Morgunblaðið - 20.04.1971, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 20.04.1971, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR 88. tbl. 58. árg. MtlÐJUDAGUR 20. APRÍL 1971 Prentsmiðja Morgunblaðsins þeir f órust með Sigurf ara Allir voru komnir frá mm*. a borði, er Sigurfari sökk ÁTTA ungir menn fórust er vél- báturinn Sigurfari SF 58 sökk í Innsiglingunni í Hornafjarðarós á laugardag um kl. 11,30. Skipið var komið á móts við svokallað- an Hlein, er skagar út frá Hvanney, sem er vestari eyrin. er slysið varð. Þegar fólk bar að á Austurfjörutanga var skipið að mestu sokkið. Þeir sem fórust með skipinu voru Halldór Kárason, skip- stjóri, fasddur 13. 3. ’39, til heim- iiis að Tjarnarbrú 18, Höfn, fyrirvinna aldraðra foreldra, Heimir Ólafsson, stýrimaður, fæddur 15. 12. ’45, til heimilis að Hafnarbraut 10, Höfn, ó- kvæntur, Heiðar Hannesson, há- seti, fæddur 22. 6. ’49, til heim- iiis að Hólabrekku á Mýrum, ókvæntur, Ævar ívarsson, mat- sveinn, fæddur 24. 9. ’40, til heimilis að Tjarnarbrú 18, Höfn, kvæntur og þriggja barna faðir, Víðir Sigurðsson, 2. vélstjóri, fæddur 26. 1. ’40, til heimilis að Baldurshaga á Mýrum, kvæntur og á eina fósturdóttur, Guðjón Óli Danielsson, háseti, fæddur 19. 10. ’44 til heimilis á Fáskrúðs firði, ókvæntur, Jón Níels Jónas- son, háseti, fæddur 16. 10. ’49, til heimilis að Krossavík í Þist- ilfirði, fyrirvinna aldraðra for- eidra og Óttar Hlöðversson, há- seti, fæddur 14. 3. ’50, til heimil- is að Höfðavegi 11, Höfn, ókvænt ur og nýráðinn á skipið, enda nýkominn frá námi í Stýri- mannaskólanum. Þeir Jón Níels og Viðir voru mágar, svo og Ævar og Halldór skipstjóri. Þeir sem komust lífs af voru Guðmundur Sigurðsson 1. vél- stjóri og Guðmundur Eiríksson, háseti. Guðmundur Sigurðsson er sonur Sigurðar Lárussonar, út gerðarmanns Sigurfara. ALLIR KOMUST FRÁ BORÐI Þegar skipið sökk voru allir mennirnir 10 komnir frá borði. Guðmundur Eiríksson fór síðast ur frá borði og synti eins og hann gat frá skipinu til þess að sogast ekki niður með þvi er það sykki. Var hann léttklæddur og þvi létt um sund. Strax og slysið varð dældi skipshöfnin á Gissuri Hvíta SF 1 út oliu sem mest hún mátti. Tók skipstjórinn Guðmundur 111- ugason þetta til bragðs, er hann sá hvað verða vildi. Flaut olían fyrir straumi austur að slysstaðn um og deyfði brotsjóina, sem voru mönnum óbærilegir. Sigldi hann skipi sínu eins nálægt Hvanney og frekast var kostur og hélt skipinu frá eynni með hliðarskrúfunum. Guðmundur Sigurðsson hélt hér í bjarghring, en hann var klæddur ullarfötum. Áður en þeir félagar yfirgáfu skipið, kallaði Guðmundur Eiríks son niður í lúkarinn til Guðjóns Óla Daníelssonar, er þar svaf. Hann fór þó ekki niður, enda straumurinn þá svo þungur nið- ur í lúkarinn að ógerningur var að komast þangað, enda var þá hver sjálfum sér næstur um björgun. Guðjón Óli komst þó upp úr skipinu. OLÍAN BARG MÖNNUNUM Eymundur Sigurðsson hafsögu maður á Birni lóðs, var meðal þeirra fyrstu, sem komu á slys stað á laugardag. Hann sagði í viðtali við Mbi., að hann hefði verið að borða hádegisverð, er frystihússtjórinn Óskar Guðna- son hringdi til hans og færði honum fréttirnar. Hann hringdi þá þegar í aðstoðarmann sinn og fóru þeir þegar um borð í lóðsinn, með björgunarsveit og tæki til þess að fara með út á Austurfjöru. Þar settu þeir björgunarsveitina í land með tækin. Þeir félagar hlustuðu á samtöl bátanna fyrir utan og Hornafjarðarradiós. — Þrír bátar höfðu siglt upp í sandeyrina og settu menn í land með gúmbátum. í fyrstu sagði Eymundur að talið hefði verið að báturinn hefði sokkið við Austurfjöruna, en það sást ekki vegna slæms skyggnis. Eymundur fékk Sánaða tvo menn 'frá vélbátnum Akurey, þar eð hann og menn hans heyrðu að gúmbátar væru á floti. — Ég taldi þá að komið gæti til greina — sagði Ey- muindur, að við gætum frekar lagt að en stæmri bátamir. f>að voru hims vegar engir menn í bátumum og mikið brim milli gúimbájtanna og okkar — en við Framhald á bls. 3. Halldór Kárason, skipstjóri Heimir Ólafsson, stýrimaður Guðjón Óli Daníelsson, liáseti Dönsk blöö um handritagjöfina: Málið til mannrétt- indadómstólsins? - — segir Berlingske Tidende — hyllum danska höfðings- lund segir Information Kaupmannahöfn, 19. apríl Einkaskeyti til Mbl.: — GLEÐI Dana yfir afhendingu handritanna er enn að nokkru beizkju biandin hjá sumum. Stærsta sunnudagsblað Dan- merkur Beriingske Tidende birti á forsíðu í gær mynd, sem sýndi að fáninn á Kon unglegu bókhlöðinni, var í hálfa stöng á laugardaginn, en þann dag voru handritin tvö flutt um borð í eftirlits- skipið „Vædderen". Undir myndinni stóð að það hefði verið staðfest, óformlega, í Konunglegu hókhlöðinni að fáninn hefði verið dreginn í hálfa stöng sem mótmæli við afhendingu handritanna tveggja, Flateyjarbókar og Sæmundar Eddu, sem væru álitin gimsteinarnir í íslenzka han dr itasaf ninu. Berlingske Tidende skýrir einnig frá þvi að í stjóm Árnasafns hafi þeim hug- myndum verið hreyft að visa handritamálinu til Mannrétt indadómstólsins í Strass- bourg. Berlingske Tidende segir: „Fyrst verður að kanna hvort möguleikar eru á því skv. reglugerð dóm- stólsins að leggja fyrir mál á borð við þetta. Ætti ekk- ert að vera því til fyrirstöðu. Dómstóllinn hefux iðulega fengizt við mál, þar sem borgarar hafa litið svo á að eignaréttur þeirra væri fót- um troðinn af ríkinu. í því liku tilviki hlyti Árnasafn að skipa sér á bekk með hin um almenna borgara, þar sem okkar eigin Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu í sinni fyrstu umíjöllun, að stofnunin væri einkafyrir- tæki. Aukin heldur hefur því verið siegið föstu með dómi Hæstaréttar, að um er að ræða þvingunarafsögn, þ.e. eignanám. Stofnunin hefur yfir páskana kynnt sér margra binda verk um Mann réttindadómstólinn og álits- gerðir hans, en ekki fundið mál, sem væru beinar hlið- stæður handritamálsins. Þess var naumast heldur að vænta. Samþykkt Þjóðþings- ins á lögum, sem veita að- gang til ráðstöfunar, eins og í því tilviki, sem hér liggur fyrir, án þess að bætur komi fyrir er einsdæmi lagalega séð í allri réttarsögunni, og hafa bæði lögin og dómsupp kvaðningarnar tvær verið fréttaefni um víða veröld“, segir Berlingske Tidende, sem klykkir þó út með því að segja að Árnasafn verði að Framh. á bls. 19

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.