Morgunblaðið - 24.08.1961, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 24.08.1961, Blaðsíða 23
Fimmtudagur 24. ágúst 1961 morguivblaðið 23 MessaSá Sólheima- kapellu í Mýrdal NK. SUNNUDAG, 27. ágúst, verður messað í Sólheimakap- ellu í Mýrdal. Héraðsprófastur- inn, sr. Gísli Brynjólfsson, pré- Kapellan á Ytri-Sólheimum. — Berlm Frh. af bls. 1 Samgöngurnar milli borgar- Ihlutanna voru enn torveldaðar, þegar austur-þýzka stjórnin kunn gjörði á þriðjudagskvöldið, að nú yrði krafizt sérstaks vegabréfs af þeim, sem fara vildu að vest- an inn í Austur-Berlín. Fram að þessu hafa fótgangandi menn get- að farið óhindraðir yfir svæða- mörkin í þá áttina. Það fylgdi, að umrædd vegabréf yrðu af- greidd á tveim skrifstofum, sem austur-þýzka ferðaskrifstofan starfrækir í Vestur-Berlin. Átti afgreiðsla að hefjast annaðhvort á fimmtudag eða föstudag. Samkvæmt því sem hermt er í Vestur-Berlín, munu stjórnarvöldin ekki láta loka skrifstofunum, nema þar verði framkvæmt eitthvað það, sem eigi fær samræmzt fjórvelda- samningunum um Berlín. Eigi slík brot sér stað, verði þeim hins vegar samstundis lokað, Willy Brandt, borgarstjóri, sem í dag átti viðræður við herstjóra Vesturveldanna í Vestur-Berlín, hefur komizt svo að orði, að vega ibréfanauðungin muni í rauninni koma í veg fyrir allar ferðir Vest ur-Berlínarbúa austur yfir. Ein- ustu undantekninganar, sem gerð ar hafa verið í dag, taka til vestur-berlínsks fólks, er hefir fasta atvinnu austan svæðamark- anna. Tilkynning herstjóranna í tilkynningu herstjóra Vestur veldanna segir m. a., að síðustu ráðstafanir hinnar svokölluðu stjómar Austur-Þýzkalands sé enn einn þáttur í hinu rudda- lega framferði þeirra og sé nú stefnt að því að beita íbúa Vestur-Berlínar sömu þvingununum og ómannrúðleg um ferðaf jötrum og ráðamenn á sovézka svæðinu hafi þegar lagt á sitt eigið fólk. Vilji þeir gera sitt ýtrasta til að slíta tengslin milli vina og frænda. Þessar aðgerðir stangist á við fjórveldasamningiim um Ber- lín og fell i sér alvarlega skerð ingu á frumstæðustu mannrétt indum og sýni lítilsvirðingu austur-þýzkra yfirvalda á al- menningsálitinu í heiminum. Af þessum ástæðum segjast Iherstjórarnir hafa gert viðeig- andi ráðstafanir til þess að tryggja rétt og öryggi skjólstæð- inga sinna. í austri ■/ 1 tilkynningu frá miðstjórn •ustur-þýzkn kommúnistaflokks- ins segir, að nær 26 þúsund með- limir í samtökum ungkommún- ista (FDJ) hafi gefið sig fram til Iherþjónustu, enda hafi slíkt ver- ið nauðsynlegt vegna varna landsins. Þrir Vestur-Berlínarbúar hafa verið dæmdir í 7, 5 og 4 ára fangelsi af dómstóli i Austur- Berlín, og segir kommúnistoblað- ið „Neues Deutschland" að þeir hafi reynt að koma Austur-Þjóð- verjum vestur yfir. dikar. Altarisganga verður í guðsþjónustunni. Sólheimakapella var vígð laug ardaginn 24. september 1960, en á Ytri-Sólheimum haíði kirkja staðið um margar aldir þar til hún var lögð niður árið 1898. Forgöngumeim kapellubygging- » arinnar voru fimm bændur, allir búsettir, í hinni fornu Sólheima- sókn. Einn þessara bænda, Sig- urður Högnason, Sólheimakoti, lézt fáum dögum fyrir vígslu kapellunnar, og var útför hans gerð frá kapellunni á vígslu- degi hennar. Stjórn Sólheimakapellu hefur ákveðið að halda árlega sérstak- an messudag í kapellunni. Við guðsþjónustuna nk. sunudag, verður veitt viðtaka gjöfum til kapellunnar, ef einhvérjir vildu styrkja hana. í sambandi við þessa guðs- þjónustu verður haldinn héraðs- fundur Vestur-Skafitafel'lspróf- astsdæmis. Þar munu flytja á- vörp og erindi auk prófasts aðrir prestar prófastsdæmisins, þeir sr. Valgeir Helgason og sr. Jón- as Gíslason. Ennfremur verður haldinn aðalfundur Kirkjukóra- sambandg Vestur-Skaftafellspróf astsdæmis. Jónas Gíslason. Næstkomandi sunnudag verður flugdagur haldinn á Reykjavíkurflugvelli. Vamarliðið á Kefla- víkurflugvelli mun taka þátt í flugsýningum og sýna flugvélarnar hér á myndinni. Flugvél- arnar eru: Efst til vinstri Neptune, efst til hægri Scorpion, í miðju HRS-3 þyrilvængja, könn- unarflugvéi búin radar, neðan til vinstri, og loks er mynd af T-33 æfingarflugvél, neðst t. h. — (Ljósm.: Varnarliðið) Vegaþjónusta Framh. af bls. 6 fjölga umferðamerkjiMn og lag- færa þau sem nú eru í nobkun, einnig þyrfti meiri upplýsingar við vegamót, það verður að ganga út frá því að ferðamaðurinn sé ó- kunnugur. Það væri til mikils hagræðis, ef olíufélögin sæju sér fært, að seta upp leiðbeiningaskilti á veg um, er sýndu hvar næsta benzín afgreiðsla ©r, og hve langt er að henni. Og ef hægt væri að hafa benzínstöðvar á f jölförnustu leiðum, opnar lengur en nú gerist sér 1 lagi að sumrinu pg sérstak lega um þær helgar, þegar um- ferðin er mest. Það væri æskilegt, að verðlag á greiðasölustöðum væri sam- ræmt meira en nú gerist, það mundi sennilega auka söluna, í það minnsta hjá þeim, sem eru með hæsta verðið nú, enda nauð synlegt, þegar tillit er tekið til útlendra ferðamanna. Uimferðin á vegunum virðist vera með meiri menningarbrag, en undanfarið, væntanlega verð ur áframlhald á þvL Að lesa sögu Framh. af bls. 3 ur á uppfyllinguna _ hjá ver- búðarbryggjunum. Efnið í upp fyllingarnar var flutt úr öskju hlíðinni með eimreiðinni frægu. Síðasta ferð eimreið- arinnar var þó ekki með grjót, heldur flutti hún framámenn á dansleik. Að lokum kynnumst við skólamálum gamla bæjarins. Fyrsti barnaskólinn 1 Reykja- vík stóð 1860 í miðju Hafn- arstræti hjá Ellingsen. Tutt- ugu árum síðar var hann svo fluttur í lögreglustöðina og síðan 1 núverandi Miðbæjar- skóla. Að lesa hús og grjót NORÐAN VIÐ Arnarhól mun öndvegissúlur Ingólfs hafa rekið á land. Ef maður stend- ur á hólnum og horfir yfir bæ inn, þá finnst manni eitt and- artak, eins og maður hafi lif- að í þúsund ár. Það er gagn- legt að kynna sér sögu bæj- arins en það er fróðlegra og skemmtilegra að lesa hana úr gömlum húsum og steinum, úr sjálfu landslaginu, þar sem næstum hvert holt og hver brekka á sína sögu. — J.R. Lœgri flugfargjöid til Luxemborgar 25°/o afsláttur á fargjöldum náms- manna til Bandarikjanna LOETLEIÐIR hafa farið þess á Ieit við flugmálastjórnina, að hún sæki um leyfi til þess hjá yfirvöldum í Luxemborg, að félaginu verði heimilað að taka upp flug á leiðinni Reykjavik—Luxemborg með lægri fargjöldum en hingað til hefur tíðkazt. Einnig hafa Loftleiðir ákveðið að íara þess á leit við flugráð, að það fari fram á það við viðkomandi yfirvöld, að félaginu verði leyft að bjóða íslenzkum og bandariskum námsmönnum, sem fara til náms í Bandaríkjunum og á Islandi, 25% afslátt frá venju- legum fargjöldum. * ÓDÝRAR LUXEM- BORGARFERÐIR Eins og kunnugt er, eru Loftleiðir bundnir af ýmsum samþykktum IATA um fargjöld til landa Vestur-Evrópu, en á leiðinni Reykjavík—New York hefur félagið getað boðið önnur gjöld en þau félög, sem eru að- ilar að IATA. Hyggjast Loft- leiðir taka upp áætlunarflug milli Reykjavíkur og Luxem- borgar með talsvert lægri far- gjöldum >en félagið getur boðið á sambærilegum leiðum, eins og t.d fteykjavík—Hamborg. — Er ætlunin, að í vetur verði tvær fastar áætlunarferðir vikulega til Luxemborgar, en félagið hef- ur *kki áður haldið uppi áætl- unarflugi á þessari leið. Mun fargjaldið milli Reykjavikur og Luxemborgar verða kr. 2.882 aðra leiðina, en kr. 5.188 fram og til baka, að því er Sigurður Magnúson, blaðafulltrúi Loft- leiða, tjáði blaðamönnum í gær. Ekki kvað hann neina ástæðu til þess að ætla annað en að yfirvöld í Luxemborg tækju þessari málaleitan mjög veL ÍC NÁMSMANNAFARGJÖLD TIL BANDARÍKJANNA Svo sem kunnugt er hafa ís lenzku flugfélögin veitt náms- mönnum afslátt á fargjöldum til Evrópu. Hingað til hefur þessi afsláttur ekki gilt milli Is- lands og Bandaríkjanna, en nú hafa Loftleiðir í hyggju að taka upp sérstök námsmannafar- gjöld einnig á þessari leið. —- Verður námsmönnum á aldrin- um 15—30 ára veittur 25% af- sláttur frá venjulegum fargjöld- um, og sami afsláttur verður veittur eiginkonum þeirra og börnum. Á þetta við, ef farseð- ill er keyptur fram og til baka, og gildir seðillinn í 2 ár. Rússar taka 12 jap- anska fiskibáta Tal Mikoyans um bætta sambúð rifjað upp TOKYO, 23. ágúst (Reuter) — Tólf japanskir fiskibátar voru í dag teknir fastir af 3 sovézk- um eftirlitsskipum skammt frá eynní Kiagara norður af Japan. Þessir atburðir áttu sér stað áð- ur en sólarhringur var liðinn frá brottför Anastas Mikoyan, vara- forsætisráðherra Sovétrikjanna, sem var í 9 daga opinberri heim- sókn í landinu. Annað skiptið Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu japönsku slysavarn- anna, flýðu um 250 fiskibátar af krabbamiðunum á þessum slóð- um, þegar sovézku eftirlitsskip- in komu og reyndu að taka þá fasta. Flestir komust undan, en áðurnefnd 12 skip höfnuðu þó í sovézkum höndum. Þeita er í annað sinn sem slík- ir atburðir eiga sér stað á einni viku. Um síðustu helgi tóku sov- ézk eftirlitsskip 5 japanska fiski- báta. Agreiningur um landhelgi Talsmaður utanríkisráðuneyt- isins í Japan neitaði að segja nokkuð um, til hvaða ráða yrði gripið gagnvart sovézkum stjórn arvöldum. Hann sagði, að atburð ir þessir ættu rætur að rekja til ágreinings um víðáttu landhelg- innar, sem hjá Japönum er 3 mílur en Rússum tólf. Það er rifjað upp í sambandi við töku fiskiskipanna, að þegar hún fór fram voru ekki liðaar nema örfáar klukkustundir frá því að forsætisráðuneytið kunn- gerði efni skeytis, sem Mikoyan hafði sent frá sér. í því hafði hann m. a. sagt, að hann vænti þess, að bæði sovézka og jap- anska stjórnin gerðu nú frekari ráðstafanir til að treysta sam- búðina sín í milli. — íþrótfir Framhald aí bls 22. dettur hann í „lukkupottimt*. Hann getur hlotið hámarks- vinninginn, sem er 75 þúsund pund eða 9 millj. ísl. kr. eftir núverandi gengi. Geti 2 menn rétt til um 12 leiki skiptist upp hæðin í tvennt, geti þrir til um rétta 12 leiki skiptist hún í þrennt o. s. frv. Sama gildir um skiptingu vinninga þegar um 11 rétta er að ræða — 10 rétta o. s. frv. £ Fyrirkemulag Þegar samningaumræður stóðu hér var gert ráð fyrir að hver röð á getraunaseðlinum kostaði kr. 1.50. En þá var gengi allmiklu lægra en nú er. En af kr. 1.50 per röð var gert ráð fyrir að enska firmað fengi 59 aura en til að standa straum af auglýs- ingakostnaði og öðrum kostnaði og til ágóðahlutar yrðu 91 eyrir eftir á íslandi. Enska firmað ætl- aði að leggja til öll tæki sem nauðsynleg eru í sambandi við starfsemina hér. Enska firmað hafði á sínum tíma svo mikinn áhuga á þessu máli, að það bauðst jafnvel til að taka við isl. vörum i stað beinnar gjaldeyrisyfirfærslu á sínum hluta veltunnar. Blaðinu tókst ekki í gær að fá staðfestar fregnir af gangi þessa máls en einn af yfirmönn- um íþróttahreyfingarinnar í höf- uðstaðnum sagðist halda að mál- inu hefði aldrei verið hreyft eft- ir að landhelgisdeilunni lauk. — Hvernig væri að athuga þetta mál til hags fyrir íþróttahreyf- inguna — og til ágóðavonar fyrir einhverja heppna íslendinga?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.