Morgunblaðið - 23.12.1976, Síða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 1976
Bæði á sjó og landi hefur björgunarsveil Varnarliðsins komið
mönnum til bjargar. Þessi mynd er tekin í júnf 1974 og er verið
að hífa upp frá skipi mann sem fengið hafði hjartaáfall, en
stundu sfðar var maðurinn á sjúkrahúsi.
í nóvember sl. voru liðin 5 ár
frá því að Varnarliðið á Kefla-
víkurflugvelli kom á laggirnar
fastri björgunarsveit með
aðsetri á Keflavíkurflugvelli.
Björgunarflug og sjúkraflug
voru þó ekki nein nýlunda hjá
Varnarliðinu, þvf áður höfðu
vélar þess oft lagt sitt af
mörkum til að koma veiku og
slösuðu fólki fljótt undir
læknishendur og að bjarga
fólki úr lffsháska.
Hin fasta björgunarsveit
Varnarliðsins kom til landsins
9. nóvember 1971, þegar hinar
þrjár HH-3E „Jolly Green
-Giant“ lentu f fyrsta sinn á
íslenzkri grund. Akvörðun um
að sveit skyldi stofnuð hér
hafði verið tekin í maf 1971 og
hafist var handa með undir-
búning í ágúst. Því hlutverki
sem þessari sveit var ætlað að
vinna hafði áður verið gegnt af
sveitum frá Woodbridge-
herstöðinni í Englandi og
Lajez-stöðinni á Azor-eyjum.
Dvöldu þær hér hálfan mánuð í
senn og höfðu sér til brúks
Herkúles HC-130 flugvélar og
þyrlur af gerðinni H-19 frá
flugher og H-34 frá sjóher.
Ekki liggur alveg ljóst fyrir
hvað fyrri sveitir voru mann-
margar eða hvernig búnaði
þeirra var háttað en sú fasta-
sveit sem nú er til staðar á
Keflavíkurflugvelli er skipuð
um 45 manns. Er þar allt talið,
flugmenn, björgunarmenn,
flugvirkjar, sjúkraliðar og
læknar.
Eignuð112
mannslff
Það liggur ekki alveg á
hreinu hversu mörgum manns-
lífum Varnarliðsmenn hafa
bjargað f heild en á þeim fimm
starfsárum sveitarinnar sem
eru nýliðin, er talið að sveitin
hafi bjargað 112 mannslífum.
En það koma margir við sögu
þegar björgunarsveitin er
Þyrlur hafa ekki ýkja mikið flugþol og verða þvf tftt að taka
eldsneyti á flugi, en þessi mynd sýnir einmitt slfkt. Stundum
verða þyrlurnar og að losa sig við eldsneyti þegar unnið er við
erfiðar aðstæður að björgun.
Þessi mynd er tekin er björgunarmenn Varnarliðsins unnu
frábært björgunarafrek á Gfgjökli í nóvember sl. Læknir úr
áhöfninni hangir í spiltaug og er á leið niður til hinna slösuðu.
kölluð út, og árangur erfiðisins
byggist á samstarfi margra
aðila.
Sveitin fær sfnar aðstoðar-
beiðnir yfirleitt í gegnum
Slysavarnafélag Islands
(SVFl). Upp frá þeirri stundu
að aðstoðarbeiðni berst fer öll
stjórnun björgunar i gegnum
stjórnstöð á Keflavíkurflug-
velli og í gegnum Flugstjórnar-
miðstöðina á Reykjavikurflug-
velli, en sú miðstöð hefur með
að gera alla stjórnun björgunar
úr lofti á Islandi og á haf-
svæðinu í kring um Island. Þá
er haft samráð við Landhelgis-
gæsluna og aðrar islenzkar
landbjörgunarsveitir, þegar um
er að ræða slys á landi. A1
Fechser, sem er yfirmaður
sveitarinnar á Keflavíkurflug-
velli, hefur sagt svo um sam-
starfið við SVFÍ: „Hér er um
samhjálp að ræða. Slysavarna-
félagið hefur mikla þekkingu á
aðstæðum, sem að öðru leyti
eru okkur nokkuð framandi."
Fechser ber mikið lofsorð á
þátt SVFI í björgunum, og þátt
Hannesar Hafstein. Um
Hannes hefur Fechser sagt:
„Eitt sinn bárum við saman þau
ráð sem Hannes gaf okkur og
tölvuúrvinnslu á tilvika-
upplýsingum og voru ráð
tölvunnar á sama veg og ráð'
Hannesar."
275 ær frá
Vestmannaeyjum
Fyrsta aðstoðarflug sveitar-
innar var á annan dag jóla 1971,
en þá var sjúkur drengur, 9 ára
gamall, fluttur frá Hellissandi
til Reykjavlkur. Var drengur-
inn kominn I sjúkrahús aðeins
1 og 'A klst eftir að aðstoðar-
beiðni barst til Varnarliðsins.
Fyrsta eiginlega björgunin átti
sér stað 5. jan. 1972 þegar flug-
manni flugvélar er nauðlent
hafði á Faxaflóa var bjargað
eftir hálftíma volk í köldum
sjónum. I þetta sinn gat
björgunarsveit Varnarliðsins
brugðið sérlega skjótt við, og
var þyrla búin að finna flug-
vélina aðeins 21 mfnútu eftir að
hjálparbeiðnin barst. Upp frá
þessari björgun hefur
björgunarsveit Varnarliðsins
unnið mörg frábær björgunar-
afrek. Flest þeirra voru af
hendi leyst við mjög erfiðar og
breytilegar kringumstæður, og
er þar skemmst að minnast
björgunar skáta sem slasast
höfðu á Gígjökli, en það yrði of
mikið verk að tíunda öll afrekin
hér.
Auk leitar og björgunar
hefur sveitin innt af hendi
mörg verkefni sem hún hefur
verið beðin um aðstoð við.
Þannig hafa þyrlur sveitar-
innar flutt tæki og útbúnað
vísindaleiðangra innlendra og
erlendra, á jökla og um fjöll og
firnindi. Nixon, fyrrum forseta,
var veitt öryggisvarzla úr lofti
þegar hann kom hér um árið.
Þá var tveimr bjöllum, 900 og
1200 kílóa, lyft upp I turn
Líftaugin á niðurleið. Raninn
fram úr þyrlunni er tæki til
móttöku eldsneytis á flugi.
Landakotskirkju, og loks fluttu
tveir hinna „glöðu grænu risa“
275 ær frá Vestmannaeyjum I
upphafi gossins þar árið 1973.
„Að aðrir fái lifað“
Eins og áður hefur verið
greint frá eru það um 45 manns
sem að staðaldri eru tengdir
sveitinni. Þótt ekki séu þessir
menn að björgunarstörfum í
hverri viku þá er sveitinni
alltaf haldið í góðri þjálfun. I
því skyni er alltaf efnt til
æfinga og reynt er að láta
aðstæður líkjast sem mest
aðstæðum I raunveruleikanum.
Er efnt til slíkra æfinga reglu-
lega á fjórum ákveðnum en
mismunandi stöðum, en einnig
er að jafnaði efnt til skyndi
æfanga, svo menn geti aðlagast
ófyrirséðum útköllum.
Fluglæknir hugar hér að stúlku
sem var með botnlangakast.
Þótt venjulega séu það flug-
mennirnir og áhöfn hverrar
þyrlu sem fá hrósið af
heppnaðri björgun, þá gleymist
oft það erfiða starf sem flug-
virkjar sveitarinnar verða að
vinna. Um þá hefur einn úr
áhöfinni komist svo að orði:
„Þeir sem sjá um viðhald véla-
kosts okkar vinna við kaldar og
erfiðar aðstæður. Þeir eru alla
tíð kámugir og skltugir og
vinna mikið verk sem vinna
verður. Við fljúgum vélunum,
en það eru þeir sem láta okkur I
té flughæfar vélar."
Flugvirkjarnir sjálfir eru
ekkert að telja eftir sér sitt
framlag til verks þess sem
sveitin leysir af henda, og það
sama má reyndar segja um alla
aðra meðlimi þessarar björg-
unarsveitar. Að sögn hugsa þeir
aðeins um það eitt að vinna vel
verkefni þau sem þeir eru
beðnir um að vinna á sviði
björgunar og/eða leitar. Hjá
þeim eru ekki til nein landa-
mæri eða þjóðernis- og litar-
háttarmörk. Þeir sem skipa
björgunarsveit Varnarliðsins
hafa alla tlð, og munu alla tlð,
vinna undir eigin kjörorði: „Að
aðrir fái lifað". —ágás
5 ára