Morgunblaðið - 07.05.1977, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 07.05.1977, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. MAÍ 1977 Æbílaleigan felEYSIR LAUGAVEGI 66 CAR RENTAL 24460 28810 Hótal- og flugvallaþjónusta LOFTLEIDIR ■H 2 1190 2 llSSi Hjartanlegt þakklæti til allra sem sýndu mér hlýhug á 80 ára af- mæli mínu. Guð blessi ykkur öll. /ngigerður Guðjónsdóttir, Kirkju/ækjarkoti. Hjartanlega þakka ég öllum, skyldum og vandalausum, fyrir gjafir og heillaóskir á áttræðisaf- mælinu. Kristján Jónsson, Snorrastöðum. Simrad EY í trilluna. Simrad Ey er mjög hag- kvæmur dýptarmælir fyrir grunn sævi, 8 dýptarsvið að 360 metrum, 70 kílórið, 6” þurrpappír í kasettum sem má tvínota, botnlína og dynalína, skali fyrir fet, metra eða faðma, 12 volta spenna. Skrifið, hringið eða komið sendum allar upplýsingar um hæl. Viðgerðar- og varahlutaþjónusta. Friðrik A. Jónsson h.f. Bræðraborgarstíg 1, símar 14135 — 14340. ÞU AUGLYSIR UM ALLT LAND ÞEGAR ÞÚ AUGLÝSIR í MORGUNBLAÐINU \I (.LVSINf. \- SIMINN ER: • 22480 utvarp Reykjavík L4UG4RD4GUR 7. maf MORGUNNINN 7.00 Morgunútvarp Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.15 og 8.50. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for- ustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.50. Morgunstund barnanna kl. 8.00: Sigurður Gunnarsson heldur áfram lestri sögunnar „Sumars á fjöllum" eftir Knut Ilauge (12). Tilkynningar kl. 9.00. Létt lög milli atriða. Óskalög sjúklinga kl. 9.15: Kristín Sveinbjörnsdóttir kynnir. Barnatími kl. 11.10: Gunnvör Braga sér um tímann, þar sem fjallað verður um rit- gerðarsamkeppni 11 ára skólabarna um umferðarmál. Auk stjórnanda koma fram f tfmanum: Guðmundur Þor- steinsson, Hildur Svavars- dóttir, Lúsfa Lund, Þorri Þor- kelsson og Þórunn Hjartar- dóttir. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. SIÐDEGIÐ 12.25 Veðurfregnir og fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 13.30 Á seyði Einar örn Stefánsson sér um þáttinn. 15.00 i tónsmiðjunni Atli Heimir Sveinsson sér um þáttinn (25). 16.00 Fréttir 16.35 Tónleikar. 17.30 „Vertu maður til að standa við þfna skoðun** Guðrún Guðlaugsdóttir talar við Baldvin Sigurðsson. 18.00 Söngvar í léttum dúr. Til- kynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. KVÓLDIÐ 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Ekki beinlfnis Böðvar Guðmundsson rabbar við Stefán Þorláksson og Þrá- in Karlsson um heima og geima, en einkanlega um hesta. Hljóðritun frá Akur- eyri. 20.15 Tónlist úr óperettunni „Syni keisarans" eftir Franz Lehár Rudolf Schock, Renate Holm o.fl. syngja. Sinfónfuhljóm- sveitin í Berlín leikur. Stjórnandi: Robert Stolz. 20.45 Upphaf þekkingarfræði Arthur Björgvin Bollason flytur erindi um fáein atriði forngrískrar heimspeki. 21.40 Allt f grænum sjó Stolið, stælt og skrumskælt af Hrafni Pálssyni og Jör- undi Guðmundssyni. Gestur þáttarins ókunnur. 22.00 Fréttir 22.15 Veðurfregnir Danslög 23.55 Fréttir. Dagskrárlok. mtmmm Laugardagur 7. maf 1977 17.00 Iþróttir Umsjónarmaður Bjarni Felixson. 18.35 Litli'lávarðurinn (L) Breskur framhaldsmynda- flokkur. 3. þáttur. Þýðandi Jón O. Edwald. 19.00 íþróttir II lé 20.00 Fréttir og veður 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.30 Læknir á ferð og flugi (L) Breskur framhaldsmynda- flokkur Prófraunin Þýðandi Stefán Jökulsson 21.00 Dansskóli Sigvalda Nemendur úr skólanum sýna dans. Stjón upptöku Egill Eð- varðsson. 21.30 Leiðín á tindinn. (Room at the Top) Bresk bíómynd frá árinu 1959. Leikstjóri Jack Clayton, Aðalhlutverk Laurence Ilarvey, Simone Signoret, Framgjarn ungur maður, Joe Lampton, flytur f smá- bæ og stofnar til kynna við dóttur rfkasta manns bæjar- ins með það i huga að giftast til fjár. 23.20 Dagskáriok Skjárinn kl. 17:00: Knattspyrna og rathlaup Útvarp kl. 21:40: Allt í grænum sjó A skjánum kl. 17 í dag er íþróttaþáttur í umsjá Bjarna Felixsonar. Um efni þáttarins sagði Bjarni í spjalli við Mbl.: „í fyrri hlutanum verður sýndur leikur frá islandsmót- inu í knattspyrnu sem fram fer fyrr um daginn. Það verður að vera leyndarmál hvaða leikur þetta er , af eðlilegum ástæðum. í síðari hluta þáttar- ins verður kynnt íþróttinn orienteering, eða rathlaup eins og ég vil kalla það. Framundan er að þessi íþrótt verði tekin upp hériendis, og verður senni- lega fyrsta hlaupið í Hallorms- staðarskógi í sumar. 1 því tilefni mun ég ræða við Aust- firðinga um íþróttina. Myndin sem verður sýnd er norsk kynningarmynd, en árangur í rathlaupi byggir í senn á leikni i að lesa af landakorti og á hlaupi. Afrekstgeta f öðru hvoru er ekki nægjanleg til árangurs, heldur sambland hvors tveggja. í síðari hlutanum verða einnig einhverjar myndir frá kynningarmóti hestamanna á Víðivöllum frá fyrri helgi, en á móti þvf voru kynntar keppnis- greinar á Evrópumóti íslenzkra hestaeigenda. Ef tími Ieyfir verða sennilega einhverjar stuttar amerískar íþróttamynd- ir i þættinum." Varðandi íþróttaþáttinn sem er á dagskrá sjónvarps kl. 20.30 á mánudagskvöld sagði Bjarni að þar yrðu sýndar myndir frá firmakeppni í fimleikum, heimsmeistaramóti i list- hlaupum á skautum, auk stuttra amerískra íþróttamynda af íþróttum, sem sérstaklega eru stundaðar af Ameriku- mönnum og engum öðrum. „Við munum halda uppi svip- uðum hætti og undanfarið, og leika okkur að hinu og þessu í þessum þætti,“ sagði Hrafn Pálsson er við spurðum hann frétta af þætti hans og Jörundar Guðmundssonar, Allt f grænum sjó, sem er á dagskrá hljóðvarpsins kl. 21.40 í kvöld. Sagði Hrafn að fyrst yrði smá- þáttur er nefnist Úr innviðum bókmenntanna, en f þeim þætti verður rætt við bónda utan af landi sem ritað hefur djarfa bók og er með aðra í bígerð. Þá mun Jörundur syngja síðbuið þjóðhátíðarlag sem bannað var 1974, eins og Hrafn orðaði það. Síðan fá þeir féiagar að fara inn i eitt af þessum fyrir- tækjum sem útlendingar setja hér á stofn, en að þessu sinni er það hjúskaparmiðlun. Þá verður fylgst með vaskri konu sem ætlar með mikla yfirvigt í gegnum flughöfnina á Kefla- víkurvelli, svo að dæmi séu tekin úr annars fjölbreyttum þætti, að sögn Hrafns. Að sögn Hrafns Pálssonar er ekki klárt með framhald þátta þeirra félaga. „Þetta er allt f athugun einmitt núna. Þættirnir eru á nokkuð óhent- ugum tíma, er verið er að at- huga þau mál einmitt núna, og þá einnig hugsanlegt breytt form þáttarins verði framhald á honum,“ sagði Hrafn. Skjárinn kl. 20:30: Prófraunir nú hjá læknum sem öðrum Hinn vinsæli enski gaman- myndaþáttur Læknir á ferð og flugi er að vanda i sjónvarpinu f kvöld. Og rétt sem hjá mörgum námsmanninum um þessar mundir þá eru próf- raunir vandamálið sem glímt er við i þessum þætti. Að sögn Stefáns Jökulssonar þýðanda þáttarins, þá kemur upp sú staða í þessum þætti, að Waring, aðstoðarmaður Loftusar, er ekki menntaður tíl jafns við marga lækna er sitja um stöðu hans. Því verður Waring að taka sig til og hressa örlitið upp á kunnáttuna. En þegar til kemur þá gengur honum erfiðlega að finna stað og stund fyrir lærdóminn eða þar til starfstúlka á sjúkrahúsinu býðut honum að flytjast heim til sfn. Þessu getur unnusti hennar ekki unað, sem eðlilegt er, og út frá þessu spinnast svo ýmsar glettur, að sögn Stefáns.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.