Morgunblaðið - 10.12.1965, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 10.12.1965, Blaðsíða 19
f Fostudagur 1®. des. 1965 MOHGUNBLABia 19 [ IMýtt bindi komið út HEIMDRAGI íslenzkur fróðleikur gamall og nýr Hér birtist annað bindi HEIMDRAGA og flytur eins og hift fyrsta íslenzkan fróð- leik, gamlan og nýjan, eftir ýmsa höf- unda víðsvegar af landinu. Af efni fyrsta bindis vakti hvað mesta athygli dagbók Nínu, dóttur Gríms amtmanns Jónsson- ar, enda ekki á hverjum degi, sem slíku efni skolar á fjörur lcsenda. — I þessu bindi HEIMDRAGA birtast endurminn- ingar Nínu, ritaðar nokkru síðar en dag- bókin. Gefa þær að ýmsu leyti betri hug- mynd um heimilislíf foreldra hennar en dagbókin. Auk þess birtast hér mörg at- hyglisverð bréf frá Grími amtmanni. Af öðru efni HEIMDRAGA að þessu sinni skal aðeins minnt á ýtarlegan þátt um fyrsta íslenzka kvenlækninn eftir Kristmund Bjarnason, þátt um Magnús Magnússon skákkappa, frænda Friðriks Olafssonar stórmeistara, eftir Gils Guð- mundsson og ritgerð um höfund sögunn- ar Valtýr á grænni treyju, eftir Vilmund Jónsson. HEIMDRAGI flytur fjölbreytt og fróðlegt efni, skemmtilegt aflestrar. — Unnendur þjóðlegs fróðleiks ættu ekki að láta þetta nýja safnrit fram hjá sér fara, því að reynslan sýnir, að slík ritsöfn seljast tiltölulega fljótt upp og hækka þá mjög ört í verði. IÐIJNN Ný æslspennandí skáldsaga eftir Alistair IViacLean A valdi óftans Þessi nýj'a saga Alistair MacLean er með talsvert öðrum hætti en aðr§r sögur hans. Spenna sögunn- ar er kvnngimagnaðri en nokkru sinni fyrr. Dulúð sögunnar orkar sterkt á lesandann, sem hefur óljóst hugboð um harmsögu bak við sög- una sjálfa. Og þegar þræðirnir taka að skýrast, stendur lesandinn bók- staflega á öndinni af eftirvæntingu. Getur þessi þrautþjálfaði höfundur alltaf boðið upp á magnaðri sögu og meiri spennu en í næstu bók á undan? Mörgum mun finnast, að svo sé, en annars verður hver og einn að svara fyrir sig sjálfan. — En eitt er víst: Alistair McLean hefur aldrei verið betri en nú. Áður eru komnar út eftirtaldar bækur eftir Alistair MacLean: Byssurnar í Navarone, Nóttin langa, Skip hans hátignar ÓDYS- SEIFUR, Til móts við gullskipið og Neyð- arkall frá norðurskauti. Eígnizt bækur McLean áður en jbær seljast upp! IÐUNN spenna glæpur i" Saga sem enginn leggur frá sér fyrr en hún er lesin « á enda S>káIí|oIt þ.f.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.