Morgunblaðið - 26.02.1978, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 26.02.1978, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. FEBRUAR 1978 7 ,.Og þótt hann sonur væri, lærði hann hlýðni af því, sem hann leið". Væri ekki hræði- legt ef einhverjum nútíma hálfvillingi í kristindómi yrðu þau ósköp á. að fara að full- yrða um sjálfan Krist, að hann hefði lært i skóla þján- inga sinna, ..lært hlýðni af þvi, sem hann leið", eins og sjálft Ntm. (Hebr. 5) segir um hann? Er þá hitt ekki hin ..hreina trú", að hann hafi frá öndverðu verið fullkominn, og því ekkert þurft að læra? Sé sannleikans leitað við lest- ur helgra fræða, verða marg- ar spurningar á veginum, og spurnir, sem krefjast svars í nafni hans, sem á einni stærstu og jafnframt ægileg- ustu stund ævi sinnar lýsti yfir því frammi fyrir lands- stjóranum Pílatusi, að hann væri konungur sannleikans, boðberi sannleikans og þá að sjálfsögðu leiðtogi þeirra, sem sannleikans leita. Ámæl- um þungum hefur kristin kirkja tíðum af þvi sætt, að hún skoði hlutverk sitt það, að verja gömul „sannindi" i stað þess að leita nýrra sann- inda, miklu fremur það, að fletta varlega gömlum blöð- um helgiritanna en að sópa rykinu af gömlum og gulnuð- um blöðum og lesa þau síðan í nýju Ijósi Lærði Kristur hlýðni af þvi, sem hann leið, einsog Ntm. fullyrðir? Ég ætla að geyma mér að svara þeirri spurn- ingu, en spyrja Hlýöni —Þegn- skapur annarar spurnar, sem nú liggur þjóðlífi okkar nær: Höfum við lært þá hlýðni, þann þegnskap, sem tryggt geti þjóðarfarsæld og bætt þá margföldu annmarka, sem á þjóðlífi okkar eru i dag? Hann, sem Hebreabréfið segir að hafi „lært hlýðni af þvi, sem hann leið, sagði, þegar hann stóð andspænis hræðulegustu kvölum og dauða: „Verði þinn vilji, faðir, en ekki minn"! Hvilík hlýðni, — en hvað um okkur, íslenzka þjóð? Um óhlýðni unglinga og barna er talað margt, og margt að óþörfu, en muninn sjáum við vel frá því er við ólumst upp, sem nú höfum lifað nálega þrjá aldarfjórðunga. Sjálfur ólst ég að nokkuru upp i fjölmennu sveitaheimili, þar sem í hendur héldust nútim- inn og fornar heimiliserfðir og hlýðnisskylda var orða- laust virt af ungum og göml- um En getum við, hin gamla kynslóð, láð unglingum og börnum? Hvernig rækjum við hlýðnisskyldu við landslög og almannaheill? Lifum við sem hollir þegnar þjóðfélags- ins, samfélaL|sins? Við eigum meira en nóg af einstaklingshyggju en of lítið af samfélagshyggju, sem vekur hlýðni ekki aðeins við hin skráðu lög, heldur einnig við þau óskráðu lög, sem góður maður og hollur þegn vill virða til almennrar far- sældar borgaranna En ef hlýðni við landslög og holl- usta við þjóðarhag setja ekki einstaklingsfrelsinu skorður er vá fyrir dyrum. Hefur islenzkt þjóðfélag nokkuru sinni fyrr verið eins tröllriðið eiginhagsmuna- streitu og i dag? Fjármálasið- gæði hefur svo stórlega hrak- að, að iskyggilegt er. I við- skiptalífinu hefur komið i dagsljósið glæpur eftir glæp, svo að því virðast litil tak- mörk sett, hvað menn gera ekki fyrir peninga. í nafni listanna, — en hvað er list? — virðast margir óhræddir við að opna i nafni frelsisins og listanna flóðgáttir óeðli i kynferðismálum, sem menn hraus hugur við til skamms tima. Sjáum við þó ekki öll, að við verðum að endurfæð- ast til nýrrar hlýðni við æðri lög en þau, sem skefjalaus einstaklingsgeðþótti, gróða- hyggja og stundarhagur setja? Við stöndum andspænis þvi, hvernig sem fram úr þvi ræðst, að flóðalda nýrrar kjaradeilu velti yfir þjóðina, Samúð þorra þjóðarinnar er með þeim, sem skarðan hlut bera frá borði, en hvað er um hina? Standi þjóðarhagur svo höllum fæti, að fyrir dyrum sé vá, verður að sjálfsögðu til þeirra horft um þegnskap, sem við bezta aðstöðu búa i þjóðfélaginu, og til þeirra þá horft um fordæmi, sem þjóð- in hefur forystuna falið. Það hefur vakið athygli og umtal, að þótt ekki verði á það born- ar brigður, að valdhafar séu að leita þeirra úrræða, sem þeir finna bezt og treysta bezt að afstýra megi miklum efnahagsvanda og holskeflu nýrrar kjaradeilu. — þá hef- ur úr sölum Alþingis mér vitanlega ekki heyrzt nema ein rödd, og hún frá kvenfull- trúa Vestfjarðakjördæmis, sem hvetur til þess, að hinir þjóðkjörnu fulltrúar færi fyrstu fórnina. Þótt ekki leysi slíkt vandann, sem verið er að etja afli við, væri slíkt fagurt og verðugt fordæmi, og hvaðan ættum við borgar- arnir að vænta fordæmis um þegnskap og hlýðni við þjóð- arhag fremur en úr þeim söl- um, sem þeir menn sitja. sem vandamálin ættu gleggst að þekkja og alvara timans ætti að vera og er sjálfsagt Ijósust? Sjálfsagt þykir ýmsum þeim, sem þessi orð lesa, að ég sé kominn æði langt frá orðum Hebreabréfsins um Krist, sem ég vitnaði til í upphafi og fylgja 5 kap bréfsins. Ég vona að geta gert þeim orðum bráðlega betri skil: „En þótt hann (Kristur) sonur væri, lærði hann hlýðni af því, sem hann leið". Það gefi Guð, að ekki þurfi til þess böl atvinnuleysis og nýrra erfiðleika, að okkarást- kæra þjóð læri lexíu hlýðn- innar, þeirra hlýðni, sem vek- ur þegnskap við þjóðarhag. Styrkið og fegrið iíkamann Ný 4ra vikna námskeið hefjast 1 marz. FRÚARLEIKFIMI — mýkjandi og styrkjandi. MEGRUNARLEIKFIMI — vigtun — mæling — holl ráð„ SÉRTÍMAR fyrir konur sem vilja léttast um 15 kg eða meira. Innritun og upplýsingar alla virka daga kl. 13-22 í síma 83295. Sturtur—Ijós—gufuböð — kaffi — nudd. ® Júdódeild Ármanns Svipmyndir á svipstundu Svipmyndir í hvert skírteini Svipmyndir sf. Hverfisgötu 18 ■ Gegnt Þjódleikhúsinu GÆSLUVARÐHALDS- FANGELSI Tilboð óskast í jarðvinnu og steypu sökkla og kjallara gæsluvarðhaldsfangelsiisins að Tungu- hálsi 6, Reykjavík. Verkinu skal lokið 1 5. ágúst 1 978. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Borgartúni 7, Reykjavík, gegn 15 000 — kr skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 1 5. mars 1 978, kl. 1 1.30 f.h. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006 lV>iWýv»< p FERDAKYNNING: (Ðenidorm Skiphóll Hafnarfirði Sunnudagskvöld kl. 19.00. Kvöldverður. Ferðakynning: Benidorm Skemmtiþáttur: Baldur Brjánsson Ferðabingó: 3 umferðir. Danssýning: Sæmi og Didda Tiskusýning: Karonsamtökin sýna tiskufatnað frá versluninni Herrariki og versluninni Urður, Kópavogi. Dans: Hljómsveitin Dominik Borðapantanir eftir kl. 16 i sima 52502 laugardag og sunnudag Ferðamiðstöðin hf. Aöalstræti 9 Simar 11255 12940 . .

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.