Tíminn - 21.12.1960, Blaðsíða 13

Tíminn - 21.12.1960, Blaðsíða 13
T f MIN N, miðvikudagfam 21. desember 19fi0. JÓLAÁVEXTIR Delecious-eplin frá Bandaríkjunum og frá beztu ávaxtaekrum heimsáns. Kanada. Rome Beuty frá Ítalíu. — Ing- rid Marie. Appelsínur — Vínber — Bananar — Sítrónur — Dölur — Fíkj- ur — Grapealdin — Hnetur — Kon- fektrúsinur — Saltaðar hnetur. Bökunarvörur Konfektgeríarvörur Jólakerti Konfektkassar Jólasælgæti 01 — Gosdrykkir Meir, betra, glæsilegra úrval en nokkru sinni áður. 1 $ Bara hringja,. svo kamur það. Minning: Vilborg Ólafsdóttir, Hóli, Svartárdal Fyrirgefðu föðursystir góða fánff orð, sem heyrir þú frá mér þó leiðir skilji dauðans mikla móða mun ég aldrei framar gleyma þér. Eg sá þlg heima er sumardýrðin fögur sólargeislum vafði menn og dýr þú kunnir bæði Ijóð og Ijúfar sögur leið sú stund sem fagurt ævintýr. Tilgang lífsins tregalaust þú skildir treystir þeim, er skapti jörð og sól. Frjáls og glöð. þú fórna öllu vildir fyrlr það, sem lifði og þráði skjól. Mynd af þínum tryggðum tæpast þekki sem táknar betur hvernig þú varst gerð. Sveitina þína yfirgafst þú ekki ■ævi þinnar sjötíu ára ferð. Nú er hljó'tt á hólnum þínum frænka er hjartað frekast lifa og deyja kaus. . Eg veit er litlu grösin taka að grænka þau ffráta líka oa börnin móðurlaus. Ástvinanna tárin þungbær þorna er þögul minning sýnir okkur hér. Hve sólin fékk að spegla marga morgna mynd af Svartárdal í augum þér. Guðrún Gísladóttir Laugvetningar Bókín Laugarvatnsskóhnn þrítugui er enn fáanlep i öllum kauptejögum og mörgum bókabúðum Reykjavík. Góð jálagjöf Nýkomr.ir Sænskir tjekkar U4 tonn 3 — 5 — P — 121/4 — 20 — 25 — Einnig stuðaranekkar og hjólatjoKkar. Mjög ódýnr. === HEÐINN = Vélaverzlu n Seljauegi 2, simi 2 42 60 Sjotugur (Framhald af 8. síðu). Hann var mjög ratvís og öruggui' og allir ferðamenn sóttu3t eftir að njóta hans leiðsagnar yfir hihn válega fjallveg. Eitt sinn sem raun ar oftar var Kristinn einn á ferð, þá ekki með hesta sína. Á vestan- verðri Hellisheiði greip hann að óvenjulegum hætti villa. En vegna þess að maðurinn er skynsamur og óvenjulega æðrulaus tók hann sér stöðu undir barði og lætur þar fyrirberast heila nótt í stórhríð án þess að blunda, en barði sér stöð ugt sér til hita. Seinnipart nætur sér hann sér til gleði en þó undrunar gangandi mann koma með poka á bakinu. Þegar maður þessi nálgast sá hann greinilega, svo að ekki varð um villzt, að þetta var skipasmiðurinn af Vestfjörðum með sín gleraugu, sem fyrir mörgum ár’um varð úti Grófa PATTON’S ullargarnið komið i öllum lifum. Matrósföf, rauð og blá Matróskjólar, 4—8 ára Drengjajakkaföt frá 6—14 ára Stakar drengjabuxur, 4—14 ára Hvítar drengjaskyrtur 2—12 ára Drengjapeysur Barnaúlpur Nælonsokkar saumlausii Krepsokkar—Sokkabuxur Æðardunn—Hálfdúnn Dúnhelt léreft ÆÐARDÚNSSÆNG er kær’komin jólagjcí. Vesturgötu 12 Sími 13570 Varahjól af jeppa tapaðist á leiðmni frá Akranesi að Kjósar- skarðsveg Finnandi gjöri svo ye; og láti vita að Með- alfelli, Kjós. . á HeBöhelðl og Kristmn hafði ráð ið frá að leggja suður Hellisheiði. Göngumaðurinn hvolfdi síðan úr pdra síntun við fætur Krístins, beinahrúgu og hvai'f síðan. Krist- inn lét sér hvergi bregða, hélt sinni ákvörðun, beið skímu og hélt síðan niður á Kolviðarhól, og þótt ust hjónm, Valgerður og Sigurður, hafa Kristinn úr helju heimt hafa. Öðru sinni villtist Kristinn á Hellis heiði, einhvers varð hann þá var, en hann rétti sig við og komst heilu og höldnu niður á Kolviðarhól. Þá sagði Valgerður húsfreyja: „Ef þú villist í þríðja sihn, Krístinn minn, verður þú úti“. Kristinn fluttist til Reykjavikur 1924, giftist 1925 Kristínu Guð- mundsdóttur Sigurðssonar skip- stjóra í Reykjavík og Sigríðar Bergsteinsdóttur móðux’systur þess er þetta ritar. Þó að ég segi sjálfur frá er Kristfn frænka mín greind merkiskona. Þau hjón bjuggu allmörg ár í Sogamýrí í Reykjavík og áttu þá ’bæði ær og hesta sér til yndis- auka, því að bæði voru þau sérlega hneigð fyrir skepnur, en Kristín var aldrei svo heilsuhraust að hún tr'eystr sér í þann mikla vanda að vera bóndakona. 1954 keyptu þau hjónin íbúð á Hringbraut 109 og búa þar nú. Kristinn ók vörubifreið í Rvlk í nær 30 ár og aldrei mun hann hafa rekizt á og aldrei mun hann 'hafa lent í neinu óhappi1.1949 gerð ist hann innheimtumaður hjá SÍS og hefur gegnt því starfi síðan og mun vafalaust halda því áfram meðan hann er rólfær, þar eð aldr- ei hefur skakkað um einn eyri hans innheimta. Kristinn hefur því enn sem fyrr hvers manns traust. Kristinn Hróbjartsson er greind ur maður, stálminnugur, sérlega kurteis og gætinn til orða og verka. Fáir munu hafa leitað á Kristin með órétti, en ætti það sér stað, var hann fastur fyrir, ósveigjanleg ur og til hafði hann að vera harður í horn að taka heldur en þola yfir- gang og ór’étt. Trúmennska og ör yggi í starfi er Krrstni í blóð borin og hann hefur gætt þess af miklu öryggi að hætta sér aldrei í störf, sem vafasamt væri að hann gæti leyst með sæmd. Kristinn er því einn þeirx’a manna, sem við kynn ingu hefur orðið hvers manns hug ljúfi, enda ber hann samferðamönn um sínum vel söguna. Við Krístinn bundumst vináttu sem ungir menn og hefur aldrei fallið skuggi á vin áttu okkar. Hjónin hafa verið mjög samstillt og samhent. Þau eiga tvo syni, þekkta sjómenn, Guðmund og Jörund, báðir lærðir sem skip- stjórar. Þeir hafa siglt um öll heimsins höf, fyrst sem óbreyttir sjómenn, síðar sem stýrimenn og skipstjórar. Þeir eru báðir kvæntir, j eiga börn og heimili í Reykjavík. j Beztu árnaðaróskir til afmælis- bamsins og fjölskyldunnar- allrar fr'á mér og mínu fólki. Bjarni Bjarnason. Bókin Æskudagar uppseld Bókabúðir víðs vegar á landinu eru hér með látnar vita, að byrgðir (lager) ,Æskudaga“ eru þrotnar, og því árangursiaust að senda pantanir til okkar, þar til vera skyldi eftir nýár, ef þá kynni eitthvað að vera komið inn aftur frá bokabúðum. Ennþá er bókin víða til í þeim. — Þeir sem ekki hafa enn sótt sér lofaðar bækur, vinsamlegast vitji þeirra fyrir iólin í Hólaprent, Edduhúsið eða að Hjarðar- haga 36. Við þökkum kærlega allar hinar ágætu viðtökur og vinsemd, sem þessi minninganók Vigfúsar hefur fengið. Þau muriu hvetja höfundinn til þess að halda áfram. Gleðileg jól! BÓKAÚTGÁFAN EINBÚI.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.