Morgunblaðið - 10.06.1960, Qupperneq 10
10
MORCIJISBLAÐIÐ
Föstudagur 10. júní 1960
Mörg og
mikilvæg mál
Eitt allra athafnamesfa jping,
sem sögur fara af
IiASíI \IE\\SKI!lí\ÍI\
ÞESSI ungi fullhugi, sem myndin er af,
hefir tekið „heljarstökk" ofan af palli, sem
komið var fyrir uppi á um 100 feta háum
stofni gamals trés. — Ekkert vatn er undir —
aðeins hörð jörð. Og hvað þá? — Um ókla
hans eru bundnar mjúkar, en sterkar vínvið-
artágar — og rétt áður en höfuð hans nemur
við jörðu, strengist á tágunum. Hann er hólp-
inn — ef allt fer, sem ætlað er. Fagnandi fe-
lagar hans þyrpast að, skera á tágárnar og
dansa sigri hrósandi kringum fullhugann.
„Heljarstökkið“ kvikmyndað
Þessi sérstæða karlmennskuraun mun hafa
tíðkazt um aldir á hinni litlu eyju, Pentecost,
á suðvesturhluta Kyrrahafs í eyjaklasa þeim,
er Nýju-Hebrideseyjar nefnast. — Brezkur
kvikmyndatökumaður, David Attenborough
að nafni, frétti af þessari einkennilegu sið-
venju og brá sér til þessa „heimshorns", sem
enn má heita ósortið af menningu tuttugustu
aldarinnar, til þess að taka kvikmynd af einu
slíku „heljarstökki“ og öðrum sérstæðum sið-
um íbúanna á eyjum þessum fyrir brezka
jónvarpið.
if Eldskírn
. Hver er uppruni þessa einkennilega siðar?
Mönnum þykir sennilegast, að hér hafi upp-
haflega verið um að ræða eldskírn, sem ungl-
ingar urðu að gangast undir, til þess að
þeir yrðu formlega teknir í fullorðinna tölu
— sá, sem ekki þorði að taka „heljarstökkið“,
hefir þá sennilega verið stimplaður hugleys-
ingi og liðleskja hin mesta. — Séu hinir inn-
fæddu hins vegar spurðir um þetta, geta þeir
litlu til svarað. Þeir vita aðeins, að þetta er
nokkuð, sem alltaf hefir tíðkazt á Pentecost-
eyju.......
-0-0. + * 0 + + 0 + 0 0 i
1**0000 0\
ALÞINGI — 80. löggjafar-
þingi — var slitið síðastliðinn
föstudag, eftir að hafa staðið
í alls 146 daga og afgreitt á
þeim tíma 51 lög og 25 álykt-
anir. Er þar með á enda eitt
allra athafnasamasta þing,
sem sögur fara af hér á landi,
auk þess sem sjaldan eða
aldrei munu hafa verið af-
greidd jafn mörg mikilvæg
mál og nú frá áramótum.
Sigurður Ágústsson
í forsetastóli
Síðustu fundir deilda
Þingdeildir luku báðar störfum
klukkan langt gengin þrjú að-
fararnótt föstudags og höfðu þá
á rúmlega hálfum sólarhring af-
greitt 9 síðustu frumyörpum, sem
að lögum urðu. í lok síðustu
funda í deildunum, þökkuðu
deildarforsetar, þeir Sigurður Ó.
Ólafsson í Efri deild og Jóhann
Hafstein í Neðri deild, þingdeild
armönnum sínum og starfsfólki
þingsins góða samvinnu og ósk-
uðu góðrar heimferðar þeim,
sem úti á landsbyggðinni búa.
Af hálfu þingmanna mæltu
kveðjuorð til forseta þeir Karl
Kristjánsson og Einar Olgeirsson,
en þingmenn risu úr sætum og
tóku undir orð þeirra.
Sameinað þing hélt síðan stutt
an fund laust eftir hádegi á föstu
dag og fóru þá fram þrennar
kosingar og afgreiðsla þriggja
þingsályktunartillagna. Var af-
greiðslu mála þar með að fullu
lokið.
Þinglausnir
Sólskin var og blíða hér í höf-
uðstaðnum, þegar þingmenn söfn
uðust svo saman að nýju til þing
slita í Alþingishúsinu kl. 15 mið-
degis á föstudag. Voru þar þá
einng saman komnir ýmsir sendi
menn erlendra ríkja hér.
Þingslitaathöfnin hófst með
því, að fyrsti varaforseti Samein
aðs þings, Sigurður Ágústsson,
gaf yfirlit um störf þingsins og
komu eftirfarandi atriði m.a.
fram í ræðu hans:
Yfjrlit um þingstörfin
Þingið stóð fyrst frá 20. nóv.
til 7. désember 1959 og svo aftur
frá 28. janúar til 3. júní 1960, .eða
í 146 daga alls. Þingfundir voru
haldnir í Neðri deild 95, Efri
deild 94 og í Sameinuðu þingi
59, eða alls 248 talsins.
Af þingmálum og úrslitum
þeirra er það að segja, að á þing
inu voru lögð fram 43 stjórnar-
frumvörp og 57 frumvörp þing-
manna — eða 100 frumvörp alls;
eru í hópi þeirra síðarnefndu tal-
in 12 frumvörp sem nefndir
fluttu, en 10 þeirra voru fram
borin að beiðni einstakra ráð-
herra.
Um helmingur frumvarpanna
varð að lögum á þinginu, eða 51
þeirra, þ.e. 35 af frumvörpum
stjórnarinnar og 16 af þingmanna
frumvörpum. Af hinum er það
að segja að 2 voru felld, 2 af-
greidd með rökstuddri dagskrá,
tveim visað til ríkisstjórnarinn-
ar, en ekki urðu útrædd 8 af
frumvörpum stjórnarinnar og 35
frumvörp frá þingmönnum.
Alls voru bornar fram í Sam-
einuðu þingi 65 þingsályktunar-
tillögur. Afdrif þeirra urðu þau,
að 25 voru afgreiddar sem álykt-
anir Alþingis, tveim var vísað til
ríkisstjórnarinnar, 2 afgreiddar
með rökstuddri dagskrá en 35
döguðu uppi, sem kallað er, þ.e.
a.s. náðu ekki fullnaðaraf-
greiðslu.
Loks voru yfir þingtímann
bornar fram 28 fyrirspurnir til
ráðherra um ýmis mál og gang
þeirra. Þær voru teknar fyrir all-
ar nema tvær, var önnur þeirra
degin til baka og hin óútrædd,
enda borin fram rétt í þinglokin.
Á þinginu komu því til með-
ferðar alls 176 mál og var tala
prentaðra þingskjala 640.
Lokaorð þingforseta,
Sigurðar Ágústssonar
Þegar þingforseti hafði lokið
yfirliti sínu, færði hann alþing-
ismönnum þakkir fyrir gott og
ánægjulegt samstarf á þinginu
sem og lipurð og skilning þeirra,
er valdið hefði því, að afgreiðsla
mála hefði getað farið fram með
eðlilegum hætti. Þá flutti þing-
forseti skrifstofustjóra Alþingis
og starfsfólki þingsins öllu þakk-
ir sínar og þingmanna.
.Síðan komst hann svo að orði:
Umræður á þessu þingi
hafa verið óvenjumiklar og
ýmiss merk mál hlotið af-
greiðslu og lög samþykkt sem
við vomim og biðjum, að megi
leiða til farsældar fyrir þjóð-
ina alla. Oft á þessu þingi hef-
ur verið stormasamt í þingsöl-
unum ,en þrátt fyrir það er ég
Félagslíf
Ármenningar!
Sjálfboðavinna byrjar í daln-
um um helgina. Mætið á laug-
ardag kl. 2 við BSR.^
Skíðadeild Ármanns.
ÍR-ingar!
Sjálfboðavinnan heldur áfram
um helgina. Ferðir í Hamragil
frá BSR kl. 2 á laugardag.
Frá Ferðafélagi fslands
þrjár ferðir á laugardag. í Þórs
mörk, í Landmannalaugar og
Brúarárskörð. Á sunnudag ferð
um Grafning og Sogsfossa. Upp-
lýsingar í skrifstofu félagsins
símar 19533 og 11798.
þess fullviss, að nú, er leiðir
skilja um stundarsakir, niun
það efst í huga okkar flestra
þingmanna, að þegar fundir
hefjast að nýju á næsta hausti,
megi starf okkar leiða tii á-
framhaldandi uppbyggingar,
menningar og efnahagssjálf-
stæðis þjóðarinnar.
Ég endurtek þakklæti mitt til
háttvirtra alþingismanna og
óska þeim gleðilegrar hátíðar og
farsældar um alla framtíð. Hátt-
virtum utanbæjarþingmönnum
óska ég góðrar heimferðar og
heimkomu og bið, að við megum
öll hittast heil, er næsta þing
hefst. Við þökkum forsjóninni
fyrir óvenjugott árferði til lands
og sjávar það, se\i af er þessu
ári og biðjum fyrir velgengni at-
vinnuveganna og þjóðarinnar í
heild".
Að því búnu kvaddi Eysteinn
Jónsson sér hljóðs og flutti þing-
forseta þakkir og árnaðaróskir
— SUS-siðan
Frafh. af bls. 8
verður því auðveldari sem hann
stendur fastari fótum.
Skatta- og útsvarsmál.
Ráðstefnan telur að breyting-
ar þær, sem gerðar hafa vérið
nýlega á skatta- og útsvarslög-
unum og iðnaðinn varða, miði í
rétta átt. Hins vegar leggur ráð-
stefnan áherzlu á, að heildarend-
urskoðun og endurbætur á skatt-
greiðslum atvinnufyrirtækja
verði hraðað, enda er það for-
senda fyrir aukinni framleiðslu
og bættum lífskjörum.
Endurskoðun tollskrárinnar.
Ráðstefnan leggur áherzlu á,
að tekið verði sanngjarnt tillit
til hagsmuna iðnaðarins við end-
urskoðun tollskrárinnar. Jafn-
framt verði hið fyrsta sett lög,
sem miði að því að koma í veg
fyrir undirboð (dumping) í er-
lendum iðnaðarvörum á markaði
hér.
Erlent fjármagn.
Sett verði skýr lagaákvæði
varðandi erlent áhættufjármagn,
svo að íslendingar geti notið
góðs af því við iðnvæðingu
landsins.
þingmanna, sem tóku undir þær
með því að rísa úr sætum.
Forseti slítur þinginu
Forseti íslands, herra Ásgeir
Ásgeirsson, gekk síðan í ræðu-
stólinn og las upp forsetabréf um
þinglausnir, gert að Bessastöð-
um fyrr um daginn. Lýsti forseti
síðan yfir því, að Alþingi væri
slitið. Óskaði herra Ásgeir Ás-
geirsson þvínæst þingmönnum
velfarnaðar, þjóðinni allra heilla
og bað þingmenn að minnast
fósturjarðarinnar með því að rísa
úr sætum. Það gerðu þingmenn,
og forsætisráðherra, Ólafur
Thors, mælti: „Heill forseta vor-
um og fósurjörð! ísland lifi!“
Tóku þingmenn undir þau orð
með ferföldu húrrahrópi.
Að athöfninni lokinni yfirgaf
‘forseti Islands þingsalinn, en
þingheimur leystist smám sam-
an upp. Þingmenn gengu nú út í
sólskinið og blíðuna og héldu
hver í sína áttina, eftir að hafa
kvaðzt flestir.
Bíó skemmist
af eldi
Á ANNAN í hvítasunnu kom upp
eldur í Ásbíói á Egilsstöðum.
Stóð sýning þá yfir, á barna-
mynd. Eldurinn kom upp í sýn-
ingarvél að því er virðist. Engin
slökkvitæki voru í klefanum.
Sýningarstjórinn bað börnin út
að ganga og urðu engin meiðsl á
neinum er bíóið var yfirgefið.
Sprenging varð í sýningarher-
berginu. Óttazt var að bíóið sem
er í gömlu verksmiðjuhúsi
myndi brenna. — Gerðar voru
ráðstafanir til að fá slökkviliðs-
bíl af Egilsstaðaflugvelli, en út-
búnaður hans reyndist bilaður og
varð ekki bót á ráðin í snatri.
Margt fólk sem vann að slökkvi-
starfi með vatnsburði safnaðist
að bíóinu. Það tókst að hefta eld-
inn, og kæfa um síðir. Áhorfenda
salurinn skemmdist ekki en tvö
herbergi ásamt sýningarklefum,
vélum og filmum eýðilagðist.
Sparisjóðurinn PLIINIDIÐ
Klapparstí 25
ávaxtar sparifé með hæstu
inniánsvöxtum.
Opið kl. 10,30—12 f.h.
og 5—6,30 e.h.
Afgreiðslu- og lagerstarf
Okkur vantar mann til starfa við af-
greiðslu og á lager verzlunar, sem selur
landbúnaðarvélar og varahluti. Nauðsyn-
leg nokkur þekking á landbúnaðarvélum.
Umsækjendur snúi sér til starfsmanna-
halds S.Í.S. í dag. Sími 17080.
Samband íslenzkra samvinnufélaga.