Morgunblaðið - 20.11.2007, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 20.11.2007, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 316. TBL. 95. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 2007 LANDSPRENT EHF. mbl.is ÞRÁBIÐUR UM SÓL JAPSY JACOB ÁTTI SÉR DRAUM UM LAND SEM VARLA VAR RAUNVERULEGT >> 20 FRÉTTASKÝRING Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is UNGLINGSÁRIN eru mörgum erfiður tími enda vita unglingar oft ekki í hvorn fótinn þeir eiga að stíga, hvort þeir eiga að haga sér eins og börn eða fullorðnir. Það er því ekki nema eðlilegt að lögin og dómskerfið taki tillit til þessarar tví- bentu stöðu og það má segja að ung- lingar í af- brotum séu bæði meðhöndlaðir sem börn og sem fullorðnir ein- staklingar. Það vakti athygli um helgina að ungmenni komu við sögu í tveimur nokkuð alvarlegum glæpamálum, annars vegar ráni í kjörbúð í Reykjavík og hins vegar innbroti, skemmdarverkum og þjófnaði á byssum og skotfærum í Húsafelli. Ungmennin eru öll sakhæf, enda eldri en 15 ára, og því eiga þau flest yfir höfði sér ákæru og dóm í málunum. Það var sérstaklega óvenjulegt við ránið í Hlíðunum að það var framið af fjórum sextán ára piltum sem höfðu hreina sakaskrá. Þeir hafa nú játað aðild sína að málinu. Hvort sem ránið var skipulagt eða framið í stundaræði er ekki víst að þeir hafi gert sér grein fyr- ir hversu alvarlegt málið gat orðið. Refsing við ránum er nefnilega þung, að lágmarki sex mánaða fangelsi. Þar sem piltarnir eru yngri en 18 ára er dómstólum hins vegar heimilt að færa refsinguna niður úr lágmarkinu. Afplána á meðferðarheimilum Í afbrotum þar sem ungmenni eiga í hlut kemur einnig til sér- stakra álita hjá dómstólum að skil- orðsbinda refsinguna. Þegar um minniháttar afbrot er að ræða er einnig algengt að veittur sé ákærufrestur, þ.e. frestað er að gefa ákæru út og málið síðan fellt niður ef viðkomandi unglingur heldur sig réttum megin við lögin. Einnig er nokkuð algengt að refs- ingu sé frestað með sömu skil- yrðum. Þá geta unglingar, þ.e. 18 ára og yngri, sem dæmdir eru í fangelsi eða úrskurðaðir í gæslu- varðhald, valið að sitja af sér á meðferðarheimili, skv. samningi Barnaverndarstofu og Fangelsis- málastofnunar. Eru bæði börn og fullorðnir Lögin taka mildar á unglingum Leikhúsin í landinu Það er gaman í leikhúsi. >> 37 Eftir Arnór Gísla Ólafsson arnorg@mbl.is EKKI SÉR fyrir endann á krepp- unni á fjármálamörkuðum í kjölfar vandræða vegna áhættusamra hús- næðislána vestur í Bandaríkjunum og sífellt berast nýjar fréttir af af- skriftum fyrirtækja vegna þessara lána eða sjóðum þeim tengdum, nú síðast um að stærsti banki heims, Citigroup, þurfi hugsanlega að af- skrifa allt að 900 milljörðum ís- lenskra króna á næstu tveimur árs- fjórðungum vegna taps á áhættusömum húsnæðislánum. Fjármálafyrirtæki hafa orðið einna verst úti og kreppan hefur rækilega náð að teygja krumlur sín- ar til Íslands enda vega fjármálafyr- irtæki afar þungt á íslenskum hluta- bréfamarkaði eða hátt í 90% í úrvalsvísitölunni. Þá hafa fjármögn- unarkjör íslensku bankanna versnað afar mikið og svokallað skuldatrygg- ingarálag, sem í grófum dráttum endurspeglar vaxtakjör bankanna á hverjum tíma, er nú í sögulegum hæðum. Um 23% lækkun frá júlí Í gær féll vísitalan um 3,65% sem er næstmesta lækkun á einum degi það sem af er árinu. Lækkunin frá því um miðjan júlí, þegar úrvalsvísi- talan stóð sem hæst, nemur nú um 23% og nú er svo komið að lang- stærsti hluti hækkunar það sem af er árinu er genginn til baka. Þannig er til að mynda gengi bréfa bæði FL Group og Straums-Burðar- áss komið niður fyrir það sem það var í upphafi ársins og eins mætti nefna að gengi bréfa SPRON, sem skráð var á markað fyrir rétt tæpum mánuði, hefur lækkað um nær 28%. Þótt verulegar og í mörgum til- vikum miklar lækkanir hafi orðið á öllum helstu hlutabréfavísitölum heimsins í gær var lækkunin þó óvíða meiri en hér á landi og af nor- rænu hlutabréfavísitölunum lækkaði sú íslenska áberandi mest. Hún fór niður fyrir sjö þúsund stig og hefur ekki verið lægri frá því í lok janúar. Hrap á hlutabréfamarkaði  Hækkun úrvalsvísitölu OMX á Íslandi í ár er að langmestu leyti gengin til baka  Lækkun hlutabréfaverðs í gær er sú næstmesta það sem af er þessu ári Í HNOTSKURN »Í gær hrapaði íslenska úr-valsvísitalan um 3,65% sem er næstmesta dagslækkun ársins. »Mikil lækkun varð á hluta-bréfamörkuðum víða um heim í gær en íslenska úrvals- vísitalan lækkaði þó áberandi mikið og mest af norrænu vísi- tölunum.  Viðskipti | 13 ÞEGAR þokan ræður ríkjum verð- ur allt umhverfið dularfullt. Við Tjörnina í Reykjavík leitar fólk gjarnan anda og leitast við að bæta eigin anda og líðan. Húsin brosa við umferðinni en sýnast pínulítið draugaleg þar sem þau speglast í spegilsléttri Tjörninni, fullviss um að þrátt fyrir allt standist þau stolt tímans tönn og verði á sínum stað þegar næstu kynslóðir ganga þar framhjá. Óðum styttist dagurinn og eftir því sem dimmra verður lifnar smám saman yfir borg og bý, hús og stræti skrýðast marglitum ljós- um sem létta lundarfarið í svartasta skammdeginu. Kolsvört lauflaus trén virðast leita einhvers eða eru þau ef til vill farin að bíða jólaljósanna sem þau vita að farin eru að loga víða? Morgunblaðið/RAX Andríkt í þokunni við Tjörnina Eftir Höllu Gunnarsdóttur halla@mbl.is MEIRIHLUTI fjárlaganefndar leggur til tæp- lega fimm milljarða króna hækkun á frumvarpi til fjáraukalaga fyrir árið 2007 en hann skilaði áliti sínu í gær. Gerðar eru 53 breytingartillögur við frumvarpið og að auki lagt til að framhalds- skólar verði teknir til sérstakrar skoðunar sem og heilbrigðisstofnanir, hjúkrunarheimili og rekstrarkostnaður sýslumannsembætta. Miðað við tillögur meirihluta nefndarinnar yrði mesta breytingin á því fjármagni sem heil- brigðis- og tryggingamálaráðuneytinu er ætlað en lögð er til hækkun á fjárheimild ráðuneytisins upp á tæpa þrjá milljarða króna, sem færu nán- ast alfarið í að greiða niður rekstrarhalla heil- brigðisstofnana. T.a.m. er lagt til að framlag til Landspítala verði 1,8 milljörðum króna hærra en áætlað er. Fleiri taka fæðingarorlof Meirihlutinn leggur til að fjárheimild félags- málaráðuneytisins verði aukin um rúmar 700 milljónir og að meirihluti þeirra fari til Fæðing- arorlofssjóðs, m.a. vegna þess að fleiri hafa farið í fæðingarorlof en áætlað var. Dómsmálaráðuneytið fær tæpum 600 millj- ónum króna meira en lagt er til í fjáraukalaga- frumvarpinu ef tillögur meirihlutans verða sam- þykktar en þar vegur þyngst viðhald skipa og flugfarkosta. Undir nefndarálitið skrifa nefndarmenn Sam- fylkingar og Sjálfstæðisflokks auk Bjarna Harð- arsonar, þingmanns Framsóknarflokksins, sem þó gerir fyrirvara við tillöguna. Leggja til fimm milljarða króna hækkun fjáraukalaga þessa árs Landspítalinn fær 1,8 milljarða aukafjárveitingu til að mæta rekstrarhalla

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.