Morgunblaðið - 02.06.1964, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 2. júní 1964
fyrra sumar var 5.96 m. Einnig
voru mælingar gerðar á mæliríga
stönginni á Pálsfjalli.
Svo sem áður hefur verið frá
Slcýrt og birtar myndar af, er
komið stórt ^prungusvæði hjá
Pálsfjalli, upp af Síðujöklinum,
sem hlaupið hefur fram í vetur.
Sprungur liggja á leiðina, sem
Jöklarannsóknarmenn fara á
leið sinni úr Tungnaárbotnum til
Grimsvatna. Fóru þeir því að
þessu sinni 314 km. norðar en
þeir éru vanir, en þurftu samt
að kræ-kja fyrir smásprungur.
Var sprungusvæði þetta kannað
eftir föngum og reynt að af-
marka það. Reiknaðist þeim svo
ti! að um 400 ferkm. svæði sé á
skriði í sambandi við Síðujökul,
að því er Magnús sagði. Höfðu
menn orðið varir við þessar
sprungur í haust úr flugvél og
birti Mbl. þá myndir af þeim, en
Undir Griðarhomi í Grímsvötnum, sem nú hafa hækkað með íslagi um 11,7 m. á árinu, ng
eru nú að nálgast það mark sem var 1959, þegar hlaup varff. Myndina tók Halldór Gislason, í
fyrri viku.
Síðujö'kullinn hljóp ekki fyrr en
í vetur. Nú liggja nyrstu sprung-
unar í aðeins 463 m. fjarlægð
frá mælingastöng Jöklarann-
sóknarfélagsins á Pálsfjalli.
Þyrfti að ta'ka myndir af þessu
svæði úr lofti til að fá yfirlit
yfir það og gera kort.
Leiðangurinn ók norður til
Kverkfjalla í dýrðlegu veðri o^g
útsýni og sá ýfir á sprungusvæð-
ið á Brúarjökli.
241 taugaveikitilfelli í Aberdeen
Vei1 innar einnig vart víðar. Umræður
í brezlca þinginu í dag. Varúðarráð-
staíanir 1 Bandaríkjunum
Bílar úr vorleiðangri Jöklar annsóknarfélagsins í Grinvsvötn
uni á Vatnajökli. Lengst til vinstri sjást skíði leiðangurs-
manna aftan á einum snjóbílnum.
Skotlandsíarar œttu
að láta bólusetja sig
MBL. ÁTTf í gær tal við Ben
edikt Tómasson, skólayfirlækni,
í skrifstofu landiæknisembættis-
ins vegna taugaveikifaraidursins
í Aberdeen og Glasgow í Skot-
landi, en Benedikt gegnir nú
störfum landlæknis, sem er er-
lendis.
Benedikt kvað engar ráðstaf-
anir mundu gerðar hér, a.m.k.
ekki fyrst um sinn. Þegar farald-
Eyjabátar
selja vel
Vestmannaeyjum, 1. júní.
TVEIR Vestmannaeyjabátar
seldu i Skotlandi fyrir helgi.
Vb. Eyjaberg seldi í Grimsby
á fimmtudag tæp 30 tonn fyrir
3.134 sterlingspund, eða á 13 kr.
hvert kig. Þykir þetta afbragðs-
sala, ekki sízt þegar þess er gætt
að áhöfnin var ekki nema hálfan
sólarhring að veiða þennan afla.
Aflinn var blandaður, en mest-
megnis ýsa.
Vb. Huginn seldi í Grimsby á
miðvikudag rúm 80 tonn fyrir
7.700 steriingspund.
Vb. Leó er nú á veiðum fyrir
Bretlandsmarkað og mun sigla
með aflann bexnt, eins og hin
sktpio.
| ur kæmi einhvers staðar upp,
; væri varúðarráðstafanir fyrst og
' fremst gerðar á pestarsvæðinu,
j— í þessu tiifelli Bretlandi. Að
sjálfsögðu mundu heilbrigðisyfir
völd hér þó fylgjast með faraldr-
. inum og útbreiðslu hans.
Taugaveikin virðist hafa kom-
, ið upp í Skofiandi við það, að
. neytt vár ákveðinnar, niðursoð-
innar fæðu. Mundu flestir sjúkl-
ingarnir haía neytt hennar.
Benedikt kvað þessa sjúklinga að
vísu geta sýkt út frá sér, ef hrein
lætis væri ekki gætt.
Að lokum kvað Benedikt ráð-
legt fyrir þá, sem ætluðu að fara
til Skotlands á næstunni, að !áta
bólusetja sig áður við taugaveiki.
Umfcrðarslys
BÍLSLYS varð skamnrft austan
bseMrins Ingólfshvols í Ölfusi
aðfaraótt sunnudags. Fólksibíll
var þar á vesturleið og fimm
manns í honum. Á blindbeygju
neðan við nýbýlahverfið undir
Irigólfsfjalli missti bílstjórinn
vald á bílnum, svo að hann kast-
aðist út af veginum og valt.
Stúlka, sem í bílnum var, hent-
ist út úr bílnum og lenti undir
honum. Mun hún hafa slasast all-
alvarlega. Fyrst var hún flutt í
sjúkrahúsið á Selfossi, en síðan
í sjúkrahús í ReykjaVík.
Aberdeen, 1. júní (AP-NTB)
SÍFELLT fjölgar taugaveiki-
sjúklingum í Aberdeen. — I
kvöld var vitað um 224 til-
felli, en auk þess liggja 17 í
sjúkrahúsi, sem einnig eru
taldir hafa tekið sóttina. Þá
hafa fyrstu taugaveikitil-
fellin fundizt utan borgarinn-
ar, þeirra á meðal 14 ára
drengur í Glasgow.
Talið hefur verið að tauga-
veikina mætti rekja til niður-
suðudósar með kjöti, sem flutt
var til ,Bretlands fyrir 13 árum.
Segja talsmenn heilbrigðisyfir-
valdanna að engin sönnun hafi
fengizt fyrir því. Á fundi borg-
arstjómarinnai' í Aberdeen í dag
gerði einn fulltrúanna fyrir-
spurn um það hvort rekja man'iti
sýkina til minnkandi hreinlætis
á almenningssaleinum borgarinn
ar vegna fækkunar starfsfólks
að undanförnu. Var beilbrigðis-
yfirvöldunuim falið að rannsaka
þann möguleika.
Jafnvel þótt fyrstu tilfellin
hafi smitazt frá niðursoðna k’öt
inu, hafa síðari sjúklingarnir bor
ið sóttina út á annan hátt.
NÝR FARALDUR
' Dr. Ian MacQueen, yfirmaður
i heilbrigðismála í Abardeen,
sagði nýlega að vonandi tækist
að stöðva frekari útbreiðslu
taugaveikinnar, og að meðan
fjölgun sjúklinga færi ekki yfir
30 á dag, væri ekki um nýjan
faraldur að ræða. Samkvæmt
því er nú um nýjan faraldur að
ræða, því því tilfellum hefur
fjölgað um 64 í dag, ef með eru
talin óstaðfest tilfelli.
Yfirvöldin í Aberdeen geta
ekki heft ferðir íbúanna, en dr.
MacQueen hefur birt áskorun til
■ þeirra um að fara ekki út fyrir
borgina. Engu að síður kvarta
íbúar í nærliggjandi byggðarlög
um yfir því að vegna minn.k-
andi viðskipta komi jafmvel mat
vörukaupmenn frá Aberdeen
þangað til að selja vörur sínar.
Hefur þetta víða vakið mikinn
óhug í nágrenni við Aberdeen. |
Va.rðandi G1 a sgo w -drenginn,
sem tekið heíur sóttina, er ben.t I
á að’ hann hafi eki haft sam-
band við neina Aberdeenbúa, og
því ekki talið að hann hafi sótt
smitunina þangað. Enda kemur
það ósjaldan fyrir í Glasgow
um þetta leyti árs að taugaveiki
skýtur upp kollinum. En oftast
er aðeins um einstök tilfelli að
ræða. Fyrr í dag var sagt að
tveir sjóliðar af kafbátnum
„Rorqual“, sem staddir voru í
Glasgow, hefðu tekið taugaveik-
ina. Komið er í ljós að hér var
um misskilning að ræða. Sjólið-
arnir þjáðust aðeins af venju-
legri magaveiki.
UMRÆÐUR í ÞINGINU
í London er búizt við að tauga
veikin í Aberdeen komi til um-
ræðu í þinginu á morgun. í því
sambandi áttu þeir Ghristopher
| Soames, matvæla- og la.ndbúnað-
arráðherra, og Michael Noble,
Skotlandsmálaráðherra, viðræð-
ur í dag. Mun Noble flytja Néðri
málstofunni skýrslu um málið á
morgun, en þá hefjast fundir
þingsins að nýju eftir vorleyfi.
| Er talið að ríkisstjórnin verði
fyrir miklum árásum í þinginu
vegna þessa máls.
Tilkynnt var I Washington !
dag að fylgzt yrði með öllum
ferðamönnum, sem koma til
Bandaríkjanna og hugsanlegt er
að hafi getað smitazt af sjúkling
um í Aberdeen. Ferðamenn til
Bandaríkjanna eru ekki krafðir
um bólusetningarvottorð gegn
taugaveiki, en heil'brigðisyfirvöld
in fylgjast venjulega með ferðum
þeirra, sem koma frá landssvæð
um þar sem sóttarinnar hefur
orðið vart. Er heilbrigðisyfirvöld
um á áfangastað þessara fereða-
manna gert aðvart, og ferða-
mönnunum fyrirskipað að leita
tafariaust læknis ef eitthvað
amar að.
K;artan Thors
.*
endurkosinn for-
maður V.S.Í.
FULLSKIPUÐ stjórn Vinnm cit
endasambands Islands kom sam-
an á fund í gærmorgun. en hana
skipa 39 menn. Formaður var
endurkosinn Kjartan Thors og
varaformaður Guðmundur Vil-
hjálmsson. Aðrir í framkvæmda
nefnd voru endurkjörnir, þeir
Benedikt Gröndal, Ingvar Vil-
hjálmssoh og Jón H. Bergs.
I o NA /S hnótar Lr SVSOAnútsr X SnjHomt ! V Shúrír » Oi: i - ÞraiBur H Hmt l L L 1
101 o
/ooo
1020
í GÆR var vindur hægur og
sólskin norðaniands og Vest-
an, en A-stinningskaldi og
skúrir við S-ströndina. Hlýj-
ast var 13 stig á Akureyri um
nónbilið; kaldast 4 stig á Daia
tanga.
Hæðin yfir íslandi og hat-
inu umhverfis færist lítið úr
stað, svo að búast má við
breytilegri átt og góðviðri
næstu dægrin.
LEIDANGRI Jöklarannsókna-
félagsins á Vatnajökul er lokið
og komu leiðangúrsmenn í bæ-
inn um helgina eftir 8 daga ferð.
Höfðu þeir fengið sólskin og
logn allan tímann, engar tafir
haft. í leiðangrinum voru 12
menn undir fararstjórn Gunnars
Guðmundssonar.
Mælingar voru gerðar á jökl-
inum að vehju. Reyndust Gríms-
vötnin hafa hækkað um 11,72 m.
að því *er Magnús Jóhannsson
tjáði blaðinu, og telst honum
svo til að ekki vanti nemá 3—4
m. upp að marki því sem var
•komið haustið 1959, en þá um
veturinn varð hlaup í Gríms-
vötnum.
Mælingastöngin í Grímsvötn-
um hafði farið í vetrarveðrunum,
e« með gryfjugrefti fannst að
snjólagið á jöklinum frá því i
Þurftu að krækja
fyrir sprungubelt-
ið við Pálsfjall
Líklega 400 ferkm. sprungusvæði upp
af Síðujökli