Morgunblaðið - 07.05.1977, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 07.05.1977, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. MAÍ 1977 Minning: Steimmn Guðmundsdótt- ir frá Leirvogstungu Fædd 28. marz 1909 Dáin 29. aprfl 1977 í dag er til moldar borin mág- kona mín, frú Steinunn Guðmundsdóttir, sem lézt að heimili sínu hér í bæ 29. apríl s.l. Hún fæddist að Barmi i Gufu- dalssveit 28. marz 1909, en sieit fyrstu barnsskónum í Svefn- eyjum á Breiðafirði. Árið 1914 flyzt hún með foreldrum sínum til Bíldudals og þar ólst hún upp til 18 ára aldurs. Hún var, blessuð sé minning hennar, um margt sérstakur per- sónuleiki, frekar hlédræg, fast- mótuð, hrein og sönn i öllum at- höfnum; um það bar handtak hennar, fast, þétt og hlýtt, ljósastan vottinn. Hún unni íslenzkri náttúru af alhug og úti- líf var henni alla tíð mjög að skapi. Enda þótt fátækt væri á uppvaxtarárum hennar allalmenn og sparsemi og nægjusemi væru öndvegisdyggðir, má fullyrða að á þriðja tugi aldarinnar væru dýrð- legir dagar á Bíldudal. Þrenging- ar fyrri heimsstyrjaldar voru hjá liðnar og ferskur vorhugur gagn- tók hugi ungs fólks á þessum árum, og ekki fritt við að hinir eldri hrifust með. Menn trúðu því almennt að nú væri þúsund ára ríkið í sjónmáli, aldrei framar styrjöld; sönn menning og menntun myndi setja manngildið ofar en áður, í stuttu máli, nýir og betri tímar að renna upp! Á Bildudal var þó allt með hefðbundnum hætti, skútuöldin ekki liðin undir lok. Um það báru mjallhvítu fiskreitirnir á sumrum bezt vitni; þar sem ungir og gamlir kepptust við breiðslu og samantekt daglangt. Bíldudalur var orðlagður fyrir fleira cn úrvals saltfisk; ungu blómarósirnar voru taldar með þeim álitlegustu um alla Vestfirði og þótt víðar væri leitað. Utvarp og aðrir slíkir fjölmiðlar voru óþekktir með öllu, allt skemmtanalíf var heimaunnið ef svo má segja. Starfandi var leik- félag, málfundafélag sem gaf út handskrifað blað, einnig var til ferðafélag, sem skipuiagði fjall- göngur og skógarferðir. Nóg var þvi að fást við i frístundum og fullyrða má að lifs- fyllingin sem unga fólkið hlaut við þátttöku í öllu þessu væri djúp og ósvikin. Á vorin og sumrin komu skúturnar inn eftir hálfsmánaðar túra, fullar af fiski, en á vetrum stóðu þær uppi á fjörukambi, rúnar öllum seglabúnaði og biðu vors og byrjar. 1 aprílmánuði var ævinlega byrjað að búa þær undir sumarúthaldið. Þá angaði um állt tjöruhamps- og biklyktin og hamarshöggin í smiðjunni glumdu allan daginn. Strákar og stelpur kvöbbuðu á stýrimönnum að fá léttbátana Iánaða til að veiða kola, ufsa og jafnvel smáþyrsk- ling frammi á vognum, því að þar var meiri veiðivon en við bryggjunar, sem þó voru þétt- setnar af smáfólkinu flesta daga. Haustkvöldin á Bíldudal báru þó af öllu öðru á þessum tímum, yfir þeim var ógleymanlegur sjarmi, sem vart verður með orðum lýst. Ilmur nýsleginnar töðu blandaðist gjarnan saman við birkiilminn, þegar heit golan eftir sólrfkan dag streymdi niður dalinn og fyllti vit manna slíkum unaði, að þeir þöndu brjóstið og teyguðu loftið stórum, hófust upp í hærra veldi og fannst þeir geta umfaðmað allt og alla. t Faðir minn ÓLAFUR GUÐNASON, fyrrum kaupmaður Miðtúni 38, lézt 2 maí. Guðni Ólafsson. Ef til vill heyrðist þá leikið fjör- lega á harmóniku i einhverju hús- inu, eða kannski margraddaður söngur við orgelleik úr öðru, ekki spillti það stemningunni, enda oft siður að koma saman i einhverju húsinu til að syngja eða hlusta á hljóðfæraleik. Þetta er að vísu ófullkomin lýs- ing á umhverfi þvi, sem frú Stein- unn Guðmundsdóttir ólst upp í, en í þessu öllu og miklu fleiru var hún þátttakandi af lífi og sál. Hún lék af mikilli snilld á harmóniku, veiddi fisk og vann af kappi, á við hvern annan að minsta kosti, bauð jafnöldrunum i krók og háseta, því vel var hún sterk, og máttu margir láta í minni pokann i þeim átökum. Árið 1928 eða þar um bil hleypti hún heimdraganum og hélt suður í Mosfellssveit í vinnu- mennsku, þar sem hún eftir nokkra dvöl kynntist eiginmanni sinum, bóndasyninum harðdug- lega og framsækna í Leirvogs- tungu. Ekki mun ofmælt þótt sagt sé að þau hjón hafi verið samtaka og samhent um flesta hluti, en að mörgu var að hyggja þvi að mest allt þurfti að byggja upp að nýju. En þau létu hvergi deigan siga, og er þar skemmst af að segja, að innan fárra ára bjuggu þau stóru rausnarbúi. Auk bústarfanná hlóðust margháttuð félagsmála- störf á húsbóndann, t.d. var hann oddviti þessa stóra og ört vaxandi hrepps um árabil til dauðadags. Húsfreyjan lét sinn hlut ekki eftir liggja og stóð fast við hlið manns síns í öllu þessu. Um þennan þátt i lífi frú Steinunnar eru margir aðrir mér fróðari og hef ég þvi ekki mörg orð hér um. Magnús heitinn Sveinsson lézt 20. sept. 1958, langt um aldur fram. Missir Steinunnar og sonanna þeirra tveggja, Guðmundar og Hlyns Þórs, var þvi mikill. Og nú viljum við, sem hérna megin erum, mega trúa því, að nú séu þau hjón aftur sameinuð handan móðunnar miklu. Ég votta sonum hennar, tengda- og barnabörnum dýpstu samúð mína. Guðbjartur Ólason. Steinunn Guðmundsdóttir sem jafnan hefur verið kennd við Leirvogstungu í Mosfellssveit, lézt á heimili sínu í Reykjavík hinn 29. apríl s.l. Hún fæddist 28. marz 1909 að Barmi i Gufudalssveit, dóttir hjónanna Guðmundar Arasonar og Þorbjargar Guðmundsdóttur. 1 frumbernsku fluttist hún með foreldrum sínum út í Svefneyjar á Breiðafirði og eftir fárra ára dvöl þar, eða árið 1914, til Bíldu- dals, þar sem foreldrar hennar bjuggu siðan allan sínn búskap. Guðmundur faðir hennar stúndaði alla almenna vinnu sem til féll á þeim tíma, og Þorbjörg móðir hennar var Ijósmóðir á Bíldudal. Þau eignuðust 10 börn og var Steinunn þeirra elzt, en auk þess ólu þau upp eina stúlku. Steinunn var í heimahúsum til 18 ára aldurs og vann í uppvextin- um við fiskverkun og annað til- fallandi í sjávarplássi, oft við vondan aðbúnað á vinnustað á mælikvarða nútímans. Stundum var líka erfitt að vera elzt systkina á þungu heimili, þegar foreldrar voru báðir að heiman. Það Iætur að líkum, vegna hinna mörgu sem þurfti að metta, að oft var þröngt í búi i þurrabúðinni á Bfldudal, þrátt fyrir mikinn dugnað og ósérhlífni heimilis- föðuriris. Mjólk var sjaldgæfur hátíðadrykkur öðrum en korna- börnum. Sú framtfðarvon var Steinunni heitust að geta stundað tónlistar- nám. Þessi von rættist ekki, en ennþá er til æfingabók fyrir orgelleik sem henni áskotnaðist — en orgelið vantaði. Hins vegar lék hún í uppvextinum á harmóniku fyrir dansi á almenn- um skemmtunum á Bíldudal og Minning—Þórður St Benediktsson útibús stjóri Egilsstöðum Fæddur: 21. desember 1919 Dáinn 2. maf 1977. jafnvel Patreksfirði og Flateyri, enda var hún afar músíkölsk. Það er líklega óvenjulegt að ólærð stelpa gegni einsömul hlutverki danshljómsveitar. Fram til hinztu stundar spilaði hún danslög af segulbandi á eldhúsborðinu á meðan hún vann verkin. Annað helzta áhugamál Stein- unnar og tómstundaiðja var veiði- skapur. Fyrir vestan veiddi hún á bryggjunni eins og barna er siður, en hitt þótti sérstæðara f þá daga, þegar hún kom í Mosfellssveitina, að ung kona skyldi una sér við að veiða lax og silung á stöng þegar tómstundir gáfust. Alla ævi var það einhver mesta ánægja hennar að vera úti í náttúrunni og draga göfuga fiska úr ám og vötnum, svo og að koma út á sjó. Sjómennska virtist henni í blóð borin, þótt aldrei væri hún á sjó i atvinnuskyni. Átján ára fór Steinunn úr föðurgarði og réðst í vinnu- mennsku að Vallá á Kjalarnesi og sfðan að Reykjum og Leirvogs- tungu í Mosfellssveit. Hinn 15. desember 1933 gekk hún að eiga Magnús Sveinsson í Leirvogstungu. Þau bjuggu fyrst á móti föreldrum hans, en síðan á jörðinni allri, allt þar til Magnús lézt árið 1958. Leirvogstungu- heimilið var í fjölmörg ár eril- samt umfram flest önnur heimili, þar sem Magnús var oddviti Mos- fellshrepps og gegndi mörgum öðrum trúnaðarstörfum. Heimilið var þá í hlutverki skrifstofu hreppsins og hreppsnefndar- f^indir voru yfirleitt haldnir þar. Það kom þá í hlut húsfreyjunnar að veita þann beina sem sjálf- sagður þótti í þann tíð. Fjölhæfni og atorka Steinunnar komu vel í ljós áþessum tima, þegar hús- bóndinn var með annan fótinn að heiman vegna opinberra starfa, en búfénaður heimtaði sitt. Eftir lát Magnúsar fluttist Steinunn til Reykjavíkur og hélt lengst af heimili fyrir yngri son sinn. Stundum vann hún þá utan heimilis. Þau Steinunn og Magnús eignuðust tvo syni. Steinunn var góð móðir og veit það enginn betur en synir hennar, tengda- dóttir og barnabörnin fjögur. Nú á skilnaðarstund er það ljósara en nokkru sinni fyrr. G.M. H.Þ.M. Það er skammt stórra högga á milli um Austurland þar sem á næstliðinni tíð hafa gengið fyrir ætternisstapa hinir verðmætustu forystumenn, Vilhjálmur Sigur- björnsson á Egilsstöðum, Svanur Sigurðsson á Breiðdalsvík, Jón Erlingur Guðmundsson á Fáskrúðsfirði, Þórhallur Dan. Kristjánsson á Höfn í Hornafirði, Ingvar Ingvarsson á Desjarmýri, og nú siðast Þórður Benediktsson á Egilsstöðum, svo ég orðfæri það sem mér kemur strax í hug. Allir í blóma lífs síns og bústólpar sinna sveita. Andlát Þórðar Benediktssonar kom ekki i opna skjöldu vinum hans, en sól hefir brugðið sumri með ótiðindum. Hann var þeirra manna sem mér hefir mest þótt til koma. Hreinskiptinn drengskaparmaður og mátti ekki vamm sitt vita. Þórður Stefán Benediktsson, en svo hét hann fullu nafni, var fæddur 21. desember 1919 að Mosfelli í Svinadal í Austur- Húnavatnssýlu, sonur Benedikts Helgasonar bónda þar og konu hans Guðrúnar Þorláksdóttur. Leið hans lát til Austurlands á ungur.i árum og þreytti hann nám sitt á Eiðum og varði síðan starfs- kröftum sinum til mikilla heilla þar sem hann kom við sögu. Hann var kennari á Jökulsárhlíð og á Reyðarfirði um árabil en tók við skólastjórn á Egilsstöðum 1956 og gegndi því starfi af þeim myndar- skap sem honum var laginn, þar til hann gerðist útibússtjóri Bún- aðarbanka íslands á Egilsstöðum en þvi gegndi hann til æviloka. Eftirlifandi kona Þórðar er Steinunn Guðnadóttir, Jónssonar frá Eskifirði. Þeim varð sjö barna auðið sem uxu úr grasi á ein- hverju hlýlegasta heimili sem ég hefi gist. Börn þeirrar eru: Bene- dikt, rafvirki, ókvæntur, Pétur, skólastjóri, kvæntur Guðnýju Ölafsdóttur, Guðný, gift Óia J. K. Magnússyni, bifreiðastjóra, Helgi, verkamaður, heitbundinn Svan- borgu Björnsdóttur, Steinar, menntaskólanemi, Guðrún, gift Magnúsi Kristjánssyni, síma- manni, og Védís, yngst i heima- húsum. Á einum stað stendur skrifað: „Nemið staðar við vegina og litizt um.“ Spyrjið um gömlu göturnar, og ef það er hamingjuleiðin þá farið hana og sálir yðar munu öðlast hvild.“ Þórður Benediktsson, hinn gáf- aði og einarði maður, nam staðar við vegina og litaðist um. Hann rataði gömlu göturnar íslendings- ins, sem vann þjóð sinni. Hann fann hamingjuleiðina með maka sínum og börnum. Sál hans hefir öðlazt hvild. Ég bið honum og hans blessunar Guðs. Sverrir Hermannsson. í dag fer fram frá kirkjunni á Egilsstöðum útför Þórðar Bene- diktssonar útibústjóra Búnaðar- bankans á Egilsstöðum. Þórður var fæddur 21. desember 1919 að Mosfelli í Svínadal A-Hún. Foreldrar Guð- rún Þorláksdóttir og Benedikt Helgason. Systkini Þórðar voru mörg, heimilið efnalitið og þess vegna mun það hafa verið, að hann fluttist ungur austur á land, fyrst til systur sinnar að Selja- teigi i Reyðarfirði. Síðar lendir hann upp á Hérað og var lengst á Hallgeirsstöðum og Surtsstöðum í Jökulsárhlíð. Hann bar jafnan síðan sérstaka tryggð til þessara heimila. Þórður var í Alþýðuskólanum á Eiðum 1937 — 1939. Hann var kennari í Jökulsárhlið 1940 — 1943, fór eftir það í kennaraskól- ann og lauk kennaraprófi 1946. Hann var siðan kennari á ýmsum stöðum á Austurlandi, þangað til hann varð skólastjóri við barna- skólann á Egilsstöðum 1956 til 1. janúar 1967, er hann var skipaður bankastjóri sem áður segir. Því starfi gegndi hann síðan til dauða- dags. Það má segja, að Þórður sé einn af landsnámsmönnum í Egilstaða- kauptúni, þótt ekki flyttist hann þangað strax og þorpið tók að myndast. Sennilega hefur enginn einn maður stuðlað meira að vexti og vigangi þéttbýlis hér á mið- héraði en hann með forystu í menningar- og félagsmálum og þó ekki sist á sviði atvinnumála. Ég held að Þórður hafi átt drjúgan þátt i stofnun flestra þeirra at- vinnufyrirtækja, sem þar eru starfandi nú. t ungu og vaxandi byggðarlagi eins og á Egilsstöðum verður hver einstaklingur að skila meira starfi en annars staðar, þar sem hægt er að fara troðnar slóðir. Þess vegna hlóðust ótal störf á Þórð. Hann sat í hreppsnefnd, var hreppstjóri um skeið og átti sæti I sóknarnefnd. Það vár fyrst og fremst fyrir hans atbeina, að Egilsstaðakirkja komst svo fljótt upp sem raun ber vitni. Árið 1959 var stofnaður Sparisjóður Fljóts- dalshéraðs, Ðórður var einn af stofnendum hans og sparisjóðs- stjóri þangað til sjóðurinn var sameinaður Búnaðarbankanum 1967. Haustið 1949 gengur Þórður að eiga Steinunni Guðnadóttur frá Eskifirði. Þeirra hjónaband er Sœunn Magnús- dóttir—Minning Sumardagurinn fyrsti rann upp hlýr og fagur. Þann dag varð hún Sæa sjötug, og sonur hennar og tengdadóttir héldu henni veglega veislu í tilefni dagsins. Þar glödd- ust vinir og vandamenn Sæunnar og áttum við þar saman ánægju- lega kvöldstund. Engan óraði fyrir þvi þá, að þessi sumardagur væri kveðjustundin — vegir guðs eru órannsakanlegir tiu dögum síðar var hún liðin. Sæunn Magnúsdóttir frá Hóli í Bolungarvik fæddist 21. apríl 1907. Foreldrar hennar voru þau Helga Ólafsdóttir og Magnús Pálmi Tyrfingsson, bóndi á Hóli. Þau áttu átta börn og ólu auk þess upp eitt fósturbarn. Sæunn ólst upp í foreldrahúsum til tvitugsaldurs, en þá réðst hún í víst til Reykjavíkur. Segja má að það hafi verið sú menntunarleið sem ungar stúlkur áttu kost á á þessum árum. Sæunn var ákaflega ánægð með veruna í Reykjavík og er óhætt að fullyrða að þar hafi hún fengið góðan grundvöll fyrir lífsstarf sitt sem húsmóðir. Minntist hún oft þess tíma er hún dvaldi á heimili þeirra Mörtu og Friðriks (foreldr- ar Sturlu Friðriks), með þakklæti og hlýhug. Árið 1939, þann 28. október, giftist hún eftirlifandi manni sín- um, Sigurði Hannesi Sigurðssyni vélstjóra, og áttu þau tvö myndar- börn, Margréti Helgu og Sigurð Elí. Á heimili Sæunnar og Hann- esar sátu börnin og þeirra framtíð í fyrirrúmi. Umhyggja hennar fyrir börnunum og ekki síður barnabörnum bar glöggan vott um takmarkalausa ástúð og hlý- hug sem Sæunn var gædd i svo ríkum mæli. Heimili hennar stóð ávallt opið öllum þeim mörgu sem sóttu hald og skjól til þessarar traustu konu, sem engum brást. Ég þakka Sæu allar þær ótöldu gleðistundir sem ég I æsku naut hjá henni í Bolungarvik. Ég minnist með gleði og þakk- læti indælla sumardaga, þegar heimili hennar varð annað heimili mitt. Alla tíð siðan hefur samband okkar haldist, treyst þeim tryggðarböndum sem hún ein gat bundið. Ég og fjölskylda mín þökkum henni allt. Ilansina Einarsdóttir. Jarðaförin fer fram frá Hóls- kirkju laugardaginn 7. maí.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.