifstofustjóra i stofnun, sem er þaö, er við höfum hér kallaö stigskipt félagsveldi. Ef ekki koma til annarleg sjónar- mið, mun þykja eölilegt, að ein- hver starfsmaður stofnunarinn- ar, sem áður hefur gegnt ábyrgð- arminna starfi og kauplægra, veröi valinn i embættið, til dæmis einhver af fulltrúum fyrirtækisins eöa embættisins. En hvern þeirra á að forframa? Jú — þarna er maður, sem hefur staðið allvel i stöðu sinni að undanförnu, Guð- mundur okkar Guðmundsson. Magnús Magnússon eöa Jón Jónsson koma ekki til greina, þvi aö þaö hefur margt gengið á tré- fótum hjá þeim i fulltrúastarfinu. Þeir hafa sem sagt hreppt þá stöðu, sem þeir geta ekki gegnt, og i henni verða þeir framvegis. Þeir hafa hlotiö þann sess, sem Péturslögmálið hefur ætlað þeim. Þaö kemur svo seinna fram, hvort Guðmundu - Guðmundsson ræður við skrifstofustjórastarfið. Geri hann þaö ekki, má furðu gegna, ef hann situr ekki i þvi til loka starfsævi sinnar. Þá er sem sé einnig hann kominn á sinn bás. En reynist hann aftur á móti dug- legur, liggur leið hans lengra upp á við, unz hann fær, fyrr eða siöar, embætti, sem alls ekki er við hans hæfi og hann ræöur engan veginn við. Þessi saga gerist, hvort sem velja á nýjan deildarstjóra eða trúnaðarmann af einhverju tagi. Og afleiðingarnar liggja i augum uppi: Fleiri og fleiri komast á lokastig frama sins, Pétursstigið — lokahöfnina, þar sem þeir eru litt hæfir til verka, sjálfum sér til leiðinda og öðrum til ógagns. I þessu er fólgin skýringin á þvi, hversu svo margt fer úrskeiðis i stjórn, rekstri og starfi i þjóð- félaginu, hvort sem um er að ræða embættisrekstur eða hvers- dagslegasta viðskiptafyrirtæki. Þjóöfélagskerfið dæmir sjálft sig til þess arna. Nú kann að veröa fært fram á móti þessari kenningu, að þrátt fyrir deyfð, og doða, mistök og sleifarlag, sé sitthvað skynsam- legt gert, bæði i atvinnulifinu og embættiskerfinu. En það haggar ekki Péturslögmálinu. Þetta er sem sé að þakka starfsfólki, sem ekki hefur enn náð Pétursstiginu — það er að segja ekki komizt i hina óhugnanlegu höfn, sem biður þess. Hversu þungt starf þessa fólks vegur, má reikna á einfald- an hátt. Hin stærðfræöilega regla er að margfalda tölu starfsmanna á Pétursstiginu með hundrað og deiia þar i með heildartölu starfs- fólks. Ef allir starfsmenn ein- hverrar stofnunar væru á Péturs- stigi, yrði þar yfirleitt ekkert gagnlegt handarvik gert. Skilyrði þess, að slikt geti gerzt eru tvö. 1 fyrsta lagi þarf hver einasti starfsmaður að hafa verið nógu lengi i hinu stiggilda félags- kerfi til þess að hafa náð á leiðar- enda og hafnað i starfi, sem hann ræður ekki við. I öðru lagi verða að vera nógu mörg stig for- frömunar innan stofnunarinnar eða fyrirtækisins. Stundum er þó ekki nauðsyn- legt, að þessi stig séu sérlega mörg. Ungfrú Jóna lauk til dæmis stúdentsprófi með miklum ágæt- um, þvi að hún hlustaöi vel i kennslustundum, tók ekki þátt i mótmælagöngum og svaraði spurningum kennaranna með þeirra eigin orðalagi. Eins gekk henni ágætlega i háskóla — af sömu orsökum. En þegar hún fór að kenna i menntaskóla, kom á daginn, að hún hafði náð þvi marki, sem kerfið stefndi að, Pétursstiginu. Henni var ekki lagið að kenna öðrum, og þess vegna mun hún dúsa i þessu kennaraembætti. Stöku sinnum ber aö sjálfsögðu við, að hinar æöstu stöður stig- gilds félagsveldis eru skipaðar mönnum, sem njóta sin i þeim. En það staðfestir einmitt Péturs- lögmálið: Þá vantar aðeins eitt — nógu mörg stig til þess, að þessir menn verði hækkaðir upp i stöðu, þar sem þeir læsast fastir. Þau eru ekki til stofnuninni eða þjóð- félaginu i heild. Við komumst svo að orði, að menn lentu á Pétursstiginu, sjálf- um sér til leiðinda og öðrum til ógagns. Sú likn er mörgum ein- staklingum lögð i þessari þraut, að þeir uppgötva ekki sjálfir þá úlfakreppu, er þeir eru komnir i. Það rennur aldrei upp fyrir þeim, að þeir eru ónýtir menn á þeim pósti, sem þeim hefur fallið i skaut. Þess vegna geta sumir kunnað allvel við sig, sælir i þeirri trú, aö það sé þeim aö þakka, er aðrir inna af höndum í þessari blekkingu geta þeir verið önnum kafnir við ekki neitt allt til þess tima, er þeir fara á eftirlaun. Þetta krefst þó þroskaðrar og kannski fyrst og fremst ómeð- vitaðrar sjálfsblekkingar. Brautin, sem dr. Pétur treður, er þá einkanlega þessi: í staðinn fyrir það frumstæða atferli, að ganga beint til verks, mun hann einbeita sér að viða- miklum undirbúningi, gagnasöfn- un, skýrslugerð, áætlunum — og aldrei komast lengra. Þessa að- ferð má greina i marga þætti. A. Rannsókn á þvi, hvort i rauninni sé þörf á þvi að gera það, sem til stendur. Slikur maður getur skirskotað til fjölmargra spakmæla, aðferð sinni til stuðn- ings. En sé hún lesin niður i kjöl- inn, ber ævinlega að sama brunni: Sá maður, sem notar næganlega langan tima til þess að kanna, hvort þörf sé á að gera það, sem hann hefur i huga, mun ævinlega komast að þeirri niður- stöðu, að ekki sé vert að ráðast i fyrirtækið. B. Rannsakar vendilega, hvaða aðferðir muni helzt koma til greina. Arangurinn svipaður. C. Leitar ráða hjá sérfræðing- um, skipar upp úr þvi nefndir og- undirnefndir, heldur umræðu- fundi, þingar og skrafar enda- laust. Þeim mun lengur sem haldið er áfram á þennan hátt, þvi minni likur eru til þess, að meira verði úr. Sumir helga sig alveg aukaat- riðunum. Við getum hugsað okkur fagurt dæmi: Forstöðu mikils listasafns. Sýningar eiga sér ekki framar stað, engin ný verk eru keypt og ekkert er gert til þess að vekja athygli almenn- ings eða áhuga á stofnuninni. Forstööumaðurinn hefur sökkt sér niður i sögu rammagerðar. Það er næsta viðfeðmt efni, og hann verður að vera vel að sér á mörgum sviðum, til þess að hafa þar fulla yfirsýn. Þess vegna beinist athafnasemi hans i vax- andi mæli að þvi að rannsaka gerðir lims, sem notað hefur verið við innrömmun á liðnum öldum. Enn er það alkunna, að maður á Pétursstigi sökkvir sér af mikilli elju niður i eitthvað, sem alls ekki kemur starfi hans við. Þannig liggja ýmsar leiðir út úr ógöngunum — það er að segja fyrir einstaklinginn, svo að hann getur haldið áfram að gegna starfi sinu, án þess að uppgötva, hvar hann stendur. En langt er frá, að allir séu svo heppnir, þvi miður. Þeirra hlutskipti verður svefnleysi, magasár, of hár blóð- þrýstingur, hjartabilun og ótal margt annað. Einkennin koma ekki aðeins fram i sjálfum sjúk- dómunum, heldur einnig athöfn- um þessara manna. Suma gripur mikil ákefð og hrúga i kring um sig alls konar tæknibúnaði — fjölda sima, samtalskerfa innan húss, upptökutækja, bjölluútbún- aði, ljósmerkjum og hvers konar vélum. Aðrir geta með engu móti þolað bækur, blöð eða skjöl á skrifborði sinu. Það verður hin æðsta dyggð, að skrifborðið sé hreint — liklega af þvi, að haugar myndu minna óþægilega á, hvað átt hefði að gera og ógert er. Siðan koma þeir, sem fara þver- öfugt að: Hlaða á skrifborð og fylla skápa sina af alls konar blöðum og minnisgögnum, sem drukkna i sjálfum sér. Ósjálfrátt reynir slikur maður að vekja þá hugsun, að hann hafi ósköpin öll að gera og sjái aldrei fram úr verki sinu. Margt fleira er til: Sjúkleg árátta að hafa stærra skrifborð en aðrir, endalaus löngun til þess að útbýta yfirlitsskýrslum um allt milli himins og jarðar og sú hneigð að vera alltaf að velta fyrir sér nýju skipulagi, nýbyggingum eða breytingum af einhverju tagi. Svona mætti lengi halda áfram. En þetta verður að nægja. Þetta gefur að minnsta kosti örlitla hugmynd um Péturslögmálið, sem sagt er, að umlyki okkur öll. Péturslögmálið er kenning, sem ýmsum kann að koma kynlega fyrir sjónir, en kann þó að vekja nokkra umhugsun. Kenningin er upprunnin i Banda- rikjunum, og i þessari grein geta menn fengið af henni ofurlitinn smekk.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.