Morgunblaðið - 13.12.1973, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 13.12.1973, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. DESEMBER 1973 t Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi JÚLÍUS RÓSANT GUÐLAUGSSON, Grund i Garði verður jarðsunginn frá Útskálakirkju laugardaginn 1 5 desember kl. 2 e h. Ferð verður frá Rauðalæk 7 kl. 1 2 Fyrir hönd aðstandenda Sigríður Helgadóttir. t Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og útför JÓHÖNNU S. ÞORLEIFSDÓTTUR, Grenimel 5, ÞorleifurTh. Sigurðsson, Hilmar Þór Sigurðsson, María S. Eyjólfsdóttir, Vilborg Gunnarsdóttir og börn. t Móðir min, JÓFRÍÐUR JÓNSDÓTTIR, frá RHi, til heimilis að Hjálmholti 4. andaðist 11. des. Kveðjuathöfn verður í Fossvogskirkju föstudaginn 14 des kl 10.30 Jarðsett verður að Ingjaldshóli, laugardaginn 15. des. Fyrir hönd systkina og annarra vandamanna, Maria Guðmundsdóttir. t Útför GUNNARS J. ÓLASONAR, Grafarholti, fer fram að Lágafelli, Mosfellssveit, laugardaginn 1 5 des 1 973, kl 2 e.h. Blóm og kransar vinsamlega afþökkuð. Kristín Bæringsdóttir, Elisabet Gunnarsdóttir, Guðlaug Óladóttir, Jón Gunnar Árnason, Þórunn Gunnarsdóttir Griggs, Dagbjört Gunnarsdóttir. Paul H. Griggs, Paul H. Griggs jr.. t SIGURJÓN JÓHANNSSON frá Skagaströnd, Garðaveg 13b, Hafnarfirði lézt hinn 7 desernber Minningarathöfn fer fram í Fossvogskirkju fimmtudagmn 13 desember kl 15 Jarðsett verður frá Hólaneskirkju á Skagaströnd laugardaginn 1 5 desember k.l. 14 Fyrir hönd vandamanna, Ingunn Hilmarsdóttir. t Faðir okkar og tengdafaðir, GUNNAR STEFÁNSSON, Sörlaskjóli 42, verður jarðsungmn frá Dómkirkjunni, föstudaginn 14.des kl 1.30. Hannes Gunnarsson, Guðmunda Gunnarsdóttir, Böðvar Árnason, Ásta Labergola, Timothy Lagergola, Inga Gunnarsdóttir, Kristinn Guðmundsson. t Eiginmaður minn faðir okkar tengdafaðir og afi SIGURÐUR E. MARKAN verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni á morgun föstudaginn 14 desember kl 15. Þeim sem vildu minnast hins látna, er vinsamlegast bent á að láta líknarstofnanir njóta þess. Ingrid Markan Rolf og Sofie Markan Björn og Helén Louise Markan Tone og Michael Becker Anne-Marie, Ingrid og Inga Huld Markan. Halldór Asgrímsson fyrrv. alþingismaður og kaupfélagsstjóri Fæddur 17/4 1896. Dáinn 1/12 1973. Halldór Asfírfmsson var fæddur að Brekku í Hróarstunsu, sonur hjónanna Asgríms Guðniundsson- ar bónda þar og siðar á Grund í Borgarfirði eystra. og konu hans Katrínar Björnsdóttur frá HUsey í Hróarstungu. Var þetta sagt kjarnafólk f báðar ættir, svo Hall- dór átti ekki langt að sækja þótt einhver dugur væri í honuirjenda reyndist þaðsvo. Ég kynntist Halldóri ekki fyrr en hann fluttist til Vopnafjarðar árið 1940, og réðst kaupfélags- stjóri að Kaupfélagi Vopnfirð- inga. Ilafði hann þá áður verið kaupfélagsstjóri hjá Kaupfélagi Borgarfjarðar í 18 ár. og veitti því kaupfélagi forstöðu til ár.sins 1942. Rak hann jafnframt btiskap á föðurleifð sinni Grund 1923—1932. Ilann var þar kjörinn til ýmissa trúnaðarstarfa, sýslunefndarmað ur með meiru. Held ég að ekki sé ofmælt, að hann var þar driffjöð- ur í flestum framfaramálum sveitarinnar, og sýndi í mörgu mikía tryggð við það byggðarlag. Eftir að Halldór kom til Vopna- fjarðar endurtók sama sagan sig og á Borgarfirði. Hann var kosinn til margra aukastarfa. svo sem í hreppsnefnd. sýslunefnd Ofl. Ö11- um þessum störfum sinnti hann með brennandi áhuga og dugnaði. Framfarahugurinn var með ein- dæmum mikill, en þó vildi hann alltaf reyna að sjá fjárhagslega borgið þeim fyrirtækjum. sem honum vartróað fyrir. Vopnafjörður tók miklum stakkaskiptum á þeim árum, sem Halldór var hér og átti hann stór- an þátt í því, þó náttUrlega legðu þar fleiri hönd að, enda tímarnir þá farnir að bre.vtast í framfara- átt. Þö voru á þessum árum harð- indaár, og meðal annars vorið 1949, sem er versta vor, sem yfir Austurland hefir komið í langa tíð. Þá dró Ilalldór ekki af sér fremur en endranær til bjargar fénaði í Vopnafirði, enda tókst það ótrUlega giftusamlega. Halldór var þingmaður Norð- mýlinga og AusturlandskjÖrdæm- is 1946—1967, og þótti röggsamur og dugandi þingmaður. Átið 1960 var hann skipaður útibússtjóri BUnaðarbanka Islands á Egilstöð- um við stofnun útibUs þar. Hann lét af þvf starfi sjötugur á árinu 1966. Þessi ófullkonina upptalning sýnir, að hér hefur enginn meðal- maður verið á ferð. Halldór kvæntist 1922 eftirlif- andi konu si.nni Önnu G tðnýju Guðmundsdóttur frá IIóli i Borg- arfirði. Er það annáluð ágætis- kona. enda heimili þeirra með eindæmum skemmtilegt. Var alltaf tnjög mikil gestrisni á þvi heimili, svo að engu var líkara en að þar væri rekið hótel, að öðru leyti en þvi, að þar þurfti enginn að borga neitt. Þar voru allir vel- komnir. og þótt góðar væru veit- ingar þá dró einnig að glaðværð og spaugsemi húsbændanna. og alltaf virtist eins og þeirra væri ánægjan. + Eiginmaður minn, fósturfaðir og bróðir, ^ JÓN JÓNSSON, múrari, Stórholti 47, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, föstudaginn 14 desember. kl. 1 30 Blóm vinsamlega afþökkuð. Sigriður Guðmundsdóttir, Hallgrimur Guðmundsson Halla Pálsdóttir, og systkini hins látna. Eiginmaður minn, BJARNI SÆMUNDSSON, Hveramörk 6, Hveragerði, verður jarðsettur frá Fossvogskirkju, laugardaginn 1 5. des. kl. 1 0.30. Sigurrós Guðlaugsdóttir. Faðir okkar, tengdafaðir og afi GUÐMUNDUR GUDJÓNSSON, skipstjóri, Öldugótu 40, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni laugardaginn 1 5. des. kl, 1 0.30 fh. Hafliði Guðmundsson, Elín Guðmundsdóttir Jakob Albertsson. Garðar Guðmundsson Jónína Ásmundsdóttir, og barnabörn. Faðir minn NJÁLL GUÐMUNDSSON bifreiðastjóri, Kleppsveg 138, lést aðfaranótt hins 12 desember. Elín Bára Njálsdóttir, Viðimel 39. t Alúðarþakkir til allra þeirra, er sýndu okkur samúð og*hlýhug við andiát og jarðarfór GUDBJARGAR ÁSGEIRSDÓTTUR, Ásgeir Gunnarsson og aðrir vandamenn. Halldór og Anna áttu 5 sonu: Ama Björgvin, lögfræðing i Kópavogi. Asgrím Iíelga, kaup- félagsstjóra á Hornafirði. Inga ** örn, starfsmann hjá Sjávaraf- ðadeild SÍS. Guðmund Þóri, siarfsmann hjá Sjávarafurðadeild SlS, og Ilalldór Karl, kaupfélags- stjóra á Vopnafirði. Allt hafa þetta reynst mjög nýtir menn í sínu starfi og góðir drengir. Ég veit að Vopnfirðingar munu lengi minnast Halldórs og Önnu með þakklæti fyrir þeirra miklu risnu og hlýhug í garð Vopnfirð- ina. Að síðustu vil ég þakka allt það, sem ég og mitt fólk hefur notið á þeirra heimili, og flyt frú Önnu innilegar samúðarkveðjur frá okkur hjónunum og minni fjöl- skyldu. Friðrik Sigurjónsson. Styrkur tillðnó FR A VILÖG R eykja víktirborgar til lista inunu á næsta ári htekka uin 42% og verða kr. 43 milljónir samkvæmt fjárhagsáætlun borg- arinnar fyrir næsta ár. Einn af stærri liðunum í þess- uni gjaldabálki er styrkur til Leikfélags Reykjavíkur, sem hækkar úr 15 milljónum i 20 milljónir. Þessi styrkur er f sam- ræmi við óskir félagsins, en það telur nauðsynlegt að ráða 6 leik- ara á svonefndan B-samning til að tryggja starfskrafta yngri leikara og þar með að auka starfsmögu- leika félagsins. En borgarsjóður hefur jafnan styrkt félagið um upphæð, sem svarar launurn fast- ráðinna leikara og annars fasts starfsliðs. Þess má og geta í þessu satn- bandi, að nú er imnið af krafti við hönntin bg annan imdirbiining að byggingu nýs borgarleikhúss í nýja miðbænum. Malar- bifreið út 1 skurð STÖR dráttarbifreið með tengivagn til malarflutninga lenti út af Kringlumýrarbraut, ók yfir ljósastaur og steyptist niður í skttrð um kl. 13 á mánudag. Ilafði ökumaður snarbeygt út af veg- inum til að komast hjá að lenda aftan á fólksbifreið, sem hafði hægt ferðina á norðurleið við gamla Fossvogsveginn. Farþegi i dráttarbifreiðinni fór úr mjaðm- arlið, en ökumaður hlaut minni- háttar meiðsli. Bifreiðin skemmd- ist talsvert mikið. + Jarðarför, INGVELDAR S. JÓHANNESDÓTTUR frá Þorgrímsstöðum, fer fram frá Tjarnarkirkju, Vatns nesi, laugardaginn 1 5. desember kl. 14. Vandamenn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.