Morgunblaðið - 10.01.1967, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. JANÚAR 1007.
21
Kristinn Halldórsson
Siglufirði — Minning
n GAMALL vinur minn og eigi
ovandabundinn fluttist til borg-
arinnar í haust. Við þefcktumst
ivel á yngri árum, en fundum
þickar fækkaði skjótt því að
hann bjó norður í landi. Nú hugð
uim við gott til að rifja upp og
endurnýja fyrri kynni. En svo
Bbeður það „á snöggu auga-
bragði“ rétt fyrir jólin að hann
*r burtkallaður af þessum heimi,
iNæstsíðasta dag ársins var hann
horfinn til moldar í ættarbyggð
íinni, Siglufirði. Sögu þeirrar
byggðar'var hann að skrá fyrir
endlát sitt, og hafði um margra
ára skeið viðað að sér fróðleik
til þess. Nú er hann sjálfur geng
inn inn í þá sögu, sem hann var
•ð færa í letur.
Allir Siglfirðingar þekktu
Kristin Halldórsson, hann setti
*vip á sinn bæ og þótti öðrum
fremur vænt um þessa byggð.
Hann tók í orðsins fyllstu merk-
ingu ástfóstari við hana. Þar kom
fágæt tryggð hans og ræktar-
*emi skýrt fram. Tryggðina í
ifari hans og vinfestuna ber e.t.v.
hæst í minningunni. Raunar var
ftllur persónuleiki hans um margt
■érstæður. Hann var of dulur og
etoltur til að bera tilfinningar
eínar á torg, og verzlunarbros
eetti hann aldrei upp um dag-
ana, það þori ég að fullyrða.
iÞótt hann væri verzlúnarmaður.
iÞessi tryggi vinur fyrirleit alla
falska gyllingu, uppgerðar vina-
hót, leikræna stimamýkt og tví-
foenta tungulipurð. Ef nokkuð var
hætti honum til að sýnast á
hinn bóginn, öfugt við það sem
fiestum er farið, sýnast kald-
rænni en hann var. Slíkum
mönnum þarf að kynnast til að
meta þá rétt, og engum er betra
að kynnast og eiga að vinum en
þeim, sem ávallt reynast betri en
þeir iáta og efna ætíð meira, en
þeir lofa. Slikir eru alltof fágæt-
ir hinir alltof margir. Vissulega
var Kristinn Halldórsson góður
drengur, réttlátur og raungóður,
framúrskarandi heiðarlegur og
skemmtilegur í hópi góðra vina,
sem hljóta að sakna hans því
meir sem hann var sérstakari
vinur. Kímnigáfa var honum í
blóð borið, létt og leikandi, og
studdist við örugga eðlisgreind.
Þessi örfáu minningarorð áttu
aðeins að vera látlaus vina kveðja
olfotf var honum allra sízt að
skapi. En mannlýsingu nokkra
mættu þau gjarnan geyma, mynd
af manni, sem stóð upp úr hin-
um gráa hversdagslega grúa, þótt
hann reyndi að dyljast og stend-
ur lifandi fyrir hugsbotssjónum
þegar margar aðrar myndir hafa
máðst út.
Við vinir þínir, Kristinn Hall-
dórsson, gleymum þér ekki, skap
ari þinn sá fyrir því. Ekki mun
heldur neinn koma í þinn stað,
Slíkir menn lifa þótt þeir deyi.
Kristinn Halldórsson fæddist í
Siglufirði fyrir 51 étri, sonur
merkishjónanna Halldórs Jónas-
sonar, kaupmanns þar, og Krist-
ínar Hafliðadóttur hreppstjóra í
Siglufirði Guðmundssonar, sem
var héraðskunnur höfðingi um
sína daga. Kristinn var heilsu-
veill alla ævi, en bar það mót-
lœti með karlmennsku. Hann
stundiaði nám í Verzlunarskóla
Islands og var dux á burtfarar-
prófi. Að loknu námi tók hann
við verzlun föður síns í Siglu-
firði rak hana lengi og stundaði
jatfnframt útgerð og síldiarsöltun.
Fróður um marga hluti og víðles
inn og fenginn til þess af bæjar-
stjórn Siglufjarðar að skrá sögu
Siglufjarðar fyrir 50 ára afmæli
kaupstaðarins, en hann lézt frá
því verki sem honum var að lík
indum allra verka hugleiknast.
Kvæntur var Kristinn Halldórs
son Ingibjörgu Karlsdóttur. af-
bragðskonu, sem lifir mann sinn
ásamt tveimur börnum þeirra,
Dóru, sem er að ljúka háskóla-
Lovísa Guðmundsdóttir
Kveðja til móður minnar
Fædd: 8. apríl 1809.
Dáin; 25. des .1906.
Hamma, ég er særð og þrái
að sofa.
I Svefnsins engill leiðir mig
við hönd.
Sýnir mér í sælublíðum draumi
söngsins björtu æsku dýrðarlönd.
Þar varst þú mín blíða
bernskudrottning
foentir mér á gullin vonablóm,
evo ég hneigði höfði djúpt
í lotning
blýddi bljúg á orðs þíns
milda hljóm.
Knn ég finn þau unaðslönd
I huga
fesku minnar grænu vonaströnd.
Oft þótt reiki ég ein um
hrjósturbrautir.
Ein ég fer um skuggans hljóðu
lönd.
Týnd er "ú bernskuströndin
I breiðft
brim og _____. ólga í minnl sál,
Tárin brenna beizk á sollnum
hvörmum.
Bernskudraumar reyndust
svik og tál.
Heim ég kem, ó, hjartans
mamma að kveðja,
hinzta sinni þig, sem dáði ég
bezt.
Grátin lít ég lága rekkju þína.
Látin hvílir þú, sem ann ég
mest.
Fölvar kinnar, fögru augun
lokin,
fannhvít hönd þin bærist aldrei
meir.
Elsku mamma, allt ég þakka
og blessa.
Allt ég fel þeim Guði, er aldrei
deyr.
Hljóð ég geng að lágu leiði
þínu
legg þar tárvot, heilög muna-
blóm.
Hljóð ég stari í harðan kaldan
bláinn.
Hljóð ég stama grátnum trega-
róm:
Mamma, sendu sólargeisla þína.
sunnarbros þín inn í huga minn.
Láttu hendur létt um hár mitt
strjúka
leyf mér finna hlýja faðminn
þinn .
Drottinn, signdu sætum jóla-
ljósum,
signdu, þennan fölva móður-
hvarm.
Drottinn, láttu ljúfa jólafriðinn.
létta hjartans sára, djúpa harm.
Drottinn, láttu helgar engla-
hendur
hjúkra og líkna, veita nýjan
þrótt.
Elsku mamma, bljúg ég kem að
kveðja.
Hvísla: Hjartans móðir, góða
nótt.
Þin dóttir
Helga G. Jónsdóttir.
námi og Halldóri, nemanda í
Verzlunarskóla íslnds. Fyrir
mína hönd og minna votta ég
þeim og systkingum Kristins
einlæga samúð.
„Gug huggi þá, sem hryggðin
slær“. Emil Björnsson.
Hinn 30. des. sl. var til mold-
ar borinn á Siglufirði Kristinn
Halldórsson kaupmaður. Hann
var fæddur á Siglufirði 7. des.
1915, dáinn 16. des. 1966. For-
eldrar hans voru Halldór Jónas-
son kaupmaður á Siglufirði og
Kristín Hafliðadóttir Guðmunds
sonar hreppsstjóra á Siglufirði.
Systkini hans voru: Hafliði, for
stjóri Gamla bíósi, giftur Þór-
unni Sveinbjarnardóttur. Pet-
rína, búsett og gift í Banda-
ríkjunum. Matthea, búsett í
Reykjavík, og Hulda, sem býr á
heimili Kafliða
Kristinn útskrifaðist frá Verzl
unarskóla fslands 1938 og var
hann hæstur prófsveina það ár.
Hann giftist eftirlifandi konu
sinni Ingibjörgu Karlsdóttur
1043. Þa.u eignuðust tvö börn,
Guðnýju Dóru, nú við nám í
Háskóla íslands og Halldór, sem
stundar nám í Verzlunarskóla
íslands.
Kristinn tók við verzlun föð-
ur síns á Siglufirði 1940, þeg-
ar bróðir hans Hafliði fluttist
til Reykjavíkur. Jafnframt var
hann við síldarsöltun, meðan
hægt var að stúnda þá atvinnu-
grein á Siglufirði, og komu þar
vel 1 ljós mannkostir Kristins
í samskiptum við aðra, að
sama fólkið kom til hans um
árabil og tengdist vináttubönd-
um við hann og fjölskyldu hans.
Kristinn átti við vanheilsu að
stríða allt frá bernsku, svo að
hann gekk aldrei fullkomlega
heill til skógar. Mikið bætti það
um, að hann átti indælt heimili,
enda var hann með afbrigðum
heimakær, þótt Kristinn gæti
ekki heitið gleðimaður, komst
maður samt að þvi í þröngum
hóp, að hann var húmanisti, vel
lesinn og gerði sér glögga grein
fyrir því sem var að gerast í
þjóðlífi okkar, enda fannst öll-
um gott að koma á heimili
þeirra hjóna. Hlédrægni hans
var það mikil, að það voru
ekki aðrir en þeir sem höfðu
þekkt hann lengi, sem skildu
hvaða mannkostum hann var bú
inn. Kristinn tók það mikla
tryggð við Siglufjörð, þar sem
hann var fæddur og hafði starf-
að allt sitt líf, að hann taldi að
hann gæti ekki unað sér lang-
dvölum annars staðar.
Dodge
Chevrolet, flestar tegundir
Bedford, disel
Ford, enskur.
Ford Taunus
GMC
Bedford, dis«“l
Thames Trader
BMC — Austin Gipsy
De Soto
Chrysler
Buick
Mercedes Benz, flestar teg.
Gaz '59.
Pobeda
Opel, flestar gerðir
Volkswagen
Skoda 1100—1200
Renault Dauphine
Þ. Jónsson & Co.
Brautarholti 6
Simi 15362 og 19215.
Hverfisgötu 42.
Kristinn var ágætlega ritfæft
maður og skrifaði margar grein-
ar í blöð og tímarit. Álit Sigt-
firðinga á hæfni hans og þekk-
ingu á sögu Siglufjarðar lýsir
sér bezt í því, að Bæjarstjórn
Siglufjarðar hafði falið honum
að skrifa sögu bæj arf élagsins
frá 1918-1968 í sambandi við
fimmtíu ára kaupstaðarafmæli
Siglufjarðar, og vann hann að
því verki jafnhliða sínu starfi,
því þau hjónin ætluðu að dvelja
hér í Reykjavík veturlangt.
Þegar ég hitti Kristinn, 14.
des. sl. á skrifstofu hans hjá
Ríkisendurskoðun, þar sem hann
ætlaði að vinna í vetur, lét hann
í ljós gleði sína yfir starfi sínu
og veru sinni hér. Ekki kom mér
þá í hug, að aðeins rúmum sól-
arhring síðar væri hann lagður
af stað til sólarlandanna.
Kristni þakka ég tuttugu ára
góð kynni og fimmtán ára sam-
starf. Eftir er minningin um
góðan dreng.
Ættingjum hans öllum og þó
sérstaklega konu hans og börn-
um votta ég innilega samúð og
bið Guð að veita þeim hand-
leiðslu.
Andrés Finnbogason.
Nemandi í húsgagnasmíði
getur komist að nú þegar á Húsgagnavinnustofu
í Austurbænum. Upplýsingar um aldur og fyrri störf
sendist Morgunblaðinu fyrir 15. þ.m. merkt: „Nemi
— 8196“.
HEILSOLUFYRIRTÆKl
Atvinna óskast
Ungur maður, sem lokið hefur Gagnfræðaprófi, ásamt
prófi frá Verzlunarskóla íslands í hagnýtum skrif-
stofu- og verzlunarstörfum, óskar eftir starfa hjá heild-
sölufyrirtæki, sem hefur með að gera fjölbreyttan
innflutning. Tilboð áskast sent afgr. Mbl. fyrir 15. þ.m.
merkt: „1. febrúar — 8804‘.
Notið frístundirnar
Vélritunar- og hrað-
ritunarskóli
I
Vélritun — blindskrift, uppsetning og
frágangur verzlunarbréfa, samninga o. fl.
Dag- og kvöldtímar. Upplýsingar og
innritun í síma 21768.
Hildigunnur Eggertsdóttir — Stórholti 27, sími 21768.
SMURSTÖÐIN
Kópavogshálsi
Sími 41991
er opin frá kL ð—18.
Á föstudögum frá kl. 8—20.
Hefur allar algengustu
smurolíutegundir fyrir
' benzín og dieselvélar.
IJTSALA - ITSALA
Þriðjudaginn 10. janúar hefst mik il og góð útsala á mörgum gerðum.
KARLA
KVEIMNA SKÓFATIMAÐI
BARNA
LITLA SKÓBIJÐIIM LAIJGAVEGI 38