Morgunblaðið - 20.04.1971, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 20.04.1971, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRHJJUDAGUR 20. APRtL 1071 . . 62 . . en ég hef fengið einhverj- ar skaðabætur. Og svo stikaði hann áfram, bálvondur. Síðdegis á sunnudag kom Joyce Blackbrook á lög- reglustöðina og bað um viðtal við Appleyard. Hún virtist al- veg uppgefin, og sagðist líka engan svefn hafa fengið síðan hún kom í Klaustrið dáginn áð- ur. Nú var erindið að leita frétta af Benjamín, og virtist hún * bákstur alls ekki ánægð með þá fullyrð- ingu Appleyards, að allt væri gert til þess að hafa upp á hon- um. — Ef hann er ekki um borð, hvar getur hann þá verið? spurði hún. En við þessu átti Appleyard ekkert svar. Mánudagsmorgunninn kom og enn fréttist ekkert til Benjamíns. Jafnvel Hanslet, sem bar Jimmy þessar neikvæðu fréttir, virtist hafa glatað nokkru af bjartsýni sinni. Þetta er óneitanlega dálít- ið óvenjulegt, sagði hann. — Þegar maður týnist, fáum við venjulega einhverjar upplýsing ar um hann, eftir svo sem tvo daga, en við höfum ekki heyrt aukatekið orð um þennan Benjamín þinn. Ég skil ekki í þvi —því að sé hann lifandi, hlyti einhver að hafa séð hann, og sé hann dauður, ætti líkið að hafa fundizt. En hvað um það, við höldum áfram að leita. Þú ættir heldur að vera kyrr þar sem þú ert kom- inn, fyrst um sinn. Appleyard hringdi til Temple combe og fékk að vita, að lög- fræðingurinn gæti veitt honum viðtal klukkan tólf. Því komu þeir Jimmy á þeirri stundu og Templecombe leit upp, er þeir komu inn. AKRA í bahstur TIL LEIGU fyrir litla skrifstofu eða einhleyping 50 fermetra 2ja herbergja ibúð í vestur-miðbæ, nýstandsett Bílskúr eða stæði fyrir lítinn bil fylgir. Tilboð, merkt „1 júní — 7365" sendist Morgunblaðinu fyrir fimmtudag. Séreinkenni Tretorn f/ScrHtOk (færti í |fúmmíi^|H y á ynta lajfi. FrauAgúmmí til einangrunar á vetrarstígvélum, ataðaett milli fóðurN og HÍitgúmmís. stigvélanna Gott grlp um hælinn. tyrir Innibyggður Htuðnlngur vjfl. ilina ofan úr tré."'*” Gott lag. Ótrúlega sterk. Fnnsóli sérstaklega byggður sem innlegg-oft úr tré Sérstök einangrun frá kulda Endurskinskantur til öryggis í umferðinni, TRETORN Einkaumboðsmenn Jón Bergssonh.f. Reykjavík. Hrúturlnn, 21. marz — 19. apríl. Byrjaðu vikuna með því að heimta eitthvað nýtt af sjálfum þér og öðrum. Nautið, 20. apríl — 20. maí. Nú er rétti tíminn til að leggja tvo og tvo saman og þegja. Tvíburarnir, 21. maí — 20. júni. Sannleikurinn er undarlegri en allar þær skáldsögur, sem þú hefur lesið. Lítiliækkaðu ekki náungann. Krabbinn, 21. júní — 22. júli. Atburðarásin og kringumstæðurnar færa sönnur á, hvort þú ert maður til að fylgja samtíðinni. Ljónið, 23. júlí — 22. úgúst. Þér veitist létt að villa á þér heimildir, einkum gagnvart þeim, sem lítt þekkja til þín. Meyjan, 23. ágúst — 22. septeniber. Þú skalt gera þér fyllilega grein fyrir því, að það fylgir ýmis- legt í kjölfarið í peningamálunum. Vogin, 23. september — 22. október. Persónuleg sambönd þín eru undir dálitlu fargi. Sporðdrekinn, 23. október — 21. nóvember. Ertu viss um, að þú leyfir öðrum að hreyfa sig nóg. Bogmaðurinn, 22. nóvember — 21. desember. Ilér um bil öll hrossakaup eru til hins verra. Reyndu að finna skothelt ráð við þessu. Steingeitin, 22. desember — 19. janúar. Reyndu að einbeita þér að hreinum línum og einföldum, svo að öðrum veitist léttara að skilja þlg. Vatnsberinn, 20. janúar — 18. febrúar. Reyndu að halda sjón og skyni, þótt erfitt reynist. Fiskarnir, 19. febrúar — 20. marz. Vertu fljótur að fara fram á þá hækkun, sem þú átt inni. — Nú, þarna eruð þið. Fáið ykkur sæti. Ég er feg&m að sjá ykkur, því að ég þarf að fá upplýsingar um Benjamín Glapthorne. Mér skilst, að þið hafið verið að leita að honum. Hvar er hann? Þessi síendurtekna spurn- ing var tekin að fara í taugarn ar á Appleyard. — Ég veit ekki, hvar hann er, svaraði hann ön- ugur. — Ég sagði yður, að öll vél- in í Scotland Yard væri í gangi, að leita að honum, en ennþá hef ur ekkert til hans sézt eða heyrzt. — Það er grábölvað, sagði lög fræðingurinn. — Þið vitið sjálf sagt, að faðir hans dó i gær? 1— Jú, ætli maður viti það ekki, sagði Appleyard. — Það þykir mér vænt um að heyra. Hvort sem þið kunnið að hafa áhuga á þvi eða ekki, þá kemur þetta fráfall Símonar gamla mér í stökustu vandræði. Þegar hann gerði erfðaskrána sína, skipaði hann okkur Caleb báða sem skiptaráðendur, Síðan Caleb dó hefur ekkert svigrúm fengizt til að fá mann í hans stað. Og þar af leiðir, að nú er ég einn skiptaráðandi i afskap- lega rammflóknu dánarbúi. Og ekki bætir það úr skák, þegar einkaerfinginn er horfinn. — Við hljótum að fá eitthvað að vita um Benjamín innan skamms, sagði Jimmy hressi- lega. — Mér skilst að þér þurf- ið ekki að hafast neitt að rétt í bili, hr. Templekombe? Lögfræðingurinn leit á hann með fyrirlitningarsvip. — Nú, svo það haldið þér? En má ég syrja, hvar á ég að finna peninga fyrir útfarar- kostnaðinum og svo fyrir vöxt- unum af veðskuidunum, sem falla í mánaðarlokin ? Ég vil benda á, að lífeyrir Símonar deyr með honum, alveg eins og raunin varð með Caleb. — Hvernig væri að leita enn á náðir hr. Woodsprings? sagði Appleyard. Þegar bóksalinn var nefndur á nafn, brosti Templecombe of- urlítið. —- Hr. Woodspring er nú sennilega ekki í skapi til að láta af hendi marga skildinga í viðbót, sagði hann. — Ég get trúað ykkur fyrir því, að ég átti heldur betur sennu við hann í morgun. En að lokum hafði ég mitt mál fram. Ég held næstum, að ég geti fullyrt mig hafa hald ið allvel á spilunurn. — Okkur þætti gaman að heyra um þessar viðræður ykk- ar, sagði Jimmy kurteislega. — Nú, jæja, úr því að efni þeirra verður hvort sem er al menningseign síðar meir, þá skaðar það ekki þó ég segi ykk- ur frá því. Ég hef þegar sagt ykkur af samningnum um kaup in á móanum. — Hr. Woodspring sýndi okk ur sjálfur frumritið af samningn um á laugardaginn var, sagði Appleyard. — Þá þarf ég ekki að endur- taka það. Þegar ég heyrði, að Símon hefði aftur fengið slag, varð mér strax illt við, því að ég vissi, að hann mundi senni- lega alls ekki ná sér aftur, svo að ég varð að ganga út frá því, að hann ætti skammt eftir ólif- að. Og sem skiptaráðanda hvíldi sú skylda á mér að koma eign- unum sem fljótast í peninga. — Og eignir voru vitanlega ekki aðrar en þessi samningur við Woodspring. Hann hafði þeg ar greitt fyrstu greiðslu, fimm hundruð pund, en auðvitað mundi það fé þegar vera uppét- ið. Því var mér áríðandi að geta innheimt sem fyrst þennan af- gang, tvö hundruð og fimmtíu pund. Og ég þóttist vita, að Benjamín mundi ekkert hafa við það að athuga, að eignin væri afhent strax. — Nú er það svo, að þrátt fyrir álit almennings, geta lög- fræðingar verið snarir í snún- ingum, ef þeim finnst ástæða til þess. Ég samdi því afsalið, þar sem Woodspring var afhent eignin gegn greiðslu á áður- nefndum afgangi verðsins. Þá var hægt að ljúka kaupunum jafnskjótt sem Símon gamli gæfi upp öndina, auðvitað að áskiidu samþykki Benjamíns, sonar hans. Eruð þið með? -— Fullkomlega, sagði Jimmy. — Gott og vel, nú vikur sög unni að viðtalinu við Wood- spring í morgun. Hann beið mín þegar ég kom í skrifstof- una og honum virtist vera mik ið niðri fyrir. Hann byrjaði á þvi að láta í ljós samúð sína út af fráfalli Símonar. „Verðugur fulltrúi fornrar ættar,“ kallaði hann hann. Svo byrjaði hann á því að láta í ljós þá frómu ósk, að Benjamín tækist að varð- veita erfðavenjur ættarinnar. Síðan veifaði hann samningnum framan i mig, og benti á, að hann hefði fengið undirskrift Benjamins undir hann og svo viðbótarklausuna. Og úr því að þið hafið séð samninginn vitið þið sjálfsagt efni klausunnar. Jimmy kinkaði kolli og Templecombe hélt áfram: — Þegar ég ias þessa klausu létti mér stórum. Þá var sem sé engin þörf á að bíða samþykkis AKRA í bákstur AKR A AKRA t bakstur í bakstur Járniðnaðarmenn Viljum ráða rennismið og mann vanan fræsara. Vélsmiðja Jens Árnasonar hf„ Súðarvogi 14. Jörð til sölu Til sölu er jörð nálaegt Hvolhreppi í Rangárvallasýslu. Jörðin er vel hýst með 30—40 hektara túni og miklum rækt- unarmöguleikum. Vélar, áhöld og hluti af bústofni geta fylgt. Jörðin er laus tll ábúðar í maí naestkomandi. Ami Grétar Finnsson hrl„ Strandgötu 25, Hafnarfirði, simi 51500.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.