Morgunblaðið - 03.09.1939, Side 4
4
Sunnudagur 3. sept. 1939.
MORGUNBLAf/lÐ
Nokkrir lædin^ar
teknir á saumastofu mína nú þegar.
Henny Otfósson,
Kirkjuhvoli. (Sími 5250).
Vöruafgreiðsla
Raftækjaeinkasftlunnar
verður lokuð mánudag og þriðjudag vegna vöruupptaln-
ingar.
RAFTÆKJAEINKASALA RÍKISINS.
Álaborgar
Hálfsigtimjöl
fyrirliggjandi.
H. Senediktsson & Co.
Sími 1228.
Minning Árna J. Árnasonar
A
Hið íslenska Fornritafjelag.
Nýtt bindi er komið út:
Vatnsdælasaga
Hallfreðar saga, Kormáks saga, Hrómundar
þáttr halta, Hrafns þáttr Guðrúnarsonar.
EINAR ÓL. SVEINSSON gaf út.
Verð kr. 9,00 heft og kr. 16,00 í skinnbandi. Fæst
hjá bóksölum.
Aðalútsala:
Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar
morgun verður borinn til
moldar Árni Jón Árnason,
bankaritari frá ísafirði, sem, eins
og kunnugt er, - ljest með þeim
sviplega hætti, að bann fjell af
hestbaki í Gunnlaugsstaðakvísl í
Borgarfirði h. 13. jólí s.l., að konu
sinni viðstaddri einni manna. Þó
hún sjálf, börn þeirra, öldruð
móðir og systkini gjaldi hjer auð-
vitað mest afhr^ð í missi slíks
heimilisföður og ástvinar, sem
Árni var, þá fer hjer sem oftar,
þegar vænn maður er á burtu
kvaddur á besta aldri, að fleirum
þykir nærri sjer höggvið en nán-
ustu skyldmennum.
Árna varð vei til vina, enda
hafði hann til að bera flest það
er til þurfti. Hann var hinn besti
'drengur, hreinlyndur, fastur fyrir
og ráðhollur, og betri fjelaga
verður vart á kosið. Jeg dæmi hjer
•um af nokkurri þekkingu, vegna
þess, að á unglingsárum okkar
skildum við varla nokkurn dag,
og þá koma menn venjulega til
dyranna eins og þeir eru klæddir.
Vinátta hans var óbrigðul eins og
fylgi hans við hvern þann mál-
stað, sem hann vildi styðja. Hann
stóð fremstur í flokki og gekk
síðastur af hólmi ef í harðbakka
sló, og sömu aðferð beitti hann
við vinnu sína, því að um alt var
hann skyldurækinn og dró hvergi
af sjer. í vinahóp var Árni glað-
vær og skemtinn, átti mikla
kýmnigáfu og kunni á furðu
mörgum hlutum góð skil. Hann
var mjög bókhneigður, greindur í
besta lagi, og hafði frábært minni.
Aldrei gekk hann á skóla eftir
fermingu, en þráft fyrir það mun
hann hafa verið mjög vel að sjer
í hverskonar versJunarfræðum og
svo mikill afkastamaður til vinnu,
að orð var á gert. Þó var hann
alla ævi hljedrægur hvað það
snerti, að leita sjer virðingar og
frama, og barst iítið á í öllu.
Árni var í'æddor á ísafirði hinn
17. maí 1894, og var hið þriðja af
sex börnum hjónanna Sigríðar
Sigurðardóttur og- Árna Sigurðs-
sonar seglsaumara og fiskimats-
manns. Bjuggu foreldrar lians um
50 ára skeið á ísafirði og nutu
ávalt virðingar samborgara sinna.
Árni ljest árið 1933 og af börnum
þeirra lifa nú þrjú liin yngstu,
Gróa, ráðskona við Elliheimilið á
ísafirði í mörg ár; Ásgeir, 1. vjel-
stjóri á varðbátnum „Óðni“, og
Sigríður, gift Sörensen úrsmið á
Isafirði, en hjá henni dvelur nú
móðir þeirra. Um fermingu byrj-
aði Árni verslunarstörf á ísafirði
og stundaði þau ávalt síðan þar
til fyrir 10 árum, er hann rjeðist
starfsmaður IJtvögsbankans á ísa-
firði, en fluttist tii Reykjavíkur
fyrir 5 árum og vann í Útvegs-
bankanum hjer til dauðadags.
Árið 1923 giftist Árni eftirlif-'
andi konu sinni, Guðríði Tómas-
dóttur Gunnarssonar fiskimats-
manns á ísafirði, og eignuðust þau
3 börn, tvo drengi og eina stúlku,
sem öll lifa og eru hin mánnvæn-
legustu eins og þau eiga kyn til.
Árni var mikill vexti og bjart-
ur yfirlitum, svipurinn hreinn og
gáfulegur og lýsti vel því, sem í
manninum bjó. Hann tamdi sjer
nokkuð íþróttir á yngri árum, en
Arni J. Arnason.
naut lítillar tilsagnar þar sem
annarsstaðar. Þó þótti hans rúm
hvarvetna vel skipað, og naut.
hann þar góðra gáfna til sálar
og líkama.
Að Árna er hinn mesti mann-
skaði fyrir allra hluta sakir, og
veit jeg að fleirum vina hans muni
finnast sem mjer, að við fráfall
hans sje orðið ekki lítið skarð
fyrir skildi.
Priðrik V. Ólafsson.
Lanolin-púöur
á brúna og sólbrenda
húð.
Lanolin-skinfood.
Dagkrem í eðlilegum
húðlit.
Goli verð.
íslenskur kristniboði
í Hong Kong
Síra Jóhann Hannesson, er
dvelur í Hong-Kong með
konu sinni við kínversku nám,
skrifar 17. júlí s.l. m. a.:
„Mikil ánægja var mjer að
símskeytinu, sem Kristniboðs-
þingið í Reykjavík sendi mjer.
Það er hundrað sinnum verð-
mætara fyrir mann áð hugsað
sje til hans, þegar hann er kom-
inn hingað, heldur en þegar
hann er á Norðurlöndum.
Hjer þyknar í lofti með
hverjum degi hvað sambúð
þjóðanna snertir. Nú fara fram
viðræður milli Englendinga og
Japana í Tokio; ómögulegt að
vita hvaða árangur þær kunna
að hafa.
Á föstudaginn var tókum við
þriðja prófið í kínversku. Hin
f yrri hafa gengið ágætlega;
þetta var nokkru erfiðara. Höf-
um nú á þessum tíma lokið 9
mánaða námi á h. u. b. þriðjung
þess tíma, sem gert er ráð fyrir
að menn noti. En nú höfum við
fcekið okkur viku frí, enda er
hlýtt í veðri.
Okkur líður vel, og við erum
ánægð vegna þess að við vitum
okkur varðveitt af guði. En erf-
iðara virðist verða að komast
inn á starfsvæði okkar eftir því
sem tíminn líður. Þó er það enn
þá kleift.“----
Áritun til sr. Jóhanns er: The
Bishops Home, Hong Kong.
S. Á. Gíslason.
Súputarínur
Áleggsföt
Desertdiskar
Ávaxtadiskar
Ávaxtaskálar
Ávaxtastell 6 m,
Smurðsbrauðsdiskar
Vínglös
ísglös
Sítrónupressur
Veggskildir
Kartöfluföt með loki
Matskeiðar
Matgafflar
5.00
0.50
0.35
0.35
2.00
4.50
0.50
0.50
1.00
0.75
1.00
2.75
0.25
0.25
K. Einarsson Sc Bjðmsson
Bankastræti 11.
EOLASALAN S.f.
Ingólfshvoli, 2. hæð.
Símar 4514 og 1845.
EF LOFTUR GETUR ÞAÐ
EKKI----ÞÁ HVERT
ÖOOOOOOOOOOOOOOOOO
Cítrónur
Lækkað verð.
vmn
Laugaveg 1, Sími 3555.
Útbú Fjölnisveg 2. Sími 2555.
öoooooooooooooooo<
Farsóttir og manndáuði í Rvík
vikuna 13.—19. ágúst. (í svigum
töiur næstu viku á undan): Háls-
bólga 40 (18). Xvefsótt 50 (6).
Blóðsótt 0 (2). Iðrakvef 24 (9).
Kveflungnabólga I (0). Munnang-
ur 0 (1). Hlaupabóla 1 (0). Kossa-
geit 1 (0). Ristill 1 (0). Mannslát
10 (1). -— Landlæknisskrifstofan.
(FB.).
Nýar gúmmivðrur:
Baðhettur, margar teg.
Gúmmíbuxur, margar teg.
Gúmmíhanskar, margar teg.
Gúmmítúttur og
Gúmmísnuð.
Laugaveg: 19.