Morgunblaðið - 29.03.1977, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 29.03.1977, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1977 21 fíftróHlr I ERFIÐUR RÚÐURIHM — Nokkrir leikja okkar hafa alls ekki verið ójafnir, en það sem háir Islenzku keppendunum er tvfmælalaust reynsluleysi, sagði Sigurður Guðmundsson, einn af fararstjórum Islenzka borðtennis- landsliðsins sem nú er að keppa ( Birmingham í Englandi. Höfðu Ísleudingar i gær keppt við Noreg, Wales og Túnis f karla- flokki og við Spán og Ecuador f kvennaflokki og tapað öllum leikjunum án þess að fá vinning. Munaði þó stundum mjóu, sér- staklega í tvfliðaleik kvenna f landsleiknum við Ecuador, þar sem oddaleik þurfti til þess að ná fram úrslitum. — Það er áberandi, sagði Sig- urður, — að okkar menn hafa oft náð góðri stöðu f leikjum sfnum, en sfðan misst þá út úr höndun- um á sér og tapað. t gær átti tsland að keppa við Trinidad og Tobago og Kýpur f karlaflokki og við Finnland f kvennaflokki. N.k. föstudag hefst svo einstaklingskeppni mótsins, og verða lslendingarnir einnig þar meðal keppenda. Kfnverjar hafa til þessa verið mjög sigursælir á mótinu f Birmingham, og unnið flesta leiki sfna fyrirhafnarlftið. Virð- ast þeir vera f nokkrum sérflokki, og er talið nokkurn veginn vfst að heimsmeistaratitilinn a.m.k. f flokkakeppninni falli þeim f skaut. Jafnt hjá Fram og IA Einn leikur fór fram I meistara gegn engu. og var það markakóngur keppni KSl á sunnudaginn. Þá gerSu Fram og ÍA jafntefli 2:2. SkoruBu þeir Kristinn Björnsson og Jón Gunnlaugsson fyrir Skagamenn, en Sigurbergur Sigsteinsson og Gunnar Guðmundsson fyrir Fram. Á föstu- dagskvöldið sigruBu Valsmenn svo Fram I móti þessu meB einu marki Valsmanna. Ingi Björn Albertsson. sem markiB skoraBi. Þá fór fram einn leikur I „Litlu- bikarkeppninni" um helgina. ÍBK og Haukar leiddu saman hesta slna og sigruSu KeflavHcingar meB einu marki gegn engu. SkoraBi Þórir Sig- fússon markiS. TVO GULL, TVO SILFUR, TVO BRONS UPPSKERA ÍSLENZKU JÚDÓMANNANNA Á NORÐURLANDAMEISTARAMÓTINU Segja má með sanni að nú sé skammt stðrra högga á milli hjá íslenzkum íþrðttamönnum. Óþarfi mun að rif ja það upp að fslenzka handknattleikslandsliðið hefur skip- að sér í hóp þeirra beztu í heiminum, og að Hreinn Halldðrsson hreppti Evrðpumeistaratitilinn í kúluvarpi. En nú um helginga kepptu sjö íslenzkir júdðmenn á Norðurlandameistaramðtinu í Noregi og koma heim þaðan með tvenn gullverðlaun, tvenn silfurverðlaun og tvenn bronsverðlaun. Þðtt vitað væri að íslenzkir júdð- menn stæðu framarlega í fþrðtt sinni, þá er þessi árangur mun glæsilegri en jafnvel hinir bjartsýnustu höfðu þorað að vona. Þaö voru þeir Gfsli Þorsteins- son og Halldór Guðbjörnsson sem hlutu Norðurlanda- meistaratitla í sfnum þyngdar- flokkum og silfurverðlaunin féllu í hlut þeirra Svavars Carlsens og Viðars Guðjohns- ens. Gísli Þorsteinsson hlaut einnig bronsverðlaun í opna flokknum, þar sem hann keppti við sér miklu þyngri menn, og fslenzka sveitin hlaut brons- verðlaun í sveitakeppninni. —Þetta er stórglæsilegur árangur og staðfestir hversu góðir strákarnir eru orðnir, sagði Eysteinn Þorvaldsson, formaður Júdósambands ísiands, I viðtali við Morgun- blaðið i gær. — Var það vissu- lega mikil ánægja að fá þessar fréttir af þeim. Þær urðu okkur umbun þess erfiðis sem var þvf samfara að koma þeim út, en fjárhagur Júdósambandsins er nú mjög erfiður, og það ekki nein smáræðis „sláttu- mennska" sem við urðum að standa I til þess að unnt væri að senda liðið utan. 1 henni urðu meira að segja iþróttamennirn- ir sjálfir að taka þátt. Má segja Svavar — hiaut sflfur f þungavigt og tapaði ekkf glfmu f flokka- keppnfnni. Viðar Guðjohnsen — hlaut silfur- verðlaun f sfnum þyngdarflokkf. að nær allt starf okkar fari I að ná inn fjármagni, og að menn séu orðnir meira en lítið þreytt- ir á þeim störfum. Glæsilegir sigrar Gisli Þorsteinsson varð Norðurlandameistari í sinum þyngdarflokki á mótinu í fyrra og hafði því titilinn að verja núna. og það gerði hann líka svo um munaði. Til úrslita keppti hann við Danann Nordestgaard og stóð viðureign þeirra aðeins I 20 sekúndur. Náði Gísli góðu taki á and- stæðingnum og sveiflaði honum í gólfið — vann fullnaðarsigur, ippon, eins og það heitir á máli júdómanna. Halldór Guðbjörnsson keppti til úrslita við Finna í sinum þyngdarflokki og átti þar eng- inn von á islenzkum sigri. En Halldór er eitilharður keppnis- maður og hafði greinilega bet- ur allan tímann í viðureigninni við andstæðing sinn. Hlaut hann þrisvar sinnum „koka“ i keppninni þ.e. þrjú stig. Svavar Carlsen keppti til úr- slita í þungaflokknum við Norð- manninn Erik Haaker. Voru þeir jafnir að stigum að lokinni keppninni, og kom þvi í hlut dómaranna að úrskurða sigur- vegara, og felldu þeir þann dóm að Haaker hefði sigrað. Viðar Guðjohnsen keppti til úrslita við Svíann Claus H'all, en sá mun vera júdómaður i fremstu röð. Ekki tókst að afla nákvæmra frétta af viðureign þeirra, en Svíinn hlaut sigur- inn. Gísli Þorsteinsson keppti svo í opna flokknum og hlaut þar bronsverðlaunin, en ekki er heldur vitað fyrir hverjum hann tapaði. 1 opna flokknum keppa yfirleitt þyngstu mennirnir, og vafalaust hefur jfsli einnig verið tekinn að jreytast undir lokin, þar sem aann keppti tiu sinnum þennan iag. Óheppni f flokkakeppninni 8 í flokkakeppninni var ekki hægt að segja að Islendingarnir hefðu heppnina með sér. Þeir mættu Finnum i fyrstu umferð, og þá varð einn íslendinganna, Jóhannes Haraldsson, sem keppir I léttasta flokknum, fyrir því óhappi að meiðast og gat hann því ekki verið meira með. Þar sem íslendngar höfðu engan varamann fengu því aðr- ir keppinautar okkar einn vinn- ing á „þurru“. íslendingar sigr- uðu i þremur glimum við Finna, töpuðu þremur og ein varð jöfn. Hins vegar var Finn- um dæmdur sigur i lands- keppninni, þar sem þeir höfðu fleiri heildarstig í viðureign- unum. íslendingar töpuðu svo einnig fyrir Svíum og Dönum, mjög naumlega, en unnu Norð- menn 4—3. Svavar Carlsen stóð sig allra manna bezt I sveitakeppninni og vann hann þar allar viður- eignir sínar glæsilega. Viðar Guðjohnsen vann þrjá keppi- nauta sina, en gerði jafnt við einn, Gísli þorsteinsson vann Gísli Þorsteinsson — varði titil sinn með miklum glæsibrag og sigraði and- stæðing sinn á „ippon“ í úrslitaglfmunni. þrjá og tapaði fyrir einum og Halldór Guðbjörnsson vann tvo, gerði jafntefli við einn og tapaði fyrir einum. Hins vegar gekk ekki eins vel I léttari flokkunum. Slæm framkvæmd Eysteinn Þorvaldsson sagði, að framkvæmd mótsins hefði tæpast verið nægjanlega góð. Þannig hefðu dýnurnar verið slæmar, og það hefði t.d. or- sakað meiðsli Jóhannesar Haraldssonar. Dómgæzlan hefði einnig verið fremur slök, og t.d. komið niður á íslend- ingum i flokkakeppninni. Þannig var Halldór Guðbjörbs- son búinn að ná einum keppi- nauta sinna I fastatak við gólf, er flautað var til merkis um að tíminn væri búinn. Þá vantaði hins vegar mínútu uppá og varð Halldór þvi af vinningi I viður- eigninni. — En ég er ekki frá þvi að þetta hafi orðið til þess að Halldór var enn harðari í einstaklingskeppninni á sunnu- daginn, sagði Eysteinn, — það mun hafa farið meira en litið í skapið á honum að láta dómar- ana fara svona með sig. Halldór Guðbjörnsson, — sigur hans á Norðurlandamótinu kom mjög á óvart, en staðfestir hversu góður júdómaður Halldór er.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.