Morgunblaðið - 20.02.1935, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
3
Miövikudaginn 20. febr- 1935
Fáhevrð ósvífni.
Ilcrmunn Jónasson
svarar kröfum húsmæðra
u ni óg'erilsneydda mjólk
mcð þeirri fálieyröu ósvifni
að faka mfólkurbúarjetf-
iiidin af Korpúlfsstöðum. |
Mjólkursölunefnd hefir þegar
tekist að halda þannig á fram-
kvæmd mjólkurlaganna að allir
eru orðnir óánægðir, alveg
jafnt bændur sem neytend-
iir. Þar hefir hvert hneykslið
rekið annað, svo að vart verð-
wr til jafnað, og munu fæstir
hafa óttast að nokkrum tækist
að yfirstíga ávirðingar meiri-
bluta mjólkursölunefndar.
Svo hefir þó nú til tekist.
Hermann Jónasson landbún-
aðarráðherra tilkynti Thor Jen-
*en í gær, að öli rjettindi til að
teljast mjólkurbú væru án alls
fyrirvara tekin af Korpúlfs-
staðabúinu, og Ijet til mála-
mynda fylgja samskonar skila-
boð til austanbúanna, en þau
höfðu áður af frjálsum vilja
hætt að gerilsneyða mjólkina.
Hr hjer í frammi höfð sú ó-
svinna, að fæstir menn skilja
að nokkur ráðherra láti hafa
sig til slíks, og skal það mál nú
rakið og skýrt í örfáum drátt-
um. —
Mjölkurlögin gera ráð fyrir
að landbúnaðarráðherra ,,við-
urkenni“ mjólkurbúin, og njóta
slík mjólkurbú vissra rjettinda
samkvæmt lögunum, þ. á. m.
þeirra að selja vörur sínar með
sjermerki.
Korpúlfsstaðabúið var eitt
þeirra mjólkurbúa, sem sam-
kvæmt lögunum á rjett til þess
að öðlast „viðurkenningu“ ráð-
herra, enda var hún hiklaust í
tje látin með brjefi dags. 14.
janúar síðastliðinn, sem er und-
irritað af Hermanni Jónassyni.
Fám dögum síðar fór Her-
mann utan, en skömmu eftir
brottför hans hefjast tilraunir
sjera Sveinbjarnar Högnasonar
til þess að fá Thor Jensen til
þess að taka að sjer einkarjett
til framleiðslu á barnamjólk á
öllu verðjöfnunarsvæði Reykja-
víkur og Hafnarfjarðar. Fóru
þær tilraunir ,eins og lesendur
Morgunblaðsins muna, út um
þúfur, vegna þess að Thor Jen-
sen var með öllu ófáanlegur til
þess að hækka verð á mjólk
sinni um 5 au. á lítirinn. Sýndi
Thor Jensen fram á að „barna-
mjólk“ sú, sem gert er ráð fyr-
ir í mjólkurreglugerðinni, er
sama mjólkin eins og hann að
andanförnu hefir selt sem
hreinsaða og ógerilsneydda
mjólk. Vildi Thor Jensen' því
ekki hækka verðið úr því gæðin
voru óbreytt, en bar fram þá
uppástungu og ósk að verða við
kröfum húsmæðra með því að
selja Korpúlfsstaðamjólkina á-
fram óbreytta og án allrar verð
hækkunar.
Yfir þessari sjálfsögðu að-
stöðu Thor Jensen, að neita að
taka hærra verð fyrir sömu
vöru, reiddist meirihluti mjólk-
ursölunefndar svo hastarlega,
að sjera Sveinbjörn ritaði þegar
í stað Eysteini Jónssyni brjef
og krafðist þess, að öll rjettindi
væru tekin af Korpúlfsstaða-
búinu, en Eysteinn fór með land
búnaðarmálin í fjarveru Her-
manns.
| Eysteinn mun nú hafa sjeð
sem var, að hjer var of langt
gengið í taumlausri ósvífni.
Honum mun ekki hafa fundist
fært að bjóða Thor Jensen ann-
an daginn einkarjett til fram-
leiðslu barnamjólkur, en svifta
hann degi síðar öllum rjetti til
að vera mjólkurbú. Eysteinn
Jónsson mun hafa lesið mjólk-
urlögin og sjeð, að þar fanst
engin átylla. Hann mun hafa
kynt sjer vottorð Hannesar
Jónssonar dýralæknis, og sjeð
að dýralæknirinn telur að „um
húsakynni kúnna er nú hvergi
hjerlendis og tæpast erlendis
eins vel til vandað og í búum
Thor Jensen .... og að öll
hirðing og fóðrun skepnanna er
í hinu frábærilegasta lagi og
hin fullkomnustu tæki . . . . “
Hann mun hafa lesið vottorð
Sigurðar búnaðarmálastjóra,
sem segir að „Korpúlfsstaða-
búið sje stofnað með þeirri hug
sjón að reisa þar nýtísku mjólk
urbú o. fl.“, og bætir síðar við:
„Mjer er kunnugt að alt þetta
hefir lánast svo að nú stendur
Korpúlfsstaðabúið sem fyrir-
myndarbú, eigi aðeins sem ein-
stætt í sinni röð hjer á landi,
heldur og fullkomnara en öll
tilsvarandi bú er mjer er kunji-
ugt um í nágrannalöndunum“.
Og ennfremur: „Skal það hjer
með sjerstaklega tekið fram, að
það mjólkurbú hefir allar þær
vjelar er fullkomin mjólkurbú
þurfa að hafa, og fullnægir því
öllum kröfum er gera ber til
mjólkurbús“.
Eysteini Jónssyni hefir ekki
þótt árennilegt að virða vettugi
þessar umsagnir Hannesar dýra
læknis og Sigurðar búnaðar-
málastjóra.
Þá mun og Eysteinn Jónsson
hafa sjeð brjef fyrv. landbún-
aðarmálaráðh., Þorsteins Briem,
sem í einu og öllu „viðurkendi"
Korpúlfsstaðabúið, og loks
mún Eysteinn Jónsson hafa sjeð
það sem dugði, hvað sem öðru
leið, þ. e. a. s. brjef Hermanns
Jónassonar dags. 14. janúar
síðastl. sem enn á ný „viður-
kemíir“ Korpúlfsstaðabúið.
Málið lá því þannig fyrir Ey-
steini Jónssyni:
1. Sigurður búnaðarmálastjóri
og Hannes dýralæknir telja
2.
BHr
Korpúlfsstaðabúið fullkomn
asta bú hjer á landi og í
nágrannalöndunum., sem
hafi „allar þær vjelar og á-
höld sem fullkomin mjólk-
urbú þurfa“.
20. des. 1933 viðurkennir
Þorst. Briem landbúnaðar-
ráðh. Korpúlfsstaðabúið.
Tilkynnine
3. 14. janúar 1935 „viðurkenn
ir“ Hermann Jónasson Kórp
úlfsstaðabúið.
4. 22. janúar býður Mjólkur-
sölunefndin Korpúlfsstaða-
búinu einkarjett á fram-
leiðslu „barnamjólkur“ á
öllu verðjöfnunarsvæði
Reykjavíkur og Hafnarfjarð
ar, gegn því að mjólkin
hækki um 5 aura lítirinn.
5. Og loks 3—4 dögum síðar
krefst sami meirihluti mjólk
ursölunefndar að Óll mjólk-
urbúsrjettindi sjeu tekin af
Korpúlfsstöðum af því eig-
andinn var ekki nógu auð-
sveipur og neitaði að hækka
mjólkurverðið.
í þes'su gat jafnvel Eysteinn
Jónsson ekki tekið neinn þátt.
Svona aulaleg ósvífni gekk svo
gersamlega fram af honum, að
hann neitaði með öllu að vera
við kröfum Sveinbjarnar, Egils
í Sigtúnum og ráðvanda manns
ins í Alþýðubrauðgerðinni, og
urðu þessir herrar að bíta í
það súra epli að innibyrgja
heift sína og sættá sig við að
„fullkomnasta mjólkurbúið
hjerlendis og þótt víðar væri
leitað“ fekk(!) að selja mjólk
sína' sem sjerstaka vöru.
Samtímis gerðust nú margir
viðburðir í hneyklissögu mjólk-
ursölunnar. Sveinbjörn og Egill
urðu uppvísir að því að hafa
fórnað hagsmunum bænda fyr-
ir eigendur Alþýðubrauðgerð-
arinnar með tilstyrk forstjóra
hennar, sem sat í mjólkursölu-
nefndinni.
frá Gjaldeyris- og intiflutningseiefnd.
Þeir íslendingar, sem stunda nám í öðrum löndum, eða
aðstandendur þeirra, eru beðnir að veita nefndinni uppiýs-
ingar um eftirfarandi atriði:
1. Nöfn námsmanna og hverjar námsgreinar
þeirra eru.
2. Hve mikið fje þeir þurfa að fá „yfirfært“ á
yfirstandandi ári til greiðslu á náms- og
dvalarkostjipaði.
Upplýsingar þessar sendist nefndinni fyrir 15. mars næstk.
Gjaldeyris- og innflutningsnefnd.
Atvinnu- og samgöngumála-
ráðuneytið
Reykjavík, 18. febrúar 1935.
Með skírskotum til brjefs
ráðuneytisins, dags. 14. f. m.,
um löggildingu á mjólkurbúinu
á Korpúlfsstöðum til fram-
leiðslu á gerilsneyddri nyjólk
og rjóma o. fl„ skal yður, herra
stórkaupmaður, hjermeð tjáð,
að tjeð löggilding afturkallast
hjermeð og ber yður að láta
gerilsneyða alla mjólk og
rjóma, sem ætluð er til sölu
í Reykjavík og Hafnarfirði, í
imjólkurstöð Mjólkurfjelags
Reykjavíkur hjer í bænum.
Hermann Jónasson.
Vigfús Einarsson.
Til
hr. stórkaupmanns Thor
Jensen.
NOTIÐ
O. J. & K.-KAFFI,
ÞÁ MUN
MORGUNSOPINN
EKKIBREGÐAST
YÐUR.
Öll framkvæmdin var með
þeim endemum að jafnvel Al-
þýðublaðið þorði ekki annað
en ráðast á samsöluna með
þeim ummælum að þar væri
alt í „skammarleg^sta ólestri“
Bændur voru sárgramir út af
því peningatjóni sem Svein-
björn og fjelagar hans bökuðu
þeim. Neytendur h'öfðu sína
sögu að segja, verri vara, erf-
iðari viðskifti, stirðleiki og ó-
svífni. Og kröfurnar risu úr
öllum áttum, kröfurnar um
brottrekstur Sveinbjarnar, Eg-
ils og þeirrar eiginhagsmuna-
klíku, sem notaði vöru bænda
og þarfir almennings til þess
að auðga sjálfa sig.
Ofstoparnir í mjólkursölu-
nefnd sátu við sitt. Þeir undu
að vísu illa hag sínum, en þótti
þó bót í máli, að þeir voru bún-
ir að spilla Korpúlfsstaða-
mjólkinni að mun, með því að
krefjast þess að hún yrði ger-
ilsneydd, og auk þess var von
á Hermanni heim, og ef til
vill mátti nota hann til þeirra
fólskuverka, sem Eysteinn
vildi ekki lána sig í.
Hermann kom heim. Og nú,
mánuði eftir að hann löggilti
og „viðurkendiý Korpúlfsstaðá-
búið, ritar hann eiganda þess
á þessa leið: “
Hvað er það, sem hjer hefir
gerst ?
Éigandi Korpúlfsstaðabúsins
hefir með óvenjulegum dugnaði
hins bjartsýna hugsjónamanns
komið hjer upp fullkomnasta
búi „hjerlendis og nærlendis“.
í því skyni að þurfa ekki að
láta gerilsneyða mjólkina, en
geta þó fullnægt kröfum„ nú-
tímans um hollustu-öryggi, hef-
ir hann lagt fram stórfje um-
fram það, sem þurft hefði ef
gerilsneyða átti mjólkina. Dýra
læknir ríkisins og búnaðarmála
stjóri kunna ekki nægilega
sterk orð til að vegsama til-
ganginn og árangurinn.
Húsmæður í Reykjavík krefj-
ast að fá þessa mjólk ógeril-
sneydda, af því einu að þær
telja hana besta.
Með mjólkurlögunum er rjett
urinn til þess að selja hana ó-
gerilsneydda gerður erfiðari.
Með því að brjóta allap anda
mjólkurlagann hefir syo loks
ósvífinn ráðherra bætt þyí ofan
á að banna að selja þessa;,mjólk
sem sjermerki.
Frá þessum degi skal enginn
fá Korpúlfsstaðamjólk, sem
sjerstaka vöru, hvorki ógeril-
sneydda nje gerilsneydda.
Þetta er dómur Hermanns
Jónassonar.
Bitrasta vopnið
í baráttunni við sára skeggbrodda
er:
iOROROl
0,10rn/m
0,10m/m * /
Heildsölubirgðir:
Magnús Stefánsson.
Sími 2946.
Heilbrigðisreglur siðmenn-
inga þjóða, lög og rjettur, heil-
brigð skynsemi, óskir og kröfur
neytenda og framleiðenda, alt
skal víkja fyrir blindri póli-
tískri heift fáeinna ofstopa.
Þetta eru skilaboðin til eig-
enda Korpúlfsstaða.
Þessi eru svör Herraanns
Jónassonar til húsmæðranna.
Á þetta að þolast?
Því svara húsmæðurnar í
Reykjavík á mánudaginn kem-
ur.
Reykvíkingar láta ekki Her-
mann Jónasson og Tímaklík-
una bjóða sjer hvað sem er.
Það er kominn tími til að
gera þeim piltum þetta skilj-
anlegt.