Morgunblaðið - 21.03.1978, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 21.03.1978, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. MARZ 1978 5 Lista- o g menning- arvika Austur- Skaftfellinga LISTA- og menningarvika Austur-Skaftfellinga hófst á Höfn í Hornafirði í gær og er hún í beinu framhaldi af velheppnaðri slíkri menn- ingarviku 1976, segir í kynningarriti hátíðarnefnd- ar nýverið. Meðal atriða á Lista- og menn- ingar vikunni verða leiksýningar, málverkasýning, tónleikar og margt fleira. Meðal leikverka verða Grænjaxlar, sem leikarar úr Þjóðleikhúsinu og Spilverk þjóð- anna munu flytja. Þá verða fluttir kaflar úr verkum Halldórs Lax- ness. Allar kvölf' amkomurnar hefj- ast klukkan 2- 30. Lista og menningarvika AUSTUR - SKAFTFELLINGA Á HÖFN 20. - 24. mars 1978 Bók um íslenzka kaupf élagss t j óra INNAN skamms er væntanleg á markað bók er Bókaforlag Odds Björnssonar gefur út í samvinnu við Félag kaupfélagsstjóra og Samband ísl. samvinnufélaga, en bókina hefur ritað Andrés Kristjánsson og fjallar hún um íslenzka kaupfélagsstjóra. Er hún samtals 172 bls. og hefur að geyma myndir og æviágrip 319 manna sem gegnt hafa störfum kaupfélagsstjóra hjá kaupfélögum í Sambandi fsl. samvinnufélaga frá byrjun sam- vinnustarfs hérlendis. Þá er einnig greint frá því í Sambandsfréttum að væntanleg sé bók sem beri heitið Samvinnu- hreyfingin á Islandi, sem sé lýsing á félagsiegri uppbyggingu og atvinnurekstri samvinnufélag- anna á íslandi. Hefur Eysteinn Sigurðsson unnið að ritun þeirrar bókar og er henni ætlað að koma í stað bókar Jónasar Jónssonar frá Hriflu um sama efni og bókar Benedikts Gröndals. Blómleg starfsemi Íslenzk-ameríska félagsins í Kalifomiu Tvær úr stjórn Islenzk-ameriska félagsins, Helga Pétursdóttir t.v. og Bibi Sæberg. Lög og reglu- gerðir um fjölbýlishús HÚSEIGENDAFÉLAG Reykja- víkur hefur tekið saman og látið prenta lög og reglugerðir um fjölbýlishús ásamt sýnishorni af skiptayfirlýsingu. Taka lagaregl- ur þessar tii allra húsa, sem hafa að geyma fleiri en eina íbúð, og eftir atvikum einnig til fjölbýlis- húsa. I frétt frá Húseigendafélaginu segir að húseigendur viti oft lítið um sína réttarstöðu og sé leitazt við með þessari sérprentun að bæta úr þeirri vanþekkingu, en sérprentunina má fá á skrifstofu félagsins. ÍSLENZK-AMERÍSKA félagið í Suður-Kaliforníu hélt árshátíð sína fyrir skömmu og sóttu um 150 manns þorrablótið. í frétt frá félaginu segir, að hátíðin hafi farið vel fram, enda sé það ekki áhverju ári, sem hangikjöt sé á borðum þar. Meðal gesta voru þau Halla og Hal Linker. Starfsemi félagsins hefur verið mjög blómleg að undan- förnu, haldin hefur verið garðveizla og hefur verið ráðgerð önnur slík hinn 17. júní. í stjórn félagsins eru þrjár konur ættaðar úr Reykjavík, Bibi Sæberg Carza, Helga Pétursdóttir Rósantsson og Lóla Bergs- dóttir Holland. FuHar búðir af nýjum stórglæsilegum vörum fyrir páskana. Fermingarföt fyrir stráka og stelpur aldrei meira úrval. Opiö laugardag 25. marz kl. 9—12. TÍZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS mVKARNABÆR Laugaveg 20 Laugaveg 66 Austurstræti 22 Glæsibæ Simi 28155

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.