Tíminn - 05.02.1965, Síða 1
24 SÍÐUR
29. tbl. — Föstudagur 5. febrúar 1965 — 49. árg.
Bátur brennur og sekkur
MB-Reykjavík. fimmtudag.
Vélbáturinn Inqólfur, KE 12,
sem var 33 iesta bátur, brann
og sökk I dag út af Garðskaga.
Þriggja manna áhöfn var á
bátnum og yfirgaf hún bátinn
fljótlega eftir að eldurinn kom
upp og bjargaði Stafnesið úr
Sandgerði þeim skömmu síðar.
Varðskip komu á staðinn og
reyndu að slökkva eldinn, en
það var árangurslaust. Mynd-
ina hér að ofan tók Bjainni Guð-
björnsson, annar vélstjóri á
Óðni, um hádegisbilið.
Við áttum í kvöld tal við
Braga Björnsson, skipstjóra á
Ingólfi, og sagðist honum svo
frá:
— Eldsins varð vart klukkan
rúmlega sjö i morgun, í vélar-
rúmi skipsins. Við lágum yfir
línunni 24 mílur VNV af Sand-
gerði, og tveir voru í koju, en
einn stóð baujuvaktina. Eldur-
inn varð strax mjög magnaður.
og við réðum ekkert við hann,
en enginn brenndist þó neitt.
Við þorðum ekki annað en fara
fljótlega í gúmbátinn, þvi öðru
hverju heyrðust smáhvellir
neðan úr vélarrúminu, og við
vorum hræddir við að olíutank-
arnir kynnu að springa.
Áður en við fórum í gúm-
bátinn, kallaði ég á aðstoð ná-
lægra báta. Við vissum af þeim
rétt hjá, en svarta þoka var á,
svo við sáum enga. Stafnesið
Eramhalci a il slðu
Búnir að sprengja af
sér gistirými hótelanna
JHM—Reykjavík, fimmtudag-
Eins og kunnugt er af fréttum
þá kemur Norðurlandaráð saman
til fundar hér í Reykjavík eftir
viku. Upphaflega var gert ráð
fyrir um að 200 manns kæmu frá
Norðurlöndunum, en samkvæmt
síðustu upplýsingum hefur talan
hækkað í 250.
f Reykjavík eru til rúm 200
hótelherbergi yfir vetrarmánuðina
þannig að koma verður sumum af
þessum fulltrúum fyrir í herbergj
um víðsvegar um borgina. Hótel
Holt mun verða tilbúið i tæka
tíð til að taka á móti gestum, en
um tíma var óvíst að svo myndi
verða. City Hótel hefur auglýst
eftir herbergjum til viðbótar við
þau sem fáanleg eru i hótelinu
sjálfu. Ingólfur Pétursson, hótel-
stjóri, sagði í viðtali við blaðið að
hann hefði auglýst eftir 50 her-
bergjum og væri búinn að fá flest
þeirra. Hótelin í borginni munu
halda eftir um 15 prósent af her-
bergjum sínum fyrir aðra gesti
sem þurfa gistingu. Hóte) Saga
mun einnig verða miðstöð fyrirl
nefndarfundi ráðsins og svo fyrir
fundi sendinefndanna sjálfra.
Súlnasalurinn verður t.d. hólfað
ur niður í fundaherbergi, sagði
Konráð Guðmundsson, hótelstjóri
Tímanum í dag.
Vitað er nú hvaða ráðherrar
koma frá Finnlandi, Svíþjóð og
Danmörku, en ekki er enn ákveðið
hverjir koma frá Noregi. Frá
Finnlandi koma eftirtaldir ráð-
herrar: Söder Hjelm, dómsmála-
ráðherra, T. A. Wiherhemo, við-
skipta og innanríkismálaráðherra,
Mauno Jussila, landbúnaðarráð-
herra; Jussi Saukkonen, mennta-
málraáðherra; Grets Teir, sam-
göngumálaráðherra, og Juho
Tenhiala, félagsmálaráðherra.
Frá Svíþjóð eru væntanlegir
þeir: Tage Erlander, forsætisráð
herra; Gunnar Lange, viðskipta-
málaráðherra; Hermann Kling,
dómsmálaráðherra, Gustav Skog-
lund, samgöngumálaráðherra:
Ragnar Ediman, menntamálaráð-
herra og R. Hermannsson.
Dönsku ráðherrarnir verða þeir:
Jens Otto Krag, forsœtisráðherra;
|Per Hekkerup, utanríkisráðherra;
| K. Axel Nielsen, dómsmálaráð-
herra; K. B. Andersen, mennta-
| málaráðherra; Henry Grunbaum,
efnahagsmálaráðherra og Kai
Lindberg.
Veröfall
á rækju
GS-ísafirði, fimmtudag.
Veitt hefur verið leyfi til
þess að veiða meira magn af
rækju hér í Djúpinu en upp
haflega var leyft. Bátarnir hér
áttu eftir að afla sem næst 60
tonn upp í fyrra leyfið, en nú
hefur verið leyft að veiða 100
lonn til viðbótar. Hins veg-
ar er nokkur uggur í mönn
um hér vegna þess að spurzt
hefur að nokkurt verðfall hafi
orðið á rækju á Evrópumark
aðnum, en vafalaust verður
engu að síður veitt það magn,
sem leyfilegt er að veiða.
Samkvæmt upplýsingum Ole
Olsen forstjóra hér á ísa-
firði, eru fregnir af þessu enn
mjög óljósar, en útlit er fyr-
ir að allmiklu meira berist af
japanskri rækju á Evrópumark
að en verið hefur og það komi
til með að valda allmiklu verð
falli fyrir vorið, og verð á
rækju er þegar farið að lækka.
Þá er einnig stóraukið fram
boð á rækju bæði frá Græn
landi og Noregi, en framboð
þaðan eykst ávallt upp úr ára
mótunum. Nú eru horfur á
meira framboð verði á græn-
lenzkri rækju en fyrr, þar eð
Danir hafa stóraukið rækjuveið
ar við Grænland.
Ole kvaðst vonast til að
verðlag hækkaði að nýju þeg
ar kæmi fram á sumar eða
haust og yrðu framleiðendur
hér sjálfsagt að geyma eitt-
hvað þangað til.
Ole kvað liðin eitthvað um
fimm ár síðan japönsk rækja
kom á Bandaríkjamarkaðinn og
síðan hefði ekki verið unnt að
selja neitt af íslenzkri rækju
þangað. Sem dæmi um verð
fallið mætti nefna, að verðið
á einu pundi af frystri rækju
hrapaði úr 120 sentum niður
í 65 sent. Japönsk rækja hef
ur eitt.hvað verið á boðstólum
í Englandi, en ef hún veldur
verðfalli á Evrópumarkaðnum
nú, verður það í fyrsta sinni.
Japanir hafa stóraukið rækju
veiðar sínar á undanförnum ár
um og stunda þær nú víða,
senda stór móðurskip með veiði
skipunum til að geta verkað
rækjuna um borð.
KING SITUR ENNINNI
NTB-Selma, Alabama, fimmtud.
Lögreglan I Marion handtók í
dag 200 blökkumenn, sem fóru í
mótmælagöngu þar, og hafa nú
alls rúmlega 1400 blökkumenn
verið handteknir þar og I borg
inni Selma, sem er rétt hjá. Dr.
Martin Luther King, sem setið
hefur í fangelsi í Selma síðan
á mánudag, stjórnar mótmælaað
gerðunum úr fangelsinu. Leiðtogi
svörtu Múhammeðstrúarmann-
anna, Malcolm X, kom til Selma í
dag, og sagði hann, að óvíst
væri hversu lengi barátta blökku
manna myndi halda áfram þar
án þess, að þeir gripu til róttæk
ari aðgerða.
Eiginkona Luther Kings og
Malcolm X komu bæði til Selma
í dag, og héldu ræður á fundi
æskufólks í kirkju einni í bæn-
um. Frú King sagði, að hún væri
stolt af mótmælagöngunum í
Selma og Marion, en Malcolm X
kvað hugsanlegt, að núverandi bar
áttuaðferð blökkumanna, þ. e. bar
átta án valdbeitingar, yrði ekki
notuð mikið lengur, en gripið til
annarra og róttækari aðgerða.
Lögreglan í Marion handtók í
dag um 200 blökkumenn, og hafa
Framhald á 11. síðu.
Nemendur íþróttakennaraskólans sofa
uppí á borðum vegna ágengni músa!
BJA IÞRDTTA-
FRÉ.TTIR BLB. 12