Morgunblaðið - 29.03.1977, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 29.03.1977, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1977 Fjármálaráðherra: Nefnd kannar hvort æskilegri sé ríkis- eða einkarekstur MORGUNBLAÐINU barst I gær- kvöldi eftirfarandi fréttatil- kynning frá f jármálaráðuneyt- inu: Fjármálaráðherra boðaði við fyrstu umræðu fjárlaga ársins 1977, að athugun yrði gerð á því, hvort ýmissi framleiðslu- og þjón- ustustarfsemi, sem hið opinbera hefur með höndum, sé betur fyrir komið hjá einstaklingum eða sam- tökum þeirra. Sérstaklega skyldi athuga, hvort aðild ríkisins að at- vinnustarfsemi í landinu í sam- keppni við einkaaðila sé æskileg. I samræmi við þetta hefur fjár- málaráðherra í dag skipað 7 manna nefnd til að gera athugan- ir og tillögur f þessu efni. Er nefndinni ætlað að ljúka störfum fyrir lok þessa árs. í nefndinni eiga sæti: Árni Vilhjálmsson, prófessor, for- maður, Gísli Blöndal, hagsýslu- stjóri, Guðríður Eliasdóttir, form. Verkakvennafél. Framtíðarinnar, Ingi Tryggvason, alþingismaður, Jón Árnason, alþingismaður, Ölafur Sverrisson, kaupfélags- stjóri, Víglundur Þorsteinsson, framkvæmdastjóri. Fjármálaráðuneytið, 28. mars 1977. Vinnustöðvunin kemur niður á öðrum verkþátt- um og seinkar verklokum MORGUNBLAÐIÐ fékk þær upp- lýsingar í gær að staðan væri enn óbreytt I vinnudeilunni við Kröflu, þ.e. að starfsmenn Slipp- stöðvarinnar og Þingeyskra verk- taka, sem lögðu niður vinnu á fimmtudaginn, hefðu enn ekki tekið upp störf. Hins vegar hafa ekki fleiri vinnuhópar hafið vinnustöðvun eins og jafnvel var búist við fyrir helgi. Helgarfrf var hjá meirihluta starfsmanna þar yfir helgina þangað til f gær- kvöldi. Eru nú um 130 manns starfandi við Kröflu, en voru um 170 þar til fyrrnefndir hópar lögðu niður vinnu á fimmtu- daginn. Tvær um- sóknir um þrjú prestaköll UMSÓKNARFRES'Í'LK um prestsembætti í Vestmannaeyj- um, Siglufirði og á Ólafsfirði rann út um helgina. Samkvæmt upplýsingum biskupsritara barst engin umsókn um Vestmannaeyjar, en þar er um að ræða annað tveggja prests- embætta á staðnum, en sr. Þor- steinn L. Jónsson gegndi því til síðustu áramóta, þegar hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Um Siglufjörð barst ein umsókn, frá sr. Vigfúsi Þór Árnasyni, settum sóknarpresti, og um Ólafsfjörð barst einnig ein umsókn, frá sr. Ulfari Guðmundssyni, settum sóknarpresti. Að sögn Einars Tjörva, fram- kvæmdarstjóra Kröflunefndar, getur nefndin sem slik litið að- hafst í máli sem þessu. — Kröflu- nefnd er verkkaupi fyrir hönd ríkisins og við getum ekki sagt verktaka að hann verði að leysa vinnudeilu við sína menn, sagði Einar Tjörvi. — Vissulega reynum við þó að þrýsta á með lausn þessarar deilu til að ná upp sama vinnuhraða og afköstum við virkjunina og áður. — Áður en þessi vinnustöðvun kom til töldum við okkur hafa möguleika á að standa við þau áform að setja fyrri vél virkjunar- innar af stað upp úr 15. apríl. E.t.v. hefði orðið nokkurra daga seinkun á þvi vegna rasksins sem varð meðan óvissuástand var á svæðinu í janúar og síðan aftur í marz. Við misstum þar 5 daga fyrir helminginn af mannskapn- um og það eru um 500 manndagar Framhald á bls. 46 Guðmundur vann og Helgi reynir að ná alþjóða meistaratitli ÞRIÐJA umferð alþjóðaskák- mótsins i Genf l Sviss var tefld f gær. Urslit urðu m.a. þau að Guðmundur Sigurjónsson vann stórmeistarann Westerinen frá Finnlandi I að- eins 22 leikjum, en Friðrik Ólafsson á mun lakari biðskák gegn Torre frá Filipseyjum. Er skákin jafnvel töpuð að Framhald á bls. 46 Ráðstefnan sem sjávarútvegsráðuneytið gekkst fyrir I Hnffsdal s.l. sunnudag um sjávarútvegsmál var fjölsótt og sóttu hana menn frá öllum Vestfjörðum. Eftir áð framsöguerindi höfðu verið flutt svöruðu framsögumenn fyrirspurnum. Myndina tók Friðþjófur af hluta ráðstefnugesta. Aflahrota á Halanum: Guðbjörg fékk 100 tonn á einum degi — og Guðbjartur fékk 20 tonn á 25 mínútum MIKIL aflahrota er nú á Halamiðum, en mikill fisk- ur virðist hafa gengið á þessi frægu mið eftir miðja síðustu viku. Þess eru dæmi að togararnir hafi fengið allt upp í 20 lestir eftir 25 mínútna tog, en það fékk Guðbjartur frá ísafirði á laugardag. Þá er Morgunblaðinu kunnugt um að ísafjarðartogarinn Guðbjörg fékk 90—100 tonn af þorski á laugardeg- inum einum. Allir ísafjarðartogararnir komu inn með fullfermi af þorski á laugardag og sunnudag. Guðbjart- ur kom á laugardagskvöld með 185 lestir, Júlíus Géirmundsson kom á sunnudagsmoréun með 165 estir, Guðbjörg kom með 190 lest- Aðalfundur Sam- taka sykursjúkra SAMTÖK sykursjúkra halda aðal- fund sinn í kvöld, þriðjudag, 29. marz í Átthagasal Hótel Sögu kl. 20.30. Auk venjulegra aðal- fundarstarfa flytur Ársæll Jóns- son, læknir, fræðsluerindi og Ómar Ragnarsson skemmtir. Tillaga 6 þingmanna: Hraðbrautargjald, sem bætist við bensínverð Nái aðeins til Reykjavíkur, Reykjaness og Suðurlands FRAM VAR lögð á Alþingi í gær breytingartillaga við Vega- áætlun 1977—1980 sem felur I sér, að nýta skuli heimild i 95. gr. vegalaga um umferðargjald af bifreiðum, til að innheimta sérstakt hraðbrautargjald af bensfni og dieselollu, kr. 2.00 á hvern lítra eldsneytis, á þeim stöðum, sem „tengjast vega- kerfi með varanlegu slitlagi“. Gjaldið er staðbundið og mið- ast við útsölustaði á þeim land- svæðum, þar sem samfelldar hraðbr'autir með varanlegu slit- lagi eru a.m.k. 50 km að lengd. Flutningsmenn tillögunnar eru Karvel Pálmason (SFV), Ragn- ar Arnalds (Abl), Helgi F. Seljan (Abl) Steingrfmur Her- mannsson (F), Stefán Jónsson (Abl) og Sighvatur Björgvins- son (A). í framsögu Karvels Pálma- sonar kom fram að þetta nýja hraðbrautargjald myndi gefa Vegasjóði 180 m.kr. tekjur á ársgrundvelli ef samþykkt verður, miðað við að það nái til Reykjavfkur, Reykjaness og Suðurlands. Ráðherra skal ákveða f reglugerð, hvaða út- sölustaðir á landinu falli undir hraðbrautarskattinn. ir og Páll Pálsson með 180 lestir þennan sama dag. Samkvæmt peim upplýsingum, sem Morgun- blaðið fékk hjá Landhelgisgæzl- unni í gær, hafa verið taldir milli 30 og 40 íslenzkir togarar á þess- um miðum síðustu daga. Hörður Guðbjartsson, skipstjóri á skuttogaranum Guðbjarti ÍS, sagði í samtali við blaðamann Morgunblaðsins á ísafirði á sunnudag að þeir hefðu fengið meirihlutann af aflarium i flot- trollið en hins vegar fengist einn- ig góður afli í botnvörpuna á Halamiðum um þessar mundir. Nefndi Hörður sem dæmt, að þeir hefðu fengið 20 tonn f 25 mínútna hali á laugardagsmorgun. „Það hefur ekki brugðist að þegar ráðstefnur um sjávarút- vegsmál hafa verið haldnar hér, þá hefur komið mikil aflahrota. Á s.l. ári hélt landhelgisnefndin hér tvo fundi og bæði skiptin gerðist það að mikil aflahrota kom þegar fundurinn hafði verið boðaður og svo gerist það nú að þegar sjávar- útvegsráðherra boðar til ráð- stefnu, þá kemur aftur hrota.“ Aðalfundur miðstjómar Framsóknarflokksins: Ólafur Jóhannesson endurkjörinn form. AÐALFUNDUR miðstjórnar Framsóknarflokksins var haldinn á Hótel Sögu f Reykjavfk um helgina. Á laugardaginn var kosið f trúnaðarstöður og hlutu allir þeir endurkosningu, sem voru f helstu trúnaðarstöðum innan flokksins. Ólafur Jóhannesson var endur- kjörinn formaður Framsóknar- flokksins. Einar Ágústsson var endurkjörinn varaformaður, Steingrímur Hermannsson var endurkjörinn ritari og Tómas Árnason var endurkjörinn gjald- keri flokksins. Þá var Ragnheiður Sveinbjörnsdóttir endurkjörin vararitari og Guðmundur G. Þór- arinsson endurkjörinn varagjald- keri. Þá var kjörið í framkvæmda- stjórn. Sjálfkjörnir eru formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri og formaður SUF en kosningu hlutu Eysteinn Jónsson, Helgi Bergs, Þórarinn Þórarinsson, Erlendur Einarsson, Guðmundur G. Þórar- insson, Hákon Sigurgrfmsson, Jónas Jónsson, Ragnheiður Svein- björnsdóttir og Eggert Jóhannes- son, Varamenn voru kjörnir Hall- dór Ásgrímsson, Gerður Stein- þórsdóttir og Hannes Pálsson. Rétt til setu á aðalfundinum áttu 115 fulltrúar og sátu fundinn 112 fulltrúar. Aðalfundur mið- stjórnar er haldinn árlega og fer hann með næst æðsta vald innan flokksins á eftir flokksþingi, em haldið er fjórða hvert ár. Á aðalfundinum var samþykkt ítarleg stjórnmálaályktun. Aðal- fundinum lauk á sunnudagskvöld með afmælisfagnaði á Hótel Sögu, en þar var haldið upp á 60 ára afmæli flokksins og flokksblaðs- ins Tfmans. Ólafur Jóhannesson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.