Morgunblaðið - 22.04.1954, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 22. apríl 1954
MORGUNBLAÐIÐ
11
Tilkynning
um bótagreiðslur almannatrygginganna
árið 1954
Yftirstandandi bótatímabil almannatrygginganna hófst 1.
janúar s.l. og stendur yfir til ársloka.
Lifeyrisupphæðir þær, sem greiddar eru á fyrra helmingi
ársins 1954 eru ákveðnar til bráðabirgða með hliðsjón af
bótum síðasta árs og upplýsingum bótaþega. Sé um tekjur að
ræða, sem áhrif geta haft til skerðingar á lífeyri, verður
skerðingin miðuð við tekjur ársins 1953 og endanlegur úr-
skurður um upphæð lífeyrisins 1954 fellur, þegar farmtöl
til skatta liggja fyrir.
Þeir, sem nú njóta lögboðins ellilífeyris, örokulífeyris,
barnalífeyris, mæðralauna og fjölskyldubóta, þurfa ekki að -
þessu sinni að sækja um framlengingu þessara bóta. Híns'
vegar ber öllum þeim, sem nú njóta bóta samkvæmt heirn-
ildarákvæðum almannatryggingalaganna, að sækja á ný
um bætur þessar, vilji þeir áfram njóta þeirra.
Hér er um að ræða örorkustyrki, ekkjulífeyri, makabætur,
bætur til ekkla vegna barna, svo og lífeyrishækkanir.
Umsóknir um endurnýjun bóta þessara, skulu ritaðar á
viðeigandi eyðublöð Tryggingastofnunarinnar, útfyllt rétt
og greinilega eftir því, sem eyðublöðin segja fyrir um, og
afhent umboðsmanni ekki síðar en fyrir 25. maí næstkom-
andi.
Áríðandi er að örorkustyrksþegar, sem misst hafa 50—
75% starfsorku, sæki á tilsettum tíma, þar sem ella er með
öllu óvíst að hægt sé að taka umsóknirnar til greina, vegna
þess, að fjárhæð sú, er verja má í þessu skyni, er takmörkuð.
Fæðingarvottorð og önnur tilskilin vottorð skulu fylgjá
umsóknum hafi þau eigi verið lögð fram áður. Þeir umsækj-
endur, sem gjaldskyldir eru til tryggingasjóðs, skulu sanna
með tryggingaskirteini sínu eða á annan hátt, að þeir hafi
greitt iðgjöld sín skilvíslega. Vanskil varða skerðingu eða
missi bótaréttar.
Umsóknir um aðrar tegundir bóta, svo sem fæðingarstyrki,
sjúkrÆagpeninga og ekknabætur, svo og allar nýjar um-
sóknir um lífeyri, fjölskyldubætur eða mæðralaun verða
afgreiddar af umboðsmönnum á venjulegan hátt, enda hafi
umsækjandi skilvísléga greitt iðgjöld sín til tryggingasjóðs.
íslenzkar konur, sem gifst hafa erlendum mönnum, eiga
nú rétt til barnalífeyris frá Tryggingastofnuninni, þótt þær
hafi misst íslenzkan ríkisborgararétt, ef eiginmenn þeirra
hafa fallið frá, yfirgefið þær eða skilið við þær, enda dvelji
þær með börnin hér á landi og njóti ekki lífeyris eða með-
lags annars staðar frá.
Norðurlandaþegnar sem hér hafa búsetu, eru minntir á,
að samkvæmt milliríkjasamningum hafa danskir, finnskir,
sænskir og norskir ríkisborgarar ellilífeyrisrétt með tilheyr-
andi barnalífeyrisrétti, hafi þeir haft hér samfellda 5 ára
búsetu þegar bótanna er leitað. Þá hafa finnskir, sænskir
og norskir rikisborgarar fjölskyldubótarétt fyrir börn sín,
séu þeir ásamt börnunum skráðir á manntal hér, enda hafi
þeir ásamt börnunum haft hér 6 mánaða samfellda búsetu
áður en bótarétturinn kemur til greina. Fjölskyldubótaréttur
þessi tekur ekki til danskra ríkisborgara
íslenzkir ríkisborgarar eiga gagnkvæman rétt til ellilíf-
eyris og fjölskyldubóta í hinum Noiðurlöndunum.
Athygli er vakin á, að bætur úrskurðast frá 1. degi
þess mánaðar, sem umsókn berst umboðsmanni, enda hafi
réttur til bótanna þá verið fyrir hendi. Þeir, sem telja sig
eiga bótarétt, dragi ekki að senda umsóknir sínar, þar sem
bótaréttur getur fyrnst að öðrum kosti.
Reykjavík, 10. apríl 1954.
Tryggingastofnun ríkisins.
BLÓM!
BLÓMAVERZLANIR BÆJARINS verða opnar í dag eins
og undanfarin ár í tilefni barnadagsins.
Herbergi óskast
Stórt herbergi eða tvö samliggjandi, óskast. Góð leiga
í boði og símaafnot,
Uppl. í síma 4131 í dag frá kl 1—3 e. h.
Sumardaguriitn fyrsti 1954
Hátiðahöld „Suunargjafar44
Útiskemmtanir:
Kl. 12,45:
Srúðganga barna
frá Austurbæjarskólanum og
Melaskólanum að Austurvelli.
— Lúðrasveitir leika fyrir
skrúðgöngunum.
Kl. 1,30:
Herra Ásmundur Guðmunds-
son biskup, talar af svölum
Alþingishússins. Að lokinni
ræðu leikur lúðrasveit.
Dreifing blaðs, bókar, merkja
og sala aðgöngumiða: t Lista
mannaskálanum, Grænu-
borg, Barónsborg, Drafnar-
borg. Brákarborg, Steina-
hlíð og við Sundlaugarnar
(vinnuskáli). Blaðið kostar
kr 5.00. Einnig er hægt að
fá blaðið í Laufásborg,
Tjarnarborg og Vesturborg.
„Sólskin“ verður afgreitt á
framangreindum stöðum frá
kl. 9 f. h. í dag.
„Sólskin“ kostar kr. 10.00.
Merkin verða einnig af-
greidd á sömu sölustöðum
frá kl. 9 árdegis fyrsta
sumardag. — Merkin kosta
kr. 5.00 með borða og kr.
3.00 án borða.
Inniskemmtanir:
Kl. 1.45 í Tjarnarbíó:
Lúðrasveitin „Svanur“ leikur
Stjórnandi: Karl Ó. Runólfs-
son.
Gamanvísur: Sigríður Hann-
esdóttir.
Danssýning: Nemendur úr
dansskóla Rigmor Hanson.
Klemens Jónsson, leikari,
skemmtir
Skemmtiþáttur: Svavar Jó-
hannesson.
Kvikmynd.
Kl. 2,30 i Siálfstæðis-
húsinu:
Fánnhylling: Börn úr 12 ára
C Melaskólanum.
Eygló Haraldsdóttir og Kol-
brún Sæmundsdóttir leika
fjórhent á píanó. Yngri nem
endur Tónlistarskólans.
Árstíðirnar, leikþáttur: Börn
úr 12 ára B, Melaskólanum.
Samleikur á fiðlu og píanó:
Helga Hauksdóttir og Jón-
ína H. Gísladóttir. Yngri
nem. Tónlistarskólans.
Mas, smáleikur: Börn úr 12
ára A, Melaskólanum.
Einleikur á píanó: Jónína H.
Gísladóttir.
Afmælisgjöfin: Leikþáttur:
Drengir úr 12 ára F, Mela-
skólanum.
Danssýning: Nemendur úr
dansskóla Rigmor Hanson.
Einsöngur: Helena Eyjólfs-
dóttir, Kolbrún Sæmunds-
dóotir leikur undir. Báðar
12 ára.
Smáþáttur: Tvær telpur úr 12
ára C, Melaskólanum.
Kl. 2,30
í Austurbæjarbíó:
Kórlestur: Börn úr 9 ára D,
Au sturbæ j arskólanum
Flautuleikur: Lúðvik Karlsson
og Jakob Hallgrímsson 10
ára H, Austurbæjarskólan-
Láki í Ijótri klípu: Börn úr
10 ára H, Austurbæjarskóla.
Einsöngur: Ólafur Magnússon
frá Mosfelli.
Prófið: Leikþáttur. Börn úr 10
ára H. Austurþæjarskóla.
Fjórhent á píanó: Bertha Vig-
fúsdóttir 9 ára og Geirlaug
H Magnúsdóttir, 7 ára.
Biðukollan, söngleikur eftir
Margréti Jónsdóttur: Börn
úr 9 ára D, Austurbæjar-
skólanum
Fullnaðarprófið, leikþáttur:
Börn úr 12 ára B, Aust-
urbæjarskólanum.
Einleikur á píanó: Ingibjörg
Jóhannsdóttir.
Einleikur á píanó: Geirlaug H.
Magnúsdóttir, 7 ára.
Einleikur á fiðlu: Jakob Hall-
grímsson, 10 ára H, Austur-
bæjarskólanum.
í rökkrinu, leikþáttur: Börn
úr 12 ára B, Austurbæjar-
skólanum.
Samtal. fermingartelpur:
Telpul úr 12 ára B, Austur-
bæjarskólanum.
KI. 2 í Góðtemplarahúsinu:
Ungtemplarar í Reykjavík
sjá um þessa skemmtun.
Scngur með gítarundirleik.
Upplestur.
Gamanvísur.
Leikþáttur.
Þjóðdansar.
Kl. 4 í Góðtemplarahúsinu:
Einkunnabókin: Leikþáttur,
eftir Harald Á. Sigurðsson.
Samleikur á fiðlu og píanó:
Þórunn Haraldsdóttir og
Sigríður Einarsdóttir. Yngri
nem. Tónlistarskólans,
Upplestur: Rósa Sigurðar-
dóttir.
Upplestur: Ragnheiður Jóns-
dóttir.
Danssýning: Nemendur úr
dansskóla Rigmor Hanson.
Einleikur á píanó: Guðrún
Frímannsdóttir.
Kórsöngur 11 og 12 ára barna
úr Miðbæjarskólanum Söng-
stjóri: Jón G. Þórarinsson.
Gamanvísur: Sigríður Hann-
esdóttir.
Kvikmynd.
Kl. 2 í Iðnó:
Einleikur á fiðlu og píanó:
Sigrún og Agnes Löve:
Yngri nem. Tónlistarskólans.
Eld vil ég fá, leikþáttur: Börn
úr 12 ára G, Austurbæjar-
skclanum
Samleikur á fiðlu og píanó:
Ásdís Þorsteinsdóttir og
Anna Sigríður Lorange.
Yngri nem. Tónlistarskólans
Slunginn sölumaður: Börn úr
12 ára G Austurbæjarskóla.
Danssýning: Nemendur úr
dansskóla Rigmor Hanson.
Skylmingar, smáþáttur: Börn
úr 12 ára G, Austurbæjar-
skólanum.
Kórsangur: 11 og 12 ára barna
úr Miðbæjarskólanum. Söng
stjóri: Jón G. Þórarinsson.
Kl. 3 í Hafnarhíó-
Starfsstúlknafélagið „Fóstra“
sér um skemmtunina.
Söngur.
Ævintýrið úm vítamínin,
Hringdansar.
Sagan af Lubba.
Söngur barna.
Getraun.
Söngur.
Börn frá barnaheimilum
Sumargjafar skemmta.
Skemmtunin er einkum ætl-
um börnum á aldrinum JJja
til 9 ára.
KI. 3 og 5 i Nýja Bíó:
Kvikmyndasýningar. Aðgöngu
miðar seldir frá kl. 11 £. h.
Venjulegt verð.
Kl. 3 i Tjarnarbió:
Kvikmyndasýning. Aðgöngu- ,1,
miðar seldir frá kl. 11 f. h.
Verjulegt verð.
Kl. 4 að Hálogalandi:
Skemmtiþáttur: Svavar J.ó-.
hannsson.
Leikfimisýning: Drengir úr
Melaskólanum.
Einleikur á harmóniku.
Körfuboltaleikur.
Jónarnir tveir.
Glímusýning.
Kl. 5 í Iðnó:
Hans og Gréta, ævintýraleik-
ur eftir Willy Krúger. Leik-
félag Hafnarfjarðar sýnir.
Aðgöngumiðar frá kl. 10 -12
í Miðbæjai’skólanum fyrsta
sumardag, Einnig í Iðnó frá
kl. 3 fyrsta sumardag. Verð
aðgöngumiða kr. 15,00.
Kvikmyndasýningar
Kl. 5 og 9 í Gamla Bíó.
KI. 5 og 9 í Stjörnubíó.
Kl. 9 í Austurbæjarbíó.
Kl. 9 í Hafnarbíó.
Aðgöngumiðar frá kl. 11 f. h.
Venjulegt verð.
Leiksýningar:
Kl. 3 í Þjóðleikhúsinu:
Ferðin til íunglsins.
Aðgöngumiðar í Þjóðleikhús-
inu á venjulegum tíma.
Kl. 8 í Tðnó:
Hans og Gréta, ævintýraleik-
ur. eftir Willy Krúger. Leik-
félag Hafnarfjarðar sýnir.
Aðgöngumiðar frá kl. 10—12
í Miðbæjarskólanum fyrsta
sumardag. Einnig í Iðnó frá
kl. 3 fyrsta sumardag.
Dansskemmtanir:
verða í bessum húsum:
Samkomusalnum Laugaveg
162.
Sjálfstæðishúsinu.
Albvðuhúsinu.
Gömlu dansarnir.
Panss-kemmtanirnar hefjast
kl. 10 og standa til kl. 1.
Aðgöngumiðar að öllum
skemmtunum, nema að Ferð
inni til tunglsins, vprða
seldir í Miðbæjarskólanum ;
kl. 10—12 fyrsta sumardag.
Aðgöngumiðar að leiksýningu
Leikfélags Hafnarfjarðar.,
Hans og Grétu, kosta kr.
15.00 kl. 5, en kr. 20.00 kl. 8
Aðgöngumiðar að dagskemmt-
ununum kosta kr. 5,00 fyrir
börn og kr. 10,00 fyrir full-
orðna.
Aðgöngumiðar að dansskemmt .
ununum kosta kr. 15,00 fyr-
ir manninn.