Tíminn - 20.11.1947, Page 8
Reykjavík
20. nóvember 1947
213. blaðs
Elísabet prinsessa og Mountbatten
Reykvíkinga vantar meíra raf-
magn og heitt vatn
ISæjaryfirvöldin verða að leiðSieisia fólkl.
bvernig forðast má skemmdir-á raf-
kiuiðmii tækjum
Reykvikingar hafa margir hverjir fengið að kenna á
kuldanum seinustu dagana. Hvorki rafmagnið nf; hitaveitan
hafa undanfarna kuldadaga komið bœjarbúum nema að
hálfv.m notum, sakir of mikils álags. í verksmiðjum hefir
orðið að hætta vinnu þann hluta dagsins, sehi' rafmagnið
er minnst. 1
Fyrir hádegi í dag fór vígsla Elísabetar Englandsprinsessu
og Philips Mouníbattens hertoga fram í Westminster Abbey.
Erkibiskupinn af Kantaraborg framkvæmdi hjónavígsluna.
Fólk fór að þyrpast að síðdegis í gær og beið í alla nótt í
Jieirri von að geta séð brúðhjónin, er þau óku að og frá
kirkjunni í glervagni sínum. Sjónvarpstækjum og kvik-
myndatækjum var komið fyrir í kirkjunni og við leiðina,
sem brúðhjónin óku.
Hafin hygging tveggja
nýrra fiugstefnnvita
Verðw varisflugvöllnr mlllilandaflugvéla
á kópaskeri?
Á fundi sameinaðs þings í gær, gaf Eysteinn Jónsson
menntamálaráðherra ýmsar merkilegar upplýsingar um
nýjar framkvæmdir, sem hafa verið unnar á sviði flugmál-
anna á þessu ári eða hafinn er undirbúningur að.
Tveir flugstefnuvitar.
Að' dómi íslenzkra flug-
manna hefir engin fram-
kvæmd í þágu flugmálanna
verið talin jafn brýn og bygg-
ing flugstefnuyita á Skaga.
Því yar hafizt handa um það
í sumar að koma þessum
vitá upp og er þeirri fram-
kvæmd nú langt komið. Fé
var ekki veitt til þessara
framkvæmda á fjárlögunum,
en samþykki fjármálaráð-
herra fékkst fyrir sérstöku
framiagi í þessu skyni.
Á seinasta þingi var veitt
nokkurt framlag til að koma
upp flugskýli á Austurlandi.
Að dómi flugráðs er hins veg-
ar talið enn nauðsynlegra að
koma upp flugstefnuvita á
Fljótsdalshéraði, og var sú
ákvörðun því tekin að fresta
byggingu flugskýlisins og
nota þétta fé jfí að koma upp
fhigstefnuvitanum.
Ýmsar framkvæmdir.
Þá hefir verið unnið að
ýnieum framkvæmdum í
þágu flugmálanna víða um
land. M. a. er búið að greiða
ftámlög á árinu til flugfram-
kvæmda á eftirtöldum stöð-
um sem hér segir:
Akureyri (til að bæta að-
stöðú sjóflugvéla) 7000 kr.,
Hólmavík 6000 kr., Horna-
fjöruður 14100 kr., Vest-
mannaeyjar 51.200 kr., ísa-
firði- (flugskýli) 65.200 kr.,
Fagurhólsmýri 19.900 kr., Mel
gerðiseyri 33.000, kr., Gufu-
skála hjá Hellisheiði (nýr
völlur) 22.700 kr. Alls er þetta
um 221 þús. kr. i
Þá er nú verið að vinna að
ýmsum endurbótum á Vest-
mannaeyjavellinum og er
kostnaðurinn áætlaður um
200 þús. kr. Einnig er verið að
vinna að dráttarbraut og
flugskýli á ísafirð iog er tal-
ið, að það muni kosta um 20
þús. kr. Alls er gert ráð fyrir,
að um 1.1 milj. kr. verði varið
á þessu ári til flugvalla,
flugstefn'uvita og flugskýla
utan Reykjavíkur og Gull-
bringusýslu.
Verður Kópavíkurvöll-
urinn varavöllur fyrir
millilandaf lug ?
Þá hefir flugráði verið falið
að athuga, hvar sé meest
þörf fyrir endurbætur, sem
ekki krefjast mikils kostnaö-
ar, á flugvölium úti á landi.
M. a. hefir komið til athug-
unar, að flugvöllurinn á
Kópaskeri verði gerður vara-
flugvöllur fyrir millilanda-
flug, en það myndi sennilega
verða hægt, ' án verulegs
kostnaðar.
Á 20. grein fjárlágafrv.,
sem nú liggur fyrir þínginu,
er ráðgert að verja 1.550 þús.
til nýrra framkvæmda í þágu
flugmálanna á þéssu ári. Er
það vitanlega á valdi Alþing-
is að ákveða, hvort það vill
verja þessu framlagi til
ákveðinna framkvæmda eða
hvort það lætur flugmála-
stjórninni eftir að ákveða
þær.
Hiiavéítan nœgir ekki
alls staðar.
Sum hús, sem hituð eru
upp með heita vatninu frá
hitaveitunni, hafa að undan-
förnu misst hitann marga
tíma á dag, að minnsta kosti
er það svo í þeim hverfum
bæjarins, þar sem ástandið
er verst. en það eru einkum
þau, sem standa hátt. Geym-
arnir tæmast fljótt á kvöldin,
vegna þess að vatn nær alörei
að safnazt fyrir í þeim að
ráði. Við þetta bætist svo
það, að vegna rafmagns-
skortsins er ekki hægt að
dæla heita vatninu af full-
um krafti.
Steinar í pípunum.
Síðustu dagana hafa kom-
ið i ljós gallar á lagningu
leiðslnanna í miðbænum.
Hafa pípurnar stíflazt í
Lækjargötu .Kom í ljós, að
steinar hafa lent í þeim,
þegar verið var að leggja þær.
Hefir ekki nægileg aðgæzla
verið viðhöfð. Er óttast að
Snjóskriða fellur
á Gunnsteinsstaði
í Langadal
Norðurfarþcgarnir
teppíir á Hlwnduósi
Fólkið, sem var á leið norö-
ur til Akureyrar með áætlun-
arbifreiðunum, sem tepptust a
Blönduósi í fyrradag, situr þar
enn, en mun reyna að komast
áleiðis þegar, er veður leyíir.
Ekki var fullkomlega ráðið,
hvort bifreiðarnar mundu
reyna að brjótast aústur í dag,
en snjóýtur eru til staðar og
munu hefja ruðning í dag, ef
snjókomu linnir, en veður er
nú batnandi. — í Langadal er
nú mikil fannkyngi, en ekki
hefir orðið þar meira tjón af
völdum snjóflóða, en þaö sem
varð á Gunnsteinsstöðum i
gær. Skemmdist þar íbúðar-
hús allmikið og einnig pen-
ingshús. Fór mikill snjór inn
í bæinn og var ekki lokiö við
að hreinsa hann fyrr en seint
í gærkveldi.
Nokkur hross urðu og íyrir
snjóflóðinu, en flestum þeirra
tókst að ná lifandi.
slíkar stíflanir ..kunni að
koma í ljós á fleiri stöðum í
bænum.
Siensk flugvél ferst
í gær hrapaði sænsk far-
þegaflugvél til jarðar á Ítalíu.
Var flugvélin á leiðinni frá
Abessiniu, er slysið vildi til.
Fórust um 20 sænskir flug-
menn og margir fleiri særð-
ust.
Rafmagnið ofnotað.
Rafmagnsskorturinn stafar
að verulegu leyti af því, að
hitaveitan annar ekki hlut-
verki sínu. Þar sem hitaveit-
an er, en kemur ekki að
fullum notum, grípur fólk til
þess að hita heldur upp hús-
in með rafmagnsofnum, en
að hírast í kuldanum. En þá
er raforkan ekki næg heldur.
Rafmagnslausar .
verksmiðjur.
Rafmagnsleysið hefir kom-
ið harðast niður á ýmsum
verksmiðjum, sem þurfa raf-
magn til reksturs síns, og svo
húsmæðrum, sem hafa átt í
erfiöleikum með að sjóða
matinn vegna raímagns-
skorts. Minnst hefir raf-
magnið verið fyrir hádegið,
þegar alls staðar er verið aÁ
matreiða, og þá hafa fjölda
margar verksmiðjur orðið að
hætta vinnu. Má viða sjá
verksmiðjufólkið spila á spil
í verksmiðjunum sér til
dægrastyttingar, meðan þess
er beðið, að hádegisverður
bæjarbúa soðni.
Raftæki og ýmsar heimilis-
vélar liggja undir
skemmdum.
Það er þó ekki aðeins, að
af rafmagnsskortinum stafi
vinnutap, tafir og óþægindi.
Rafmagnsskorturinn getur
valdið miklum skemmdum á
vélum, ef rafstraumur er
hafður á þeim, þegar spenna
er óeðlilega lág. Margir bera
ekki það skyn á rafmagn, að
þeir viti þetta, og hafa eigi
aðstöðu til þess að fylgjast
svo vel með spennunni ,að
þeir geti verið á varðbergi
um raftækin. Munu þess líka
dæmi, að fóík hafi skemmt
eða eyðilagt ýmsar heimilis-
vélar ,svo sem þvottavélar,
kæliskápa, hrærivélar o. fl.,
af þessum sökum.
Verður að krefjast þess, að
bæjaryfirvöldin láti daglega
tilkynna hlutaðeigendum,
hvenær óhætt er að nota raf-
l/ækrj, er skemmst geta á
þennan hátt, þannig að þeim
sé ekki hætta búin.
Óvíst, hvenær úr rœtist.
Óvíst er, hve lengi þetta
ástand helzt. Ekki er hægt að
grípa til neinna bráðabirgða-
ráðstafana. Líkur eru þó til
að úr rætist dálítið, þegar
hlýnar aftur. En full bót fæst
ekki á þessu, fyrr en eim-
túrbínustöðin getur tekið til
starfa. En það dregst aftur
vegna verkfalls járniðnaðar-
manna.
Batnandi veður
Veður var fremur batnandi
um allt land í morgun. Á Aust-
urlandi, Dalatanga, var vind-
ur austlægur, 7 vindstig og
éljagangur en frostlaust, hiti
tvö stig. Á Grímsstöðum á
Fjöllum var þó 4 stiga frost og
nokkur snjókoma. Á Akureyri
og víðast hvar annars staöar
norðan lands var vindur norð-
austlægur allhvass, eða 5—7
vindstig með allmikilli snjó-
komu og 2 stiga frosti. Á Vest-
fjörðum var víðast nokkur
stormur og éljagangur en
frostlítið.
í Breiðafirði og Borgarfiröi
var engin snjókoma. Sunnan-
lands var víðast léttskýjað en
vindur norðlægur og nokkurt
frost.
Síldarbátarnir fóru
út í morgun
Síldarskipin við Faxaflóa
hafa legið í höfn undanfarna
daga vegna veðurs. En í morg-
un var kyrrara og lögðu þá
flestir af stað á veiðar. Lögðu
þeir leið sína inn í Hvalfjörð,
en ekki er vitað um aflahorf-
ur nú eftir garðinn.
Eiga að endurbæta
stjórnarskrána
Samkvæmt þingsályktun
frá 24. maí 1947 hefir verið
skipuð sjö manna nefnd til
þess að endurskoða stjórnar-
skrá íslenzka lýðveldisins.
í nefndinni eiga sæti þeir
Bjarni Benediktsson, dóms-
málaráðherra, formaður,
Gunnar Thoroddsen, borgar-
stjóri, og Ólafur Jóhannes-
son, prófessor, skipaðir af
ríkisstjórninni án tilnefning-
ar, Gylfi Þ. Gíslason, prófess-
or, skipaður samkvæmt til-
nefningu Alþýðuflokksins,
Halldór Kristjánsson frá
Kirkjubóli, skipaður sam-
kvæmt tilnefningu Fram-
(Framhald á 7. síðu)
Ramadier segir
af sér
Verkfföll foreiSast ört
út í Frakklaifidi
Stjórn Ramadiers sagði af
sér í gærkvöldi og hafa verk-
föll breiðzt svo ört út, að nú
eru 600 þú(3. verkamenn í
verkfalli. Margir álíta, að
forseti muni reyna að fá
Leon Blum til þess að mynda
stjórn.
Álítið er, að það hafi verið
fylgismenn de Gaulles í Lýð-
veldisflokknum, sem þröngv-
uðu Ramadier til að biðjast
lausnar. Talið er, að verkföll
muni nú enn breiðast út í
Frakklandi við brottför
stjórnarinnar, og er ástandið
í landinu mjög alvarlegt, ef
ekki tekst að mynda stjórn
mjög bráðlega.