Morgunblaðið - 13.12.1973, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 13.12.1973, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 1973 25 v U ’ w Tll lelgu I Grindavlk 2 x 250 fm iðnaðar- eða fiskverkunarhúsnæði til leigu. Upplýsingar í síma 92-1 420 eða 92-1 950. Síðastliðinn laugardag var opnuð f Bogasal Þjöðminjasafnsins sýning í minningu Kdpernikusar, en á þessu ári eru liðin 500 ár frá fæðingu hans. — Sýningin verður opin út þessa viku frá kl. 2 — 10 daglega. -Asta og eldgosið Framhald af bls. 23 pabbi vilja ekki gefa barninu það, sem þaðbiður um, um leið og frændi eða lítill vinur í heimsókn tekur eða lemur, þá er „alvara lífsins" fyrir dyr- um!" „Ásta og eldgosið í Eyju-m" er vönduð bók að frágangi og hana prýða ekki sízt fjöldi Iitprent- aðra teikninga eftir Baltasar. Þau Þórir og Rúna létu lika afar vel af samskiptum sínum við teiknara og útgáfu. „Upp- örvunin, sem við fengum hjá útgefendum og áhugi þeirra á verkefninu, varð okkur ntikil hvatning, og þeir eiga miklar þakkir skildar fyrir að vilja ráð- ast i útgáfu á svo dýrri bók. Þá er hlutur Baltasars mjög mikil- vægur þáttur í bókinni, sem margir eiga sjálfsagt eftir að dást að. Ferðir okkar til hans. voru næstum eins og til leik- stjóra, sem setti fyrir okkur verk á svið. Við fundum strax í upphafi, að Baltasar hafði af- skaplega ntikið næmi fyrir þeim atriðum, sem okkur fund- ust skipta máli." Að Iokum spurðum við Þóri og Rúnu eftir hverju þau hefðu einkum sótzt með ritun þessar- ar bókar. „Þegar við eldumst finnst okkur æ erfiðara að segja eitthvað um tilgang og markmíð bóka. Þegar við virð- um fyrir okkur málverk verð- um við fýrir mismunandi áhrif- um, — oft allt öðrum áhrifum en listamaðurinn varð fyrir, er hann skóp verkið. Þannig er það oft með rithöfund. Þó að hann setji sér háleit mark og mið verða áhrifin, sem lesend- ur hans verða fyrir, mjög mis- munandi af margvíslegum or- sökum, — uppeldi, menntun, umhverfi o.l'l. Við erum ein- dregið þeirrar skoðunar, að rit- höfundar eigi að hafa háleitt mark og mið. En þau er unnt að setja fram á mismunandi hátt, og það er nauðsynlegt að bjóða börnum bæði garnan og alvöru. Ef skrif okkar gætu orðið til þess að vekja einhvern til um- hugsunar og skilnings á vanda- málum annarra, líðan þeirra og tilfinningum, erum við ánægð." — Kynþátta- vandamál Framhald af bls. 22 Ennfremur verður að hafa það hugfast, að fyrir átatug að- eins settust um 100.000 fransk- ir landnemar frá Alsír að i Mar- seille vegna loftslagsins og góðra atvinnumöguleika. Koma þeirra var mjög hagkvæm fyrir borgina frá efnahagslegu sjón- armiði, en skiljanlega voru þeir bitrir yfir þvi að hafa þurft að yfirgefa fósturland sitt, og því voru þeir ekkert yfirmáta elskulegir húsbændur gagnvart Aröbum, sent þeir urðu að ráða i þjónustu sína, þar sem skortur var á fröndku verkafólki. Samruni Frakka og Alsír- manna virðist ógerlegur, og Frakkar verða nú í fysta sinn að horfast i augu við kynþátta- fordóma. Þetta blandast saman við andúð á erlendum innflytj- endum yfirleitt, en staðreyndin er sú, að útlendingar inna af hendi um 8"?) af erfiðsvinnu og allt að 20% af störfum, þar sem fagmenntunar er ekki krafizt. íbúar Marseilles eru nú tæp milljón. í miðborginni búa nú um 40.000 Arabar og svipaður fjöldi er talinn búa í fátækra- hverfum útborganna (rétt tala erlíklega miklu hærri) Þeir eru því urn það bil 10% íbúanna, en samkvæmt áliti þjóðfélagsfræð- inga brýzt kynþáttaóánægja að jafnaði út, þegar 10—12% manna af öðrum k.vnþætti hafa setzt að í borgum. Erlent vinnuafl í Frakklandi er orðið þess askynja hvers megnugt það er, eins og fram kont í verkföllunum við Renault bílaverksmiðjurnr á síðasta vori. Frakkar eru ef til vill ekkert hrifnir af því að þurfa að treysta á Araba, en efnahagur landsins þarfnast þeirra. Sem stendur hefur ófriðar- öldurnar lægt, en vinna verður markvisst að því að breyta þvi •óánægjuástandi, sem enn ríkir. Það er hyggilegt hjá borgar- stjórn Marseille að rífa niður Arabahverfin, og allt útlit er fyrir, að strangara eftirlit verði komið á við landamærin til að tryggja, að fjöldi innflytjenda fari ekki fram úr þeirri tölu, sem aðilar hafa komið sér sam- an um. Þótt ógeðfellt sé að gera innflytjendur afturreka er það þó heppilegra en gefa útlend- ingahatri og þar meðkynþátta- fordómum byr undir báða vængi. Jólaljósin i Hafnar- fjaráarkirkjugar6i verða afgreidd alla virka daga frá kl. 9 — 19 frá og með 1 7. des. til 22. des. í kirkjugarðinum. Ath. Ekki afgreitt á sunnudögum. Guðrún Runólfsson. Styrktarsjóður Meistara- félags húsasmiða Umsóknir um styrk úr styrktarsjóði meistarafélags húsa- smiða skulu berast sjóðnum eigi siðar en 1 7. des. n.k. Stjórnin. Rowen t Sandgeröi Húsmæður. Verzlið ódýrt. Sendum heim alla daga. Þorláksbúð, sími 7480. Kaffivélin lagar allt fró 2-8 bollum af ilmandi kaffi á ca. 5 mínútum — Heldur heitu íbúö tll leigu 5 herb. íbúðarhæð er til leigu. Sérhiti, sérinngangur, suður svalir. íbúðin er nálægt miðbænum. Tilboð sendist afgr. Mbl fyrir annað kvöld merkt Vestur- bær 3052. Einbýlishús — Einimelur Til sölu er 300 fm einbýlishús við Einimel, ásamt 50 fm bílskúr. Hús þetta gefur mikla möguleika. Fasteignasalan, Norðurveri, Hátúni 4a. Sfmar 21870 — 20998. Heildsala — Smásala Djúpsteikingar pottur Hárþurrkuhjálmur Vörumarkaðurinn bf. J ÁRMÚLA 1A • SÍMI 86-112 Rowenta

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.