Fréttablaðið - 20.04.2011, Blaðsíða 56

Fréttablaðið - 20.04.2011, Blaðsíða 56
20. apríl 2011 MIÐVIKUDAGUR44 sport@frettabladid.is RHEIN-NECKAR LÖWEN komst upp að hlið Kiel í öðru sæti þýsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í gær er Íslendingaliðið vann fínan útisigur á Grosswallstadt, 24-34. Löwen og Kiel eru bæði með 47 stig í öðru sæti. Íslendingarnir í liði Löwen voru áberandi í gær en Róbert Gunnarsson skoraði sex mörk, Guðjón Valur Sigurðsson fimm og Ólafur Stefánsson eitt. Iceland Express-deild karla: Stjarnan-KR 95-109 Stjarnan: Jovan Zdravevski 20, Renato Lindmets 20/13 fráköst, Marvin Valdimarsson 14/4 fráköst, Justin Shouse 12/6 stoðsendingar, Kjartan Atli Kjartansson 10/4 fráköst, Fannar Freyr Helgason 9/4 fráköst, Guðjón Lárusson 5, Daníel G. Guð- mundsson 3, Dagur Kár Jónsson 2. KR: Marcus Walker 40/6 fráköst/6 stoðsend- ingar/8 stolnir, Finnur Atli Magnússon 20, Brynjar Þór Björnsson 12, Pavel Ermolinskij 11/13 fráköst/9 stoðsendingar, Hreggviður Magnússon 9/7 fráköst, Skarphéðinn Freyr Ingason 7, Jón Orri Kristjánsson 4/6 fráköst, Ólafur Már Ægisson 4, Fannar Ólafsson 2. ÚRSLIT KÖRFUBOLTI Hreggviður Magnús- son kom til KR frá ÍR fyrir tíma- bilið og fagnaði fyrsta Íslands- meistaratitlinum á ferlinum í gær. „Þetta er búin að vera löng bið og tilfinningin er sykursæt. Það er erfitt að útskýra þetta en ég er í sæluvímu,“ segir Hreggviður. „Við erum búnir að vera að stefna að þessu í allan vetur. Við vissum að við vorum með besta liðið, það gekk á ýmsu fyrir jól en eftir jól þá small þetta saman hjá okkur. Þá var þetta bara spurn- ing um að komast í úrslitakeppn- ina og standa við stóru orðin. Það gerðum við.“ „Okkar aðalsmerki er sterk vörn og svo hraðinn. Þeir reyndu að stilla upp og hægja á sókninni en það gekk ekki upp nema í leik númer tvö,“ segir Hreggviður sem var í nýju hlutverki í vetur og var ekki mikið í byrjunarlið- inu. „Þetta var öðruvísi en ég var vanur. Það er öðruvísi að byrja ekki og vera ekki drifkraftur í sókn og vörn. Ég þurfti svolítið að finna mitt hlutverk í liðinu og það gekk á ýmsu fyrir jól. Við náðum að slípa okkur saman og ég fann mitt hlutverk,“ segir Hreggviður. - óój Hreggviður Magnússon: Ég er í sæluvímu HREGGVIÐUR Kom í KR fyrir tímabilið og sér líklega ekki eftir því. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON KÖRFUBOLTI Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, var daufur í leikslok en hann er enn á ný búinn að endurskrifa sögu körfu- boltans í Garðabæ. „Við áttum ekki möguleika því KR-ingarnir voru rosalega góðir í dag. Þeir hittu alveg svakalega og þá er alveg vonlaust að eiga við þetta. Við náðum að gera áhlaup nokkrum sinnum og þá gerðum við okkur seka um nokkur fárán- leg mistök. Þeir voru það góðir í dag að þeir létu ekki bjóða sér það tvisvar,“ sagði Teitur. „Marcus Walker var kannski gæfumunurinn í þessu því við vorum ekki með mann til þess að dekka hann frekar en önnur lið og hann varð bara betri og betri,“ sagði Teitur. „Við tókum stórt skref í vetur og næsta skref er bara Íslands- meistaratitillinn.“ - óój Teitur Örlygsson: Við áttum ekki möguleika KÖRFUBOLTI Marcus Walker átti ótrúlega leiktíð með KR og kórón- aði hana með því að skora 40 stig þegar liðið tryggði sér Íslands- meistaratitilinn í Ásgarði í gær. Það kom fáum á óvart að hann var valinn maður úrslitakeppninnar, eða „MVP“ eins og tíðkast í körfu- boltaheiminum. Walker skilaði ótrúlegum tölum í gær og rétt að tíunda þær sér- staklega hér. 40 stig, átta stolnir boltar, sjö fiskaðar villur, sex frá- köst, sex stoðsendingar og aðeins einn tapaður bolti á tæpum 37 mín- útum. Hann nýtti öll fimm skotin sín utan þriggja stiga línunnar. Sjálfur sagði hann eftir leik langt síðan honum leið jafn vel og eftir að titillinn var í höfn. „Reynslan mín af háskólabolt- anum var frábær en það gekk þó á ýmsu hjá mér, bæði gott og slæmt. Ég hef því ekki upplifað annað eins í langan tíma. Það er sérstaklega gaman að fá að upplifa þetta með KR, lið sem er með ríka hefð og sögu – líklega þá bestu á Íslandi.“ Hann segir að tímabilið hafi verið frábært og hrósaði liðsfélög- unum sínum. „Þeir hafa verið frá- bærir, rétt eins og félagið sjálft þar sem staðið er sérstaklega vel að öllu því sem þarf að hlúa að.“ Fyrsti leikur hans með KR í deildinni var einmitt gegn Stjörn- unni. Þá átti hann ekkert sérstak- an leik – skoraði innan við tíu stig og fékk fimm villur. En síðan þá, jafnt og þétt, hefur hann bætt sinn leik. „Ég er Kaninn og verð að skila mínu. Mitt hlutverk er að gera það sem þarf að gera til að liðið vinni – annars verð ég sendur heim. Það er það sem hvetur mig áfram.“ Því hefur verið fleygt að hann sé einhver besti Bandaríkjamað- ur sem hefur spilað á Íslandi og honum þykir vænt um að heyra það. „Maður má ekki láta sitt eftir liggja. En ég reyni fyrst og fremst að vera góð manneskja. Körfubolt- inn er bara ákveðinn hluti af líf- inu en ég vil bara vera góð mann- eskja.“ - esá Bandaríkjamaðurinn Marcus Walker var kosinn verðmætasti leikmaður úrslitakeppninnar: Ég reyni bara að vera góð manneskja FRÁBÆR Fannar Ólafsson, fyrirliði KR, var að vonum ánægður með Walker eftir leik í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON KÖRFUBOLTI KR-ingar eru Íslands- meistarar í körfubolta karla í þriðja sinn á fjórum árum og í tólfta sinn frá upphafi eftir sann- færandi fjórtán stiga sigur á Stjörnunni, 109-95, í fjórða leik liðanna í úrslitaeinvígi Iceland Express-deildar karla í Garða- bænum í gær. KR hlupu yfir Stjörnumenn í þessu einvígi og allir þrír sigrarnir voru eins sann- færandi og þeir gerast. Bandaríski bakvörðurinn í KR- liðinu, Marcus Walker, var hrein- lega óstöðvandi eins og oft áður í þessari úrslitakeppni og sá til þess að Garðbæingar áttu aldrei mögu- leika í kvöld. Marcus skoraði 18 af 40 stigum sínum í þriðja leikhlut- anum þegar KR-liðið stakk einu sem oftar af og var auk stiganna með 8 stolna bolta, 6 stoðsendingar og 6 fráköst. Hrafni Kristjánssyni, þjálfara KR-liðsins, tókst á fyrsta ári að gera KR að tvöföldum meisturum sem er eitthvað sem hefur ekki gerst í 32 ár hjá KR. „Ég er búinn að rífa upp fjöl- skylduna einu sinni til tvisvar og hef haft miklar áhyggjur við og við. Ég hef alltaf fengið þann skilning að fá að elta drauminn sinn. Ég fékk síðan það traust frá Palla, Bödda og stjórninni í KR að fá að stýra uppeldisliðinu mínu í bestu umgjörð á Íslandi og það eru einstök forréttindi. Það er unaðs- leg tilfinning að hafa náð að skila titlinum heim,“ sagði Hrafn sigur- reifur í leikslok. Þegar hann gerði KR að bikarmeisturum í febrú- ar hafði KR ekki unnið bikarinn síðan 1991. „Ég er eitthvað leiðbeinandi afl í þessu en það eru leikmennirnir sem vinna titlana. Þessir strákar eru búnir að vera ótrúlega ein- beittir,“ sagði Hrafn hógvær. Hann lagði upp með að keyra upp hraðann og það vafðist fyrir engum sem sáu úrslitaeinvígið að Stjörnuliðið átti enga möguleika á því að stöðva KR-hraðlestina sem skoraði sem dæmi 38 hraðaupp- hlaupsstig í leiknum í gær. „Við vorum að vinna í því allt tímabilið að ná okkur á þennan hraða,“ sagði Hrafn og eitt af lyk- ilatriðinu í velgengni liðsins var að finna Bandaríkjamanninn Marcus Walker. Fannar Ólafsson, fyrirliði KR, var stóryrtur fyrir tímabilið en hann stóð við stóru orðin. „Mér fannst ekki vera þörf á því að fela okkar markmið í september. Við tókum það strax fram að við ætluðum að vinna báða stóru titl- ana. Við horfðum bara á hvern- ig lið við vorum með, frábær- an íslenskan hóp og svo þurftum við bara að bæta við sæmilegum Kana. Við duttum aldeilis í lukku- pottinn þar. Við horfðum á það að finna einhvern varnarmann sem gæti stoppað bakkarana á Íslandi en hann gerði nú aðeins meira en það,“ sagði Fannar Ólafsson, fyrir- liði KR, í léttum tón. „Hrafni tókst að púsla saman þessum risastóru egóum sem eru í þessu liði og tókst að búa til svona frábæra liðsheild. Það eru allir með eitt markmið og það mark- mið er að vinna titla. Hrafn er einn besti þjálfari sem ég hef haft. Hann er frábær þjálfari,“ sagði Fannar sem hefur kynnst mörgum góðum á löngum og sigursælum ferli. „KR hefur gert það áður að fá KR-ingana aftur heim. Það hjálp- aði svo mikið til að Hrafn er upp- alinn í KR og hann þekkir félagið og pressuna. Það var ekkert vesen fyrir hann að labba þarna inn og hemja þessi egó. Ég held að ég, Hreggviður og Brynjar sjáum um egóið fyrir alla deildina. Ég tek því hattinn ofan fyrir Hrafni því þetta var frábært tímabil hjá honum,“ sagði Fannar sem hefur nú orðið Íslandsmeistari í öll fimm skiptin sem hann hefur komist í lokaúrslit- in og var að lyfta Íslandsbikarnum í þriðja sinn frá og með árinu 2007. ooj@frettabladid.is Hrafninn flýgur hátt í Vesturbænum Hrafn Kristjánsson gerði KR ekki bara að Íslandsmeisturum á sínu fyrsta tímabili með liðið því hann varð fyrsti þjálfari KR í 20 ár til að gera liðið að bikarmeisturum og fyrsti þjálfari KR í 32 ár til þess að vinna tvöfalt með liðið. KR-ingar innsigluðu Íslandsmeistaratitilinn með sannfærandi sigri á Stjörnumönnum. MEISTARAR KR varð Íslandsmeistari í gær á sannfærandi hátt. KR er besta körfuknattleikslið Íslands í dag og vann báða stóru titlana í ár. Hrafn Kristjánsson þjálfari vann einstakt afrek líkt og leikmennirnir. KR-ingar fögnuðu innilega í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.