Fréttablaðið - 20.04.2011, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 20.04.2011, Blaðsíða 8
20. apríl 2011 MIÐVIKUDAGUR8 1. Hver sigraði í forsetakosningum í Nígeríu? 2. Hvað heitir nýr formaður Geð- hjálpar? 3. Hvaða lið berjast um Íslands- meistaratitilinn í handknattleik karla? SVÖR: 1. Goodluck Jonathan. 2. Björt Ólafsdóttir. 3. Akureyri og FH. EKKI LEITA HRING EFTIR HRING AÐ FERMINGARGJÖF WWW.JONOGOSKAR.IS LAUGAVEGUR / SMÁRALIND / KRINGLAN Ískúluhringur úr Icecold línunni kr. 10.900 úr silfri – íslensk hönnun Íshringur með sirkon steinum úr Icecold línunni kr. 8.900 úr silfri – íslensk hönnun KÚBA, AP Fidel Castro bauð sig ekki fram í leiðtogakjöri Kommúnista- flokksins á Kúbu í gær. Þess í stað var bróðir hans, Raúl, kosinn leið- togi flokksins. Raúl hefur stjórnað landinu frá því Fidel veiktist fyrir meira en fjórum árum. Fidel hefur nýlega upplýst að í reynd hafi hann ekki stjórnað flokknum heldur síðan 2006, þótt hann hafi formlega verið skráður leiðtogi flokksins þar til nú. Á flokksþingi, sem nú er haldið í fyrsta sinn í fjórtán ár, hafa komið fram hugmyndir um margvíslegar breytingar á skipulagi efnahags- mála og stjórnmála á Kúbu. Kommúnistaflokkurinn hefur samþykkt 300 tillögur í efnahags- málum, sem eiga að gefa efna- hagslífið frjálst. Ekki er vitað nákvæmlega í hverju þessar breytingar verða fólgnar en ljóst er að íbúum landsins verður nú í fyrsta sinn gert heimilt að kaupa sér húsnæði og stunda frjáls fasteignaviðskipti. Þá lagði Raoul til að valdatími helstu embættismanna landsins yrði takmarkaður við fimm ár. Bróðir hans, sem ríkti í nærri hálfa öld, segist vera fylgjandi því: „Ég er hrifinn af hugmynd- inni,“ sagði Fidel. „Þetta er mál sem ég hef lengi velt fyrir mér.“ Öllum að óvörum kom Fidel á þingið og uppskar dynjandi lófa- tak frá þúsund flokksfulltrú- um í stórum ráðstefnusal í höfuðborginni Havana. Hann skrifaði blaðagrein sem birtist á mánudag, þar sem hann sagði nýja kynslóð leiðtoga flokks- ins þurfa að bregðast við breytt- um aðstæðum í heiminum, stunda sjálfsgagnrýni og taka alla hluti til endurskoðunar. Þrátt fyrir yfirlýsingar um breytingar voru það háaldraðir félagar Castros sem kosnir voru í helstu leiðtogaembætti flokks- ins. Raúl er sjálfur að verða sjö- tugur og Jose Ramon Machado Ventura, sem kosinn var varafor- seti flokksins, er orðinn áttræður. Þá var Ramiro Valdés, sem er 78 ára, kosinn í þriðju valdamestu stöðuna. gudsteinn@frettabladid.is Leiðtogarnir á Kúbu boða breytta tíma Raúl Castro er tekinn við af bróður sínum Fidel sem leiðtogi Kommúnista- flokksins á Kúbu. Kommúnistaflokkurinn hefur samþykkt að auka verulega frjálsræði í viðskiptum. Valdatími leiðtoga verði takmarkaður við fimm ár. CASTRO GREIÐIR ATKVÆÐI Fidel Castro skoðar atkvæðaseðil fyrir leiðtogakjör í Kommúnistaflokknum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP ALDNIR LEIÐTOGAR Raúl Castro, sem er að verða sjötugur, næstráðandinn Ramiro Valdés, sem orðinn er 78 ára, og varnarmála- ráðherrann Julio Casas Regueiro. FRÉTTABLAÐIÐ/AP UMHVERFISMÁL Magn díoxíns í útblæstri sorpbrennslustöðvarinn- ar í Vestmannaeyjum er enn hátt yfir viðmiðum, samkvæmt mæl- ingu sem gerð var í mars. Mæling- ar benda til að árangur hafi náðst í að hefta útblástur þeirra mengandi efna sem getið er um í starfsleyfi stöðvarinnar, en ryk er þó enn yfir mörkum. Bæjaryfirvöld í Eyjum sendu frá sér tilkynningu í gær í tilefni fundar sem fulltrúar áttu með Umhverfisstofnun vegna meng- unarmælinga. Þar var rætt um mælingar á díoxíni í sauðfé sem unnar voru af Matvælastofnun. Þær mælingar sýndu enga meng- un miðað við þau gildi sem fengust í mælingum á kjöti sem fóru fram víðs vegar um landið 2003 og 2004. Í viðbót við þau viðmið sem gefin eru í starfsleyfi Sorporku- stöðvarinnar var mælt brenni- steinsdíoxíð, vetnisflúoríð, nit- uroxíð og díoxín. Í öllum tilvikum eru mælingar innan viðmiða ef frá er skilin mæling á díoxíni, sem enn er hátt yfir viðmiðum. Elliði Vignisson bæjarstjóri segir að áfram verði unnið að úrbótum með sérstaka áherslu á að ná niður rykmengun. Til þess að flýta þeirri vinnu og gera hana markvissari hefur Vestmanna- eyjabær samið við Þór Tómasson, sérfræðing hjá verkfræðistofunni Mannviti. Á yfirstandandi ári mun Vest- mannaeyjabær draga úr heild- arlosun allra mengandi efna um að minnsta kosti sextíu prósent. Meðal þess sem unnið er að er frekari flokkun sorps, kaup á auknum mengunarvörnum við útblástur, umbætur á brennsluferli og fleira, segir í tilkynningu. - shá Töluverður árangur hefur náðst í að hefta útblástur mengandi efna í Vestmannaeyjum: Díoxín mælist enn allt of mikið í Eyjum SORPBRENNSLA Í EYJUM Díoxín mælist enn tugfalt yfir þeim mörkum sem nýjum sorpbrennslum er gert að uppfylla. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR SÝRLAND, AP Ríkisstjórn Sýrlands samþykkti í gær að aflétta neyð- arlögum, sem hafa verið í gildi í landinu í nærri hálfa öld. Um leið varaði stjórnin mótmælendur við því að halda áfram mótmælum gegn Bashar Assad forseta. Assad sagði að nú hafi mótmæl- endur ekki lengur neina ástæðu til mótmæla. Haldi þeir engu að síður áfram að mótmæla gæti hann litið á það sem tilefni til frekari hörku gegn þeim. Hann hefur sagt mót- mælin jafnast á við uppreisn. Átök lögreglu við mótmælendur hafa, að sögn mannréttindasamtaka, kost- að á þriðja hundrað manns lífið. Neyðarlögin setja fjölmiðlum strangar skorður, veita víðtæk- ar heimildir til hlerana og heim- ila handtökur án undangengins dómsúrskurðar. Stjórnin samþykkti einnig að ríkisöryggisdómstóll landsins, sem hefur dæmt í málum póli- tískra fanga, verði lagður niður. Einnig voru samþykkt lög sem heimila friðsamleg mótmæli. Þing landsins á formlega eftir að samþykkja breytingarnar, en ekki er við öðru að búast en það verði gert þegar þingið kemur næst saman í byrjun maí. - gb Hálfrar aldar neyðarlög numin úr gildi vegna þrýstings frá mótmælendum: Stjórnin hótar mótmælendum TVEIR HINNA LÁTNU BORNIR TIL GRAFAR Átökin í Sýrlandi undanfarnar vikur hafa kostað meira en 200 manns lífið. NORDICPHOTOS/AFP FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN ÍÞRÓTTIR Á ÞÍNUM HEIMAVELLI m.visir.isFáðu Vísi í símann! Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir, meiri upplýsingar, meiri umræða, meira líf, meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval. Þú færð meira af öllu á Vísi. VEISTU SVARIÐ?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.