Tíminn - 21.12.1960, Blaðsíða 2

Tíminn - 21.12.1960, Blaðsíða 2
2 Jólagjafir ríkis- stjórnarinnar Kaupfélag Reykjavíkur og nágrennis sendir út til vúð- skiptamanna sinna fyrir hver jól pöntunarlista, sem hús- mæður geta pantað eftir Er verð varanna skráð á listann. Húsmóðir. sem fengið hefur þessar vöruskrár og pantað eftir þeim, fór að bera saman verð varanna á vörulistanum fyrir jólin í fyrra og á þeim, sem barst fyrir þessi jól Þótti henni samanburðurinn á verð- inu ekki hagstæður og birtist þar nokkur hluti af gjöfum ríkisstjórnarinnar Tölurnar tala annars sínu glögga máli um verðhækkanirnar á neyzlu- vörum almennings VerS 1959 VerS 1960 fl. Appelsín 3,30 3,75 fl. Maltöl 4,05 4,55 fl. Pilsner 4,85 5,60 bnt. Eldspýtur 5,00 6,00 pk. Chesterfield 15,60 18,10 pk. Hveiti 5 Ibs. 12,10 18,05 kg. Strásykur 4,05 7,05 kg. Flórsykur 6,00 9,15 kg. Jurtafeiti 22,00 32,20 gl. Sýróp, dökkt 13,50 16,60 pk. Kókosmjöl 7,30 9,55 pk. Natron 3,20 3,70 gl. Hjartarsalt 9,85 9,15 gl. Sítrónudropar 10,00 13,40 gl. Vanllledropar 5,75 7,20 dr. Kanel, st. 2,40 6,15 br. Negull, st. 3,15 3,25 br. Pipar, st. 3,15 6,70 ds. Sardínur í olíu 7,95 8,70 pk. Kaffl 8,65 11,50 stk. Kafflbætlr 4,15 4,65 pk. Vanillekex 9,95 10,50 pk. Tekex 8,35 8,75 pk. Cornflakes 7,65 10,20 pk. Baunir, gular 4,50 6,40 pk. Baunlr, grænar 3,80 4,60 ds. BorSsalt 5,60 8,00 pk. Hrísgrjón 4,00 5,30 pk. Hrísmjöl 3,15 4,10 kg. Kartöflumjöl 6,00 9,25 pk. Maccarónur 5,60 6,30 pk. Matarlím 2,90 4,50 pk. Sagógrjón 3,70 5,10 pk. SuSusúkkulaSi 24,45 29,20 kg. Egg 42,00 48,00 kg. Molasykur 6,70 10,35 Allsherjarverk- fall í Belgíu Brussel, 20. 12. (NTB). — íbúar| Belgíu eiga þaS nú í vændum yfir jólahátíðina, að þá kunni að skortaj vatn, rafmagn og gas, að ekki verði j hellt úr ruslatunnunum hjá þeimj og því síður að þeir geti feiðazt eftir vild. Ástæðan til þessa er sú, að nær 60% opinberra starfs- manna hafa gert verkfall um óákveðinn tíma til þess að mót- mæla stefnu stjórnarinnar varð- andi skyldusparnað. Þegar hefur öll vinna lagzt nið ur við höfnina í Antverpen og ástandið er uggvænlegt í Brussel og öðrum borgum landsins. Kenn arar eru í hópi þeirra, sem þátt taka í verkfallinu. Skylduspamað- ur stjórnarlnnar er í því skyni gerður að rétta við efnahag lands ins og sagði Eyskens forsætisráð- herra, að sér kæmu vei'kföllin ekki á óvart, en þetta hefði verið nauð- synleg ráðstöfun og hann vildi vekja athygli á því, að verkfallið gerðu menn með ólík launakjör, en það sýni, að sparnaðartilhögun in kæmi jafnt við alla. Keisarinn lætur elta uppreisnarfnringjana Yfir þúsund manns fallnir og sær'ðir í upp- reisninni í Etíópíu Addis Abeba 20/12 (NTB) Etíópíska upplýsingaþjón- ustan skýrði frá því í dag að samtals hefðu 324 fallið og 785 særzt > uppreisnartilraun- inni þar í fyrri viku gegn Haile Selassie keisara, sem þá var í heimsókn til Braziliu. í höfuðborginni er nú allt með kyrrum kjörum. í fréttum frá Kairo segir að miklu fleir’ hafi týnt lífi í uppreisninni en etíóp- íska upplýsingaþjónustan gefur upp og hið sama segir í fréttum irá franska Somalílandi. Leiðtogarnir eltir Þá hefur etíópíska upplýsinga- pjónustan sent frá sér yfirlit um orlög þeirra tíu manna, sem fremstir stóðu í byltingaríilraun- inn.i Segir þar, að þrír þeirra hafi verið vegnir, aðrir þrír haii verið íangelsaðir en leitað sé þeirra fjög- urra, sem pá eru eftir. Keisarinn hefur skipað hermönnum sínum að ná þessum mönnum lifandi svo þeir veiði gerðir ábyrgir gerða Sinna. Meðal þeirra þriggja, sem hafa verið vegnir er Mengistu herfor- ingi og Gebeydu ofursti, sem áður var yfirmaður öryggisráðs landsins e n lík hans var hengt upp við aðal- götu höfuðborgarinnar. Talið er oC upphafsmaður byltingarinnar sé Iróðir Mengistu herforingja en hann hefur komizt undan Eim ræmilaus Pilturinn, sem féll úr Ijósa- staur á Blönduósi á laugar- daginn var enn rænulaus I gærkvöldi, er blaðið hafði síð ast spurnir af Iíðan hans. Líðan hans mun þó talin betri, þótt ekki sé hann tal- inn úr allri hættu enn. TÍMINN, miðvfkudaginn 21. ðe Ekkert samkomu- lag um Kongó Allsherjarþinginu fresta'S til 7. marz Norsk-ameríska línusklpið „Stavang- erfjord" kom nýlega tll Kaupmanna hafnar og vaktl athygli á sér fyrir það að hafa uppljómað 15 feta hátt jólatré í siglutoppinum. Hér gefur að líta mynd af siglunni, og geta menn nú gamnað sér við að finna hve há hún er, ef tréð er 15 fet, sem fyrr segir. Árekstur á Keflavíkurvegi Um fjögurleytið á sunnudaginn lentu tveir smábílar, G-453 frá Hafnarfirði og JO-2818, eign varn arliðsmanns á Keflavíkurflugvelli, í hörðum árekstri á Keflavíkurvegi skammt sunnan Hafnarfjarðar. í JO-bílnum voru tveir Bandaríkja- menn og slösuðust þeir báðir, en bílstjórinn á G-bílnum mun hafa sloppið lítið meiddur. Bandaríkja mennirnir voru fyrst fluttir á slysa varðstofuna í Reykjavík og síðan á sjúkrahús hersins á Keflavikur- flugvelli. — Báðir bílarnir stór- skemmdust og voru óökuhæfir eft ir áreksturinn. Bílarnir voru að mætast er áreksturinn varð og skullu beint saman. Talið er að hálka hafi'valdið. FUF í Hafnarfirði S. 1. sunnudag var Félag ungra Framsóknarmanna stofnsett í Hafn arfirði. ‘ Guðmundur Þorláksson, formaður Framsóknarfélags Hafn arfjarðar, stjórnaði fundinum og lagði fram undirbúna skrá yfir stofnendur félagsins og eru þeir 50 talsins. Þá voru samþykkt lög fyrir félagið og stjórn kjörin. Ilana skipa: Ólafur Friðjónsson, formaður; Ragnar Jóhannesson, rit ari; Bjarni Magnússon, gjaldkeri og meðstjórnendur: Jón Ágústsson og Halldór Hjartarson. New York 20/12 (NTB). Allsherjarþing SÞ ræddi Kongómálið á fundi sínum í dag en ekkert samkomulag ráðist. Hvorki tillaga frá Ind- landi og Júgóslavíu né frá Bretlandi og Bandaríkjunum náði tilskildum V3 hluta at- kvæða. Loks var samþykkt umræðulaust tillaga frá Aust- urríki þess efnis, að Kongó- málið skyldi verða áfram á dagskrá Sþ er allsherjarþingið kemur saman aftur 7. marz n. k. en því hefur nú verið frestað tii bess tíma. Dag Hammarskjöld aðalritari S. Þ. kvað hörmulegt, að ekkert samkomulag skyldi hafa náðst um lausn vandans í Kongó og yrði nú allt starf S. Þ. í landinu erfiðara en áður. Hann kvaðst hins vegar muíidu miða starfsemi S. Þ. í Kongó við það áfi’am, sem allsherj arþingið og öryggisráðið hefðu áð ur samþykkt. Ekkert samþykkt Tillaga Indlands og Júgóslavíu var þess efnis, að öllum pólitfsfaun föngum í Kongó yrði þegar sleppt úr haldi, þing landsins yrðí kallað saman undir vemd S. Þ., her Kongó yrði íhaldxð utan við afskipti' af stjórnmálum, stofnuð yiði nefnd hæfra manna til ráðuneytis Hammarskjöld og belgískum hern aðarfræðingum yrði' vikið burt frá landinu. Þessi tillaga hlaut ekki naegan stuðning. 28 voru með, 42 á móti, en 27 sátu hjá. Tillaga Bretlands og Bandaríkj- anna hlaut stuðning 42 rfkja, 22 voru á móti en 32 sátu hjá. Þessi tillaga var þess efnis, að S. Þ. hjálpuðu Kasavuhu forseta til þess að skapa það ástand í landinu að hægt væri að kalla þingið saman og öllum erlendum aðilum yrði bannað að reyna að hafa afskipti af málum landsins. Hroðaleg hungursneyð hefur nú haldið iinnreið sína í Kongó, eink- um í Kasaihéraði, þar sem ætlað er að 200 manns látist daglega úr hungri. S. Þ. ásamt Rauða kross- inum ráðgera nú að flytja með flugvélum frá Leopoldvllle til Kasai vistir til handa hinum bág- stöddu. 1 Fjársöfnunin Orðsending til félagsstjórna og söfnunarstjóra um allt land Nú er ætlunin að ljúka íjársöfnuninni fyrir áramót. Upphaf- lega var áformað að hehni yrði lokið í byrjun nóvember, en af ýmsum ástæðum hcfur orðið dráttur á uppgjöri víða að. Nokkur héruð hafa þegar náð settu marki og Þau eru þessi: gert full skil. Dalasýsla 130% Vestur-Húnavatnssýsla 100% ísafjörður 100% Norður-ísafjarðarsvsla 100% Norður-Þingeyjarsýsla (vestan heiðar) 100% Annars staðar er söfnunin enn i fullum gangi, þótt mörg 'nér uð hafi þegar skilað megiiihluta þeirrar upphæðar, sem þau ætluðu sér að ná. Þau, sem mestu hafa skilað nlutfallsiega, eru þessi: Suður-Þingeyjarsýsla 75% Vestmannaeyjar 72% Rangárvallasýsla 66% Eyjafjarðarsýsla 60% Suður-Múlasýsla 60% Siglufjörður 80% /fl? Vestur-Barðastrandarsýsla 58% Hafnarfjörður 58% Austur-Barðastrandarsýsla 51% N orður-MúlasýsIa 50% Skorað er á alla, sem að söfnuninni vinna. að gera nú myndai legt lokaátak og ná settu marki fyrir áramót. Skrifstofa söfnunarinnar er á Lindargötu 9a. Sími 19613 Flokksstarfið i bænum Jólatrésíagnaður verður í Framsóknarhúsinu miðvikudaginr 28. des. Ólafur Magnússon frá Mosfelli skemmtir. Samkoman hefst kl. 3.30 síðd. Miðasala 27. des milli kl. 5 og 7 og eftir kl. 2 miðvikudaginn 28. des. Einnig er hægt að panta miða í skrifstofu framsóknarfélaganna alla daga til ióla, sími 15564. FRAMSÓKNORFÉLÖGIN. Moskva 20. 12. (NTB). — Æðsta ráð Sovétríkjanna situr nú á r’ök- stólum í Moskva og ræðir fjárlaga frumvarpið fyrir árið 1961. Fram- lag tn hersins er minnkað að þessu sinni en hins vegar á sér stað veruleg hækkun á útgjöldum til geimrannsókna m. a. í því skyni að hægt verði að senda mann lit í geiminn. Krustjoff íorsætisráðherra tal- aði á fundi æðsta ráðsins í dag. Er það í fyrsta sinn að hann kem ur fram opinberlega um nokkuit skeið en hann hefur legið rúm- fastur vegra inflúenzu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.