Morgunblaðið - 21.03.1978, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 21.03.1978, Blaðsíða 27
r MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. MARZ 1978 27 Kazimierz Deyna skorar 1 iandsieik gegn Júgóslavíu. Hann er einn hinna sjö leikmanna úr bronslifti Pólverja sem mynda kjarna póiska liðsins í Argentínu í sumar. Pólverjar byggja á liðinufrá HM'74 ALDREI hefur pólsk knattspyrna risið eins hátt og þegar pólska landsliðið vann gullið á Ólympíuleikunum 1970 og síðan bronsið á HM í V-Þýskalandi 1974. Eftir þessa miklu velgengni kom greinilegur afturkippur, sem líklega hefur átt rætur sínar að rekja til of mikils álags á fáa lykilmenn, en fyrstu mánuðina eftir HM lék pólska liðið hreinlega illa og það var ekki fyrr en í undankeppninni fyrir HM í Argentínu í sumar, að liðið sýndi glefsur af fyrri getu. Þó að heildarútkoman úr landsleikjunum síðan á HM 1974 sé frekar ósannfærandi, þá vann liðið alla þá leiki sem máli skiptu og Pólverjar tryggðu sér sæti í Argentínu í sumar á kostnað Portúgal, Danmerkur og Kýpur. Helsta breytingin sem orðið hefur síðan á HM 1974, er sú að þjálfarinn Kazimierz Gorski hefur lagt upp laupana, en aðstoðarmað- ur hans Jazek Gmoch hefur tekið við stjórninni. Hann hefur þó ekki gert neinar stórkostlegar breyt- ingar og sjö þeirra leikmanna sem léku með hinu sigursæla liði 1974, mynda kjarna HM liðs Pólverja að þessu sinni. Það eru markvörður- inn kunni Jan Tomaschewsky, bakverðirnir Antoni Szymanow- sky og Wladislav Zmuda, tengilið- irnir Henryk Kasperczak og Kazi- mierz Deyna, auk framherjanna Gregorz Lato og Andrezei Szar- mach. Til þess að byggja utan um þennan sterka kjarna, hefur Gmoch reynt í kringum 50 leik- menn í hinum ýmsu stöðum. Pólverjar munu sakna miðvarðar- risans Jerzy Gorgon, en hann er, nú kominn í eilífðarbann hjá landsliðinu vegna óreglu í drykkjusiðum, en miðvarðarstöð- urnar eru líklegar til að vera fylltar af þeim Henryk Wieczorek og Zbigniew Plaszewski. Zibgniew Boniek er mjög líklegur í þriðju miðvallarstöðuna og Wlodi Lubanski í þriðju framherjastöð- una. Gmoch hefur ekki tilkynnt hóp sinn endanlega, en fróðir menn telja sig geta séð í hendi sér hverjir hljóta náð auk þeirra sem þegar eru nefndir, þeir eru: Markverðir: Krzystov Sobieski og Stanislav Burzynski, varnarmenn: Henryk Maculewicz, Wojzek Rudi og Marek Dziuba, tengiliðir: Jan Erlich, Adam Nawalka og Bohdan Masztaler, framherjar: Stanislav Terlecki, Marek Kusto og Krzystov Iwan. Pólverjar eru í þriðja riðli, ásamt heimsmeisturunum V-Þjóð- verjum, Mexico og Túnis, léttur riðill á pappírnum, en Pólverjar myndu gera vel að telja sig ekki örugga fyrirfram í átta liða úrslitin. Líklega bursta öll liðin Túnis, en Mexikanar gætu gert Pólverjum skráveifu ef þeir mæta til leiks með röngu hugarfari. Pólsk alþýða er búin að ganga út frá því að lið þeirra komist í átta liða úrslitin, en Jazek Gmoch hefur um þetta mál að segja: „í fljótu bragði mætti ætla að við værum í léttasta riðlinum og kæmumst átakalaust í átta liða úrslitin, en málið er samt ekki svo einfalt, því að Mexikanar eru tilbúnir að refsa okkur fyrir sigurvissu og við minnumst þess að þeir gerðu jafntefli við Vest- ur-Þýskaland, 2—2 á siðasta sumri. Möguleikar okkar eru samt mjög miklir, heimsmeistararnir eiga ekki unnin leik gegn okkur og lið Túnis er talið mjög slakt á heimsmælikvarða". Svo er að heyra, að Gmoch sé mjög bjartsýnn, en sé þó að reyna að hafa hemil á sigurvissunni. Takist honum og leikmönnum hans það, má telja víst að Pólverjar verði meðal átta síðustu landsliðanna. — gg Gróði Dana 44 milljónir DANIR voru bjartsýnir um þær mundir er Ileimsmeistarakeppninni í handknattleik lauk og þeir héldu því fram að gróðinn af mótshaldinu yrði ekki undir tveimur milljónum danskra króna. Nú er hins vegar komið í ljós að gróðinn hefur þegar minnkað um helming og enn eru ekki öll kurl komin til grafar. Reikningarnir hafa streymt inn til danska sambandsins og enn eru að berast nótur úr hinum ólfklegustu áttum. Greinilegt er að skipulagið hefur brugðist hjá Dönum á nokkrum punktum, en þeir geta varla kvartað yfir því að fá 44 milljónir króna í hrcinan gróða. Auk þess fengu þeir mikla auglýsingu og frábær frammistaða landsliðs Dana er mikil auglýsing fyrir íþróttina innan Danmerkur. VELDI HART- ONOHRUNIÐ LIEM Swie King frá Indónesíu sigraði landa sinn Rudi Ilartono í einliðaleik í badmin- ton í All-England keppninni á W'embley á laugardaginn, en Ilartono hefur unnið þennan titil átta sinum síðustu árin. King sigraði næsta léttilega 15—10 og 15—3 í úrslitaviður eigninni. I einliðaleik kvenna sigraði Giliian Gilks frá Bretlandi japönsku stúlkuna Saori Kondo 11 —1 og 11—9. í tvíliðaleik karla sigruðu þeir Tjun Tjun og Johan Wahjudi frá Indónesíu í fjórða skiptið á fimm árum. nú landa sína Christian og Ade Chandra, 15,-12 og 15-8. í tvfliðaleik kvenna unnu Tokudo og Takada þær Uenu og Ynoekura. 18—16 og 15—6 og í parakeppni vann enska parið Tredgett og Perry það danska. Skovgaard og Koppen, 15-7 og 15-4. Morten Frost og Svend Pri áttu ekki mögúleika á móti Indónes- um að þessu sinni. I ID TC|/|/| I li Cm 1_Nk ■ Um helgina fór fram allmikið alþjóðlegt sundmót í Bremen í Vestur-Þýzkalandi og meðal'úrslita á mótinu voru eftirfarandi. 400 metra skriðsund kvenna. Tracy Wickman (Ástraiíu) á 4,16.78 800 metra skriðsund kvenna. Tracv Wickman (Ástralfu) á 8.30,69 200 metra skriðsund karla. Ron McKeon (Ástralfu) á 1.54,34 200 metra flugsund kvenna. Linda Ilanel (Ástralíu) á 2.14,65 100 metra bringusund kvenna. Sue .Nielson (Danmörk) á 1.13,77 400 metra boðsund kvenna. Sue Nielson (Danmörk) á 4.59,65 Aðal stjarna mótsins var hins vegar Tékkinn Miroslav Rolko. sem var sigurvegari í 400 metra boðsund karla. 200 metra baksundi og 100 metra flugsundi. Enginn setti þó heimsmet. Enn sigur hjá Stenmark SVÍINN Ingemar Stenmark héit upp á 22 ára afmælisdag sinn á laugardaginn með því að sigra í stórsvigskeppnini. sem fram fór í Arosa í Sviss. Þetta var fyrsti sigurinn hjá Stenmark síðan hann tryggði sér heimsbikarinn í Garmisch-Partenkirchen fyrr í yetur. í öðru sæti varð Andreas Wenzel, en það nægði honum ekki til þess að skjótast í annað sætið á heimshikartöflunni. en það sæti vermir Phil Mahre frá Bandarfkjunum. LokaKtaAan í hoimshikarnum varö Klaus ilridPKKor (Austurríki) þossi, Horbort iMank (Italfu) Ingimar Stenmark (Svíþjóð) JokoI Walohor (Austurríki) Phil Mahro (Bandaríkin) • Hoini Hemmi (Sviss) Andreas Wenzel (Lioehtenstein) Piorrt. (iros (Itaiiu) Verður Túnis að hætta við HM NÚ UM heigina var landslið Túnis í knattspyrnu dæmt í tveggja ára bann frá keppnum í þeirri heimsálfu. eftir að leikmenn liðsins höfðu gengið af leikvelli allir sem einn í landsleik gegn Nígeríu. Töldu þeir. að mark. sem Nígeríumenn skorúðu og jöfnuðu stöðuna f 1.1, hafi verið ólöglegt. enda hafði iínuvörður gefið merki um það merki. sem dómarinn tók ekkert mark á. Talsmaður FIFA lét það frá sér fara, að bann þetta þyrfti ekki að þýða það. að Túnis yrði meinað að leika í lokakeppni HM í Argentínu í sumar. þar sem liðið leikur í riðli með Mexikó. PóIIandi og VesturÞýzkalandi, slíkt kæmi aðeins til tals ef að knattspyrnusamband Afríku færi fram á það sérstaklega og það hefur ekki verið gert ennþá a.m.k. Verði slík fyrirspurn borin fram. mun FIFA ræða málið í agancfnd og ákveða þar hvað gera skuli. en enn sem komið væri hefði FIFA ekki einu sinni verið tilkynnt formlega um bannið. POCÍeOeA SIVJKJOSS SICOICAC. ACí&SAÍe H’3Í4, ^AAE.ceJvAVJKJÍkJos\ SH&SSOAI CHIZ.O A HAEZeCÍ VCAVJT- írSC fc FJoeoW ■í»'lkJIOOKA KAAClc SJVAVJeCA e'itt, o<í. vití t-veie ■s.oífcjCJíSe?. Tvö heimsmet SOVÉZKI lyftingamaðurinn Yurik Varanian setti tvö heims- met á lyftingamóti. sem fram fór í Moskvu á laugardaginn. Varani- an. sem keppir í 82.5 kg þyngdar flokki. jafnhattaði 210 kg og samtals lvfti hann 375 kg. Ba'ði voru nvet hans 2.5 kg betri en þau gömlu. sem áttu þeir Rolf Milsre frá Vestur-Þýzkalandi (jafnhött- un) og Trendafil Stoichev frá Sovétrfkjunum (samanlagt).

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.