Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2010, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.2010, Blaðsíða 21
KÁRI TULINIUS sendir í dag frá sér sína fyrstu skáldsögu, Píslarvotta án hæfileika, sem fagnað verður með útgáfuhófi í Eymundsson við Skólavörðustíg í dag klukkan 17.30. Kári var þrjú ár að skrifa söguna og varði svo nýliðnum vetri í endurskrif á henni. NENNTI EKKI AÐ VERA KVÍÐINN Ég horfði um daginn á myndina um Kóngulóarmanninn 3 og eins og alltaf með hasarmyndasögur féll ég í stafi yfir sögunni, persónunum og dramatíkinni. En það var ekki Kóngulóarmaðurinn sem virkaði svona sterkt á mig, heldur einn and- stæðinga hans. „Svarta efnið.“ Svarta efnið er formlaus óværa sem sækir í fólk og breytir því. Í þriðju myndinni um Kóngulóar- manninn læðist þessi óþverri að Peter Parker (sem er Kóngulóar- maðurinn í daglega lífinu) og hel- tekur hann. Kóngulóarmaðurinn vaknar eftir ásókn svarta efnisins og sér að hann er orðin svartur og kann því bara vel. Uppfullur af orku enda sækir hann kraft sinn í niður- bælda gremju Peters Parker. Svarti kóngulóarmaðurinn er öðruvísi en sá hefðbundni. Hann byrjar á því að drepa andstæðing sinn, sandmann- inn, nokkuð sem „góði“ Kóngulóar- maðurinn myndi aldrei gera. Flekar konur og lemur fólk Svo gerist það í myndinni að við fáum að sjá hvernig svarta efnið virkar á Peter Parker í daglega líf- inu. Peter tekur stakkaskiptum og verður töffari, flekar konur og svík- ur kærustuna sína, lemur mann og annan og nýtur athyglinnar sem hann óhjákvæmilega skapar með töffarastælunum í bland við ofur- mennska hæfileika. Atriðið þar sem Peter Parker er að dansa úti á götum New York-borgar er algerlega magn- að, því vegfarendur sjá eitthvað allt annað en Peter sjálfur og líta hann hornauga. Honum er andskotans sama enda er hann svo uppfullur af sjálfum sér að undrum sætir. Já, svarta efnið er hættulegt. Það er gott en það er líka vont. Svarta efnið nærist á honum sjálfum og ýkir allan verueika og snýr honum upp á hið risastóra egó sem svarta efn- ið sjálft byggir upp og nærir. Svarta efnið sviptir Peter jarðtengingunni og fyllir hann af ranghugmyndum um eigið ágæti. Svarta efnið = áfengi? Svona svipað og áfengi gerir hjá venjulegu fólki með enga yfirnátt- úrulega hæfileika. Ég þekki svarta efnið af persónulegri reynslu og losnaði við það fyrir tæpum 10 árum. Ég hef eins og margar fyrrver- andi fyllibyttur spekúlerað mikið í alkóhólisma eða „sjúkdómnum“ eða hvað sem fólk vill kalla þetta, en hef aldrei séð betri lýsingu á fyrirbærinu en í Spiderman 3. Í myndinni fattar Peter Parker að eitthvað er ekki í lagi þegar hann var í svarta búningnum og losnar við óþverrann (í kirkju) með því að berjast við sjálfan sig í æðisgeng- inni baráttu. Því miður lak svarta efnið frá Peter Parker og féll á ljós- myndarann Eddie Brock sem er hálfgerður skíthæll og lesendur geta bara ímyndað sér hvað gerist þegar svarta efnið nær tökum á svoleiðis pappír og magnar upp óuppgerða gremju og komplexa. Afleiðingin er Venom, einn ægilegast óvinur Spid- erman. Eddie Brock líður nefnilega betur með svarta efninu heldur en án þess og áhrifin verða inntak lífs- ins og miðpunktur. Hann upplifir sig sem sterkan og ósigrandi. Það eru ekki allir Eddie Brock Svona er brennivínið. Það magnar upp ranghugmyndir og snýr upp á veruleikann og miðar allan heiminn út frá eiginhagsmunum neytand- ans. Kyndir undir mikilmennsku- hugmyndir og veitir vissulega yl, svo lengi sem á því stendur. Ég hef oft furðað mig á afstöðu samfélagsins gagnvart brennivín- inu. Nú er það svo að það eru ekki allir eins og Eddie Brock og flest- ir geta notið víns á þess að svertast á sálinni en þeir sem geta það ekki ættu að fylgja dæmi Kóngulóar- mannsins og losa sig við óværuna. Takið eftir því næst þegar ein- hver deyr á voveiflegan hátt hvort brennivínið hafi ekki verið með í spilinu. Ég man eftir í fljótheitum pari sem drukknaði rétt fyrir utan Viðey. Konu sem varð úti milli húsa í Kópavogi og svo öll bílslysin. Mér er sagt að annað hvert dauðsfall í um- ferðinni megi rekja til áfengis. Það væri gagnlegt framtak að halda skrá yfir dauðsföll af völdum áfengis og birta opinberlega. Þá er ég ekki bara að tala um slys og þess háttar, heldur einnig sjálfsvíg, sjúkdóma og morð. Félagi minn í gegnum þessi alls- gáðu 10 ár okkar orðaði þetta svona: „Brennivínið er lævís, óútreiknan- legur og voldugur andstæðingur.“ Það er hverju orði sannara. Kóngulóarmaðurinn og svarta efnið UMRÆÐA 19. maí 2010 MIÐVIKUDAGUR 21 1 KRAMPAKIPPIR JÓNS ÁSGEIRS Tilraunir Jóns Ásgeirs til að kenna Davíð Oddssyni um ófarir sínar eru krampakippir. 2 REKIN FYRIR AÐ TJÁ SIG Á FACEBOOK Gengilbeina var rekin fyrir að skrifa um kúnna sína á Facebook. 3 ÓEÐLILEGT OG FOKDÝRT ÚTIBÚ Sigurður Einarsson bjó frítt í íbúð sinni í London í boði Kaupþings. 4 „GUÐ HJÁLPAR MÉR VONANDI MEÐ FYRIRGEFNINGUNA“ Hrafnhildur Stefánsdóttir, fórnar- lamb Bjarka Más, flúði til Noregs eftir að hann áfrýjaði átta ára fangelsis- dómi til Hæstaréttar 5 LITLI DRENGURINN Í GRAFARVOGI LÁTINN Drengurinn sem slasaðist á róluvelli í Grafarvogi er látinn. 6 KÆRUSTUPARIÐ CHLOÉ OPHÉLIE OG ÁRNI ELLIOTT SIGRUÐU Í NETLEIK RENAULT Chloé og Árni eiga góða möguleika á að komast í raunveruleikaþátt. 7 VARASJÓÐURINN TÆMDUR Á TVEIMUR ÁRUM Eftir hallarbyltingu í Sparisjóði Hafnarfjarðar hófst nýtt tímabil. MEST LESIÐ á dv.is MYNDIN Hver er maðurinn? „Ég heiti Kári Tulini- us og er að gefa út mína fyrstu skáldsögu sem heitir Píslarvottar án hæfileika og kemur út hjá JPV fimmtudaginn 20. maí.“ Hver er fyrsta minning þín úr æsku? „Hún er af því þegar ég var í Flórída með foreldrum mínum, ég var svona eins og hálfs árs, og horfði á boltann minn sem ég hafði verið að leika mér með á ströndinni fljóta út á haf. Það eru reyndar ekki til neinar myndir af þessu þannig að ég treysti þessu kannski ekki alveg (hlær).“ Hvað var sköpunartími Píslarvotta án hæfileika langur? „Ég byrja að skrifa hana í janúar 2006, skila handriti til Forlagsins í janúar 2009 og svo voru endurskriftir eiginlega í gangi í allan vetur.“ Hverjir eru þessir píslarvottar í sögunni þinni? „Þetta eru fimm ungmenni í Reykjavík, öll fædd í kringum 1984. Þau eru róttæklingar sem vilja skipta máli en ekkert sem þau hafa reynt hefur gengið. Þau eiga óljósan draum um að verða hryðjuverkamenn en hafa engan málstað sem þau trúa nógu mikið á til að drepa eða deyja fyrir.“ Finnst þér margir vera píslarvottar í Íslandssögunni? „Nei, þeir eru ekki margir Íslendingarnir sem hafa dáið fyrir málstað. Maður þarf að fara aftur til Jóns Arasonar til að finna hreinan píslarvott. Reyndar, svona á persónulegum nótum, þá dó langalangafi minn í Dýrafirði þegar Hannes Hafstein reyndi að stöðva enskan togara sem var að veiða í leyfisleysi. Afi minn var þar á báti, var sigldur niður og dó.“ Hvers vegna kemur bókin þín út um vor en ekki haust eins og algengara er hér á landi? „Þetta er ákvörðun For- lagsins. Þau eru með sex eða sjö bækur sem eru að koma út á vormánuðum og mér finnst það bara mjög fínt. Ég kaupi bækur allan ársins hring og held að fólk geri það almennt.“ Ætlarðu að kjósa Besta flokkinn í borgarstjórnarkosningunum í lok mánaðarins eins og 36 prósent segjast ætla að gera? „Ég er ekki bú- settur í Reykjavík þannig að ég get ekki kosið hann.“tta án hleika, sem fagnað MAÐUR DAGSINS KJALLARI „Nei.“ MARÍA BJÖRK ÓLAFSDÓTTIR STARFSMAÐUR DISTICA „Já ég myndi segja það eftir að Besti flokkurinn kom.“ KOLBRÚN ÓSK PÉTURSDÓTTIR 16 ÁRA NEMI „Þetta er alvarlegt en það er grín hvað það er lítið tekið á alvarlegum hlutum.“ MARÍANNA EVA SÆVARSDÓTTIR 17 ÁRA MÓDEL „Engan veginn, þetta eru rosalega alvarleg mál, en ég nenni ekki að fylgjast með þessu, vegna þess að þetta er ekki að fara neitt.“ ÍSOLD ANTONSDÓTTIR 17 ÁRA NEMI Í MS „Nei, þau eru ekki grín, þó að Jón Gnarr sé að grínast núna, þá mun hann ekki grínast þegar hann verður borgarstjóri og verður flottur. VIKTOR PÉTURSSON 47 ÁRA OFNGÆSLUMAÐUR ERU BORGARSTJÓRNARMÁLIN GRÍN? DÓMSTÓLL GÖTUNNAR Fantagóðir tónleikar Hljómsveitin Dikta náði þeim merka áfanga á dögunum að selja 5.000 eintök af plötu sinni Get it Together og hlaut gullplötu fyrir vikið. Í þakklætis skyni efndi hljómsveitin til ókeypis tónleika á NASA við Austurvöll klukkan sex í gær. Opið var fyrir alla aldurshópa og Fanta í boði. MYND RÓBERT REYNISSON TEITUR ATLASON nemi skrifar „Ég hef oft furðað mig á afstöðu samfélagsins gagnvart brennivíninu.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.