Morgunblaðið - 02.06.1964, Side 26
26
MORGU N BLAÐIÐ
Þriðjudagur 2. júní 1964
Keflavík efst í .1. deild
eftir sigur yfir Akranesi
i í
Ahorfendamet í IMjarðvík
2000 manns
KEFLVfKINGAR skákuðu Skaga
mönnum á Njarðvíkurvellinum á
sunnudaginn og hlutu tvö dýr-
mæt stig. Frábær markvarzla
Kjartans og öryggi Magnúsar
Torfasonar í stöðu hægri bak-
varðar, vöktu óskipta athygli
2000 áhorfenda. Liðið, sem barð-
ist fyrir tilveru sinni í I. deild í
fyrra, er nú á hraðri leið upp á
við, undir handleiðslu Óla B.
Jónssonar þjálfara.
á; Forysta ÍBK
Leikur ÍBK og Skagamanna
á Njarðvíkurvellinum mun ekki
verða talinn einn af stórleikjum
ársins. Bæði liðin misnotuðu
fjölda góðra tækifæra, en þó
munu flestir sammála um, að
betra liðið hafi sigrað í þessari
viðureign.
Á fyrstu mínútunum virtust
bæði liðin nokkuð taugaspennt,
en þó voru Skagamenn greini-
lega ágengari og áttu nokkrar
góðar sóknarlotur, en Kjartan,
markvörður ÍBK, greip vel inn í.
Það var fyrst á 13. mín. að
Keflvíkingum tókst að skapa
hættu við mark ÍA, sem lauk þó
með aukaspyrnu á hinn sókn-
djarfa Keflvíking.
Á 19. mín. átti Donni hættu-
legan skalla, sem Kjartan varði
naumlega og mínútu síðar strauk
skot, Þórðar Jónsson, þverslána.
Keflvíkingar tóku nú að færa
sig upp á skaftið og á 25. mín.
fékk Bogi skallað naumlega í
hom, eftir skot Sigurðar Alberts-
sonar og tæpri mínútu síðar
komst Hólmbert í dauðafæri, en
var of seinn og missti knöttinn.
Blaðinu er snúið við, Skaga-
menn sækja og Donni og Ríkharð
ur brenna báðir' af og Kjartan
ver hörkuskot frá Eyleifi, nýlið-
anum í liði Akraness, sem ein-
mitt varð 17 ára þennan dag.
Mark ÍBK kom á 34. mín., er
Jón hinn marksækni renndi
knettinum fyrir fætur Hólmberts,
sem afgreiddi hann skemmstu
leið í netið.
Skagamenn voru nærri að jafna
á 40. mín. er Donni tók eina af
sínum frægu aukaspyrnum frá
vítateigslínu og skaut efst í blá-
hornið, en Kjartan var viðbragðs
fljótur og tókst að slá knöttinn í
horn.
Á siðustu mín. fyrri hálfleiks,
skaut Jón Jóhannesson yfir mark
ið af stuttu færi.
★ Sigur tryggður
Síðari hálfleikur hófst með
sókn Keflvíkinga, en Hólmbert
mistókst að spyrna á markteig og
nokkrum mín. seinna skall hurð
nærri hælum við mark Keflavík-
ur er Kjartani mistókst að ná til
knattar úr hornspyrnu, en bak-
vörður hreinsaði. Skömmu síðar
varði Kjartan fast skot Þórðar
Jónssonar og nú sóttu Keflvík-
ingar og Helgi bjargaði með góðu
úthlaupi.
Á 24. mín. skapaðist mikil
hætta við Keflavíkurmarkið, —
Skagamenn skutu ótt og títt, en
knötturinn lenti í varnarvegg
Keflavíkur og hrökk til Skaga-
manna aftur. Gekk leikurinn
þannig um stund unz Keflvíking-
um leiddist þófið og spyrntu
langt fram á völl og hófu skyndi-
sókn, sem lauk með því að Krist-
inn Gunnlaugsson bjargaði naum
lega fyrir opnu marki.
Einar Magnússon skoraði síð-
ara mark Keflvíkinga á 28. mín.
hálfleiksins. Mark þetta var ó-
venju glæsilegt. Jón Ólafur
spyrnti fyrir markið, en Einar
kom aðvífandi og kastaði sér á-
fram á knöttinn og skallaði ó-
verjandi fyrir Helga Dan.
Keflvíkingar efldust við mark-
ið og skömmu síðar átti Jón Jó-
hannsson gott skot, sem sneiddi
stöngina utanverða.
Á 37. mín. skaut Jón Ólafur
fremur meinleysislega á mark
Skagamanna, en Helgi missti
knöttinn, sem skall í hliðarstólp-
ann innan verðan og datt niður á
línuna, en þar bjargaði Kristinn.
Á síðustu mín. leiksins skaut
Jón Jóhannsson yfir opið markið
af stuttu færi.
★ Liðin
Lið Akurnesinga var eihs og
fyrr í vor, skipað gömlum og
reyndum leikmönnum ásamt ný-
liðanum Eyleifi. Vörnin með
Boga, Kristinn og Svein Teits-
son, sem sterkustu menn, Var
betri hluti liðsins. Framlínan
með sínar löngu spyrnur réði
ekki við hina fljótu Keflvíkinga.
Donni og Eyleifur sýndu oft
skemmtilegar skiptingar, en
Hér kemur Kristinn Gunnlaugsson Heiga Dan til hjálpar og
bjargar á línu opins marks.
minna bar á Ríkharði heldur en
oft áður.
Hólmbert Friðjónsson var bezt-
ur.í framlínu ÍBK, en hinir léku
nú mun ver, heldur en á móti
Fram á dögunum.. Högni og
Magnús Torfason sköpuðu þá kjöl
festu í vörnina, sem liðið hefur
vantað fyrr í sumar. Kjartan í
markinu var eins og nýr og ó-
þekkjanlegur maður.
Dómari var Hannes Þ. Sigurðs-
son. — BÞ.
Markvörður Keflvíkinga átti sinn stóra þátt í sigrinum. Hér
flýgur hann eftir aukaspyrnu Donna, sem stefndi efst í horn-
ið að venju. — (Myndir Sv. Þorm.).
Valur fann beitta vopnið
— og vann Fram 7-3
ÞEIR VORU léttir í skapi loks-
ins Valsmennirnir er þeir yfir-
gáfu Laugardalsvöllinn á sunnu-
dag, bæði leikmenn og hinir,
sem á áhorfendasvæðum voru.
Það var lika ástæða til að brosa
út í annað munnvikið eins og sum
ir hinna eldri gátu ekki varizt að
gera. Á markatöflunni stóð að
Valur hefði unnið Fram 7:3 og
þetta voru fyrstu stigin, sem Val-
ur fær í 1. deildarkeppninni í 3
leikjum.
Reynir 2. frá vinstri hefur sent Hermanna 2. frá hægri, og
Hermann skorað. — Svona létt 1 éku Valsmenn gegnum alla
vörn Fram.
★ Ástæða til gleði.
Og sannarlega var auk
þessa nokkur ástæða til gleði.
Eftir að Valsmenn höfðu átt
í vök að verjast í 30 mín. og
verið undir 1:0 nær jafnlang-
an tíma, komst loks líf í Vals-
liðið. Og það var enginn
neisti. Á næstu 10 mín. skor-
aði Valur 4 mörk. Stóð svo i
hálfleik. Valsmenn höfðu einn
ig yfir í síðari hálfleik (3:2).
En það sem Valsmenn mega
mest gleðjast yfir var já-
kvæður sóknarleikur og oft
sérlega góður leikur hjá Reyni
Jónssyni, sem var útherji, líer
manni Gunnarssyni hinuin
unga innherja, sem nú skor-
aði 4 mörk og góðum leik hjá
Bergi Guðnasyni.
Leikur þeirra upp við mark
mótherjanna var mjög at-
hyglisverður, nákvæmar send
ingar á hættulegasta staðinn
og stakk það mjög í stúf við
sendingar Fram er að marki
Vals dró, en þá var sent eitt-
hvað í áttina og vonað þaff
bezta og aldrei gekk né rak.
Framh. á bls. 27
iiiiiiiiiiíiiiimiiii'iiiiihfiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiimiiiiiiiMiiiiiiiiiiimmiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiitp
Davíð setti 3 íslandsmet |
Frábær afreksmaður á ferð
S DAVÍÐ Valgarðsson, hinn
B tæplega 17 ára gmali afreks-
EE maður frá Keflavík, setti á
§§ sunnudaginn 3 ísl. met í sundi
§§ í 800 m., 1000 m. og 1500 m.
1 skriðsundi. Bætti hann á öll-
S um vegalengdunum met Guð
1 mundar Gíslasonar ÍR. Mctin
B öll voru sett í sama sundinu,
S 1500 m skriðsundi meistara-
= mótsins. Er Davíð fyrsti ís-
= landsmeistarinn í sund í ár,
= en allar aðrar greinar móts-
§§ ins fara fram á Akureyri síð-
1 ar í þessum mánuði, en þar er
= ekki aðstaða til að keppa í
B 1500 m. sundi.
B Hin nýju met Davíðs eru
E 800 m 9.56,9 mín, gamla metið
| 10.10,2. 1000 m 12.48,6 mín.
H og 1500 m. 18.52,8 mín, gamla
| metið 19.27,3.
= Eins og sjá má stórbætir
Davíð gömlu met Guðmundar
og sýnjr það ljóst hvílíkur af
reksmaður hann er þegar orð =
inn. Davið hefur undanfarin =
keppnismisseri æft aðallega =
undir handleiðslu Jónasar M
Halldórssonar, sem þjálfað =
hefur allt okkar bezta sund- S
fólk og segir Jónas að Davið 3
verði innan tiðar góður af- =
reksmaður á alþjóðamæli- =
kvarða.
Annar í 1500 m. sundinu =
varð Guðm. Þ. Harðarson Æ §§
á 20.27,9 mní. 3. Logi Jóns- §|
son KR á 20.35,7 mín. 4. varð §|
Tryggvi Tryggvason kornung 3
ur piltur frá ísafirði á 22.58,2 3
en það er sveinamet og einnig 3
setti hann sveinamet í 1000 m. 3
á 15.19,7. 5. í sundinu var ann 3
ar komungur ísfirðingur Ein 3
ar Einarsson á 23.22,0 en hann =
setti sveinamet í 800 m. á =
12.15,5.
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii!iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiifMiii:iiMiiiiiiiiniiii iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiriiiiiumu