Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.04.2011, Qupperneq 62

Fréttablaðið - 20.04.2011, Qupperneq 62
20. apríl 2011 MIÐVIKUDAGUR50 SJÓNVARPSÞÁTTURINN „Ég sé sérlega eftir stillimynd- inni á RÚV sem hefur nú verið dömpað eftir áratuga stabíla þjónustu við landsmenn. Maður varð aldrei fyrir vonbrigðum með hana. Fín íslensk dag- skrárgerð.“ Einar Tönsberg tónlistarmaður. „Það er mjög gleðilegt að komast inn á svona stóra og flotta hátíð. Þetta verður ofsalega gaman,“ segir leikstjórinn Gaukur Úlfarsson. Heimildarmynd hans, Gnarr, verður sýnd þrí- vegis á kvikmyndahátíðinni Tribeca í New York um páskana og verður frumsýningin á föstudaginn langa. Myndin fjallar um ævintýralega leið Besta flokksins í borgarstjórn með Jón Gnarr fremstan í flokki. Gaukur, Jón, Heiða Kristín Helgadóttir, framkvæmdastjóri Besta flokksins, og framleiðend- ur myndarinnar verða viðstödd hátíðina og munu þau dvelja í fimm daga í Stóra eplinu. Tribeca er ein stærsta kvikmyndahátíð heims og á hverju ári stendur valið á milli þúsunda heimildar- mynda. Aðeins um fimmtíu eru valdar á hátíðina og er því um mikinn heiður að ræða fyrir Gauk og félaga. „Ef þú ert ekki að gera Hollywood-stórmynd er þetta leiðin til að fanga athyglina. Því betri sem hátíðin er, þeim mun meiri athygli fær myndin,“ segir hann. Gaukur og Jón Gnarr munu sitja fyrir svörum á laugardaginn á uppákomu á vegum fyrirtækisins Apple, sem öllum er boðið á. Aðrir leikstjórar og leikarar sem sitja fyrir svörum síðar á hátíðinni eru Will Ferrell, Ed Burns og Eva Mendes. Að Tribeca-hátíðinni lokinni verður Gnarr sýnd á stærstu heimildarmyndahátíð Norður-Amer- íku, Short Docs, í Toronto í Kanda. Íslenska heim- ildarmyndin Feathered Cocaine, sem fjallar um fálkasmygl, var einmitt sýnd bæði á þeirri hátíð og á Tribeca rétt eins og Gnarr. Sú mynd vakti veru- lega athygli og hver veit nema Gnarr eigi eftir að njóta sömu hylli. - fb Gnarr sýnd á Tribeca-hátíðinni Á LEIÐ TIL NEW YORK Gaukur Úlfarsson (til vinstri) og annar af framleiðendum myndarinnar, Sigvaldi J. Kárason, ætla á Tribeca-hátíðina. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Iceland Express getur væntan- lega státað af fyndnasta flug- freyjuhópi landsins því á mánudag útskrifaðist Helga Braga Jónsdóttir úr flugfreyju- skóla flugfélagsins. Helga Braga mun hitta fyrir Eddu Björgvinsdóttur, sem kláraði skólann í fyrra. „Eða eins og einhver sagði við mig: Edda og Helga Braga? Hvenær byrjar eiginlega Laddi?“ segir Helga í samtali við Fréttablaðið. Liðlega 1.500 umsóknir bárust um flugfreyjustörfin en sá hópur var skorinn rækilega niður og aðeins 33 útskrifuðust á mánudaginn. Helga segist alltaf hafa verið tengd ferðaþjónustu- bransanum, hún hafi unnið á ferðaskrifstofu sjö sumur og svo sé hún mikill sígauni í sér. „Ég sá í fyrra að Iceland Express var að leita eftir starfskröftum en svo breyttust plönin hjá mér og ég benti Eddu á að sækja um. Og hún fékk,“ segir Helga. Síðan hafi þær stöllur hist og Edda talað um hvað þetta væri svo ógeðslega gaman. „Og þegar ég sá auglýsingu kom ekkert annað til greina en að láta slag standa.“ Flugfreyjuskólinn er síður en svo auðveldur, þetta er fimm vikna kúrs, kennt alla daga vikunnar. „Og þar sem Ice- land Express er með flugvélar frá Astraeus þurftum að við að kunna á vélarnar þeirra. Þetta voru alveg rosalega strembin próf, mikill utanbókarlærdóm- ur þar sem sjónminnið kom sér vel.“ - fgg Helga Braga útskrifuð flugfreyja FLÝGUR UM LOFTIN BLÁ Helga Braga Jónsdóttir flaug í gegnum flugfreyjuskóla Iceland Express. Hún segir starfið henta sér vel, sígauninn sem hún sé. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON „Það eru bara fagmenn sem láta sjá sig á Dirty Night,“ segir gleði- pinninn Óli Geir. Hann stjórnaði sínu fyrsta Dirty Night kvöldi á 800 Bar á Selfossi í heilt ár um síðustu helgi og á meðal gesta var tvöfalda tvíeykið Simmi og Jói og Auddi og Sveppi. Heimsókn þeirra á 800 Bar var hluti af steggjun Jóa sem var haldin á laugardaginn en Jói ætlar að ganga upp að altarinu í sumar. „Þeir voru þarna í góðum gír. Ég var náttúrlega að spila sjálfur en á meðan það var verið að loka og henda öllum út sá ég að það voru allir utan í þeim og vildu fá myndir,“ segir Óli Geir. „Staður- inn var alveg troðfullur og þetta kvöld heppnaðist ótrúlega vel.“ Dirty Night kvöld Óla Geirs hafa vakið mikla athygli í gegn- um tíðina. Meðal annars sýna þar ungar meyjar undirföt, auk þess sem gestir geta keypt af þeim tekílaskot og sleikt saltið af brjóstunum á þeim. Á meðan á þessu stendur þeyt- ir Óli Geir skífum af miklum þrótti. Eiður Birgisson, eigandi 800 Bar, tók á móti Jóa og félögum: „Það var gríð- arleg stemning í hús- inu og barinn var löðr- andi sveittur,“ segir hann. Steggjahóp- urinn samanstóð af átján manns en ekki mættu þó allir á Dirty Night, enda klukkan orðin ansi margt. „Þeir allra hörðustu komu til mín.“ Steggjunin hófst í miðjum útvarpsþætti Simma og Jóa á Bylgj- unni á laugardagsmorg- un. Vinir hans rudd- ust þá inn í stúdíóið og drógu Jóa í burtu. Á meðal þess sem tók við var hin svokallaða „Stjórnun“ Audda og Sveppa, þar sem Jóa var stjórnað í Kringlunni. Samkvæmt heimild- um Frétta- blaðsins var einnig komið í kring fundi með Jóa og kraftajötninum Jóni stóra. Þeir voru látnir klæðast eins fötum og þóttist Jón síður en svo vera ánægður með klæðaburð Jóa og tuskaði hamborgaradrenginn lítillega til. Eftir að hafa drukkið sérmerktan Jóa-bjór var steggj- unum í framhaldinu ekið á rútu í sumarbústað í Úthlíð þar sem fjörið hélt áfram. Þaðan var síðan förinni heitið á 800 Bar, þar sem þeir hörðustu skemmtu sér fram á rauða nótt, eins og áður kom fram. Ekki náðist í Jóa í gær en Simmi vinur hans vildi lítið tjá sig um steggjunina. Þó sagði hann að í stuttu máli að um þrautakóng hefði verið að ræða þar sem hinar ýmsu þrautir voru leystar. „Ef þú hugsar um Hangover [gaman- myndina] má segja að við höfum upplifað Hangover 3 nema að eng- inn missti tönn og það var ekkert lifandi tígrisdýr.“ freyr@frettabladid.is ÓLI GEIR: ÞAÐ ERU BARA FAGMENN SEM LÁTA SJÁ SIG Á DIRTY NIGHT Simmi og Jói löðrandi sveittir í steggjun á Selfossi SIMMI OG JÓI Jói var steggjaður um síðustu helgi og gekk ýmislegt á. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN GÓÐ STEMNING Óli Geir hélt uppi góðri stemningu á Dirty Night á laugardags- kvöld. Stórsöngvarinn Björgvin Hall- dórsson er að taka upp nýja plötu með hljómsveit sinni Hjartagos- unum, eins og Fréttablaðið greindi frá í gær, og er gripurinn væntan- legur í búðir í sumar. Björgvin, sem fagnaði sextugsafmæli sínu um helgina, ætlar að fljúga til Los Angeles að upptökunum loknum og heimsækja dóttur sína Svölu. Þar hefur hún dvalið undan- farin misseri við að koma sér og hljóm- sveit sinni, Steed Lord, á framfæri í hörðum heimi tón- listarbransans. Sá skemmtilegi atburður gerist í kvöld að feðgar spila saman á Blúshátíð í Reykjavík. Um er að ræða þá Jóhann Ásmundsson, bassaleikara Mezzoforte, og 24 ára son hans Ásmund, sem hefur spilað á trommur með hljóm- sveitinni Perlu. Tónleikarnir verða á Hótel Nordica og þessi nýja hljómsveit þeirra nefnist Breiðfjörð og Blúströllin. Forsprakki hennar er söngvarinn Þór Breið- fjörð Kristinsson, sem er nýfluttur til Íslands eftir fjórtán ára búsetu erlendis. - fb FRÉTTIR AF FÓLKI Þú greiðir mán.gj. og aðr a no tku n a f G SM o g In te rn et i s kv . v er ðs kr á á si m in n. is Ef þú ert með GSM eða Internetið hjá Símanum færðu aðgang að Bestu lögunum fyrir 0 kr. í dag. Hlustaðu á 80 tónlistarrásir með músík fyrir flest tilefni. Bestu lögin fyrir 0 kr. í dag bestulogin.is Skannaðu hérna til að sækja 0 B arcode Scanner
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.